Tíminn - 27.04.1951, Qupperneq 6
TÍMINN, föstudaginn 27. apríl 1951.
93. blað.
P.
Gestur Bárðarson
Síðasta tækifæri til að sjá
þessa mynd.
Sýnd kl. 7 og 9.
I»rír fólagar
Amerísk kúrekamynd.
Sýnd kl. 5.
TRIPOLI-BÍÓ
Leynifarþegar
(Monkey Buisness)
Bráðsmellin og sprenghlægi-
leg amerísk gamanmynd. Að
alhlutverk leika hinir heims
frægu Marx bræður.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
NÝJA BÍÓ
Anna Pétursdóttir]
Stórfelld og snilldarvel leikin
mynd eftir samnefndu leik-
riti Wiers-Jensen, sem Leik-
félag Reykjavíkur hefir sýnt
að undanförnu.
Bönnuð innan 14 ára
Sýnd kl. 9.
Snerting danðans
Þessi óvenju stórbrotna og
spennandi sakamálamynd
með:
Victor Mature
Coleen Gray
Richard Widmark
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
HAFNARFIROI
BÆJARBIÓ
Leikfélag Hafnarfjarðar:
„Nóttin langa“
Sýnd kl. 8,30.
Sími 9184.
Auglýsingasími
TÍ>IAAS
er »1300
LpvLuAs\jLngJ(>&uAjuiA. elu tíejtzJU
0uu/elG$id%
i
Raftnagnsofnar, nýkomnJr
1000 wött, á kr. 195,00.
Sendum 1 póstkröfu.
Gerum við straujáin og
önnur heimilistæki
Raftækjaverzlunln
LJÓS & HITI H.F.
Laugaveg 79. — Sími 5184.
Austurbæjarbíó
MAMOA
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ
RIGOLETTO
Ópera í fjórum þáttum eftir
Giuseppe Verdí. Sungin og
leikin af listamönnum við
jóperuna í Rómaborg.
Hlj ómsveitarst j óri: Tullio
Serafin.
Söngvarar:
Mario Filippeschi,
Tito Gobbi,
Lina Pagliughi.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
GAMLA BÍÓ
Öskuliuslca
(Cinderella)
Nýjasta söngva- og teikni-
mynd
WALT DISNEYS
gerð eftir hinu heimskunna
ævintýri.
Sýnd kl. 5 og 9.
Hljómleikar kl. 7,15.
HAFNARBÍÓ
RAIIÐÁ
(Red River)
Afar spennandi og viðburða-
rík ný amerísk stórmynd.
Aðalhlutverk:
John Wayne,
Montgomery Clift,
Johanne Dru.
Bönnuð innan 12 ára.
Sýnd kl. 9.
Svaðilför
(Danger Passage)
Afarspennandi amerísk
mynd.
Aðalhlutverk:
Robert Lwerry
Philip Brooks
Sýnd kl. 5 og 7.
ELDURINN
terir ekki boð á undan aér.
íelr, iem eru hyggnfr,
tryggja strax hjá
SamvinntJtrygrgrlngum
Aikrlftarsímlt
TIMIWRí
áikrlfesdKP.
Dýralækninga-
máliit
(Framhald af 4. síðu.)
Eftir sex ár má því gera ráð
fyrir að 5 nýir dýralæknar ís-
lenskir útskrifist. Þá munu
tveir af starfandi dýralækn-
ur dýralækna eru yfirleitt
aðsdýralækna. Námstími
ið dýrara, því dýralæknis-
fræði er aðeins hægt að nema
við erlenda háskóla, aukatekj
um í landinu vera orðnir meir
en 65 ára gamlir, svo þetta er
litil fjölgun. Þessir ungu
menn eiga eftir að ljúka
námi. Þeim getur snúist hug
ur ef framtíðarhorfur í dýra-
læknisstarfinu eru ekki góð-
ar. Á þriðja ári geta þeir t. d.
þreytt um námsgrein og farið
að nema læknisfræði eða tann
læknisfræði því undirbúnings
menntun er sú sama í þess-
um fögum. Dýralækna er líka
víðar þörf en á íslandi.
Eina færa leiðin fyrir bún
aðarþing til þess að fjörga
dýralæknum í landinu einsog
með þarf, er þessvegna að
vinna að því að lífskjör dýra
lækna í öllum dýralæknis-
embættum 1 landinu geti orð
ið eftirsóknarverð bæði hvað
launakjör snertir og ekki síð-
ur aðstöðuna til búsetu á
hverjum stað.
Þessa stefnu í dýralækna-
málum hefði þurft að taka
fyrir mörgum árum því þá
myndi öðru vísi horfa. Þá
hefði ekki þurft innflutning
útlendra dýralækna, sem er
bráðabirgðalausn og sem er
til þess fallin að hindrað eðli
lega fjölgun íslenzkra dýra-
lækna.
Bragi Steingrímsson
Afnrðasöliilögin
(Framhald af 3. síðu.)
Fjárplógsmenn Sjálfstæðis-
flokksins gátu ekki rekið
starfsemi sína á þessu sviði
lengur. Og vegna þess eins
var Mogginn látinn spúa níði
og ósannindum um íslenzka
mj ólkurf ramleiðendur.
STROKKAR
5 lítra, kr. 385,00. — 10 lítra,
kr. 464,00.
♦iwmmi ■■ ii rirn-ii-i -ar-gE'
JLÍU & Í
♦ ♦v» ♦■■»♦■♦ ♦♦♦♦«»♦ ♦♦♦
S E L J U M
allskonar notuð húsgögn og
aðra húsmuni í góðu standi
við hálfvirði. Pakkhússalan,
Ingólfsstræti 11. Sími 4663.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Laugardagur kl. 20.00.
Hellög Jóliaiina
eftir B. Shaw.
Anna Borg í aðalhlutverki.
Leiks,tjóri: Haraldur Björnsson.
Aðgöngumiðar seldir frá kl.
13,15 til 20,00 daginn fyrir sýn-
ingardag og sýningardag.
Tekið á móti pöntunum.
Simi 80000.
uJ4eitln
Bernhard Nordh:
'onci
VEIÐIMANNS
1. DAGUR
I.
Jón Einarsson kom vagandi heim hlaðið. Hann var loðin-
brýndur, og djúpar rúnir milli augnabrúnanna, og virtist
vera þungt hugsi. Hann gaf því engan gaum, þótt kötturinn
nuddaði sér fleðulega utan í buxnaskálmar hans. En hann
beyrði, að fjósdyrnar voru opnaðar og síðan lokað aftur.
Samt hélt hann áfram heim að bæjardyrunum, án þess að
líta við.
Eldri dóttir Jóns kom úr fjósinu meö sína mjólkurfötuna
í hvorri hendi. Hún dró andann ofurlítið dýpra, þegar hún
sá aftan á föður sinn hverfa inn í fordyrið, og hvatti heldur
sporið. Yrði ekki hjá því komizt, þá mátti það eins koma
strax! Hún var ekki nein kveif, sem laut höfði eða flúði í
skúmaskot.
Faðir hennar var setztur við stóra borðið í eldhúsinu,
þegar Ingibjörg kom inn. Stúlkan leit á klukkuna á veggn-
um. Það var að minnsta kosti hálftími til venjulegs morg-
unverðar. Elín og vinnustúlkan voru enn að mjólka, og
vinnumaðurinn var ekki kominn frá morgunverkunum. Hún
bætti á eldinn og lét kartöflupottinn yfir. Það boðaði eitt-
hvað, að faðir hennar var kominn inn í eldhús og setztur
við autt borðið.
Jón Einarsson hvessti augun á dóttur sína.
— Það var gestur hjá þér í nótt, sagði hann allt í einu.
Ingibjörg vatt sér að honum og horfði beint í augu hon-
um, hiklaus og óhrædd.
— Jæja. Og hvað meira? Ég get mér þess til, að það hafi
einhver komið og heilsað upp á móður mína líka, áður en
hún giftist. Er ég ekki orðin nógu gömul til þess að sjá fótum
mínum forráð?
— Aldurinn er nægjanlegur, svaraði hann dræmt. En ég
vil segja þér, að ég kæri mig ekki um neinn flæking fyrir
tengdason.
— Erlendur er ekki neinn flækingur!
— Það er Tatarablóð i æðum hans.
— Það eru ekki margir dropar.
— Nógu margir, og þú ert ekki sú, að þú þurfir að sætta
þig við hvað sem er. Það er nóg til af efnilegum mönnum.
Hin bláu augu Ingibjargar skutu gneistum.
— Erlendur er nógu góður handa mér, sagðí hún hnakka-
kerrt.
— Hann er að minnsta kosti ekki nógu góður handa þess-
ari jörö, svaraði faðir hennar.
— Það er ekki sök Erlends, þó að hann sé fæddur af fá-
tæku foreldri.
— Það lemur enginn hvolpinn, þótt hann sé fæddur af
tík. En það leggur enginn hvolpinn í sæng hjá sér.
Nú svall Ingibjörgu móður. Faðir hennar varð þó fyrri til
máls.
— Hlustaðu á, Ingibjörg, sagði hann. Við skulum ræða
þetta af stillingu. Hugsaðu þér Erlend bónda á þessum bæ
— ekki lifi ég um alla eilífð. Hér færi allt beina leið til hel-
vítis, og það á skömmum tíma, ef hann setzt við stýrið.
— Það getum við ekki fullyrt, faðir minn.
— Jú. Það get ég. Ég set það ekki svo mjög fyrir mig,
að hann er snauður. En það er enginn dugur í honum. Það
færir ekki björg í bú að nudda fiðlu eða flækjast með byssu
um lerldur annarra manna.
— Þeir, sem ekki eiga jörð og bú, verða að bjarga sér
með byssu. Hvar ætti hann að brjóta land? Bændurnir hafa
hrakið fátæklinga upp í skógana, þar sem jarðvegurinn
er ekki annað en urðir.
— Urðirnar þar eru ekki erfiðari en svo, að maður, sem
mergur er í, getur gert þær að nytjalandi. Akrar bænd-
anna hérna hafa ekki verið gósenland frá örófi alda. Einu
sinni var þéttur skógur, þar sem þessi bær er, og það líður
ekki enn það sumar, að við vinnum ekki að grjótnámi. Gott
land fær enginn fyrirhafnarlaust. Það veiður að vökva það
með svita. Urðir — jú! Grjót — náttúrlega! Sá, sem ekki er
gæddur einbeittum vilja, situr fastur í urðunum, sem hylja
gróðurmoldina.... Nei — lokaðu dyrunum fyrir þessum
náunga. Þú átt völ á betra mannsefni.
— Ég vil engan annan!