Tíminn - 14.08.1949, Síða 2
TÍMINN, sunnudaginn 14. ágúst 1949
170. biað'
f
S 3
S l
'Jrá kafi til heiía
I dag.
Sólin kom upp kl. 5.13.
Sólarlag kl. 21.48.
Árdegisflóð kl. 9.25.
Síðdegisflóð kl. 21.42.
í nótt.
Næturlæknir er í iæknavarðsstof
unni í Austurbæjarskólanum, sími
5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1660.
Næturakstur annast bifreiðastöð
in Hreyfill, sími 6633.
Hvar eru skipin?
Eimskip.
Brúarfoss fór frá Kaupmanna-
höfn 9. ágúst var væntanlegur til
Reykjavíkur kl. 20.00 í gærkvöld.
Dettifoss kom til Reykjavikur 11.
ágúst frá Leith. Fjallfoss er í Rvík.
Goðafoss kom til New York 7. ág.
fer þaðan væntaniega 15. ágúst til
Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Vestmannaeyjum 12. ágúst tii
Hamborgar, Antwerpen og Rotter
dam. Selfoss fór frá Leith 10. ág.
til Reykjavíkur. Tröilafoss kom tii
Reykjavíkur 9. ágúst frá New York.
Vatnajökuil kom til Grimsby 12.
ágúst frá Vestmannaeyjum.
Flugferðir
Loftleiðir.
í gær var flogið til Vestmanna-
eyja (2 ferðir), ísafjarðar, Akur-
eyrar, Patreksfjarðar, Flateyrar,
Þingeyrar og Bíldudals. Einnig var
flogið milli Hellu og Vestmanna-
eyja.
í dag er áætlað að fljúga til Vest
mannaeyja (2 ferðir), ísafjarðar og
Akureyrar.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja (2 ferðir), ísafjarð
ar, Akureyrar, Hólmavikur, Sands
og Siglufjarðar.
„Geysir" kom frá Stokkhólmi og
Kaupmannahöfn ki. 18.00 í gær,
fór til New York kl. 20.00, væntan-
legur aftur á morgun.
,,Hekla“ kom frá Prestwick og
Kaupmannahöfn kl. 18.30 í gær fór
til London kl. 8.00 í morgun, vænt-
anleg aftur um kl. 23.00 í kvöld.
stjóii, Skólavörðustíg 17, Reykjav.1
Afmaeli.
Sigmundur Jónsson bóndi á
Syðravclli í Gaulvarjabœjarhreppi
varð fimmtugur 26. júií síðastlið-
inn. Hann er fæddur að Rútstaða
norðurkoti í Flóa, sonur Rannveig-
ar Sigurðardóttur frá Biúnum og
Jcns Árnasonar frá Hlíðarenda-
koti. — Sigmundur gekk ungur í
Hvanneyrarskóla og hefir unnið
hih margvíslegustu störf um æv-
ina, en mest við landbúnaðinn!
Hann er velmetinn dugnaðarmað-
ur og áhugasamur um almenn mál,
enda gengt ýmsum trúnaðarstörf-
um í sveitarfélagi sínu.
Afmæli.
Bjarni Sigurðsson, bóndi, Hofs-
nesi, Örœfum. varð fimmtugur 1.
ágúst síðastliðinn. Hann er kvænt-
ur Lydiu Pálsdóttur ijósmóður frá
Svínafelli. Þau hafa lengst af búið
á Hofsnesi, sem er föðurleifð
Bjarna, og gert þar miklar um-
bætur. — Bjarni í Hofsnesi hefir
gengt mörgum trúnaðarstörfum
fyrir sveit sína. Átt sæti í hrepps-
nefnd um aldarfjórðung, lengi í
stjórn búnaðarfélagsins og formað
ur lestrarfélags Óræfinga um langt
skeið, enda áhugasamur mjög um
bókleg fræði, búnaðarmál og mesti
atorku- og dugnaðarmaður, að
hverju sem hann gengur.
Afmæli.
Jón Bóasson, bóndi, Eyri, Reyð-
arfirði, varð sextugur 27. júlí síð-
astliðinn. Hann er fæddur í Borg-
argerði í Reyðaríirði 27. júlí 1889.
Bróðir Gunnars heitins Bóasson-
ar útgerðarmanns og þeirra syst-
kina. — Jón kvæntist 1914, Guð-
laugu Jónasdóttur frá Stuðlum í
Reyðarfirði. Eiga þau þrjú upp-
in börn og tvö fósturbörn. ÞaU
bjuggu nokkur fyrstu árin á Sléttu
við Reyðarfjörð, en síðan á Eyri,
við rausn og myndarbrag. Hefur
hann unnið þar mjög að jarðar-
, bótum og byggingum. — Jón Bóas
son er kunnur dugnaðarmaður,
I greiðvikinn og Ijúfmenni í allri
I framkomu. Hann er mjög áhuga-
, samur um a’.menn mál, ötull stuðn
j ingsmaður Framsóknarflokksins og
samvinnustefnunnar, og alls þess,
er til framfara horfir.
■
ililf
Snotur baðmullarkjóll.
Úr ýmsum áttum
Fröken Guðríður Þorkelsd.
sneri heim til Danmerkur með
Gulifaxa í gær, eftir heimsóknina
til gamla landsins. Hér í Reykjavík
dvaldi hún hjá fjö'skyldu Hjalta
heitins Jónssonar konsúls. Kvaðst
hún hafa haft ósegjanlega ánægju
ítf dvölinni, ferðaðist um Borgar- (
fjörð, á Suðurnes, til Þingvalla og
viðar, og kvaðst yfirleitt hafa ver-
ið borin á höndum af vinum og
frændum.
ísfiskssala.
Bjarni riddari seldi 242.3 smál.
í Bremerhaven 11. þ. m.
Tvisýn keppni í 1. fi-
Úrslitaleikurinn milli Vals og
Fram í landsmóti 1. flokks fór fram
á föstudagskvöld. Valur vann með
2:1 eftir jafna og harða keppni.
Leikar standa því þannig nú, að
þrjú félög, Fram, Valur og Víking-
ur eru jöfn, með 4 stig, og verða 1
því að leika aukaleiki til úrslita.
K.R. hlaut ekkert stig.
GÚO BÚKAKAUP,
Úrvalsbækur sem áður kostuðu 50—60 krónur fást |i
nú fyrir kr. 25. Bækurnar eru þessar: t
«
Þeir gerðu garðinn frægan 1—2 bindi j
og Dáðir voru drýgðar
Saga Nolseyjar-Páls og fleiri afreksmanna. Þeir gerðu
garðinn frægan er ævisaga. Þættir 69 h eimsfrægra
manna og kvenna, skrifuð með þeim snilldarbrag, að
ekki er á færi nema afburða rithöfunda, en er Dale
Cornege löngu orðinn heimsfrægur fyrir bækur sínar.
Þættirnir eru um eftirtaida menn og konur.
Messur í dag:
Ilallgrímskirkja.
Messað í dag kl. 11.00 f. h. Séra
Jakob Jónsson. Ræðuefni: ,,Milli
mín og dauðans er aðeins eitt fót-
mál.“
Dómkirkjan.
Messað í dag kl. 11.00 f. h. Séra
Jón Aúðuns.
Laugarnesprestakall.
Messað kl. 11.00 f. h. Séra Garð-
ar Svavarsson.
Bessastaðir.
Messað kl. 2 e. h. í dag.
Árnað heilla
Hjóuabönd.
Nýlega voru gefin saman I
hjóhaband af séra Halldóri Kol-
béins í Vestmannaeyjum, ungfrú
Elínborg Jóhannsdóttir frá Vest-
mannaeyjum og Guðmundur Þór-
arinrson, íþróttakennari, Haðar-
stíg lO, Reykjavík.
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band," ungfrú Ásta Skúladóttir,
vérzlunarmær frá Stykkishólmi. óg
Kríst’ján Sigurgeirsson, bifreiða-
• O
u
Nú er dýrt að greiða sér!
Alþýðublaðið sagði éftirtektar- '
verða sögu í fyrradag. Greiður1
hafa verið ófáanlegar í búðum um 1
langt skeið, en Alþýðublaðið segir,
að þær séu sefdar á svörtum mark-
aði fyrir gífurlegt verð — allt upp
í sextíu krónur stykkið. Má þá
segja, að dýrt sé orðið að greíða
sér.
Jafnframt skýrir blaðið frá því,
að veitt hafi verið 38 þúsund króna
gjaldeyris- og innflutningsleyfi til
kaupa á greiðum, en aðeins 3600
krónur hafi verið notaðar í þessu
skyni.
Þetta eru merkilegar upplýsing-
ar. Þær tala sinu máli um það, |
í hvaða horí innflutningsmálin eru
kopyn pg, þverpCg ,ástat,t, ,/er . um '
eftirlit .af háflfp hjpna æðstu -yifr-
valda þessara mála með því að
gjaldeyrinn sá, sem varið er til
kaupa á erlendum vörum, sé not-
aður eins og vera ber.
Þetta talar líka sínu máli um
það, hversu auðvelt það er að
skapa svartan markað í landinu
og okra á varnarlausum almenn-
íngi með því fyrirkomulagí, sem
nú ríkir. Því að þetta með greið-
urnar er aðeins eitt dæmi af mörg
um.
En hér keyrir svo um þverbak,
að lítill hlutur, sem aðeins kostar
fáa aura, skuli seldur á tugi króna,
að flestir ættu að rumska við og
taka að svipast um í þjóðfélag-
inu. Það gæti svo farið, að þeir
kæmu auga á býsna margt rotið
í innfutnings- ög verzlunarmálum
okkarl' •
J. H.
Marconi
Mary Pickford
Walt Disney
Upton Sinclair
Mahatma Gandhi
Wladimir I. Lenin
Benito Mussolini
Lowell Thomas
Thomas A. Edison
AI Jolson
Wolfang Mozart
Mark Twain
Greta Garbo
Jack London
John A. Sutter
Richard Byrd
Johan Gottileb Wendel
O. Henry
Fyrra bindi
Albert Einstein
Somerset Maugham
Enrico Caruso
Demanta-Jim Brady
Hetty Green
H. G. Wells
Theodorc Roosevelt
Woodrow Wilson
Martin Johnson
Harold Loyd
John D. Rockefeller
Sinclair Lewis
Bazil Zaharoff
Mayobræðurnir
Helen Keller
Andrew Carnegie
Chic Sale
Rudolf ríkisarfi
Joshephine
Sfðara bindi
Eddie Rickenbacker
Christopher Columbus
Orville Wright
Nizaminn of Hyderabad
Charles Dodson
Vilhjálmur Stefánsson
Katrín mikla
Johan Law
Zane Grey
Edward Bok
María stórhertogaynja
Cornelíus Vanderbilt
Nikulás annar
Charles Dickens
Frú Lincoln
P. T. Barnum
Carry Nation
Theodore Dreiser
S. Parkes Cadman
Mary Roberts Reinhart
Wilfred Grenfell
Brigham Young
Lousia May Alcott
O. O. Mclntyrc
F. W. Woodworth
Evangeline Booth
Robert Falcon Scott
Bill Sunday
Moward Thurston
Leo Tolstoy
Robert Ripsley
Dáöir voru drýgðar
er bók við allra hæfi, og þó sérstaklega fýsileg ungu
fólki. — í henni segir frá margvíslegum ævintýrum,
mannraunum, svaðilförum og hetjudáðum. Sumar sög-
urnar gerast á hinum nyrztu slóðum jarðarinnar, þar
sem endalaus hjarnbreiða liggur yfir öllu og margra
vikna ferð er milli Eskimóaþorpanna, aðrar við fjalla-
vötnin í Sviss og sumar við sólheitar strendur Arabíu,
þar sem Múhameðstrúar-pílagrímar krjúpa á kné og
snúa andliti sínu til Mekku, er þeir bera bænir sínar
fram við Alla. í sumum er sagt frá háskaferðum um
jökla og háfjallalönd, eins og t. d. Tíbet, í öðrum hermt
frá hættum þeim, er yfir farmönnum vofa, bæði norð-
ur við klettastrendur Færeyja og austur á Rauðahafi.
Bókin er í stóru broti hátt á þriðja hundrað síður.
Þeir sem óska eftir að kaupa þessar bækur fylli út
eftirfarandi pöntunarseðil.
Undirrit.... óskar eftir að fá sendar i póstkröfu:
Dáðir voru drýjðar. fyrir samtals kr. 25.00
|| Þeir gerðu garðinn frægan -f- burðargjald.
Nafn
::
::
♦♦
:: Heimili
H
:: Póststöð
♦♦
♦♦
::
H
::
::
n
Sendist í pósthólf 1044.
h::::::::::::::::::::
::::::::::
S.K.T
Nýju og gömlu dansarnir 1 G. T,-
húsinu sunnudagskvöld kl. 9 —
Húsinu lokað kl. 10.30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30.
Auglýsið í TÍAAANUM