Tíminn - 25.11.1951, Page 8
35. árgangur.
Reykjavík,
25. nóvember 1951.
268. blað.
MEÐAL SAMVINNUMANNA Á AUSTURLANDI III.
Á Stöðvarfirði hefir kaupfélagið
treyst grundvöll atvinnulífsins
Björn Stefánsson:
Verðmætari afurðir.
Stöðvarfjörður er einn
hinna austfirzku fjarða, þar
sem fjöllin og hin fagra nátt-
úra móta svip fólksins og við
mót, og sjórinn, sjósóknin og
nostursöm nýting takmark-
aöra landgæða er þunga-
miðja lífsbaráttunnar.
Á Stöðvarfirði og Breiðdals
vík starfar eitt af yngi kaup-
félögum landsins, sem með
tuttugu ára starfi hefir tek-
izt að bæta lífskjör fólksins
og treysta aíkomumöguleik-
ana með' hagkvæmum tækj-
um til að nýta framleiðsluna
og skapa sem mest verömæti
fyrir fiskinn og kjötið.
Þegar trillubátarnir
fara í róður.
Á kyrrum sumarkvöldum
leggj a Stöðvarfj arðartrillurn
ar út fjörðinn til fiskiveiða,
hver á eftir annarri. Hinir and
stuttu skellir olíuvélanna
bergmála milli fjallanna og
sjómennirnir sitja við stýri,
og dunda við að ganga frá
lóð og athuga um hnúta á
belgjum eða sökku, meðan
báturinn özlar út fjörðinn.
Útgerðin er að mestu bund
in við trillurnar og venjuleg-
ast gefast þær vel. Menn eru
sjálfs síns húsbændur á sjón
um; og útgérðarkostnaðurinn
er tiltölulega lítill. Útgerðin
gengur meöan eitthvað fæst
úr sjónum, en áhyggjurnar
fara vaxandi vegna aukinnar
ágengni stærri skipa á land-
grunninum. Landgrunnið er
landareign fiskimannanna á
ströndinni, tún þeirra og ak-
ur, þar sem engu má ræna,
án þess að hegnt sé fyrir.
Auk myndarlegs trillubáta-
flota er einn stór þilfarsbát-
ur, Víðir, gerður út frá Stöðv
arfirði af óvenjulegri hagsýni
og dugnað af eigepdunum,
sem sjálfir starfa á bátnum.
i Frá bryggjunni
beint á túnið.
Með morgninum fara trill-
j urnar aö týnast að landi, og
' koma hver af annarri. Oft er
þaö góðs viti, ef seint er kom
j ið að, og það gleður augu
þeirra aðstandenda, sem fylgj
| ast með ferðum bá'tanna, er
þeir sjá þá rista djúpt undir
j góðum afla. Því miður hefir
sú sjón verið heldur sjaldgæf
i sumar og .haust.
Flestir sjómanna í Stöðvar
firði eru landbændur öðrum
þræði og sinna biiverkum
milli þess, sem sjórinn er
stundaður. Hvert heimili, að
kalla, á sinn túnblett, og mörg
tún eru innan takmarka kaup
túnsins. Þegar þurrkdagur er
að sumrinu fara stundirnar
ckki til ónýtis á Stöðvarfirði.
velkominn af sjónum
m
Þá má sjá atorkusama menn
hraða för sinni frá bryggju
upp á túnblettinn til konu og
barna, sem þar eru fyrir að
sinna heyskapnum.
S'.ofmin kaup-
félagr.ins.
Kaupfélag Stöðfirðinga er
tvítugt um þecsar muhdir o;r
hefir því vaxið mjög íisliu.
um hrygg á síðaii árum. Þao
varð til eins og fleiri kaupfó-
laganna á Austurlandl, án
allra átaka og með góðu sam-
komulaei við þá, sem unnu
að verzlun og atvinnurekstri
á staðnum. Eðlileg félagsalda
kallaði fram hina nýju félags
hugsjón í Stöövarfirði. Fólkið
fann, að það þurfti á sam-
vinnufélagi að halda til að
treysta lífsafkomuna, og þess
vegpa var kaupfélagið stofn-
að. Síðan tók hið nýstoínaða
félag við verzluninni á staðn
um, og er hún rekin enn í
þeim húsakynnum.
Þungbær
vöggugjöf.
! Heimskreppan síðari kom
eins og vöggugjöf til hins ný-
stofnaða félags. Þaö fór ekki
hjá því, að erfiðleikar henn-
ar kæmu við afkomu og starf
semi félagsins. Aldan, sem
hingað barst frá viðskiptaerf
iðleikunum úti í hinum stóra
heimi, olli því, að ekk'i varð
um að ræða skjóta og öra
íramíaraþróun hjá hinu ný-
1 stofnaða kaupfélagi, þótt í þvi
j værj hins vegar mikil vörn.1
Eftir því sem tímarnir urðu
erfiðari og meira harðnaði á,
varð félagsins og fyrirhyggju
þess til tryggiflgar sannvirði
afurða og neyzluvara líka
méiri þörf.
I
Breiðdalsvík.
Þegar óveður kreppunnar
var liðið hjá óskuðu samvinnu
menn í næsta byggðarlagi,
Breiðdalsvik, eftir samfylgd
við Stöðvfirðinga, og starfa
' báðar byggöirnar sem ein
samvinnuheilð síðan.
Á Breiðdalsvík, sem er ungt
kauptún, heíir félagið komið
, á fót hraðfrystihúsi, sem jöfn
! um höntíum er notað til frys-t
! ingar og geymslu á dilkakjöt
inu, en á þessu félagssvæði er
jmikill landbúnaður, landgott
cg dugandi bændastétt.
Auk þess er frystihúsið not
i að til hagnvtingar á sjávar-
' afla sem að landi berst í kaup
' túninp, ,en. á- Brc'ðdalsvik er
nokkur og vaxandi útgerð.
j Getur hraðfrystiiiúsið unnið
júr . fjsldnum .. markaðsvör.u
j með flökun og roðflettingu,
;sem iöfnum höndum er gerð
imeð markað í Bandaríkjun-
um eða Evrópulöndum fyrir
augum. Á Breiðdalsvík rekur
Ifélagið svo að sjálfsögðu verzl
i unarútibú.
Bæít aðs'aða atvinnu-
Jífsins.
Á Stöðvarfirði er verzlun fé
lagsins ennþá til húsa í
gömlu kaupmannshúsunum,
sem eru .orðin allmikið úr sér
(Framhald á 7..síðu)
Allar myndir á þessari síðu eru frá Stöðvarfirði. Efsta myndin
er af kaupstaðmim í Stöðvarfirði. Næst er mynd af kauptúninu
í Breiðdalsvík, bar sem útibú félagsins er. Þá er mynd úr hrað-
írystihúsinu á Stöðvarfiroi. Stúlkurnar eru að vega og pakka
ýsu fyrir Ameríkumarkað í umbúðir sambandsins. Til vinstri á
síðunni er táknræn mynd fyiir Stöðvarfjörð. Einn af liinum harð-
duglegu trillubátsformönnum kemur heim úr róðri og stígur á
land upp úr bátnuro sínurn. Ilann liefir farið margar ferðir á
trillunni sinni út og inn fjörðinn, (Ljósm. Guðni Þórðarson).