Tíminn - 19.04.1952, Side 8
6G. árgangur.
Reykjavík,
19. apríl 1952.
88. blað.
I' r
Atta ára drengur bjarg-
ar yngri bróður sínum
í»að lá nærri r.ú fyrir nokkru, að fjögurra ára drengur biði
baoa í skurði á túnínu á Yngvörum í Svarfaðardai. En átta ára
dvengur, bróðir bess litla, bjargaði honum úr skurðinum, og
v'issi héimiúsfólkíð ekki hvað gerzt hafði, fyrr en hann kom með
Íiann inn.
ÞásEBÍir maana
bíða með ótía við
varnargarðana
'• Flóðin 'skullu með fullum
■þunga á varnargörðunum vfð
; borgirnar Omaha og Counil
Kluffs í gærmorgun og náðu al
veg að brún viðarplankanna,
• sem höfðu verið lagðir ofan á
sandpokagarðana. Eru flóðin
nær metra hærri en það liefir
orðið nokkru smni siðustu 70
árin. 1 allan gærdag biðu þús-
undir eða tugþúsundir nianna
vifS garðana í löngum röðum í
ofvæni með ótta í hug eftir því
a'ð flóðin brytu einhvers staðar
skarð í varnargarðana viðbún
U’ að reyna að fylla í skarðið
áður en það yrði of seint. Þeir
íbúar, sem ekki eru flúnir úr
íægstu hverfunum, biðu þess
albúnir að flýja, ef vatnið bryti
varnargarðana. I gærkveldi
héidu varnargarðarnir að
ntestu enn, en fióðið var ekki
faráð að lækka. Menn vonuðu
þó á hverri stundu a'ð eitthvað |
tæki að lækka, því að talið er
víst, að fióðin hafi nú náð há-
inarki.
Bókmeniitakynniiig
helguð firamtugsaf-
mæli Kiljans
Sunnudaginn 27. apríl n. k.
gengst Mál og menning fyr-
ir bókmenntakynningu, sem
íielguð verður skáldinu Ha.ll-
dóri Kiljan Laxness að til-
efni fimmtugsafmælis hans,
sem er 23. apríl. Flytur Jón
Helgason, prófessor, erindi
urn Halldór. Lárus Pálsson,
Þorsteinn Ö. Stephensen og
fleiri leikarar lesa upp úr
Sjálfstæðu fólki og Ljósvík-
íngnum, og Guðmunda Eli-
asdóttir, einsöngvari, syngur
itokkur lög við kvæði eftir
Halldór, með undirleik frú
Jórunnar Viðar.
Vegna þess að fjöldi fólks
hefir þegar spurt um sölu að-
■feöngumiða og óskað að fá
þantaða miða, hefir verið á-
kveðið að sala hefjist í dag
(laugardag) í Bókabúð Máls
iog menningar, Laugavegi 19,
öpið til kl. 4 í dag, sími 5055.
; Bókmenntakynningin verð-
uv í Austurbæjarbíói og hefst
kl. 2 síðdegis.
V í s i t a I a n
1 5 © s t i g
Kauplagsnefnd hefir reikn
að út vísitölu framfærslu-
kostnaðar i Reykjavík hinn
1. apríl s.L, og reyndist hún
færa 156 stig. —
Þennan dag var enginn full-
orðinn karlmaður heima í Yng
vörum, sagði Steingrímur Eiðs-
s jn, bóndinn , þar, við tíSinda-
mann blaðsins í gær. Drengir
minir tveír, Árni Veigar átta
ára og Hailur fjögurra ára, voru
að Ieika sér úti við,' en annað
heimilísfólk var inni í bæ.
Sájófyllah hrapaði ofan á hann.
Um fimmtíu metra frá tænum
er skurður, sem lækur rennur
eftir, og var snjór yfir skurðin-
um. Er drengirnir voru þarna
á hlaupum, hrapaði Hallur litli
niður um snjóinn og í skurðinn
og snjófylla ofan á hann og
huldi hann að miklu leyti. Sneri
hann þannig, að andíitið var
undan hallanum, og stifláðist
lækurinn.
Snariæði átta ára barns.
Eldri drengurinn varð þess vís
ari, að bróðir hans var skyndi-
lega horfinn. Sá hann þegar
hvers kyns var. Hækkaði vatnið
óðum í skurðinum, en Árni hafði
á því engar vöflur, að hann
fór niður í skurðinn og tókst að
ná bróður sínum upp, áður en
hann sakaði.
Afli að glæðast
Frá fréktaritara Tímans
á Sauðárkrók.
Frá Sauðárkrók eru hafnir
róðrar fyrir skömmu síðan. —
Afli hefir verið heldur tregur,
en er að glæðast og hafa
trillubátar fengið upp í eitt
og hálft tonn í róðri. Vinna
hefir verið lítil fram til þessa,
helzt við frystihúsið. Þíðviðri
hefir verið undanfarna þrjá
daga í Skagafirði.
Vélstjórinn
komst upp
Sú missögn slæddist inn í
frásögn Tímans af hinu
hörmulega slysi viö Vest-
mannaeyjar, er tveir skip-
verjar fórust með vélbátnum
Veigu, að vélstjórinn hefði
ekki komizt upp úr vélarrúmi.
Þetta er ekki rétt. Hann komst
upp úr vélarrúminu, en tók
síðan út og drukknaði.
KáfSstefMa iim Sín»s-
deiiiiua I LdiiiIdu
Eden utanríkisráðherra
Breta hefir kvatt Raiph
Stevenson sendiherra Breta í
Kairo heim til London um
næstu helgi ásamt landstjóra
Breta í Súdan til ráðstefnu
um deiluna við Egypta. Ráð-
stefnu þessa mun sendiherra
Egypta í London einnig sitja.
Talið er að brátt muni verða
gengið frá samningsuppkasti
milli Breta og Egypta.
)| Eldborgin aftnr
í förum
Frá fréttaritara Tímans d Akranesi.
Eldborgin hefir nú tekið við
áætlunarferðum þeim, sem
Laxfoss hafði milli Reykja-
víkur annars vegar og Akra-
ness og Borgarness hins veg-
ar. Skipið var leigt til Noregs
í vetur og er nýkomið heim
;)ir þeirri útivist. Fór það
fyrstu áætlunarferðirnar í
fyrradag.
Þykir mikil bót að fá Eld-
borgina til þessara ferða frá
því sem verið hefir að und-
anförnu, enda þótt skipið sé
ófullnægjandi til fólksflutn-
inga á hinni fjölförnu leið.
Kefauver, keppinautar um sætið
sem forsetaefni demokrata.
Tmman styðnr
Harriman sem
forsetaefni
Truman forseti hefir nú lýst
yfir, að hann styðji Averell
Harriman sem forsetaefni demo
krata. Talið er og, að miðstjórn
demokrata sé honum fyigjandi,
og muni beita sér að því, að
hann verði fyrir valinu, m. a.
með því að styðja að kosningu
þeirra fulltrúa demokrata í New
York á flokksþingið, er styðja
vilja hann. Harriman hefir og
lýst yfir, að hann muni fús til
þess að taka útnefningu.
Allt virðist því benda til, að
málin séu að snúast svo, að
baráttan um sæti forsetaefnis
demokrata verði milli Kefauvers
og Harrimans. Kefauver er þeg
ar búinn að fá allmarga fulltrúa. i
Hefir þetta orðið uppi á teningn,j
um eftir að Stevenson ríkis-
stjóri í Illinois lýsti yfir að hann
gæfi ekki kost á sér.
Leiðtogar demokrata í New
York héldu Harriman mikla
veizlu í gær og munu þar hafa
verið lagður grundvöllur að kosn
ingabaráttunni fyrir Harriman.
Síðasta Framsókn-
arvistin á Akranesi
Síðasta Framsóknarvistin
sem haldin verður á Akra-
nesi á þessum vetri, er á
sunaudagskvöldið í Tempi-
arahúsínu og hefst klukkan
hálf-níu.
Fyrst verður spilað að
venju, síðan flytur Bragi
Jónsson kvæði og að siðustu
verður dansað.
Akurnesingar! Fjölmennið
á þessa síðustu Framsóknar-
vist.
Aðalfundur Félags
matvörukaupmanna
Félag matvörukaupmanna i
Reykjavík hélt aðalfund sinn
á fimmtudagskvöldið. Þar
flutti formaður félagsins,
Guðmundur Guðj ónsson,
skýrslu um starf félagsins og
gerði grein fyrir verkefnum.
Guðmundur Guðjónsson var
endurkjörinn formaður fé-
lagsins og auk hans eiga sæti
í stjórn: Sigurliði Kristjáns-
son, Lúðvík Þorgeirsson,
Björgvin Jónsson og Axel Sig-
urgeirsson. Félagið verður 25
ára á næsta ári og mun fé-
lagið minnast afmælisins.
Fundurinn lýsti ánægju
sinni yfir auknu frelsi í verzl-
unarmálum, vísaði frá ásök-
unum iðnrekenda í garð fé-
lagsins og átaldi verðlagsskrif
sumra blaða undanfarna mán
uði og lýsti yfir að matvöru-
kaupmenn hefðu hreinan
skjöld í þeim efnum.
Nautgriparæktarfé-
lag Hraungerðis-
hrepps 40 ára
Fjörutíu ára afmælis Naut-
griparæktarfélags Hraungerð
ishrepps var minnzt í gær með
fundi, og voru meðal gesta á
honum Páll Zóphóníasson bún
aðarmálastjóri, Ólafur Stef-
ánsson nautgriparæktarráðu-
nautur og Hjalti Gestsson hér
aðsráðunautur.
Sveinbjörn Björnsson, bóndi
í Uppsölum, sem verið hefir
eftirlitsmaður félagsins í þrjá
tíu ár, flutti erindi um félagið
og starf þess.
Slökkviliðsmenn
halda aðalfmid sinn
Aðalfundur Starfsmanna-
félags slökkviiiðsmanna var
haldinn 17. april. Foimaður
félagsins var kjörinn Guð-
mundur Guðmundsson og
varaformaður Bjarni Bjarna-
son. Gjaldkeri var kjörinn
Guðmundur Kristjánsson og
ritari Þóröur Pétursson. Með-
síjórnandi er Sigurgeir Guð-
jónsson.
í stjórn ekknasjóðs slökkvi-
liðsmanna var kjörinn Sigur-
gísli Guðnason, formaður
sjóðsins. en gjaldkeri Kristinn
Eyjólfsson.
Norræn tónlist í
Vínarútvarpinu
Þann 15. apríl var leikin
norræn tónlist í útvarp í Vín-
arborg með tónverkum eftir
Hallgrím Helgason og finnska
tónskáldið Yrjö Kilpinen, sem
óhikað má telja einn mesta
ljóðlagasmið, sem nú er uppi,
enda kalla Þjóðverjar hann
„Schubert Norðurlanda.“ Verk
in voru flutt af úrvals lista-
mönnum, þeim Ilona Stein-
gruber og Friedrich Wildgans.
Ilona Steingruber er söng-
kona við ríkisóperuna í Vín.
Hefir hún getið sér mikinn
orðstí vegna fyrirmyndar-
túlkunar á nútímatónsmíðum.
Friedrich Wildgans, maður
hennar, er austurrískt tón-
skáld og prófessor við tónlist-
arháskólann í Vín, forseti
austurrísku deildarinnar í Al-
þjóðasambandi rlútímatónlist
ar. Hefir hann samið mörg
tónverk, m. a. óperuna „Skiln-
ingstréð.“
Með 650 skippund
frá árairiötum
Frá fréttaritara Tímans í Eskifiröi.
Vélbáturinn Björg kom af
netaveiðum heim til Eskifjarð
ar í gær eftir 4 daga útivist.
Var báturinn með sæmilegan
afla, 40 skippund. Alls hefir
Björg aflað 650 skippund síð-
an um áramót, og verður það
að teljast sæmilegur afli, eft-
ir þvi sem nú gerist.
Ekið á barn
í gær kom maður til rann-
sóknarlögreglunnar og skýrði
frá því, að í fyrradag um eitt'
leytið hefði drengur á reiðhjóli
með hjálparvél ekið á þriggja
ára gamla dóttur sína. Þetta átti
sér stað hjá Kaplaskjólsveg 12.
Mun barnið hafa verið að leika
sér úti á túni, sem er þar. Dreng
urinn fór strax inn með barnið
til móður þess, en það var hrufl
að á höfði og hafði marizt á
handlegg og hægri mjöðm.
Þar sem ekki er vitað um
nafn drengsins, óskar rannsókn
arlögreglan eftir að hann gefi
sig fram við hana. Einnig biður
hún sjónarvotta að hafa sam-
band við sig.
Malan skírskotar
til kjósendanna
Malan forsætisráðherra
Suður-Afríku hélt langa ræðu
í gær þegar umræður hófust
á ný um úrskurð hæstaréttar
lándsins um ógildingu kyn-
þáttalöggjafarinnar. Hann
skoraði á flokka þingsins að
þreyta mál þetta ekki lengur
á þingi en gera það að aðal-
kosningamáli sínu við kosn-
ingarnar, sem fram eiga að
fara eftir 10 mánuði. Þá kvað
hann mundi koma í ljós, að
mikill meirihluti þjóðarinn-
ar væri löggjöfinni fylgjandi
og vildi ekki láta hæstarétt
setja löggjafarþinginu stólinn
fyrir dyrnar. Færi hins vegar
svo, að þjóðin kvæði upp ann-
(Framh á 7. síðu).