Tíminn - 20.09.1951, Qupperneq 2
X
2.
TIMINN, fimmtudaginn 20. september 1951.
.A'sfv' ,f »fi
212. blaff.
jrá kafi til heiía
Utvarpib
Útvarpiff í kvöld:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Einsöngur: Else Brems
syngur (plötur). 20,45 Dagskrá
Kvenréttindafélags íslands. —
Upplestur: „Félagar", smásaga
eftir Victoríu Benediktsson (frú
Estrid Brekkan). 21,10 Tónleik-
ár (plötur). 21,15 Frá útlöndum
(Benedikt Gröndal ritstjóri).
21,30 Sinfónískir tónleikar (plöt
ur). 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 Framhald sinfónísku
tónleikanna. 22,35 Dagskrárlok.
Útvarpiff á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,30 Útvarpssagan: „Upp við
Fossa“ eftir Þorgils gjallanda;
XII. (Helgi Hjörvar). «21,00 Tón
leikar (plötur). 21,35 Erindi:
NÓrðlenzk höfuðból — Möðru-
vellir í Hörgárdal (Brynleifur
Tobíasson yfirkennari). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Vinsæl lög (plötur). 22,30 Dag-
skrárlok.
Hvar erti skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell losar kol á Vest
fjörðum. Ms. Arnarfell lestar
saltfisk á Þingeyri. Ms. Jökulfell
er í Guayaquil.
Ríkisskip:
'Hekla er á Austfjörðum á norð
ufléið. Esja er í Reykjavík. Herðu
breið var á Hornafirði í gær
á suðurleið. Skjaldbreið er í
Reykjavík. Þyrill var í Hvalfirði
í gær. Ármann var í Vestmanna
eyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 18. 9. frá Antverpen. Detti-
foss fór frá Reykjavík 17. 9. til
Hull, London, Boulogne, Ant-
verpen, Hamborgar og Rstter-
dam. Goðafoss fór frá Gauta-
borg 18. 9. til Reykjavíkur. Gull
foss fór frá Leith 18. 9. til Kaup
mánnahafnar. Lagarfoss er í
New York, fer þaðan væntan-
lega 26. 9. til Reykjavíkur.
Reykjafoss kom til Sete í Suður
Frakklandi 15. 9., fer þaðan
væntanlega 20. 9. til Hollands.
Selfoss er í Reykjavík. Trölla-
foss kom til Reykjavíkur 18. 9.
frá Halifax.
Úr ýmsum áttum
Andlálsfregn.
Fyrir nokkru, 29. ágúst, lézt í
Ethridge í Montana-fylki í
Bandaríkjunum íslendingurinn
Gunnar Hjartarson, sextíu ára
að aldri. Dó hann mjög snögg
lega af hjartaslagi. Gunnar var
fæddur á Langanesströnd. Hann
fór til Kanada og þaðan til
Bandaríkjanna 1911, og kvænt
ist 1916 Rósu Gunnlaugsson frá
Wynyard í Saskatchewan. Lifir
hún mann sinn, ásamt þremur
sonum, Garðari, Hirti og Stein-
þóri. Gunnar á tvær systur og
tvo bræður á lífi hér á landi. —
Gunnar var vel metinn maður
og forustumaður í sínu byggðar
lagi.
Esperantistafélagiff
Auroro heldur fund í Aðal-
stræti'12 í kvöld, og hefst hann
klukkan níu. Gestir velkomnir.
T.B.K.
tilkynnir. Skákmót hefst
fimmtudaginn 27. september.
Þátttökulistar liggja frammi á
æfingum klúbbsins. Æfing
fimmtudaginn 20. september.
Flugferðir
Flugfélag íslands.
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyja, Ólafsfjarðar, Reyð
arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Blönduóss, Sauðárkróks og
Siglufjarðar. Á morgun eru ráð
gerðar flugferðir til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja,
Kirkjubæjarklausturs, Fagur-
hólsmýrar, Hornafjarðar og
Siglufjarðar.
Loftleiffir.
í.dag er ráðgert að fljúga til
ísafjarðar og Akureyrar. Á morg
un -er ráðgert að fljúga til ísa-
fjarðar, Akureyrar, Sigiufjarð-
ar, Sauðárkróks, Hólmavíkur,
Hellissands, Patreksfjarðar,
Bíidudals, Þingeyrar og Flateyr
ar.
Árnað heilla
Hjónaband.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband ung-
frú Valborg Westerlund, Hafnar
firði, og Hjörleifur Zófoniasson,
kennari. Heimili þeirra er á
Holtsgötu 18, Hafnarfirði. —
Séra Jakob Jónsson gaf brúð-
hjónin saman.
Leitað að hestl
(Framhald af 1. siðu.)
inn, en hann var svo stygg-
ur, að þeir náðu honum ekki
og komust ekki í námunda við
hann. Sneru þeir aftur við
svo búið.
Tilboð Gunnars á Tjörnum.
Þegar hér var komið, bauðst
Gunnar Jónsson, bóndi á
Tjörnum, fremsta bæ, til þess
að fara suður í Jökuldal til
þess að sækja hestinn, ef
hann fengi þrjá hesta til far-
arinnar. En þar sem göngur
voru byrjaðar, tókst ekki að
útvega honum hesta, sem
treyst væri í slíka för.
Þrír Akureyringar
ráðast í förina.
Dýraverndunarfélagið á Ak
ureyri hafði nú ráð uppi um
það, að senda leiðangur á
tveimur jeppum suður í Jökul
dal til þess að fanga hestinn
og skjóta hann, en áður en
það kæmi til framkvæmda,
tókst því að fá Stefán^ Stein-
þórsson á Akureyri til þess að
fara suður að Tungnafells-
jökli og sækja hestinn lifandi.
Er Stefán þrautreyndur ferða
maður og er póstur á vetrum
milli Akureyrar og Breiðu-
mýrar. Til farar með honum
réðst Albert Sigurðsson raf-
virki ,og fóru þeir í gær á sjö
hestum fram að Tjörnum. —
Þriðji Akureyringurinn, Páll
Jónsson, ætlaði þangað á
jeppa á eftir þeim, og í morg-
un hugðust þeir að leggja á
hálendið, og var förinni heit
ið í Laugafell í kvöld, en á
morgun búast þeir við að ná í
Jökuldal. Ætla þeir að reyna
að handsama Rauð í hópi
hesta sinna, enda er hann
taminn reiðhestur, og járna
hann þar innra, en niður í
Eyjafjörð koma þeir aftur að
forfallalausu á sunnudags-
kvöld.
Þorsteinn Þorsteinsson, for
maður Ferðafélags Akureyr-
ar, sem öllum mönnum er
kunnari öræfunum, sat á
fundi með leiðangursmönn-
um og forgöngumönnunum
úr Dýraverndunarfélaginu,
áður en lagt var af stað i
Forseti íslands á
ferðalagi norð-
an lands
Forseti íslands herra Sveinn
Björnsson lagði í gærmorgun
af stað norður í land. Gisti
hann á Hólum í Hjaltadal í
nótt, en fer síðan til Akur-
eyrar, að Kristnesi, á Sval-
barðsströnd og í Svarfaðardal.
Forsetinn mun koma aftur til
Reykjavíkur 25. þ. m.
(Frá forsætisráðuneytinu).
Atvinna (
♦♦
Klæðskerasveinn óskast strax. Einnig stúlka til að if
sauma karlmannabuxur í 1. flokk.
Upplýsingar í síma 81 840. p
♦♦
SAUMASTOFA GEFJUNAR, |j
♦♦
♦♦
Kirkjustræti, Reykjavík. «
Þurrkur í
Eyjafirði
í Eyjafirði hefir verið þurr
viðri í þrjá daga og stundum
allgóður þurrkur, þótt dag sé
tekið að stytta og sólargangur
orðinn skammur. Hins vegar
hefir verið liðfátt "5: bæjum
vegna gangnanna, svo að
þurrkurinn hefir ekki notazt
til fulls vegna þess. Þó hefir
mikið náðst upp af heyjum.
Hvar er Gráni i
úr Bárðardal?
Það er ekkert einsdeemi, að
hestar fari fram á öræfi og
beri þar stundum beinin og
mun ekki alltaf fást vitneskja
um afdrif þeirra.
Fyrr í sumar er t. d. talið, að
grár hestur hafi strokið fram
á öræfi og lagt upp úr Fnjóska
dal. Hesturinn er frá Hvarfi
í Bárðardal, en keyptur sunn
an úr Árnessýslu. í sumar
strauk hann og sást síðast
fara fram úr Fnjóskadal. Er
hann því að öllum líkindum
að flækjast einhvers staðar á
öræfunum eða er kannske
kominn langleiðina suður yf
ir fjöll. Líklega er ekki svo
vel, að hann hafi fundið Rauð
og sé hjá honum í Jökuldal.
þessa för, og lagði með þeim
á ráðin.
Hreppa Rauff sjálfan
í björgunarlaun.
Það er von allra, að þessi
leiðangur gangi vel, og hefir
ungfrú Edda Skagfield heit-
ið þeim Stefáni Rauð, ef þeim
tekst að bjarga honum til
byggða, svo fremi sem þetta
reynist hennar hestur.
VV.V.V.V.V/.W.V.'.V.V.V.V.V.V.V.'.V.VAVVV.VAV.V
í í
VANDLATAR húsmæður biðja um hið I;
;■ bragðgóða og Ijúffenga í*
j FLÚRUSMJÖRLÍKI j
Ji J«
:■ £ambahc(i til. áawvúimufelaefa *:
W.VAV.V.'.V^AVAWAVAW.V.W.V.V.V.VAAWWV
W.V.W.V.V.Y.V.V.V.V.WW^VA'ASV.V.V.V.V.V.V.V
\ Frá Húsmæðraskólanum \
Blönduósi
í; :■
■. Tveggja mánaða námskeið verða haldin i Húsmæðra •:
skólanum Blönduósi. Kennslugreinar: Saumar, vefnað ■:
ur og hússtjórn. Fyrstu námskeiðin hefjast 1. október. £
;• Umsóknir skulu sendar fyrir 25. þ. m. til skólastjóra £
I; sem gefur allar nánari upplýsingar. ;•
■: Skólastjóri !;
.-.V
í AV.V.V,
W.V.V.VrV.V.V.*.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V
I Í.R.-HLUTAVELTA X
S 'í
.; félagsins verður í Í.R.-húsinu sunnudaginn 23. septem- ■;
í; ber. Munum verður veitt móttaka í Í.R.-húsinu allan í;
;í daginn til helgar.-Kaupmenn og velunnarar fé- ;■
;I lagsins, hringið í síma 81 244, ef þér viljið láta sækja
■; til yðar það, sem þér getið látið af hendi rakna til fé^- ■;
í; lagsins. — I;
í; Í.R,-ingar. Hjálpið til við hlutaveltuna og mætið í í;
í Í.R.-húsinu á föstud. kl. 8,30 og eftir hádegi á laugard. í
;í - Stjórn f.R. ;í
VJVAW\W,W.W.V.V.V.V.V.V.’.V.VAVA\VVV.VíÁ
W.V.’.V.V.VAV.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.Vr’.V.V.V.V.’.VJ
í
Sölubörn
óskast til að selja merki
Heilsuhælissjóðs NLFÍ í dag.
Góð sölulaun. Afgreiðsla í
skrifstofu Náttúrulækninga-
félagsins, Laugavegi 22. —
(Gengið inn frá Klappar-
stíg).
w'.Vi
TILKYNNING
Nr. 37/1951.
Fjárhagsráð hefir ákveðið eftirfarandi hámarks-
verð á brauðum í smásölu:
Ánsölusk.: Með sölusk. :
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. .. kr. 4.07 kr. 4,20
Normalbrauð, 1200 gr. — 4.07 — 4.20
Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en af of-
an greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofan-
greint verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi,
má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarks-
verðið. —
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera
kr. 0,20 hærra en að framan .greinir.
Reykjavík, 19. september 1951,
VERÐLAGSSKRIFSTOFAN.
í
I
!■■■■■■■■
Útför
RICHARDS KRISTMUNDSSONAR,
læknis, Kristnesi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 21. september
kl. 1,30 e. h. Blóm og kransar afbeðiff, en þeim, er vildu
minnast hans, er vinsamlegast bent á S.Í.B.S.
Athöfninni verður útvarpaff.
Elísabet Jónsdóttir.