Tíminn - 01.09.1949, Qupperneq 4
4
TÍMINN, fimmtudagimi 1. september 1949
183. blað
Kosningin í Vestur-ísafjarðarsýslu
Þegar Alþýðublaðið birti þá
::rétt, að Ásgeir Ásgeirsson
yrð’í í kjöri í Vestur-ísafjarð-
irsýslú í haust, var það þrem
smnurn tekið fram, að þetta j
/£eri framboð Alþýðuflokksins!
jg maðurinn yrði í kjöri fyr- J
.r Alþýðuflokkinn. Það er eins
og það hafi þótt tryggara að j
láta ekki fara milli mála fyrir
Avaða flokk bankastjórinn
yrði í kjöri, enda mun honum
ætláð enn sem fyrr að verða
jppbótarmaður íhaldsins, þeg
ar á þing er komið.
lítáðstafað fólk.
Vorið 1942 sögðu leiðtogar
Sjálfstæðismanna í Vestur-
ísafjarðarsýslu, að þeir
rnyndu tryggja kosningu Ás-
geirs með því að lána honum
nokkur atkvæði: Sagði einn
peirra, að þeir ætluðu sér að
„Kontrólera“ þetta, svo að
hann fengi 50 atkvæði að
táni. Þegar til kom fannst
Sjálfstæðismönnum ástæða
cil að óttast, að Framsóknar-
clokkurinn væri sterkari en
þeir höfðu haldið, og varð því
hjálparstarfsemin víðtækari
og þyrptust íhaldskjósendur
skipulagslaust til björgunar-
innar umfram það, sem skrif-
stofur þeirra höfðu ákveðið.
En það er til marks um kosn-
ingavinnu flokksins, að þegar
kjördegi tók að halla talaði
einn af trúnaðarmönnum
Sjálfstæðisflokksins, um það
ærið áhyggjusamlega, að enn
ýæri einn ókominn af „ráð-
stafaða fólkinu." Honum var
mest 1 mun að engan vantaði
1 þá sveit, sem átti að tryggja
kosningu Ásgeirs Ásgeirsson-
ar. Hitt lá honum í léttu
rúmi, hvort frambjóðandi
flokksins sjálfs féll með fleiri
eða færri atkvæðum.
Síðasta tilraunin.
Haustið 1942 ætluðu Sjálf-
stæðismenn að heimta fylgi
sitt og venja undan Ásgeiri
það, sem honum var lánað
úm vorið. Þá var í kjöri fyrir
þá mætur maður og vel lát-
inn í héraði, Torfi Hjartar-
son sýslumaður. Úrslit urðu
þau, að Ásgeir var kosinn við
fárra atkvæða mun, en Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði minna
fylgi en Framsóknarflokkur-
inn. Þó að segja megi, að allir
þessir þrír flokkar væru mjög
jafnir í þetta sinn, hafa Sjálf
stæðismenn aldrei þorað að
bjóða þar fram í alvöru síðan.
Hagkvæm og eðlileg
verzlun.
Það er engin furða, þó að
Sjálfstæðismenn treini þing-
mannslíf Ásgeirs Ásgeirsson-
ar og berji sína eigin menn
af'kilinum, svo að hann megi
höldur bjargast úr sameigin-
iég'um skipreika.
Ásgeir hefir veriö einna á-
hrifamestur hinna „emiler-
uÁu(< í Alþýðuflokknum og
hefir þar átt hlut að margri
„réttarsætt" að tjaldabaki,
par sem augu almennings ná
e'kki til. Hann hefir lagt Al-
þýðuflokkinn í ambáttarstarf
hja heildsalavaldi Reykjavík-
ur; en reynt að treysta kjör-
fylgi sitt með því að telja
fólki í þorpum og kaupstöðum
trú um það, að bændur lands-
ins væru hið hræðilega auð-
vald og arðrængingjar, sem
þrengdu kjör alls hins mikla
fjölda við sjóinn. Trillusjó-
maðurinn í Súgandafiröi og
verkámaðurinn á Flateyri og
Efth' líalldór Kristjánsson.
Þingeyri ættu þar samleiö
með mönnum eins og Ólafi
Thors og Eggert Kristjáns-
syni, því að þeir hefðu hver
um sig einn maga. Helzta
nauðsyn þessara kúguðu
manna væri að brjóta ofríki
bændanna á bak aftur og
tryggja sér þannig léttari
skatta og ódýrari mat í mag-
ana. Og í þessu frelsisstríði
hefir Ásgeir boðizt til að bera
merki fyrir alþýðu kjördæmis
síns.
r '• *• «if
Að tryggja óhæfuverkin.
Hlutverk Á.sgeirs Ásgeirs-
sonar í íslenzkum stjórnmál-
um er það, að sækja undir
nafni Alþýðuflokksins það at-
kvæðamagn sem íhaldið vant
ar til að tryggja völd heild-
sala og braskara, halda sam-
vinnuhreyfingunni niðri og
verða hemill á framsókn
bændanna og frjálslyndra
umbótamanna við sjóinn.
Sjálfstæðismenn væru þá
ekki slyngir kaupsýslumenn,
ef þeir bæru ekki skyn á það,
hve góð verzlun það er að
styrkja Ásgeir Ásgeirsson.
Hvert atkvæði, sem þeir lána
honum hefir verið þeim eins
og hringurinn Draupnir, sem
hafði þá náttúru, að af hon-
um drupu níu hringar jafn-
höfgir. Sjaldan hafa kaup-
sýslumeún Reykjavíkur náð
hærri vöxtum og meiri gróða
af framlagi sínu en þeim
hlutabréfum, sem þeir hafa
lagt í banka AlþýÖuflokksins
hjá Ásgeiri.
Fólkið verður að rjúfa
hringinn.
Framsóknarmenn í Vestur-
ísafjarðarsýslu bjóða fram
að þessu sinni sr. Eirík J.
Eiríksson skólastjóra að Núpi.
Hann kom í héraðið fyrir 15
árum og gerðist kennari við
héraösskólann. Síðar vígðist
hann aðstoðarprestur sr. Sig
tryggs Guðlaugssonar og varð
sóknarprestur er hann lét af
þeim störfum og tók auk þess
við skólastjórn.
Sr. Eiríkur er afburðamað-
ur að gáfum, mikill kennari
og einhver snjallasti ræðu-
maður sem nú er uppi í presta
stétt á íslandi. Hann er starfs
maður mikill og nýtur óskipts
álits og viðurkenningar vegna,
hæfileika sinna.
Sr. Eiríkur gekk fljótlega í
félagsskap Framsóknarmanna
vestra og var með í ráðum um
flokkslegar ákvarðanir, svo
sem framboð og fleira, þó að
hann hefði sig annars lítt í
frammi á þeim sviðum. Hon-
um mun hafa fundizt að nóg
væri að gera, þó að hann gæfi
sig ekki sérstaklega við stjórn
málum. Auk embættisstarfa
prests og kennara og skóla-
stjóra var hann mikill áhuga-
maður um félagsmál og hefir
verið sambandsstjóri U. M. F.
í. síðan 1938. En nú er þó svo
komið, að honum hefir ekki
þótt rétt að draga sig í hlé og
skorast undan því að ganga
fram fyrir skjöldu, þar sem
mest liggur við.
Heiðarlegt fjármálalíf.
Kosningin í Vestur-ísafjarð
arsýslu hlýtur að vekja at-
hygli um allt land. Nýr maður
kemur þar inn í stjórnmála-
söguna. Frá störfum sínum
sem andlegur leiðtogi og
fræðari. í héraðinu kemur
hann og tekur upp baráttuna
við einn hinn mesta prangara
og braskara í stjórnmálum á
íslandi, því að honum er ljóst,
að einhver mesta nauösyn ís-
lenzkrar alþýðu um allt land
er að kveða niður það sam-
starf, sem Ásgeir Ásgeirsson
er aðalmaður í, enda eins kon
ar persónugervingur þessa
brasks. Framboð séra Eiríks á
Núpi er mótmæli óhlutdeil-
inna menntamanna og al-
þýðusinna gegn spyrðubönd-
um braskaravaldsins og þeirri
þjónkun, sem undir nafni al-
þýðunnar hefir verið látin í
té spilltustu fjármálamönn-
um þjóðarinar. Sjálfstæðis-
flokkurinn vill að sjálfsögðu
ekki missa Ásgeir sinn, en
einhvern tíma verður alþýðu-
fólki vestur í fjörðum nóg
boðið af heildsaladekri og
þjónustu við stórgróðavald og
fjárplógsmenn Reykjavíkur.
Góður maður hefir bent mér
á að leiðinleg mistök hafi orðið
hér í baðstofunni, þar sem Stein
grími Arasyni voru eignaðar
tvær vísur eftir Hallgrím Jóns-
son. Þetta er skylt að leiðrétta
og birti ég þvi vísurnar hér
með í annað sinn og í þetta
skipti réttar:
Unglingur kann ekki að stýra,
ýmsar stefnur knörrinn tekur,
flestir meta farminn dýra
fyrst, þegar upp á skerið rekur.
Hafðu á bátnum beztu gætur,
beygðu ei í kjölfar hinna,
mundu það, að mamma grætur
missirðu knörrinn vona þinna.
Ferðamaður hefir sent okkur
dálitia athugasemd og kemur
hún hér:
„Ég las í blaði, að það væri
mikil ánægja meðal fólks yfir
þeim þægindum, að mega setj -
ast inn í Akureyrarbílana strax
í Reykjavík og aka kringum
Hvalfjörð. Ég hélt nú samt, að
almennt þættu þetta ekki geysi-
leg þægindi. Ekki munu bílarn-
ir vera fljótari að skjótast þetta
en Laxfoss að skríða og mörg-
um mun þykja bílferðin nógu
löng milli Akureyrar og Akra-
ness og ekki biðja um meira af
þeim þægindum. Það eru líka
þægindi að komast nærri tveim
stundum fyrr á leiðarenda.
Annars væri rétt að lofa fólki
að heyra á hverju það byggist,
að stundum er fólk flutt í bíl-
um kringum Hvalfjörð, stund-
um sjóveg upp á Akranes?“
Mánudagsblaðið hefir nú hitt
á nýja aðferð til að verða sum-
um lesendum sínum til skemmt
unar, og er sízt of mikið af slíku.
Það gerir sér nú að reglu í
seinni tíð, ef það þarf að svara
einhverju í Tímanum, að
skamma þá Halldór frá Kirkju-
bóli, þó að hann eigi engan hlut
að deilunni og sé því, sem um
er deilt, alls óviðkomandi. í
sumar birtist hér í baðstofunni
bréf frá Úlfi Össurarsyni, svar
til Ajax í Mánudagsblaðinu, þar
sem var mótmælt þeim fullyrð-
yrðingum, að stúkur og ung-
mennafélög stefndu að siðleysi
gg einhver helztu einkenni
menningarlífs og kurteisi væri
að þérast. í svari Ajax eru það
svo helztu rökin, að stúku- og
ungmennafélags-„týpan“ Hall-
dór frá Kirkjubóli sé illa siðað-
ur, og þar sjáist uppeldisgildi
þessai-a félaga. — En „siðleysi“
Halldórs er það, að honum varð
einu sinni litið upp í glugga á
sumarbústað annars manns, og
sá að innan við gluggann lýsti
af ísskáp. Pólitískir aðstandend-
ur húseigandans fengu tauga-
áfall af þessu og eru sumir
hverjir ekki búnir að ná sér
enn. Það er engu líkara en þeir
viti um eitthvað hjá sér, sem
ekki er gott að of margir sjái,
sízt fyrir kosningar.
Nýlega svaraði Óskar Jónsson
í Vík hér í Tímanum rógi Mánu
dagsblaðsins um veitingahús í
Kirkjubæjarklaustri. Þessu svar
ar Mánudagsblaðið síðasta og
endar á því, að Halldór á Kirkju
bóli muni vafalaust sætta sig
vel við sóðaskapinn, en sem
betur fer sé ekki til nema einn
Halldór á Kirkjubóli. Þetta eru
rökin í varnarræðu Agnars
Bogasonar þegar hann er að
svara Óskari um Kirkjubæjar-
klaustur. Eflaust kann slikur
vísindamaður bæði sálar-
fræði og rökfræði. En hvað sem
um það er: Sjálfsagt vill Agnar
Bogason útrýma vissum tegund
um sóðaskapar — hjá öðrum,
— og það er gott svo langt sem
það nær. — En lesendur mína
bið ég að afsaka hvað ég hefi
fjölyrt um þennan nýgræðing
blaðamennskunnar.
Starkaður gamli.
K.R. vann Val 2:1
K. R. vann Val í þriðja leik síðari umferðar Reykja-
víkurmótsins með tveimur mörkum gegn einu. Ágætt veð-
úr var meðan Ieikurinn fór fram og hefði því mátt búast
við skemmtilegri leik en raun varð á. Eftir þennan leik
standa stigin þannig að Fram hefur hlotið 7 stig, K. R.
5 stig, Valur 4 stig og Víkingur 2 stig. K. R. og Valur hafa
leikið einum leik meira en Fram og Víkingur.
K.R. mætti til leiks með
tvo nýliða, Sigurð Bergsson
(bróðir Bergs markmanns)
og Hörð Felixson, og virtust
þeir báðir efnilegir, sérstak-
lega Hörður, sem var einn
bezti maður K.R.-liðsins, ef
ekki sá bezti og má einkenni
legt teljast að K.R.-ingar
skuli ekki hafa sett hann
fyrr í meistaraflokk. Og þann
ig mun það vera í 1. og 2- fl.
hjá K.R.. mikið um efnilega
stráka, sem ekki er gefið
tækifæri vegna „fastagest-
anna“ í meistaraflokki.
K.R. lék undan smá golu
í fyrri hálfleik og náðu fyrst
í leiknum sæmilegum upp-
hlaupum, en tókst ekki að
skora þrátt fyrir góð tæki-
færi. Um miðjan hálfleikinn
tekur Valur við, en leikurinn
var nokkuð þver og hraða-
laus, þó fengu þeir tvö ágæt
tækifæri, en Sveinn og Hall-
dór spyrntu yfir mannlaust
K.R.-markið. K.R. byrjaði
ákafa sókn í seinni hálfleik,
sem endaði með því að Óli B.
komst frír að Valsmarkinu
og skoraði. Við markið færist
aðeins fjör í leikinn, sem þó
varð mest þóf á miðju vall-
arins. Þegar 35 mín. voru af
leik skoraði K.R. annað mark
sitt og var það Óli B. sem
skoraði aftur, en Hermann
hefði auðveldlega átt að verja
í þetta skiptið. Nokkru síðar
fær Jóhann Eyjólfsson knött
(Framhald á 6. síöu)
Útboð á raflögnum
í leikskóla
Tilboð óskast í að leggja raflagnir í tvo leikskóla
er Reykjavíkurbær hefur í smíðum. Útboðslýsing og
I teikning af lögnunum fást á skrifstofu bæjarverk-
| fræðings gegn kr. 50,00 skilatryggingu.
\ Tilboð verða opnuð á skrifstofu bæjarverkfræðings
! mánudaginn 5. september kl. 11,30 f.h. |
Bæjarverkfræðingur |
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiitiiiiiifaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiRBiiiiiiiiiBiiiiiaiBiiiaiiiiiiBiiiiniiaiiiiiiiiiaiiiiiiiiiijl
I Stúikur óskast j
| strax til Kleppjárnsreykjahælisins í Borgarfirði. Upp- |
| lýsingar í skrifstofu ríkisspítalanna og hjá forstöðu- |
| konunni. |
s 5
■ iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiimiiimiiMiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiiuiiiiiiiMiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitniiiiiiHK
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS