Tíminn - 29.01.1952, Blaðsíða 2

Tíminn - 29.01.1952, Blaðsíða 2
2. TÍMINN, þriðjudaginn 29. janúar 1952. 23.. blað. Stúlkan Kamala, sem fóstruð var af ú I f u m Það eru víða um lönd sagnir af mannabörnum, sem alast upp meðal viliidýra, temja sér hætti þeirra og lifa í skógum og mörkum á sama hátt og þau. Sumir rithöfundar hafa notað slíkar sagnir sem uppistöðu í bækur, og þannig eru til orðnar sögupersónur eins og Mowgli Kiplings og Tarzan. Stúlkurnar í úifabælinu. Nú nýlega er komin út á ensku bók um tvær stúlkur, sem fund ust í úlfabæli í Bengal-héraði á Indlandi og voru síðan tekn- ar í fóstur af indverskum trú- boða og konu hans árið 1920. Er bókin byggð á dagbókum trú- boðans. Indverski trúboðinn, J. A. L. Singh, kom eitt kvöld í þorpið Godamuri, og leituðu þorpsbúar ásjár trúboðans vegna dularfullr ar ófreskju, sem þeir höfðu orð ið varir við í skóginum við þorp ið, einkum þegar skyggja tók á kvöldin. Sögðu þeir, að hún byggi í úlfabæli, sem þeir vísuðu prestinum á. Presturinn lagðist í leyni við úlfabælið, og undir rökkrið komu út úr því tveir full vaxnir úlfar, síðan nokkrir ylf- ingar og síðast stúlkan, sem seinna hlaut nafnið Kamala. Brokkaði hún á fjórum fótum og sást varla í andlitið fyrir hinu mikla hári. Eftir henni kom önnur mannleg vera skríð -andi — einnig telpa, en minni vexti. Hún var seinna skírð Amala. Úlfabælið grafið upp. Presturinn hélt heim í þorpið, e.n daginn eftir lét hann grafa úlfabælið upp. Fullorðnu úlfarn ir flýðu brátt, en séra Singh og kona hans tóku að sér telpurnar tvær. Fluttu þau þær í barna- heimilið í Midnapore. Einginn vissi, hvernig börnin höfðu komizt til úlfanna, en höf undur bókarinnar, Gessell, kunn ur visindamaður, ímyndar sér, að þau hafi verið borin út ný- fædd, ylgur dregið þau heim í bæli sitt. Meðal manna. Nú áttu þær Kamala og Am- ala að læra nýja siði. Erfiðir tím ar fóru í hönd. Þær skriðu eins hratt og önnur börn hlupu, en fengust ekki til þess að ganga uppréttar. Á daginn hreiðruðu þær um sig í einhverju horninu, en fóru á kreik um nætur. Oft ráku þær upp gól eins og úlfar. Þó virtist Amala öllu næmari en Kamala, enda var hún yngri. En svo dó hún skyndilega. Kamala í sorgum. Kamala var mjög hrygg, þegar Amaia dó. Lengi vildi hún ekki ÞRUMA ÚR HEIÐ- SKÍRU LOFTI. Það var á kvennafundi, og þar fóru fram umræður um nauðsyn þess, að konur fengju aukna hlutdeild í stjórn lands ins og stjórn heimsins, og sum ar voru þeirrar skoðunar, að kvenþjóðin ætti helzt að taka þau mál að öllu leyti í sínar hendur, og binda algerlega endi á veldi karlmannanna, er aldrei hafa farið sérlega vel með vald sitt. Og þegar margar | böfðu tekið til máls og látið i Ijós álit sitt á þessu nauð- synjamáli heimsins, stóð upp gustmikil frú og sagði sína skoðun á málinu. Hún taldi óþarft, að konur gerðust stjórnendur heimsins meðan þær stjórnuðu karl- mönnunum. Þeir viðskiptamenn vorir, sem panta ætla útlendan áburð, þurfa að senda oss pantanir sínar sem fyrst. Vörugeymsla KRON Hverfisgötu 52. — Sími 1727. Kamala skríðandi á fjórum fótum. víkja frá þeim stað, þar sem sjúkrabeðurinn hafði verið. En smám saman fór hún þó að hænast að húsdýrunum, og frú Singh var hún mjög eftirlát. En hún gekk enn á fjórum fót- um, noíaði ekki hendurnar, þeg ar hún nærðist, lapti með tung- unni, þegar hún drakk. Þegar heitt var, lá hún endilöng í sól- skininu og lét tunguna lafa út úr munnvikinu. Kamala roðnar. Þegar tvö ár voru liðin, var hægt að hemja hana í fötum. Þá var hún lika byrjuð að leika sér við önnur börn, hún rak burt krákur, sem sóttu í mat hænsnanna og gat sagt með orðum, ef hún var svöng eða þyrst. Nú vildi hún ekki lengur vera ein í myrkri. Að fjórum árum liönum kunni hún sex oro, og hún gat gengið upprétt, en aldrei hlaupið. Prestskonan gat látið hana snú ast smávegis íyrir sig. Stund- um roðnaði hún af blygðun, og vildi alls ekki láta ókunnuga sjá sig nakta. Eftir sjö ár fór hún að raula sönglög, og þegar hún veiktist eftir níu ára vist í b^rnaheimil- nu, kunn hún 46 orð. Veruulegt átta ára barn kann að jafnaði um 3000 orð. Varð hún 17 ára? Gessell skýrir tornæmi stúlk- unnar með því, að venjulegt barn læri það, sem það er fært um, á þeim tíma, sem því er það eðlilegt. Hann telur, að Kamala * 1 hafi í rauninni verið andlega heilbrigð, en aðeins fyrir löngu liðinn sá tími, sem henni Hent- aði til þess að læra að tala og , ganga o. s. frv. Hann telur stúlk una fædda árið 1912, og hafi hún því verið seytján ára, er hún andaðist. Odýr matarkaup Saltað folaldakjöt í heilum, hálfum og kvarttunn- um fyrirliggjandi. ÚtvarpLÖ próf: skonúraer ykkar og aldnr Bíaðið leggur dálitla ''þraut fyrir lesendur sína. Takið pappírsblaS og blýant. Skrifið á blaðið iskónúmer ykkar og marg- faldið það með 2. Er það bú ið? Gott! Þá bætið þið 5 |við töluna, sem þið hafið fengið út. Þessa nýju tölu margfaldið þið með 50, og þegar þið eruð búin að því, skrifið þið fæðingarár ykk ar og dragið þaö frá töl- unni, sem fyrir var. Ilér neðan við skrifrð þið eitt af símanúmemm Sjóvá- tryggingarfélagsins, 17®1, og leggið þaá vlð töluna, sem fyir var. Árangurinn á að vera fjögurra stafia tala. Tvær fremri töiarnar eiga að Ivera skónúmer yhfear ea' tvær hinar seinni ald«ttr ykkar — er það rétt? | Þetta mun oftast reyn- ast rétt, en þó mun þessu geiga hyað nálægt því tólfta hvern menn snertir. Hvaða fólk er það? Hver er lausnin á þessu? Lesendur ættu til gam- ans að senda blaðinu svör sín við því. , Útvarpið í öag: I 8.00 Morgunútvarp. — 9.10 Veð urfregnir. 12.10—13.15 Hádegis- útvarp. 15.30—16.30 Miðdegis- útvarp. — (15.55 Fréttir og veð urfregnir). 18.15 Framburðar- kennsla í esperantó. — 18.25 Veð urfregnir. 18.30 Cönskukennsla; II. fl. — 19.00 Enskukennsla; I. ^ fl. 19.25 Þingfréttir. — Tónleik- ar. 19.40 Auglýsingar. — 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: Utanríkis- verzlun íslendinga á þjóðveldis- öldinni; IV. (Jón Jóhannesson 1 prófessor). 20.55 íslenzk tónlist: I Lög eftir Sigfús Einarsson (plöt |ur). 21.15 Upplestur: „Blóðfórn", | smásaga eftir Ingólf Kristjáns j son (höf. les). 21.30 Útvarps- j hljómsveitin; Þórarinn Guð- mundsson stjórnar. 21.45 Frá útlöndum (Iíafþór Guðmunds- son dr. juris). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Dagskrár- lok. i Útvarpið á morgun: I 8.00 Morgunútvarp. — 9,10 j Veðurfregnir. 12.10—13.15 Há- j degisútvarp. 15.30—16.30 Mið- degisútvarp. — (15.55 Fréttir og veðijrfregnir). 18.00 Frönsku- kennsla. — 18.25 Veðurfregnir. 18.30 Islenzkukennsla; I. fl. — 19.00 Þýzkukennsla; II. fl. 19.25 Þingfréttir. — Tónleikar. 19.45 Auglýsingar. 20.00 Fréttir. 20.30 Útvarpssagan: „Morgun lífsins“ eftir Kristmann Guðmundsson (höf. les). — X. 21.00 Tónleikar (piötur). 21.25 Ferðaminningar frá Austurriki og Sviss (Helgi Hallgrímsson fulltrúi). 21.50 Tón leikar: Forleikur að óperunni „Töfraflautan“ eftir Mozart Cpíötur). 22.00 Fréttir og veður fregnir. 22.10 Dagskrárlok. Árnað heilia Hjónabönd. Gefin voru saman í hjóna- band í gær af séra Magnúsi Þor- stefnssyni frá Húsafelli, Hólm- fríður Benediktsdóttir, Skúla- g»tu 62, og Jón Guðmundsson, vélstjóri frá Flateyri. — Heim- ili þeirra verður á Patreksfiröi. Sl. 1. laugardag voru gefin sam an í hjónaband af sr. Þorsteini Björnssyni, ungfrú Sesselja Helgadóttir, Þórsgötu 15, og i Kári Þormar. Heimili þeirra verður fyrst um sinn á Þórs- götu 15. TILKYNNING Héi með tilkynnist að skrifstofa mín er flutt í íj { SUÐURGÖTU3 | ;! Árnl Slemsen, !; í Umboðsverzlun — Sími 4017. !■ :: *: f.W.WAV.V.VV/.V.V.V.W.V.VV.VV.V.V.V.V.V.W.V r.VV’ÁVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV-.VVVV.VVVV ASBEST-þilplötur \ í fyrirliggjandi !; !; MARS TRADING CO. J ■!! Laugaveg 18B — Sími 7373. £ I ■ ■■■■■■■ ■SII ■ ■ ■ ■ ■ ■_■ I I ■_■_■_■_■_! Frá Skattstofunni í Reykjavík Frestur til að skila skattframtölum er útrunnin fimmtudaginn 31. jan. n. k. Skatstofan verður opin til kl. 10 í kvöld og annað kvöld, og til kl. 12 á miðnætti þann 31. Skattstjjóri Eg færi öllum fjær og nær, sem auðsýnt hafa mér mikla samúð og Itærleik við sviplegt fráfall mannsins míns SIGURÐAR GUÐNA JÓNSSONAR, skipstjóra á „Val“ frá Akranesi, mitt innilegasta þakk- læti. Þó alveg sérstaklega öhum Akurnesingum, er hafa reynzt inér frábærlega og vilja Iétta mér og börn- um mínum sporin á allan hátt. Hjartans beztu þakkir til ykkar allra fyrir miklar gjafir í orði og verki. Sigríður Sigurðardóttir, Heiðarbraut 41, Akranesi. Hjartans þakkir vottum við öllum þeim, sem auð- sýndu okkur samúð og vinarhug við kveðjuathöfn og jarðarför móður okkar MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR frá Ási Börn og aðstandendur

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.