Tíminn - 08.02.1952, Side 1
Ritstjórl:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
Skriístofur í Edduhúsl i
Fréttasímar:
81302 og 81303 |
Afgreiðslusími 2323 |
Auglýsingasími 81300 2
Prentsmiðjan Edda 2
36. árgangur.
Reykjavík, föstudaginn 8. febrúar 1952.
31. blaðo
Maður særist í
hroðalegum slags-
málurn í Bankastr.
Fólk, sem var á ferli í
Bankastræti á þriðja tíman-
um í fyrrinótt, varð sjónar-
vottar að hroðalegum at-
burði. Tveir menn, skipverji
af vélbát í Reykjavík og Hali
mann Tómasson, til heimil-
is að Digranesvegi 60, áttu
þar í illindum. Lyktaði við-
ureigninni með því, að and-
stæðingur Hallmanns spark
aði í hann milli fótanna, og
féli hann við það í götuna,
þar sem hann engdist sund-
ur og saman, veinandi af
kvölum, unz leið yfir hann.
Lögreglan kom á vettvang
og flutti hinn særða mann
til læknis, en tók hinn mann
inn fastan.
Rannsókn mun ekki enn
liafa farið fram í málinu,
og blaðinu er ókunnugt um,
hversu mikla áverka Hall-
mann hlaut.
Var súrefnisnotkun
orsök slyssins á
Rvíkurflugvelli?
í gær var haldið áfram
rannsókn á orsökum slyssins
í verkstæði Olíufélagsins á
Reykjavíkurflugvelli í fyrra
dag. Hefir komið í ljós, að
þeir vinnufélagar, sem fyrir
slysinu urðu, notuðu súrefni
úr geymi í sambandi við gas
suðutæki til þess að hreinsa
andrúmsloftið í olíugeymi
bifreiðarinnar, þar sem þeir
voru að vinna.
Ekki er þó fyllilega úr því
skorið, hvort slík súrefnis-
notkun hefir getað valdið
slysinu, þar eð kunnáttu-
menn greinir á um það, en
úrskurðar sérfróðra manna
verður leitað.
Á hinn bóginn er einnig
hugsanlegt, að fyrir mistök
hafi gas lekið út frá tækj-
unum, en afleiðingar þess
liggja í augum uppi.
Fundi Atlanzhafs-
ráðsins frestað
• -
Ákveðið hefir verið að
fresta fundi Atlanzhafsráðs-
ins, sem hefjast átti í Lissa-
bon 14. þ.m. Er þetta gert
vegna þess að búizt er við að
útför G-eorgs Bretakonungs
verði um það leyti. Fundurinn
mun hefjast nokkrum dögum
eftir útförina. Lange, utan-
rikisráðherra Norðmanna
kom til London I gær til við-
ræðna við brezka stjórnmála-
menn um undirbúning ráð-
stefnunnar. Gert er ráð fyr-
ir, að hann verði kosinn for-
seti ráðstefnunnar.
Hér eru þeir við nám
Þessi mynd er af íþróttaskóla Knattspyrnusambands Rín-
arlanda í Koblenz, þar sem nú dveljast fjórir ungir knatt-
spyrnumenn úr knattspyrnufélaginu Fram í boði Þjóðverja.
Aftska stormur á Aust-
fjörðum í fyrrakvöld
Fjölskyldur isrðu að flýja Issss síss á Reyð-
arflrði. — Þök fssku á Norðfirði
í fyrrakvöld gerði aftaka hvassviðri á Austfjörðum. Urðu
talsverðar skemnnlir af veðrinu. Þök fuku af húsum og íbúar
tveggja húsa á Reyðarfirði urðu að yfirgefa hús sín meðan
mest gekk á.
Á Norðfirði hvessti skyndilega
síðari hluta dags. Strandferða-
skipið Hekla hafði farið þar frá
bryggju um kl. 5,30 og mátti
ekki tæpara standa, því að
skömmu síðar jók storminn um
allan helming.
Á Norðfirði urðu þær skemmd
ir helztar, að þak fauk alveg
af nýbyggðu húsi, en auk þess
fuku járnplötur fleiri eða færri
af mörgum húsum og skúrum
niður við sjóinn. Báta sakaði
hins vegar ekki, enda flestir
farnir suður til vertíðar.
Mesti veðurhamurinn stóð til
kl. 8—9 um kvöldið og fór þá
heldur að lægja. Er þetta eitt
(Framh. á 7. síðu).
Borgarstjóri krafinn
sagna um Kvíabryggju
Á bæjarstjórnarfundi í gær, lagði Þórður Björnsson bæj-
arfulltrúi Framsóknarflokksins fram nokkrar fyrirspurnir
varðandi kaup bæjarins á Kvíabryggju og spurðist ennfrem-
ur fyrir um, hvað liði staðarvali ráðhússins, skipulagningi'.
miðbæjarins og fleíra, scm nefndir eru um Iangt skeið bún-
ar að vinna að.
Hvað hefir orðið þeirra starf?
Þórður benti á, að fyrir
meira en ári síðan hefði ver-
ið lagt fyrir umferðanefnd
að gera tillögur um lagfær-
ingar á görðum og girðing-
um, sem mestri umferðar-
hættu valda í bænum. Einnig
áttu nefndir að gera tillögur
um skipulagningu miöbæjar-
ins og staðsetningu ráðhúss-
ins, sem Reykjavikurbæjar-
stjórn virðist ekki hafa haft
mikinn áhuga fyrir að byggja.
Þórður ítrekaði svo fyrri
fyrirspurnir um Faxaverk-
smiðjuna, en mikil og djúp
þögn ríkir um það leyndar-
mál bæjarstjórnarmeirihlut-
ans. —
Krafinn sagna um
Kvíabryggju.
En svo var það Kvíabryggja
sem borgarstjóri hefir nú ný-
lega loks upplýst á fundi, aö
hann sé húinn að kaupa í
nafni Reykvíkinga. Þóröur
lagði fram eftirfarandi spurn
ingar varðandi þetta unga og
efnilega fóstur bæjarstjórn-
armeirihlutans:
1. Hvert var kaupverð Kvia-
bryggju?
2. Hvernig var kaupverðið
greitt?
32 ær veikjast og 20 drepast af
ormalyfsinngjöf í Hörgslandshr.
3. Hverjir mátu Kvíabryggju
til verðs?
4. Hver valdi matsmenninaV
5. Hver er ráðgerður breyt-
ingarkostnaður Kvía-
bryggju?
6. Hver á að greiða breyting-
arkostnaðinn.
7. Hvað verður rúm fyrii;
marga vistmenn í einu i,
Kvíabryggju?
8. Hvenær er ráðgert að Kvía.
bryggjuhælið taki tii
starfa?
Sama þögnin um
Faxaverksmiðjuna.
Borgarstjóri lofaði að svara
þessum spurningum, væntar;.
lega á næsta fundi og sagðist
skyldu spyrja nefndirnar sín-
ar um það, hvað- þær hefðu
gert til að velja ráðhúsi bæi-
(Framh. á 7. síðu).
Fundur Framsóknar
fél. kvenna í kvöld
Framsóknarfélag kvennsr.
í Reykjavík heldur félags-
fund í Aðalstræti 12 í kvölcl
kl. 8,30. Umræður verða un
stjón'nmálaviðhorfið og
munu mæta á fundinun
Hermann Jónasson, ráðherra
og alþingismcnnirnir Rann-
veig Þorsteinsdóttir og Skúl
Guömundsson. Félagskonui
mætið vel og komið mei
nýja félaga.
Ærssar ssrðu lystarlausar og fcngu loks
krampaflog. Tallð stafa af efnavöntuii
Einkafrétt til Tímans frá Kirkjubæjarklaustri.
Á bænum Þverá í Hörgslandshreppi, hjá Ólafi Vigfús-
syni bónda þar, hafa drepizt 21 kind af ormalyfsinngjöf í
þessari viku og alls 32 veikst. Enn eru 4 mjög veikar en eng-
in ný tilfelli hafa komið síðustu tvo sólarhringana.
Olafur Vigfússon á Þverá hef
ir hátt á annað hundrað ær.
Hann ákvað að gefa fénu inn
ormalyf um síðustu helgi, og
byrgði það inni gjaflaust eins
og reglur mæla fyrir á sunnudag
inn var. Var féð svelt í sólar-
hring, síðan gefið lyfið og síðan
svelt annan sólarhring.
Veikinnar verður vart.
Lyfið var gefið inn á mánu
daginn, en á þriðjudagsmorg
uninn, er komið var í fjárhús
in, lágu átta ær dauðar en 20
kindur voru mjög sjúkar. Lýsti
sjúklcikinn sér í því, að kind-
urnar voru alveg lystarlausar
og snertu ekki hey, en að öðru
leyti sá lítið á þeim. Þegar
þeim hnignaði, fengu þær áköf
krampaflog og drápust snögg-
lega.
Læknisráð reynd.
Ormalyf það, sem gefið var,
var taliö ágætt og alls ekki
gamalt og reyndist að efnainni-
haldi rétt gert. Var leitað til
héraðslæknisins, því að enginn
dýralæknir er í nágrenni. Skoð
aði hann hinar sjúku kindur
og mældi þær, en þær fengu
engan hita, svo að ekki gat
verið um lungnabólgu að ræða.
! Reyndi læknirinn siðan að dæla
kalkblöndu í hinar sjúku kindur,
en það virtist mjög lítinn árang
ur bera til bata.
Lifrin blásvört.
Á kjöti eða innyflum kinda
þeirra, sem drápust, sáust eng-
in teljandi sjúkdómsmerki,
nema á lifrinni. Hún var blá-
svört og hnökrótt.
21 drepast.
Næsta sólarhring héldu kind-
ur áfram að veikjast, eða alls
32, og í gær voru 21 dauð, en
engin ný tilfelli höfðu þá bætzt
við siðustu tvo sólarhringana.
Fjórar eða fimm kindur voru
þá enn mjög sjúkar.
Er um efnavöntun að ræða?
Mönnum er ekki fullljóst af
hverju fár þetta stafar, en rann
; sóknarstöðin á Keldum og lækn
ar telja líklegast, að um efna-
röskun og efnavöntun, til dæmis
vöntun á kalkefni í fénu sé að
ræða, og stafi það af fóðri þess.
Hafi þetta þau áhrif, að féð
þoli ekki lyfið, sem var venju-
legt ormalyf frá rannsóknar-
stofu háskólans. Innyfli kinda
verða send að Keldum til rann
sóknar svo fljótt sem auðið er,
1 en samgöngutregða hefir enn
tafið það. Hefir Ólafur orðið fyr
ir tilfinnanlegu fjártjóni af þess
um sökum.
Framsóknarvist
á Akranesi
Framsóknarfélag Akranes;;
heldur skemmtun í Templara
húsinu á Akranesi á sunnu
dagskvöldið og hefst kl. 8,30.
Byrjað verður á því að spih
Framsóknarvist en síðan verð
ur dansað. Skemmtanir félag;
ins á Akranesi njóta hinni
mestu vinsælda og eru vel sótt-
ar.
Erlendar getgátur
nm íorseta íslands
Erlend blöð eru þegar far-
in að geta sér til um það,
hver verða muni forseti ís-
lands. Danska blaðið Poli-
tiken hefir nefnt þrjá menn,
sem það telur líklegt, að tif
greina komi við forsetavaL
Menn þessir eru Ásgeir
Ásgeirsson bankastjóri, Thor
Thors sendiherra og Sigurö-
ur Nordal sendiherra.