Tíminn - 27.04.1951, Page 5
93. blað.
TÍMINN, föstudaginn 27. apríl 1951.
5.
Föstud. 27. apríl
Bænadagurfnn
Þjóðkirkjan hefir almenn-
an bænadag á sunnudaginn.
Þessi bænadagur er að
ýmsu leyti nýung í kirkjulífi
íslendinga. Að vísu má segja,
að allir messudagar þjóðkirkj
unnar séu bænadagar, því að
hluti hverrar messugjörðar
er almenn bænagjörð, sem
söfnuðurinn á að taka þátt í,
og raunar eru allar kirkjuleg
ar athafnir og vígslur að veru
legu leyti sameiginlegar bæna
stundir. En að þessu sinni er
guösþjónustan einkum og að
allega helguð bænirmi í þeirri
trú, að sem víðast verði mess
að og kirkjúsókn sem bezt.
Bænadagar sem þessi tíðk-
ast víða erlendis og eru vin-
sælir meðal trúaðra og kirkju
rækinna manna. Á síðustu ár
um hefir vaknað nokkur
hreyfing hér á landi í þá átt,
að fara að dæmi erlendra
þjóða og taka upp slíkan
bænadag og því er nú svo
komið ,að það er gert.
Það þarf ekki að fjölyrða
um viðhorf trúaðra manna til
þessa bænadags, en hins er
ekki að dyljast, að ýmsir
eru lítiltrúaðir á æðri mátt-
arvöld utan og ofan manns-
ins í þessari tilveru. Kraftur
og áhrif bænarinnar er þó
svo óumdeilanleg og áþreif-
anleg staðreynd að jafnvel
margir guðleysingjar viður-
kenna. Það fylgir þvi mik-
ill kraftur, að koma saman
og sameina hugi sína í bæn.
Það er staðreynd. Enginn er
svo mikill efnishyggjumaður,
að hann treysti sér til að
mótmæla því.
Ef menn hugsa vísindaíega
og fordómalaust og halda sér
við staðreyndir, verða þeir
að viðurkenna að andi manns
ins, — mannshugurinn, —
er mismunandi móttækilegur
fyrir illt og gott. Allir þekkja
sameiginlegar hrifningar-
stundir þegar. hugirnir opn-
ást fyrir því, sem er gott og
fagurt. í upphafi var óskin
og þráin, viljinn og bænin
eru ennþá það afl, sem mót-
ar manninn. Þess vegna halda
þeir; sem trúa á framhalds-
líf mannsins og eilífan þroska
feril í einhverju formi, að
mestu skipti fyrir hvern/ein-
stakling að varðveita hjarta
sinn óskemmt, — láta hina
góðu ósk búa með sér, —
gera líf sitt allt að einum
bænadegi um betri heim.
Þegar þessa alls er gáð, er
það ekki nema eðlilegt, að
ýmsir hafi samúð með bæna
deginum og hyggi gott til
hans, enda þótt þeir séu lítil-
trúaöir sjálfir. Allir góðgjarn
ir menn, — allir mannvinir
hljóta að fagna hverju því,
sem opnar mannshugann fyr-
ir því, sem gott er og festir í
honum góðar óskir, jafnvel
þó að þeir trúi ekki, að öll
góð og fullkomin gjöf sé of-
an að frá föður ljósanna, sem
er blessaður um aldir.
Það eru nú geigvænlegir
tímar í heiminum, svo að
segja má, að mannkynið allt
nötri af kvíða. Á slíkum tím-
um svipast mörg friðvana
sál eftir hæli og öryggi. Þá
finna líka ýmsir, að það, sem
mest hefir verið sótzt eftir,
er ekki það, sem mestu varð-
ar. Það, sem skapar ham-
ingju og sanna farsæld hefir
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
SÖLUMAÐUR
Þjóðleikhúsið hefir nú haf- þess, sem gerðist fyrir mörg-
ið sýningar á amerískum ‘ um árum, við það, sem nú er
samtíðarsjónleik, þar sem erjkomið fram.
DEYR
Sölumaöur deyr eftir Arthur
Miller, er frumsýndur var á
sunnudaginn.
Þetta er ádeiluleikur, skrif
aður til að benda á veilur í
mennfngu Bandaríkjanna. —
Sölumaðurinn er tákn heill-
ar og Voldugrar lífsstefnu —
lífsstefnu verzlunar og gróða.
En hann er fulltrúi þeirra,
sem ekki verða gróðamenn.
Hann hefir að sönnu haft
góðar atvinnutekjur á tíma-
bili, en heldur ekki meira.
Indriði Waage leikur Willy
Loman sölumann, þennan ör-
þreytta, bugaða mann, sem
finnur ekki að hann eigi
nein tækifæri nema það eitt,
að leysa út líftryggingarfé
sitt. Jöfnum höndum er flétt
að saman í þessu hlutverki
napurri ádeilu á þjóðfélag
verzlunarhyggjunnar og á
manninn, sem gengur gróða-
hyggju kaupsýslunnar á hönd.
Bitrust verður þó ádeilan,
þar sem unga kynslóðin er
bónda sinn, en hún trúi því,
að hann hafi unnið íyrir
þessu. Hún veit, að vesalings
maðurinn, sem hún eiskar,
lifir á lifslýginni, og hún ger
ir allt, sem stúðlað getur að
hamingju hans og vellíðan.
verk og leikið af prýði. Kon- ! Erfiðast verður hlutverk
an veit alveg hvað manni sin hennar, þar sem hún þarf^ að
um líður og hún bregzt hon- standa vörð um sálarfrið
um aldrei. tíún lifir í stöð- manns síns gagnvart sonum
ugum ótta og kvíða hans Þeirra.
vegna. Hún veit, að hann er! Synir þeirra hjóna eru Biff
hættur að selja og pening- og Happy og leika þeir Jón
arnir, sem hann kemur með Siguibjörnsson og Róbert
eru ekki umboðslaun, lieldur Arnfinnsson þá. Biff er vask
ölmusa, sem Charlie vinur leikamaður, sem þráir íþrótt-
þeirra gefur honum, en hún ir og útilíf, en nefir hrökklast
lætur aldrei á öðru bera við I að heiman eftir misheppnað
En leikurinn hefst ekki fyrr j sýnd, tveir uppkomnir synir,
en hlutVerki hans í verzlup-
inni er lokið. Hann er orðinn
útslitinn og bilaður, svo að
hann greinir ekki á milli for-
tíðar og nútíðar, veruleika og
ímyndunar.
Verzlun er heiðarlegt starf,
meðan hún er rekin sem
þjónusta, en hér er deiit á
það, að dýrka kaupsýsluna
sem gróðaveg, og mun það
vera fyllilega tímabær ádeila
bæði hér og í heimalandi höf
undar. Það er mjög vel til
fallið, að sýna þennan leik í
Þjóðleikhúsinu eftir að Flekk
aðar hendur hafa verið sýnd-
ar þar. Það er menningar-
starf, hollusta við hina frjálsu
mannshugsj ón.
Á leiksviðinu er brugðið
upp ýmsum myndum úr for-
tíð sölumannsins og fjöl-
skyldu hans eftir þvi sem
minningarnar grípa inn í. —
Oft er þannig sýnt órofa-
sambamd atvikanna og tengsl
ómerkilegir spjátrungar, sem
íyrirlíta sjálfa sig en reyna
að gleðja sig og gylla með
lífslýgi. Miskunnarlausast af
öllu í leiknum er það, að vesa
lings l'aðirinn hefir sjálfur
stutt að því, að þannig yrðu
örlög sonanna, sem hann
elskar.
Indriði Waage sýnir þenn-
an skipbrotsmann af mikilli
nærfærni. Þrátt fyrir ævi-
langt starf hjá fyrirtækinu
er honum sagt upp vinnu án
eftirlauna, þegar hann er
hættur að geta selt. Það ger-
ir sonur gamla húsbóndans.
Þaö eru ávextir trúrrar þjón
ustu, því að trúlega hefir
Willy Loman rækt hlutverk
sitt, smjaðrað og skjallað og
jafnvel lagt sig í eins konar
skækjulifnað til að ná betri
samböndum.
Regína Þórðardóttir leikur
Lindu, konu sölumannsins.
Þetta er stórfenglegt hlut
Heimili Lomans-fjölskyldunnar. Bræðurnir Happy og Biff sitja á rúmum sínum uppi á
lofti. Myndin sýnir leiktjöldin vel, þar sem útjaðrar, eins og sumar burstirnar eru sýndir,
en hugurinn er látinn fylla í eyðurnar.
Bræðurnir Happy og Biff Loman — Róberí Arnfinnsson
og Jón Sigurbjörnsson — eins og þeir voru, liraustir og
iífsglaðir unglingar.
próf. Ef til vill verður hann
heldur karlmannlegur í með-
ferð Jóns, og meiri manns-
bragur á honum en vera ber,
en þó á hann tvímælalaust
að vera fremri bróður sínum
því að bæði kann hann að
skammast sin og langar til
að vera einlægur og sannur.
Happy hins vegar er blygðun-
arlaus heimsmaður og svall-
ari, sem ’neillar stúlkur með
ósönnum grobbsögum um af-
rek og ríkidæmi.
Haukur Óskarsson leikur
forstjórann, oflátung og upp
skafning, sem er borinn til
að vera gróðamaður, — hef-
ir tekið það að erfðum, en er
annars kaldrifjaður lubbi.
Valur Gíslason leikur Charl-
ie og Steindór Hjörleifsson
Bernard son hans. Þeir feðg-
ar eru nágrannar Lomans-
fjölskyldunnar, góoviljaðir og
hjálpsamir menn, farsæiir og
eljusamir í starfi.
I Jón Aðils leikur Ben kaup-
sýslumanninn kaldrif j aða,
(Framhald á 7. síðu.)
gleymzt og orðið út undan.
Það er bænarhugurinn, þakl:
látssemin vegna yndisleika
lífsins og góðvildin til þess,
sem er í kringum okkur.
SU nrssKoðun ryður oér nú
aftur til rúms, að það séu
þessir eiginleikar, sem eink-
um hafi úrslitaþýðingu fyrir
velferð og hamingju manns-
ins, jafnt þessa heims sem
annars. Tímanleg og eilíf, lík-
amleg og andleg hamingja
hans sé við það bundin. Og
þess vegna er það líka svo
eðlilegt, að einmitt nú þrái
þjóðin að sameinast á einum
allsherjar bænadegi til að
glæða með sér bænahuginn,
þrátt fyrir allt það, sem á
milli ber um skoðanir á þjóð
málastefnum og jafnvel trú-
arhugmyndir. Margir hyggja,
að hinn sanni bænarhugur sé
ofar öllum trúarhugmyndum
og trúarfræði.
Ef bænadagurinn tekst vel
og verður allsherjarbænadag
ur, er það vissulega styrk-
leikavottur, sem hlýtur að
glæða vonir okkar allra um
framtið íslenzku þjóðarinnar.
Þess vegna ættu menn að
hrista af sér tómlætið og
fara í kirkju á sunnudaginn
til að eiga þátt í þjóðlegri
einingu og eiga sinn þátt í
því, að gera daginn áhrifa-
mikinn og glæða bænarhug-
inn.
Willy Loman sölumaður,
Þórðardóttir, — Linda.
• ■
og Regína