Tíminn - 25.11.1951, Side 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 25. nóvember 1951.
268. blað*
UtvarpLb
'Útvarpið í dag:
8.30 Morgunútvarp. — 9.10
Veðurfregnir. 11.00 Messa í Hall
grímskirkju (séra Sigurjón
Árnason). 12.15 Hádegisútvarp.
12.55 Útvarp af stálþræði frá
fundi Stúdentafélags Reykjavík
ur 13. þ.m. (Pramh. fundarins
útv. kl. 16.45). 15.15 Préttaút-
varp til íslendinga erlendis.
15.30 Miðdegisútvarp. — Útvarp
frá siðdegisskemmtun í Þjóð-
leikhúsinu. 16.45 Veðurfregnir.
— Framhald stúdentafundar-
ins. 18.25 Veðurfregnir. 18.30
Barnatími (Þorsteinn Ö. Steph-
ensen. 19.30 Tónleikar (plötur).
19.45 Auglýsingar. — 20.00
Préttir. 20.20 Tónlist með til-
brigðum: Farið í sirkus. Erindi:
Uppruni og innflutningur ís-
lenzku flórunnar. 21.00 Tónleik
ar (plötur). 21.25 Upplestur: Úr
ritum Benedikts Gröndal (Gils
Guðmundsson ritstj.). 21.45 Tón
leikar (plötur): Tilbrigði eftir
Arensky um stef eftir Tschai-
kowsky. 22.00 Fréttir og- veður-
fregnir. 22.05 Danslög (plötur).
— 22.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 Útvarpshljómsveitin; Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar.
20.45 Um daginn og véginn
(Gylfi Þ. Gíslason prófessor).
21.05 Einsöngur: Erling Krogh
syngur (plötur). 21.20 Erindi:
Konrad Röntgen og röntgen-
geislarnir (dr. Gísli Fr. Peter-
sen yfirlkænir). 21.45 Hæstarétt
armál (Hákon Guðmundsson
hæstaréttarritari). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. 22.10 „Fram
á elleftu stund“, saga eftir Ag-
öthu Christie; XIII, (Sverrir
Krist j ánsson sagnf ræðingur).
22.30 Tónleikar (plötur). 23.00
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell fór frá Vestm.eyj
um 18. þ.m. áleiðis til Finnl.
Arnarfell er í Bilbao. Jökulfell
lestar freðfisk á Eyjafjarðar-
höfnum.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík á
morgun vestur um land i hring
ferð. Esja verður væntanlega i
Álaborg í dag. Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleið.
Skjaldbreiö fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarhafna. Þyrill er í
Reykjavík. Ármann var í Vest-
mannaeyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
23.11. til Boulogne og Amster-
dam. Dettifoss fer frá Hull í
dag 24.11. til Reykjavíkur. Goða
foss fór frá London 23.11. til
Rotterdam og Hamborgar. Gull
foss fór frá Reykjavík kl. 12 á
hádegi 24.11. til Leith og Kaup-
mannahafnar. Lagarfoss kom
til New York 8.11., fer þaðan
25.11. til Davisville og Reykja-
víkur. Reykjafoss er í Hamborg.
Selfoss fór frá Reykjavík 23.11.
til ísafjarðar, Siglufjarðar, Ak-
ureyrar og Sauðárkróks. Trölla
foss kom til New York 19.11. frá
Reykjavík. Vatnajökull fór frá
New York 22..11. til Reykjavík-
ur.
Flugferðir
Lof tleiðir:
í dag verður flogið til Vest-
mannaeyja. Á morgun verður
flogið til Akureyrar, Bíldudals,
ísafjarðar, Patreksfjarðar, Vest
mannaeyja og Þingeyrar.
A réttri leið.
Að undánförnu hafa verið
flutt íslenzk sönglög á und-
an fréttum hádegisútvarps-
ins. Þótt þessi tími, sem
þarna er ætlaður íslenzkum
sönglögum sé stuttur, er
þetta virðingarvert, og mun
almenn ánægja yfir þessari
nýbreyfni. Hafa ýmsir haft
orð á því við blaðið, að skylt
sé að þakka þessa nýbreytni,
sem þá er gert hér með.
Það er skylda ríkisútvarps
ins að leggja rækt við ís-
lenzka þjóðmenningu og
stuðla að því á allan liátt að
íslenzk þjóðerniskennd og
heilbrigður þjóðernismetnað
ur glæðist. Það eitt gefur okk
ur rétt til þess að lifa sem
þjóð, að við eigum þjóðlega,
íslenzka menningu, og án
þess værum við Iítilsverður
.dropi í hafi þjóðanna, dæmd
ir til að gleymast og týnast.
Allt, sem íslenzkt er, á að
verða helgara en allt annað,
og metnaður okkar fyrir
hönd þjóðar okkar og þjóð-
ernis okkar mesta dýrmæti.
Árnað heitla
85 ára
er í dag Sigurgeir Jónsson, org-
anleikari á Akureyri.
Sextugur
er í dag Jón Ingólfsson bóndi
að Breiöabólsstað í Reykholts-
dal.
Fimmtugur.
Sigurður Samsonarson, starfs
maður hjá kaupfélaginu á Flat
eyri, er fimmtugur í dag. Hann
hefir staðið framarlega í íþrótta
hreyfingunni og tekið mikinn
þátt í margs konar félagsstörf-
um.
Úr ýmsum áttnm
Gestir í bænum.
Jónas Jóhannsson, bóndi í
Öxney, Jón Ingólfsson, bóndi á
Breiðabólstað í Reykholtsdal.
Leikfangahappdrætti Víkings.
Skyndihappdrætti Víkings
um hin 60 þýzku úrvalsbarna-
ieikföng og tvær ferðir með Gull
fossi til Kaupmannahafnar, eru
í fullum gangi í verzluninni
Stálhúsgögn Laugaveg 45.
Fyrirkomulag happdrættis-
ins er þannig, að þeir, sem
; kaupa miða geta samstundis
séð hvort þeir hafa hlotið vinn
ing. Verða miðarnir, sem kosta
2 krónur, seldir í áðurnefndri
^ verzlun um helgina.
Tónlist eftir Hallgrím Helga-
1 son í danska útvarpinu.
Næstkomandi þriðjudag verð
ur flutt tríó fyrir fiðlu, celló og
píanó, eftir Hallgrím Helgason
í danska útvarpið. Hefst útvarp
ið kl. 17.40 eftir dönskum tíma.
Einn þekktasti fiðluleikari
Ðana, Börge Helfred, kapel-
meistari i Vivex, flytur verkið
ásamt fleirum.
Kvenréttindafélag Islands.
byrjar fræðsluhring um trygg
ingamál næstkomandi þriðju-
dagskvöld klukkan 8,30 í skrif-
stofu félagsins, Skálholtsstíg 7.
Sverrir Þorbjarnarson trygg-
ingarfræðingur mun leiðbeina.
Félagskonur tilkynni þátttöku
næstu daga klukkan 10—1 ár-
degis í síma 2398 og 5056.
í leikfangahapprdætti Heilsu-
hælissjóðs N.L.F.Í.
eru 426 vinningar að verðmæti
kr. 40.000, — allt glæsileg og
vönduð ensk barnaleikföng, m.
a.: 272 uppdregnir bílar, 15 teg.
af ýmsum stærðum, 1 stórt upp
lýst brúðuhús, 8 herb. og bíl-
skúr og 7 minni hús með 4 herb.,
8 stórir, stignir, bílar, t.d. bruna
bíll, jeppi, traktor o.fl., 7 bens-
ínstöðvar með bílageymslum,
10 þríhjól og 12 hlaupahjól, 10
sett sandkassaleikföng og 13
sprellikarlar, 4 brúðuvagnar og
5 brúðukerrur, 12 brúðustólar,
17 brúður, sem tala og ganga
25 stór brúðurúm, 2 brúðueld-
hús með öllum eldhúsgögnum
og vörum. 2 brúðuþvottahús og
stór brúðuklæðaskápur, 3 verzl-
anir- með vörum, vog o. fl., 2
rafmagnsjárnbrautir og stór
vörukrani, 11 hraðbátar.
Búið er að draga út vinnings
númer svo að menn sjá hvort
þeir hafa unnið um leið og þeir
kaupa miða, en vinningarnir
verða afhentir fyrir jól.
Miðarnir eru seldir í Austur-
stræti 6 og þar eru munirnir til
sýnis. — Opið verður til kl. 9
á kvöldin.
Allur ágóði af happdrættinu
rennur til byggingar heilsuhæl-
is N.L.F.f.
Dagsbrúnar- og Kíjumenn;
Laugardaginn 1. desember
verður sjónleikurinn Dóri sýnd
ur í Þjóðleikhúsinu fyrir með-
limi Dagsbrúnar og Iðju. Að-
göngumiðar með sömu kjörum
og áður verða seldir í skrifstof-
um félaganna, og hefst sala á
miðvikudag.
Óþarfi að kippast við.
Jóhanni Þ. Jósefssyni hefir
fallið það svo illa að Tíminn
sagði í græskulausum gaman-
tón frá smáatviki, sem gerðist
í þingsölum á fimmtudaginn,
að hann hefir látið Morgunblað
ið birta leiðréttingu og afsökun
en brigzlar Tímanum um leið
um óheiðarleik og ranghermi.
Athugasemdin ber þó með sér
að rétt var frá skýrt atvikum,
en það var alger óþarfi af Jó-
hanni að kippast svo mjög við,
því að það snertir raunar á eng
an hátt hann sjálfan persónu-
lega. S(líkt gamanatvik hefííi
getað komið fyrir fleiri þing-
menn og hægt að segja frá því
um hvern þingmann sem var.
Og þótt Jóhann væri eitthvað
annars hugar, hefir Tímanum
aldrei komið til hugar að. drótta
því að honum, að hann hafi
verið undir áhrifum í þingsal,
enda kunnugt, að Jóhann er
hinn mesti hófsmaður i þeim
efnum.
(Framhald af 1. síðu.)
um minnst þremur til fjórum
venjulegum íbúðum.
Tæki þessi eru gerð til'
brennslu á jarðolíu, en hún er
allmiklu ódýrari en dieselolía, |1
sem mest er notuð til kynding- :
ar í húsum nú. Tæki þessi kosta [
11 til 15 þús. kr.
Tímmn liefir ekki
miimzí á nein tilho@
Vísir skýrir svo frá í gær,
að AlþýSublaðið og Tíminn
hafi sagt, að fyrir lægju til-
boð frá einstaklingum um að
takast á hendur rekstur Þjóð
leikhússins. Þetta er algerlega
rangt að því er snertir Tím-
ann. í honum hefir hvergi
verið orð um það, að slík til-
boð væru fyrir hendi, og er
blaðinu algerlega ókunnugt
um það.
Bókmenntakynning
og menningar
hcltfuS Gunnari Gunnarssuni
verður kl. 13,15 í Austurbæjarbíó
Leikararnir
Þorsteinn Ö. Stephensen,
Herdís Þorvaldsdóttir,
Lárus Pálsson.
lesa upp úr verkum skáldsins:
BORGARÆTTINNI,
SKIPUM MEIÐRÍKJUNNAR,
SVARTFUGLI,
ÓREYNDUM FERÐALANGI.
Aðgöngumiðar á 5 krónur seldir við innganginn
Mál og menning
I
Aformað er að hafa
T ómstundakvöld
(Kvöldvöku)
í samkomuhúsinu Röðlf, uppi, þriðjudaginn 27. þ. m.,
kl. 8,30 e.h.
Ðagskrá kvöldsins:
1. Samsöngur með píanóundirleik.
2. Tilsögn í prjóni, liekli og útsaumi.
3. Sameiginleg kaffidrykkja.
4. Kvikmyndasýning.
Allar ungar konur og stúlkur velkomnar.
Samtök kvenna.
Teppagerðarnálar
Höfum nú fengið tvær gerðir af teppanálum, hinar
þekktu
All-nál og Alacliii-nál
Einnig höfum vér fengið striga munstraðan og
ómunstraðan ásamt tvinna og römmum.
Verð á nálunum
kr. 45
GEFJUN—-IÐONN
Kirkjustræti 8. — Sími 2838
Gerist áskrifendur að
iJímanum
Askrlftivrsfmi Í3ES
FYRIRLIGG J ANDI:
vatnskassaelement í jeppa.
Önnumst viðgerðir á alls konar vatnskössum.
Einnig nýsmíði og viðgerðir á benzingeymum og hljóð-
deyfurum bifreiða og annarra ökutækja.
Framleiðum þakrennur og rör, einnig þakglugga.
Sent um allt land gegn póstkröfu.
Blikksmiðjan Grettir
Brautarholti 24. Símar 2406 og 7529.
Áskriftarsími Tímans er 2323