Tíminn - 14.08.1949, Page 8
„ERLENT YFIRLIT“ t DAG:
Athmsun á sturfsmannahíddi.
33. árg. Reykjavík
„Á FÖRmJM. VEGI“ í DAG:
er dtjrt a® ?§rei&a sér!
170. folað
Góður árangur af
námskeiðum Hand-
íðaskólans
•
Au^turríska kennslukonan,
ungfrú Grete Blahowsky, er
kennt hefir föndur og leik-
fangagerð á námskeiðum í
Handíða- og myndlistaskól-
anum, hélt heimleiðis um síð
ustu mánaðamót, eftir 2ja
mánaða dvöl hér á landi.
Þátttakendur í námskeið-
um þessum voru kennarar og
börn (5—9 ára). Tilhögun
kennslunnar var sú, að frá
kl. 9—12 á h. kenndi ungfrú
Blahowsky kennurunum, en
yngri börnunum (5—7 ára)
kl. 1 yz—2i/2 og stálpaðri
börnunum kl. 3—5 síðd.
Námskeiðum þessum, er
lauk um miðjan júlí s.l. voru
allvel sótt, einkum barna-
námskeiðin og komust þar
færri að en vildu. — Árangur
kennslunnar var mjög góð-
ur, enda er ungfrú Blahow-
sky ágætur kennari með
mikla og langa reynslu að
baki sér. Nokkuð af hinni
fjölbreytilegu vinnu barn-
anna frá fyrstu vikum nám-
skeiðanna var sýnd á afmæl
issýningu skólans í lista-
mannaskálanum.
Svo sem kunnugt er gerir
gildandi námsskrá barna-
skólanna ráð fyrir því, að öll
um börnum í 7 og 8 ára
bekkjum skólanna sé kennt
iriargs konar föndur, er veiti
þeim „tækifæri til að kynn-
ast af eigin raun eðli marg-
víslegs efnisviðar, læra að
fara með hann og hagnýta
hann í námi og leik. Föndur
glæðir hugkvæmni bam-
anna, gefur þeim tækifæri
til- listrænnar sköpunar og
eflir handlagni þeirra og verð
ur þeim þannig beinn undir-
búningur að hinu skipulega
verknámi, sem tekur við af
föndrinu.“
Vegna hinnar góðu reynslu,
er fékkst af starfi ungfrú
Blahowsky’s hér, svo og
vegna nauðsynjarinnar á því
að sem tryggust undirstaða
verði lögð að kennslu þeirri
í föndri, sem hin nýja náms-
skrá barnaskólanna gerir ráð
fyrir, hefur Handíða- og
myndlistaskólinn nú boðið
henni kennarastarf við kenn
aradeild skólans í eitt ár. Á
þeirn tíma er gert ráð fyrir
að hún hafi kennt nemend-
um kennaradeildar skólans
það, er nægir til þess að þeir
geti síðar haldið starfi henn-
ar áfram. Verði beiðni henn-
ar um orlof í eitt ár frá starfi
sinu í Austurríki samþykkt,
mun ungfrú Blahowsky taka
boði Handíða- og myndlista-
skólans. Auk kennslu í kenn-
aradeild skólans mun hún
einnig kenna börnum á nám
skeiðum, sem haldin verða í
húsi skólans á Grundarstíg
2 A.
Ný brú á Ósá
Nýlega er lokið smíði brú-
ar yfir Ósá í Bolungarvík.
Brú þesi er úr steinsteypu,
31 metri á lengd.
pP
EitthvaS líkt þessu er umnorfs á hafsbotni
Frá Stokkhólms-för
glímumanna Ármanns
Eins og áður hefir verið skýrt frá var 12 manna glímu-
flokki frá Glímufélaginu Ármann boðið til Svíþjóðar til
þess að sýna íslenzka glímu á íþróttaheimssýningu, sem
haldin er í Stokkhólmi, dagana 17. júní til 28. ágúst í til-
efni af Ling-hátíðahöldunum. Frumkvæði að boði þessu
átti Guðlaugur Rósinkranz, þjóðleikhússtjóri.
Um 70 þjóðir taka þátt í
sýningu þessari. Þátttöku-
þjóðirnar sýna auk þess flest
ar þjóðaríþróttir sínar eða
þjóðdansa. Sýningarsvæðið
ið er mjög stórt og nær yfir
um 100.000 fermetra. Þar
hafa verið reistir sýningar-
skálar, þar sem þjóðirnar
sýna þróun íþróttanna frá
fornöld fram til vorra daga,
ennfremur forn og ný í-
þróttatæki o. s. frv. Sænska
sýningardeildin er lang
stærst og hefir auðsjáanlega
verið miklu til hennar kost-
að. ísland á þarna litla deild,
en smekklega. Þar er á grein
argóðan hátt sýnd þróun í-
þróttamálanna á íslandi. —-
Mikla athygli vöktu sýn-
ingar Englands og Pakist-
an. Það þótti ákaflega fróð-
legt að sjá sýningar þessar,
enda voru þær vel sóttar.
Glímuflokkurinn hafði
þarna 5 sýningar á gríðar-
stóru útileiksviði. Sýningarn
artókust ágætlega og var
mjög vel tekið af áhorfend-
um. Á einni sýningunni voru
til dæmis um 17.000 áhorfend
ur og voru glímumennirnir
hvað eftir annað hylltir með
an á sýningunni stóð. Ann-
ars voru allar sýningarnar vel
sóttar, þrátt fyrir úrhellis-
rigningu einn daginn, svo að
menn muna ekki annað eins
í 33 ár, að því að blöðin segja
frá.
Var ferð þessi Glímufélag-
inu Ármann til sæmdarauka
og þátttakendunum til mik-
illar ánægju. Auk þess eru
ferðir sem þessar ávallt hin
bezta landkynning.
Stjórnandi flokksins er
Þorgils Guðmundsson, íþrótta
kennari.
en jrarrhey
Landbúnaðarsérfræðingur
frá Bandaríkjuntim Dr. Olaf
Aamodt að nafuh hefir að
undanförnu dv^iið hér á
landi og ferðasé|-Úm landið
til að kynnast l^triaðarhátt-
um og þá sérst^klega gras-
rækt. Hefir haljm í þessu
sama augnamiðií^iérðast um
mörg önnur Eý^ripulönd og
er ferð hans flípiri í sam-
bandi við þáttt^ri 'íslands í
efnahagsmálum^jéyrópuríkja.
Telur sérfræÍÍ|gurinn að
hér séu mjög)/sakjósanlegir
möguleikar til'igmsráekfer, en
hún er undirstöðuatriði allrar
kvikfjárræktar og því ekki
þýðingarlítið atriði í efna-
hagsafkomu hverrar þjóðar.
Þessi sérfræðingur leggur á-
! herzlu á það að bétri nýting
| fáist með þvi að 'verka heyið
1 með votheysgerð, en að
þurrka það eiris' og hér al-
gengast og á vötheysturria,
sem hentuga áðferð. Telur
hann þannig verkað hey mun
bætiefnaríkara én þurrkað.
Unutiaeli Poiiíikesa
nm landísleikfatM við
Dani
Eins og flestir bjuggust við
töpuðu íslendingar lands-
leiknum við Dani með 5 mörk
um gegn 1. Hér fara á eftir
nokkur ummæli úr danska
blaðinu Politiken um leikinn.
„Leikurinn fór mjög vel
fram og enginn harka eða
ljótur leikur sást. Grasvöll-
urinn háði íslendingum nokk
uð, og sást það bezt á knatt-
meðferð og hreyfingum
beirra, að þeir eru leiftur-
snöggir og hættulegir á mal-
arvelli, en grasvöllurinn gerði
leik þeirra hraðalausan og
varð hann því mjög við hæfi
dönsku leikmannanna, sér-
riaklega Knud Lundberg, sem
fékk nægan tíma til að byggja
eikinn sem bezt upp. Kom
betta íslendingunum mjög
illa og olli fyrst og fremst ó-
sigri þeirra. íslendingarnir
byggðu upp varnarleik, sem
orsakaði að vörnin og fram-
línan slitnuðu úr tengslum,
og sköpuðust eyður á miðju
vallarins, sem dönsku leik-
mennirnir notuðu sér óspart".
Þá eru hér ummæli blaðs-
ins um nokkra íslenzku leik-
mannanna: „f íslenzka liðinu
fylgdi maður með mestri á-
nægju hinum „tekniska“ góða
leik innher j anna Ríkarðs
j Jónssonar og Sveins Helga-
' sonar. Varamaðurinn Halldór
Halldórsson var einnig góður,
og hægri bakvörður Karl
Guðmundsson hefir góðar
staðsetningar og einnig eru
| spyrnur hans ágætar.
Markmaðurinn Hermann
Hermannsson virtist mjög
taugaóstyrkur og miðfram-
vörðurinn Sigurður Ólafsson
var of seinn og notfærði sér
ekki styrkleika sinn“.
Þá segir í lok greinarinnar:
„íslenzka markið kom eftir
innkast frá hægri hlið vallar-
ins og gaf hinn „óstöðugi" Ól-
afur Hannesson knöttinn fyr-
ir markið til Halldórs Hall-
dcrssonar sem skallaði knött-
inn í markið. Hinum norska
dómara Dæhlen sást yfir tvær
vítaspyrnur er vinstri bak-
vörður OHelgi Eysteinsson)
gerði sig sekan um í hættu-
legum upphlaupum“.
Svo mörg eru þau orð!
Oiíuféiag Islands reisir nýja
olíustöð í Lauganesi
Olíufélag íslands hefir í hyggju að reisa olíustöð mikla
í Lauganesi. Var það verk hafið í vor. Þarna eiga að verða
tíu geymar, sem taki 42500 smálestir, og er við það miðað,
að þessu verki verði lokið seint á ári 1950.
Olíufélagið bauð blaða-
mönnum að skoða það, sem
þegar hefir verið gert í hinni
fyrirhuguðu olíustöð. Skýrði
Hreinn Pálsson, forstóri, fyrir
þeim framkvæmdirnar. Er
smíði fimm geyma langt
komið, smíði þriggja hafin
og grunnar undir 2 þá síðustu
steyptir. Auk geyma verða
þarna dæluhús, verkstæði,
bílgeymslur og skrifstofur, og
sex litlir geymar til daglegrar
afgreiðslu verða einnig reist-
ir í Lauganesi.
Olíu frá stórum geymum á
að flytja í leiðslum í geym-
ana við Skúlagötu, en það-
an verður olíu dælt í skip ?
höfninni. Verða olíuleiðslurr
ar hálfur fjórði kílómetri á
lengd.
Umhverfis stöðina í Lauga
nesi verður steyptur stein-
garður mikill og traustur, og
á hann að verða til öryggis,
ef sprenging kynni að eiga
sér stað og til varnar því, að
olía flyti í sjó fram.
Nýlega fór fram í Hollandi nýstárleg keppni ltvenna. Döm-
urnar reyktu vinðla, og var vandinn fólginn í því að halda
sem lengst lifandi í vindlinum. Aðgangurinn að þessari
skemmtun var seldur, en ágóðinn rann til vindlakaupa
lianda gömlum og fátækum Hollendingum. Hér sjást tvær
danskar konur, sem þátt tóku í keppninni.