Tíminn - 01.09.1949, Qupperneq 2
2
TÍMINN, fimmtuðaginn 1. september 1949
183. blað
í dag:
Sólin kom upp kl. 6.09.
Sólarlag kl. 20.44.
Árdegisflóð kl. 1.25.
Síðdegisflóð kl. 13.50.
1 nótt:
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni í Austurbæjarskólan-
um, sími 5030. Næturvörður er
í lyfjabúðinni Iðunn, simi 7911.
Næturakstur annast bifreiða-
stöðin, Hreyfill, sími 6633.
Útvarpið
Útyarpið í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20.00 Fréttir. 20.20 Útvarps-
hljómsveitin (Þórarinn Guð-
mundsosn stjórnar): Lagaflokk-
ur eftir Delibes. 20.45 Dagskrá
Kvenréttindafélags íslands. —
Erindi: íslenzkt sveitalíf um
aldamótin (frú Sigríður Björns-
dóttir). 21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Iþróttaþáttur (Jóhann
Bernhard). 21.30 Tónleikar: Joel
Berglund og Set Svanholm
syngja (nýjar plötur). 21.45 Á
innlendum vettvangi (Emil
Björnsson). 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.05 Symfónískir
tónleikar (plötur): a) Píanó-
konsert nr. 3 í d-moll eftir
Rachmaninoff. b) Symfónía í
þrem þáttum eftir Strawinski
(nýjar plötur). 23.05 Dagskrár-
lok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell byrjaði losun í
Hangö í Finnlandi í gærmorgun.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Leith í
gær frá Gautaborg. Dettifoss er
í Kaupm.höfn. Fjallfoss kom til
London 28. ág. Goðafoss fór frá
Reykjavík 29. ág. til Antwerpen
og Rotterdam. Lagarfoss fór frá
Hull 28. ág., væntanlegur til
Reykjavíkur í nótt. Selfoss er á
Akureyri. Tröllafoss kom til
New York 27. ág. frá Reykjavík.
Vatnajökull fór frá Reykjavík
25. ág. til vestur- og noröur-
landsins, lestar frosinn fisk.
Einarsson & Zoéga:
Foldin er í Reykjavík. Linge-
stroom er í Færeyjum.
Ríkisskip:
Hekla er væntanleg til Glas-
gow um hádegi í dag. Esja fór
frá Reykjavík í gærkvöldi vest-
ur um land til Akureyrar.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skjaldbreið var
væntanleg til Reykjavíkur í
nótt frá Vestmananeyjum. Þyr-
ill er á leið til Norðurlandsinss.
Áraað heilla
Trúlofun.
Síðastliöinn laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Guðmunda Bjarnadóttir, Dals-
mynni, Kjaiarnesi, og Ingvar
Ólafsson, bifreiðarstjóri, Syðri-
Velli, Flóa.
Úr ýmsLtm. áttuni
2. flokks mótið.
Landsmót 2. flokks hélt áfram
á þriðjudagskvöld. Þá kepptu
Fram og Víkingur og varð jafn-
tefii og hvorugu liðinu tókst aó
skora.
fsfisksalan.
Þann 29. ágúst lönduðu þrir
togarar: Óli Garða 165.8 smál. i
Bremerhaven, Hallveig Fróða-
dóttir 261.1 smál. í Bremerhav-
en, og Geir 267.7 smál. í Ham-
borg. — Þann 26. ág. seldi Júpi-
ter 2343 kits fyrir 4702 pund í
Grimsby.
Samskotin til Skugga-
hlíðarfólksins.
Þessar gjafir hafa borist: Frá
Ó. Þ. kr. 100.00, frá Hrafni ékr.
50.00 og frá G. M. kr. 100.00.
Haustmót Taflfél. Reykjavíkur
Næstkomandi mánudag, 5.
sept. hefst haustmót Taflfélags
Reykjavíkur að félagsheimili
Vals við Reykjanesbraut. Teflt
verður í meistaraflokki, 1. flokki
og 2. flokki. — 1 kvöld verður
haldinn áriðandi félagsfundur í
Taflfélagi Reykjavíkur að Þórs-
götu 1 og er vænzt að félags-
menn fjölmenin.
Kurt Zier
kennari við Handíðaskólann
er á förum héðan af landi burt.
Nemendur hans og samkenn-
arar munu halda honum sam-
:sæti að Félagsheimili Verzlun-
armanna í Vonarstræti í kvöid
og liefst samsætið kl. 9.15.
Góður árangur i 200 m. hlaupi.
S. 1. laugardag náðist ágætur
árangur í 200 m. hlaupi. Finn-
björn Þorvaldsson og Guðmund
ur Lárusson hlupu báðir á 21.3
sek. og voru dæmdir jafnir, en
menn ekki á eitt sáttir hvor
hefði verið á undan.
Þessi árangur er jafn bezta
tíma þeirra á vegalengdinni, en
báðir hafa þeir náð 21.8 sek.
fyrr í sumar, Finnbjörn í keppn
inni við Bandaríkjamennina í
Osló og Guðmundur í meistara-
móti Islands.
Leiðréíting.
í blaðinu í gær var það mis-
hermt í frétt um viðbótarbygg'-
ingu á Vatnsendahæð, að send-
irinn þar yrði fluttur að Elðum.
Á Eiðum verður byggður nýr 5
kw. sendir.
::
::
„Svífur að hausti"
Kvöldsýning í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30.
(Húsið opnaði kl. 8). Aðgöngumiðar seldir kl. 2. Dans-
að til kl. 1.
Næsta sýning annað kvöld (föstudag) kl. 8,30.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 á morgun.
u:::::::::::::::::::::::::::::::::::
Síöasta skemmtiför Fáks
á þessu sumri verður farin að Lækjarbotnum, sunnud.
4. sept. Lagt af stað frá Skeiðvellinum kl- 10 árd. Menn
mæti stundvíslega og hafi nesti.
Félagsstjórnin.
Vegna framhaldsfunda
i =
Fasteignasölu-
miðstööin
Lækjargötu 10B. Sími 6530.
Annast sölu íastelgna,
sklpa, blfreiða o. fl. Enn-
fremur alls konar trygglng-
ar, svo sem brunatrygglngar,
innbús-, ilftryggingar o. íl. 1
umboði Jóns Flnnbogasonar
hjá Sj óvátrygglngarfélagi ís-
lands h.f. Viðtalstlmi alla
virka daga ki. 10—5, aðra
tima eftlr samkomulagi.
Búnaðarþings að Egilsstöðum á Völlum |
1. og 2. september n. k. í sambandi við 50 |
ára afmæli Búnaðarþingsins, verða skrif- |
stofur vorar í Reykjavík lokaðar vikuna |
| 30. ágúst til 5. september n. k.
Biinaðarfélag Islamls.
wiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiki
Endurskoðunarskrifstofa
EYJÓLFSÍSFELDS
EYJÓLFSSONAR,
lögg. endusk. Túngötu 8.
Sími 81388
KarEmannaföt
í dag og á morgun: karlmannaföt úr útlendu alullar-
tveed-efni, sem kosta kr. 365.72 (með söluskatti).
Zlltíma»
i
Bergstaðarstræti 28.
Flugferðir
Loftleiðir:
I gær var flogið til Vestm.eyja
(2 ferðir), ísafjarðar, Þingeyr-
ar, Akureyrar (2 ferðir).
í dag verður flogið til Vestm,-
eyja (2 ferðir), Akureyrar, Isa-
fjarðar, Sands, Bíldudals og
Patreksfjarðar.
Á morgun er áætlað að fljúga
til -Vestm.eyja (2 ferðir), ísa-
fjarðar, Akureyrar, Þingeyrar og
Flateyrar.
Hekla kom frá Kaupm.höfn
í gær kl. 17.30, fullskipuð far-
þegum, fer aftur í fyrramáliö
til Prestvíkur og Kaupmanna-
hafnar, væntanleg aftur á laug-
ardag.
„Sensasjón'' í bænum
Einu sinni voru uppi talsverð-
ar umræður um það, að tann-
krem væri ekki fáanlegt í þessu
landi. Nú nýiega urðu greiður
mikið umtalsefni, og sögðu sum
blöð frá því, að slík tæki gengju
nú kaupum og sölum á sextíu
krónur í höfuðstað landsins.
Aftur á móti hefir það ekki
orðið umræðuefni á opinberum
vettvangi, að tuskur til þess að
þvo með gólf hafa að undan-
förnu veriö eitt af því, sem ekki
hefir fengizt.
Nú kann vel að vera, að til
séu menn, sem telja í fullri ein-
lægni, að mætavel sé hægt að
vera án hluta eins og tann-
krems, greiðna og gólftuskna.
En samt sem áður er það ein af
„sensasjónum“ bæjarins, að nú
eru gólftuskur fáanlegar í verzl-
uninni Edinborg. Svona er al-
menningur1 dutlungafullur, að
harm'ViÍh-ekki hætta að halda
hreinu í kringum sig, þótt þessi
hundruð milljóna, sem við átt-
um einu sinni útistandandi í
gjaldeyri í öðrum löndum séu
gengin til þurrðar. Þegar, ásamt
bílum og öðru, sem verið er aö
flytja, koma gólftuskur, sem
ekki eru seldar á svörtum mark-
aði, heldur bókstaflega með
frjálsum hætti í búð, vekur það
athygli fólksins, sem alls ekki
er í þvottakvennafélaginu
Freyju. Svona er það, þegar
eitthvað fæst, sem með sanni
má segja, að komi í góðar þarf-
ir. —
Þeir, sem halda,*að þetta séu
smávægileg tíðindi, að gólf-
tuskur skuli fást, eru á villigöt-
um. Þetta eru stórtíðindi, og
maður getur jafnvel lesið þau
út úr glaðlegum svip þvotta-
stúlkna, að eitthvað meira en
lítið hefir gerzt. Það er eins og
þær vilji segja: Þarna sjáið þið
— það gerast enn kraftaverk.
J. H.
FLUGFERÐIR
til Róm á’jnnudaginn 4. september
til Kaupmannahafnar 4. september
TIL STOKKHÓLMS þriöjudaginn 6. september í
sambandi við íþróttakeppni Svía við hin Norðurlöndin.
TIL STOKKMÓLMS þriðjudaginn 13. september í
sambandi við Norrænu garðyrkjusýninguna í Hels-
ingfors.
Væntarlegir farþegar hafi samband við aðalskrif-
stofu vora, sem fyrst.
LOFTLEIÐIR H.F.
Lækjargötu 2 — Sími 81440