Tíminn - 25.09.1949, Page 1
33. árg.
Reykjavík, sunnudaginn 25. sept 1949
204. blað
Átján ára piltur týnist í
fjárieitum á Gríms-
FJf í’~'“
fjfiSíístb íaeíir verið foseSa af s'íSaKsIi sssSan-
nm ©g í fiagvél
Eitt hornið í aðalfundarsalnum í Edduhúsinu í fyrrakvöld.
Græniandsieihangunnn kominn heim
Afli all ra þjóða heldur lélegur við
Grænland í sumar
Viðí.’tl við Steiísdoi* lljaltalín íiíjíerðar-
síjéra á Súðinai.
Síðdegis í gær var Súðin stödd út af Garðskaga á leið til
Reykjavíkur af Grænlandsmiðum og var væntanleg hingað
til bæjarins í nótt. Blaðamaður frá Tímanum átti stutt
símtal við Síeindór Hjaltalín útgerðarmann en hann er
útgeröarstjóri leiðangursins og var með Súðinni allann
tímann.
Ungur piltur i;r Vatnsaal, Zcphcnías Pálmason frá Bjarna
stöðum týntíist i fjárleitum á Grlmstunguheiði, og í gær-
kvöldi, er Tíminn fór í prentun, hafði ekkert til hans
spurzt frá því nokkru eftir að hann skildi við félaga sína,
er haldið hafði verið úr áfangastað í Öldumóðuskála í
fyrramorgun. Átti tíðindamaður frá blaðinu símtal við
Guðmund Jcnasson, bónda í Ási, og fer frásögn hans hér
á efíir:
í ofviðri suður af
Grænlandi
Ferðin heim hefir gengið
að óskum, sagöi Steindór.
Við lögðum af staö írá Fær-
eyingahöfn fyrra föstudags-
morgun. Tvo daga af leiöinni
fengum við illt veður og sjó-
gang. Var skipiö þá statt um
200 sjómilur suður af Hvarfi.
Ekkert varö þó að í óveðr-
inu, nema hvað það olli fólki
óþægindum og tafði för skips-
ins. Um borö á Súðinni er
55 manns og líður þeim öll-
um vel, ei'tir útivistina við
Grænland í sumar.
Afli um 300 lesíir
Um aflabrögðin er það að
segja, að þau hafa ekki veriö
eins góð og á hefði verið kos-
ið. Alls hafa skipin sem sam-
flota voru Súðinni, aflað
um 300 lestir, sem er mun
minna en gert hafði verið
fyrir. Sarna máli gegnir
raunar líka um skip annarra
þjóða á Grænlandsmiðum í
sumar. Eru rnenn yfirleitt
sammála um það, að mun
minni afli hafi verið þar í
sumar en i fyrra.
Upphaflega hafði Súðin
fengið leyfi til að nota
þriár hafnir við Grænland,
en þegar til alvörunnar kom
varð ekki séö að nokkur vinn-
ingur væri að því að flytja
skipið frá Færeyingahöfn.
Enda öfluðu þau skip sem
norðar fóru elckert betur en
bátarnir sem voru með Súð-
inni.
| Á mámidagskvöM:
| Fundur Felags Framsókn-
| arkvenna í Reykjavík
Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík boöar tilfund-
| ar í Tjarnarkaffi á mánudagskvöldið, og hefst fundur-
I inn klukkan 8,30. Til umræöu eru kosningarnar og
| kosningaundirbúningurinn, og verður Rannveig Þor-
| steinsdóttir flummælandi.
Allar stuðningskonur B-lisians eru velkomnar á
fundinn.
Færevingar með
65 skip
í Færeyingahöfn var margt
um menn og skip í sumar,
aðallega frá fjórum þjóðum.
Flestir voru þó Færeyingar j
en þeir voru með 65 skip.Norð- j
menn með 35. Auk þess voru
svo íslenzku skipin og fáein
dönsk skip.Skip annarra þjóða 1
voru yfirleitt á öðrum slóðum
og norðar. En þeir fáu bátar
sem Grænlendingar eiga voru |
á enn öðrum slóðum, enda
fá þeir ekki hafa samband
við skip erlendra þjóða.
Útlendingum er einnig bann-
að að hafa nokkurt samband
við land nema á leyfðum
tilteknum höfnum og einnig
bannað að skipta sér af Græn
lendingum og tala við þá. Þeir
sem voru í Færeyingahöfn í
sumar sáu þó Grænlendinga
stöku sinnum, aðallega fólk
sem var þar á. ferð.
Bauflegt líf í stórri
verstöð
í Færeyingahöfn er á sumr
in stundum um 3 þús. manns
en lítið er þar um skemmtanir
fyrir aðkomufóllc og ekkert
kvikmyndahús til dæmis. Yfir
leitt una menn hag sínum þó
vel, enda er oftast nóg að
starfa og í sumar varð aldrei
landlega hjá hátunum sem
s.unduðu veiðarnar.
Fiskurinn sem aflaðist í
sumar var fren.ur smár fram-
an af sumri, en síðari hluta
sumars veiddist stærri þorsk-
ur. íslenzku bátarnir veiddu
lítið af lúðu. enda voru þeir
ekki með' lóðir til lúðuveiða.
Norskir bátar voru þarna á
lúðuveiðum og öfluðu þeir
heldur treglega. Fiestir bát-
anna sem voru í Færeyinga-
höfn, íslenzkir og annarra
þjóða, voru með línu. Margir
Færeyingar voru þó með had-
færi og fiskuðu vel á þau,
sérstaklega upp á síðkastið,
eftir að fiskurinn fór að verða
ofar í sjónum. Norðmenn
•gerðu þarna tilraunir með
veiðar í dragnót og botnvörpu
en þær báru engan verulegan
árangur.
Allir vel búnir.
Vatnsdælir fóru í leitir á
Grímstunguheiði snemma á
fimmtudagsmorgun, ríðandi
og vel búnir að hlífðarfötum
og matföngum, eins og venja
er til. Eru þeir vanalega tvo
daga i þessum leitum.
Einn leitarmanna var
Zophónías Pálmason, átján
ára piltur frá Bjarnastöðum,
og hafði hann tvo til reiðar.
Hann var í þeim flokki, sem
leitaði um austurheiðina, og
var þar gangnaforingi Lárus
Björnsson, bóndi í Gríms-
tungu.
Sást síðast á Refskeggs-
liöfða.
Þeir félagar áttu gistingu
í Öldumóðuskála aðfara-
nótt föstudagsins, og héldu
þaðan árla morguns. Var þá
veður bjart á heiðunum, og
hefir svo verið. Dreifðu þeir
sér þá um heiðina, og hefir
Zóphóníasar ekki orðið vart
frá því nokkru eftir að leiðir
skildu, og var þá staddur á
Refskeggshöfða.
Leitarmenn sniia við.
Hvarfs Zóphóníasar varð
vart síðari hluta föstudags-
ins og sneri þá einn maður,
Gestur Guðmundsson frá
Sunnuhlíð, við til þess að
leita hans. Hann varð
piitsins hvergi var og
varð að hverfa aftur vl! svo
búið'. Voru þá enn sendir
tveir menn í leit, Þorsteinn
Sigurðsson frá Ási og Eggert
Lárusson frá Grímstungu.
Komu þeir til byggða í fyrri-
(Framhald á 7. síðu)
Utgerðarmanna-
fundur á mánudag
Útgerðarmenn hafa boðið
til fundar i Reykjavik á
mánudaginn til þess að ræða
bréf, sem hefir borizt frá
viðskiptamálaráðherra. — Á
fundinn eru boðaðir • allir,
sem gerðu út á slldveiðar fyr
ir Norðurlandi í sumar, og
svo og síldarsaltendur við
Faxaflóa.
Frystihús í smíðum
á Akranesi
Á Akranesi er nú í smið-
um stórt frystihús hjá Har-
aldi Böðvarssyni. Er það
byggt í stað þess, sem eyði-
lagðist í brunanum í vor. A
hús þetta að verða þrjár
hæðir.
Einnig hefir verið unnið
við hafnargerðina á Akra-
nesi í sumar og verkinu mið-
að vel áfram. Hefir verið
steypt ofan á eitt stóra ker-
ið, því sem sökkt var fram-
an við hafskipabryggjuna
seint í fyrrahaust.
FerðajDættir frá
Mið-Evrópu
Margrét Indriðadóttir blaða
maður er um þessar mundir
á ferðalagi á meginlandi
Evrópu, og mun hún skrifa
fyrir Tímann nolckrar greinar
um það, sem fyrir augu henn-
ar ber, í Sviss, Ítalíu og Frakk
landi, og birtist fyrsta grein-
in i þessum flokki i blaðinu
í dag.
Margrét Indriðadóttir er
tvímælalaust í allra fremstu
röð ungra blaðamanna hér á
landi, og þegar orðin þjóð-
kunn, bæði fyrir blaða-
mennsku og ágæt útvarps-
erindi.
-------
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgejandi:
Framsóknarflokkurinn
—■—<—i— -----------I
Skrifsto/ur í Edduhúsinu
Fréttasimar:
81Z02 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda