Tíminn - 08.07.1951, Blaðsíða 8
„ A FÖRNWM VEGI“ t RAGt
Sporiatt fólh
8. júM 1951
151. blað
Vinna nýhafin til undirbúnings
skrúðgarði í Öskjuhlíðinni
' Þrjátíu stúlkui* lir viimuskóla hæjarins j
t ryðja |>ar land ©g’ byrjað á plægingn
Það mun verða Reykvíkingum gleðiefni að frétta, að
þrjátíi’ 14—-1G nra stúlkur úr vinnuskóla bæjarins eru und-
ir 3-járn E. B. Malmquists, ræktunarráðunautar bæjarlns,
Þyrjaðar að ryðja land í Öskjuhlíðinni os vinna þar fyrstu
handtökni við undirbúning skrúðgarðs.
unnu fyrstu handtökin til
Skjólgarðar hlaðnir.
Það er norðvestan í Öskju-
hlíðinni, sem vinnan er haf-
in, og er lausagrjóti þar rutt
ofan af og hlaða stúlkurnar
því, sem meðfærilegt er, í lága
skjólgarða. Hefir komið í ljós,
að jarðvegur er víða ekki svo
mjög erfiður, og þarna er
stórt svæði, sem virtist hæg-
lega mega plægja.. Er einnig
byrjað að vinna þar að plæg-
ingum með Ferguson-dráttar
vél.
Grjótgarðarnir liækka
hitastigið.
Grjótið, sem rutt er ofan af,
kemur í góðar þarfir. Þarna
er áveðra, svo að ekki veitir
af því skjóli, sem grjótgarð-
arnir gefa, en auk þess hækka
slíkir grjótgarðar beinlinis
hitastigið. Grjótið drekkur í
sig 'sólarhitann og geislar hon
tiffi aftur frá sér á nóttunni.
Er talið, að meðalhiti um
vaxtartíma jurtanna geti á
þennan hátt hækkað um hálft
annað stig.
Um þetta munar eigi lítið
hér á landi, þar sem hitastig-
ið er í lægsta lagi fyrir ýms-
an gréður, sem þó er ræktað-
ur hér í görðum.
Una vinnunni vel.
— Ég veit ekki betur en
stúlkurnar unj þessari
vinnu vel og þyki hún
skemmtileg, sagði E. B. Malm
quist við tíðindamann frá
Tímanum i gær, er hann
spurðist fyrir um vinnuna í
Öskj uhlíðinni.
Þótt smátt sé nú af stað
farið, verðum við að vona, að
þarna rísi upp fagur skrúð-
garður áður en langir tímar
liða, og þá verður skemmti-
legt fyrir stúlkurnar að minn
ast þess, að það voru þær, sem
j undirbúnings garðinum, sum
arlð, sem þær voru í vinnu-
skóla bæjarins.
Á fimmta hundrað
unglingar.
E. B. Malmquist sagði enn-
1 fremur, að í vinnuskólum bæj
arins og skólagcrðunum væru
nú á fimmta hundrað ungl-
ingar. í skclagörðunum eru
118, en í vinnuskölanum eru
250 dreng:r og 100 stúlkur.
Oatis var sérlega
hættulegur njósnari
vegna fiess að hann leitaði ætíð staðfest*
ing'ar á frétíum sínum, segir sakswknarinn
Bandaríski blaöamaðurinn William Oatis, sem dæmdur
var í tíu ára fangelsi í Tékkóslóvakíu á dögunum, hefir nú
verið flúttur til fangelsisins, þar sem hann á að afplána
dóm sinn. Hann er fyrsti erlendi blaðamaðurinn, sem fær
fangelsisdóm í Tékkóslóvakiu, en • tveim öðrum hefir áður
verið vísað úr landi fyrir njósnir.
Meðsakborningaí hans þrír,
tékknesku blaðamennimir, er
verið hcfðu í þjónustu Associa
ted Press i Prag fengu 16—
20 ára fangelsi. Þeir lýstu því
allir yfir að þeir mundu ekki
Kynnti sér matvælaeftirlit /
og B-vitamínrannsóknir
Undanfarna átta mánuði hefir Sigurður H. Pétursson,
gerlafræðingur og starfsmaður atvinnudeildar Háskólans
dvalizt í Bandaríkjunum á vegum efnahagssamvinnustjórn-
árinnar og unnið að rannsóknum í þágu íslenzkra atvinnu-
yega einkum að því er varðar eftirlit við framleiðslu á niður
soðnum og frystum fiski. Sigurðúr er nú nýkominn heim.
Féll í sjóinn, maröist
til dauða við skipiö
Xorsknr sclveiðihátur frá flammerfest
kom moð líkið til ísafjarðar í fyrradag
Frá fréttaritara Tímans á ísafirði.
Selveiðiskipið Veiding frá Hammerfest í Norður-Noregi
kom í fyrradag til ísaf jarðar með lík eins af áhöfninni. Hafði
hann dáið af slysförum, er skipverjar voru að veiðum norð-
ur í höfum.
Kramdist til bana við
skipshlið.
Slysið gerðist með þeim
hætti ,að maðurinn féll í sjó-
inn, er hann ætlaði að stökkva
út á ísinn, þar sem verið var
að selveiðunum, en ísinn rak
svo fljótt að skipshliðinni, að
hann kramdist þar til bana,
áður en félagar hans fengu að
gert.
Treg selveiði.
Skipið var búið að vera
þrjár vikur í íshafinu norður
af Vestfjörðum, er slysið varð,
en selveiðin hefir verið treg,
og kenna, skipverjar aðallega
um þrálátri þoku yíir ísnum,
þar sem selurinn heldur sig.
Heiraaskagi — nýtt
og vandað vélskip
Um þessar mundir hleypur
af stokkunum glæsilegur bát
ur í slippnum á Akranesi. Er
það Heimaskagi, eign sam-
nefnds hlutafélags. Báturinn
smíðaður að öllu leyti á Akra
nesi. Er það stærsti bátur,
sem bátasmíðastöðin þar hef
ir smíðað. Bátur þessi kem-
ur í stað vélskipsins Þorsteins
sem þetta útgerðarfélag
missti i fyrra, er það sökk
fyrir Norðurlandi.
Fimm mánuði af dvöl sinni
vestra vann Sigurður að rann
sóknum í vísindastofnun
bandaríska innanrikisráðu-
neytisins í Seattle í Washing-
tonríki. Hina þrjá mánuðina
skoðaði hann ýmsar visinda-
stofnanir og kynnti sér starf-
setoi þeirra, og jafnframt at-
hugaði hann nýjustu tæki til
gerlarannsókna og gæðapróf-
unar á fæðu og ýmissi mat-
vælaframleiðslu.’
Vöndun niðursuöuvara.
Starf Sigurðar vestra beind-
ist einkum að þvi að kynna
sér sem bezt allt er varðar
hreinlæti og vöndun niður-
soðins og hraðfrysts fisks,
sömuleiðis að ferðir til þess að
kotoa í veg fyrir að freðfiskur
þorni við geymslu, svo sem
með betri íshúðttn og hentugri
umbúðum. Þá kynnti hann sér
ránnsóknir á B-vitamínum og
bættar aðferðir við gerlarann
sóknir á vatni og mjólk.
Margt, sem hæfir liér.
í bráðabirgðarskýrslu, sem
Sigurður hefir ritað um för
sína, lætur hann þess getið,
að margar hinna nýju starfs-
aðferða er hann kynnti sér,
megi koma í framkvæmd hér
(Framhald á 7. síðu.)
Æskufólkið frætt um gróður landsán<
áfrýja dóminum, en hins veg
ar hefir hinn opinberi ákær-
andi ákveðið að áfrýja dómi
Oatis og kref jast þess að hann
verði þyngdur.
Oatis sagði aðeins, er dómur
inn hafði vetið kveðinn upp:
Ég bið um það eitt að fá að
dvelja einhvers staðar, þar
sem ég get pnnið eitthfað til
nytsemdar. Hinn opinberi á-
kærandi taldi Oatis mjög
hættulegan njósnara vegna
þess, að hann kynni að meta
hið rétta gildi fréttanna og
léti aldrei undan fyrr en hann
fengi fréttir sínar staðfest-
ar í einstökum atriðum.
Engir fréttamenn frá
Vestur-Evrópu.
Engir fréttamenn frá vest-
urveldunum fengu að vera
viðstaddir réttarhöldin, en á-
heyrnarfulltrúi frá banda-
ríska sendiráðinu fékk að
hlýða á yfirheyrslurnar.
Þegar málið var tekið fyrir
í síðasta sinn, var framburð-
ur Oatis á þessa leið: Ég yðr-
ast þess að ég hef tekið þátt
í þessum njósnum. Ég veit,
að ég hef aðeins skaðað sjálf
an mig með því og hjálpað
fjandmönnum tékkneska rík-
isins. Ég hef unnið gegn hug-
sjón friðarins og stutt að
nýrri styrjöld.
Réttarhöldin fóru fram í
Pankraq-fangelsinu í Prag,
þar sem Oatis hefir verið í
haldi alla tíð síðan hann var
tekinn fastur 23; apríl að-
eins viklu eftir að tékknesk
stjórnarvöld höfðu fram-
lengt dvalarleyfi hans í land
inu fram til júníloka. Eng-
inn hefir fengið að hafa sam
band við hann þennan tíma
í fangelsinu og hann virtist
sljór og sinnulaus, er hann
var leiddur inn til síðasta rétt
arhaldsins.
I;
Hvar eru skipin?
Bandaríkjastjórn hefir enn
einu sinni itrekað fyrirspurn
sína til rússnesku stjórnar-
innar um það, hvar þau 670
! skip, sem Rússar fengu á
| stríðsárunum frá Bandaríkj-
' unun: samkvæmt láns og leigu
kjörum séu niðurkomin. Er
þetta í fiórðá sinn; sem
! Bandaríkin biðja um svör við
þessu.
Ingólfur Davíðsson magister með flokk stúlkna úr vinnuskóla Reykjavíkurbæjar í garð
inum við Slurluliúsin við Laufásveg. Hann ú skýrir fyrir stúlkunum leyndardóma jarðar-
gróðans, segir þeim nöfn á jurtum, trjám og jurtahlutum og gerir þeim grein fyrir grasa-
fræðilegum hugtökum. — E. B. Malmquist veitir vinnuskólanum forstöðu, og vinna ungl-
ingarnir einkum að undirbúningi. að skrúðgarðaræktun á bæjarlandinu.
RáSSstcfna um jap>
önsku friðar^anin
ingana
Bandaríkjastjórn hefir á-
kveðið að boða til ráðstefnu
í San Francisko í sumar, þar
sem rætt verði um friðar-
samningana við Japan. Hefir
öllum þjóðum, er eiga hér hlut
að máli verið boðiö að senda
(Ljósm.: Óskar Gíslason) fuiitrúa á ráðstefnuna.