Tíminn - 19.04.1952, Síða 2
2.
TÍIWINN, laugardaginn 19. april 1952.
88. blaff.
dögum
, sem náð höfðu vexti
Napóíeons og Cooks
Dýragarðurinn í Kaupmanna-
höfn hefir síðustu mánuði feng
ið ekki svo fá dýr frá hinum
vísindalega Galathea-leiðangri.
Meðal annars fékk hann skjald
böku frá eyjunum norðan við
Madagaskar. Hún var lítil vexti,
en forstöðumenn dýragarðsins
þóttust þegar sjá, að þetta væri
ekki venjulega skjaldbaka, enda
kom á daginn við rannsókn, að
þetta var svonefnd fílaskjald-
baka, stærsta skjaldbökutegund
á landi.
Skjaldbökuævi frá 1773 til 1925.
Það er vitað, að slíkar risa-
skjaldbökur geta náð góðum
aldri, en af eðlilegum ástæðum
er erfitt að kveða á um það, hve
skjaldbökur geta orðið gamlar.
Ert fyrir skömmu sálaðist skjald-
baka, sem lifði á St. Helenu á
dögum Napóleons. Svo fullyrða
að minnsta kosti franskir fræði-
rnenn.
En þótt þessari fullyrðingu sé
ekki treyst, dó að minnsta kosti
árið 1925 skjaldbaka, sem kom-
in var á legg á dögum ævintýra-
mannsins og ferðalangsins
James Cooks. Prásögnin um þá
skjaldböku er í ritgerð Flowers,
forstjóra dýragarðsins í Kairó.
Hefir hann safnað saman fáan-
iegri vitneskju um það, hvaða
aldri skjaldbökur geti náð.
'Risti ártalið á skjöldinn.
Flower segir í ritgerð sinni frá
Útvarpið
TÚtvarpið í dag:
Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp.
10,10 Veðurfregnir. 12,10 Hádegis
útvarp. 12,50—13,35 Óskalög
sjúkiinga (Björn R. Einarsson).
15,30 Miðdegisútvarp. 16,25 Veð-
urfregnir. 18,00 Útvarpssaga
barnanna: „Vinir um veröld
alla“ eftir Jo Tenfjord í þýðingu
Halldórs Kristjánssonar (Róbert
Arnfinnsson leikari) —VII. 18,30
Dönskukennsla; II. fl. — 19,00
Enskukennsla; I. fl. 19,25 Veður
tregnir. 19,30 Tónleikar: Sam-
söngur (plötur). 19,45 Auglýsing
ar. 20,00 Fréttir. 20,30 Dagskrá
Austfirðingafélagsins í Reykja-
/ík: a) Ávarp: Pétur Þorsteins-
,son lögfr., form. félagsins. b)
Upplestur: Kristján Einarsson
:frá Djúpalæk les frumort ljóð.
c) Erindi: Bjami Benediktsson
:trá Hofteigi talar um Jökuldals
heiðina og „Sjálfstætt fólk“. d)
.Einsöngur: Jón M. Árnason syng
ur; Fritz Weisshappel leikur und
:ir. e) Upplestur: Róbert Arn-
íinnsson leikari les kvæði: „Á-
gangur“ eftir Benedikt Gíslason
:trá Hofteigi, f) Upplestur: Hall-
dór Stefánsson alþm. g) Múla-
jýslur kveðast á: Fjórir hagyrð-
mgar flytja stökur sínar. 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Danslög (plötur). 24,00 Dagskrár
lok.
Arnað heilla
(íjónaband.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í London ungfrú Sig-
ríður Á. Blandon hjúkrunarkona
og mr. Charles W. Halling
mental health officer. — Misrit-
un var í þessari hjónabands-
frétt í síðasta blaði.
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Pálína Þorsteins-
dóttir, Miðengi, og Óskar Ög-
mundsson, bóndi, Kaldárhöfða,
Grímsnesi.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína ungfrú Rannveig Þór
ólfsdóttir, hjúkrunarkona, og
Eggert Einarsson, vélstjóri á
Arnarfelli.
því, að 1773 hafl Cook rist það
ártal á skjöld skjaldböku á
Tongaeyjum, og hefir saga þess-
arar skjaldböku verið rannsök-
uð af dr. Luras með . aðstoð
Pallors höfuðsmanns, landstjöra
á Samoaeyjum. Skjaldbakan
fannst aftur 1925, og var þá orð
in alblind, og það brakaði í
henni eins og gamalli uxakerru,
er hún bærði á sér. Var hún
sýnilega aðframkomin af elli.
Salóte drottning kemur
til sögunnar.
Tíu árum síðar lét Salóte
Taþou, drottning á Tonga, í ljós
þá ósk að sjá þetta ellihruma
og háaldraða dýr. Mikil leit var
hafin, og einn góðan veðurdag
var skjaldbaka borin fyrir drottn
inguna á bakka miklum. Átti
það að hafa verið þessi sama
skjaldbaka, en ekki eru fyrir
því óyggjandi sannanir, að hið
rétta ártal hafi verið rist á
skjöldinn. Auk þess er það grun-
samlegt, að hún virðist hafa ver
ið minni en hin gamla skjald-
baka átti að vera.
Óx ekki í 177 ár.
Það eru fleiri en Napóleon-
skjaldbakan og Cook-skjaldbak
an, sem Flower nefnir. í skýrsl-
um franska líffræðifélagsins
frá 1928 er greinargerð P.
Carnies urn risaskjaldböku, sem
var mæld árið 1740, og var hún
þá 2,6 metrar að ummáli um
miðjuna. 1917 var sama skjald-
bakan mæld aftur, og var gild-
leiki hennar nær hinn sami og
fyrir 177 árum. Er þetta í sam-
ræmi við fleiri athuganir, sem
gerðar hafa verið. Þegar skjald-
bökurnar hafa náð vissri stærð,
og þær stækka ört framan .af,
standa þær í stað. En meöan
þær eru á vaxtarskeiði geta þær
þyngzt um fjörutíu kíló á ári.
80 ár í dýragarðinum
í Lundúnum.
Lengd og þyngd skjaldbak-
anna er ekki ávallt samsvarandi.
Stærsta skjaldbaka, sem mæld
hefir verið, var 1,327 m. á lengd
og vóg 253 kíló. í dýragarðinum
í Lundúnum er nú skjaldbaka,
sem er áttatíu ára gömul, og
vegur hún 423 kíló, þótt liún sé
ekki svona löng.
Sumar tegundir útdauðar.
Sumar tegundir af skjaldbök-
um, sem til voru fyrir nokkrum
öldum, eru nú útdauðar. Þegar I
siglingar færðust í aukana. var;
þeim útrýmt. Þær voru þægileg
ar í forðabúr skipanna, þar sem
þær lifðu mánuðum saman, án
þess að þeim væri gefið, og hægt J
að grípa til nýmetisins hvenær'
sem var. En skortur á nýmeti
var þá eitt mesta vandamál sæ-
farenda.
V.V.V.V.V/.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.WAW.V.W.V.'.W/
I GÖMLUDANSARNIR 1
í <
,» í G.T.-húsinu í kvöld kl. 9. — Urslit danslagakeppn-
innar í gömlu dönsunum. ’•
Söngvarar með hljómsveitinni: \*
Svavar Lárusson og Edda Skagfield. ■“
Aðgöngumiðar kl. 4—6. Sími 3355.
I
|
w.w.v
S. K. T.
.v.v.v.v.w.w.w,
.v.v.v.w.v.v.v.v.v.w
V,\W/AV.\WA”.VA^%WA^W,V.V.V.V.\VWAV.VA
i
§
í
Hinar þekktu ESTRELLA-skyrtur
:•
•J fást nú aftur i næstu verzlun.
j Fjölbreytt litaúrval. 3 flibbasnið. v
■■ 1«
I; Klæðist ESTRELLA
%W.V.W.W.W.W.V.W.WAVAV.W.W.VW.VWUVy
AV.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V.V.V.W.V.V.V.V.V.V.V/
»:
gullrán i
París um bjartan dag
Nú nýverið rændu fimm vogaöir glæpamenn tæpum tutt-
ugu og átta milljónum franka í gullstöngum og seðlum. —
Ránið var framið inni í miðri París í einu umferðarmesta
verzíunarhverfinu, en fólkið stóð aðgerðarlaust og horfði á.
Það hélt að ]>arna væri um kvikmyndatöku að ræða. Gull
þetta er 1,3 millj. króna virði á frjálsum markaði en vafa-
laust nær helmingi meira á hinum svarta.
48 kíló af gulli.
Gullið var flutt í lokuðum
vörubíl og stöðvuðu ræningj-
arnir hann með því að aka
sinni bifreið framfyrir, enn-
fremur voru þeir með vöru-
bifreið, sem ók upp að hlið
gullvagnsins og hófu þeir
þegar affermingu. Náðu þeir
meðal annars fjörutíu og átta
gullstöngum.sem hver um sig
var eitt kíló að þyngd. Þar
að auki komust þeir í burtu
með um tvser milljónir
franka í seðlum, sem þeir
tróðu í vasa sina, eftir því
sem þeir höfðu tíma til.
Fólkið horfði á.
Um þessar mundir er verið
að gera enska kvikmynd í
París, en í henni á sér stað
rán, líkrar tegundar og þetta.
Héldu áhorfendur því, að
þarna væri um tilbúið rán að
ræða og horfðu á i spenningi,
unz það varð um seinan að
stemma stigu við framtaks-
semi þessafa pilta.
Valinn staður.
Stað.urinn til ránsins var
ekki sérlega vel valinn, þar
sem það var framið nærri lög
reglustöð, varð það til þess,
að ræningjarnir urðu að
skilja eftir töluvert af því
gulli, sem á vörubílnum var.
Sænskur stúdent
svæfði stúlku og
rændi henni
Stúdent í Stokkhólmi, 21 árs
að aldri, hefir veriö kærður fyr-
ir að svæfa unga stúlku með
etri og ræna henni.
Þessi unga stúlka á að taka
stúdentspróf í vor. Ginnti
stúdentinn hana upp í bifreið,
en þegar hún vildi ekki fara
með honum nema skammt, dró
hann upp vasaklút, vætti hann
með etri og brá fyrir vit stúlk-
unni. Siðan ók hann með hana
í sumarhús við Grenna. Eftir
nokkurra stunda dvöl í sumar-
húsinu tókst stúlkunni að kom-
ast undan, og sneri hún sér þeg
ar til lögreglunnar.
Stúdentinn hefir síðustu vik-
ur verið mjö'g ástfanginn af
stúlkunni. Hún sleit hins vegar
fyrir nokkru sambandi við hann,
og gerðist hann þá mjög ör-
væntingarfullur.
Þegar stúdentinn frétti, að for
eldrar hans höfðu spurnir af
atferli hans, fékk hann áfall,
svo að flytja varð hann í sjúkra
hús.
Frá B.S.P'R.
Aðalfundui Byggingasamvinnufélags Póstmanna
í Reykjavík
verður haldinn þriðjudaginn 22. apríl 1952 kl. 20,30 í
Verzlunarmannahúsinu í Reykjavík.
I
!
i _ ,
1. Dagskrá aðalfundar skv. félagslögum. :*
í 2. Önnur mál, sem fram kunna að verða borin. ÍJ
í" Þess er fastlega vænzt, að félagar fjölmenni til þess !j
að fundurinn verði lögmætur. !j
3 STJÓRNIN. ■:
W.VWAV/AW.V/.V.%WAVWWA\VV0WWAVWA
AÐALFUNDUR
jérit arskráríéí agsiiis
verður haldinn í dag laugardaginn 19. apríl kl. 4 síðd.
í Þjóðleikhúskjallaranum.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla félagsstjórnarinnar og reikningar félagsins.
2. Stjórnarkosning.
3. Stjórnarskrárfélögin og fjórðungssamböndin.
4. Væntanlegt forsetakjör.
Félagsmenn munið að mæta og greiða félagsgjöld
ykkar á fundinum.
Félagsstjórnin
I
I
+
♦
♦
t
l
■a
AÐVORUN
Að gefnu tUefni viljum vér upplýsa, að Vörubílastöðin
Þróttur hefir ekki verið beðin um bíla í vinnu til varnar-
liðsins og alveg óvíst um hvort það verður gert. Menn eru
því varaðir við því að kaupa vörubíla í þeim tilgangi að
ganga í Þrótt, þar sem atvinnuleysi er mjög mikið hjá með-
limum félagsins.
í
Vörubílstjórafélagið Þróttur
t
\
Auglýsið í Timaiium rftiýliýóið í Ifíftl&HUftt
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð vegna andláts
og jarðarfarar mannsins míns og föður okkar
GUÐJÓNS JÓNSSONAR, Tungu.
Ingilaug Teitsdóttir og börn.