Tíminn - 08.06.1952, Síða 3

Tíminn - 08.06.1952, Síða 3
126. blað. TIMINN, suimudág’inn 8. jiíni 1952. 3. Hermann Jónasson: Forsetakjörið enn — vinakveðjum svarað •Ég ritaði fyrir nokkru síðan áreitnislausa grein um for- sétakjörið — þar var að eng-j um manni vikið persónulega. Flokksblað Ásgeirs Ásgeirs- ’ sonar, Alþýðublaðið, hefir j síðan hvað eftir annað ráð- izt að mér með dólgslegum' hætti, borið mér á brýn of- j beldi við flokksmenn mína, einræðisbrölt viðkomandi forsetakjörinu o. s. frv. Við, sama tón kveður í hinu nýja' kosningablaði Ásgeirs Ás- J geirssonar, er hann kallar Forsetakjör. Það er því mála sannast, að blöð Ásgeirs Ás- geirssonar, frambjóðanda við forsetakjörið — og hann sjálf ur er þar auðvitað mest í ráð- um — hafa með þessum árás- um á mig haslað völlinn og valið vopnin. Skal því ekki undan því skorast að ganga nokkru nær en áður. Gefst og þennan veg tækifæri til að greina hreinskilnislega frá því, hvað því veldur, að ég og margir aðrir teljum Ásgeir Ásgeirsson ekki til forseta fallinn. f annan stað verður og í þessari grein notað tækifærið til að rekja þrjár slúðursögur blaða Ásg. Ásgeirssonar. En það er ein aðal bardagaað- ferðin hjá iiði Ásgeirs Ás- geirssonar að dreifa út slík- um sögum. Mun þessari frek- ar ógeðfelldu baráttuaðferð sjaldan hafa verið beitt í rík- ara mæli í kosningum en lið Ásgeirs Ásgeirssonar beitir henni nú. En það mun eiga að jafna metin, að laglega er um það skrifað í blöðum Ás- geirs, að kosningin eigi að vera drengileg. Hér er ekki unnt að eltast við hinar óprentuðu sögur af þessu tagi, enda má vel í það ráða hvers eðlis þær séu, þeg- ar sýnt verður hvernig þau eru hin grænu tré — sögurn- ar, sem blöð Ásgeirs birta á prenti. Þrjár slúðursögur hraktar. Hvað eftir annað endur- tekur Alþýðublaðið þá sögu j að andstaðan í Framsóknar-; flokknum gegn Ásg. Ásgeirs-' syni sé mitt verk og að til þess að fá flokkinn til þess að beita sér gegn honum, hafi ég beitt ofbeldi. Já, mikil er nú orðin umhyggja Alþýðu- blaösins fyrir Framsóknar- flokknum. Sannleikurinn er þessi: Þingmenn Framsóknar- flokksins komu saman á ó- formlegan fund eftir jarðar- för forsetans og ræddu þing- mennirnir sín á milli um væntanlegt försetakjör. Var það einróma og ómótmælt skoöun allra þingmanna, er um málið töluðu, að leitast bæri við að velja sem ópólit-j : ískastan mann 1 starfiö. Einn' ( ig voru þingmenn sammála j um, að það væri á verksviðil jmiðstjórnar flokksins, að leita samkomulags um mál j þetta við aðra flokka, enda ^hafði svo verið í bæði skiptin, er forseti var valinn. Stjórnir( 1 flokkanna sömdu þá um mál- ið og þess vegna kom í hvor- ugt skipti til kosninga. Miðstjórn Framsóknar- flokksins kaus 7 manna nefnd til að athuga þetta mál og ræða við aðra flokka um það. Fyrir störfum þessarar nefndar og miðstjórnar hefir formaður og ritari flokksins gert grein í ítarlegu bréfi til trúnaðarmanna flokksins og fleiri flokksmanna. Niður- staðan af vinnu þessarar nefndar varð sú, að miðstjórn Framsóknarflokksins sam- þykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að styðja kjör séra Bjarna Jónssonar vígslubískups. — Framangreind slúðursaga um einræði mitt og ofbeldi, sem endurtekin er í flokks- blaði Ásg. Ásgeirssonar hvað eftir annað og síðan þrástag azt 1 í blaðinu Forsetakjör, er því uppspuni frá rótum. I Næsta slúðursaga, sem sögð er í Alþýðublaðinu, að vísu í skopsögustíl, er auðsjáanlega til-að styðja hina fyrri. Hún er um það, hvernig ég og Ól- j afur Thors höfum fengiö séra Bjarna Jónsson til þess að, vera í kjöri, auk þess sem á1 ísmeýgilegan hátt er gefiö í skyn, að við Ólafur ætlum að gera hann að okkar hand- bendi. Það sanna um viðtal við Bjarna Jónsson er, að það voru þeir Steingrímur Stein- þórsson forsætisráðherra og Ólafur Thors, sem gengu á fund Bjarna Jónssonar og fengu jáyrði hans við beiðni og áskorun Framsóknar- flokksins og Sjálfstæðis- flokksins um að verða í kjöri. Þessi saga blaða Ásg. Ás- geirssonar er því með sama drengskaparmarkinu brennd og hin fyrri. i Þriðja sagan er sú, að Framsóknarflokkurinn hafi ekki rætt við Alþýðuflokkinn um samkomulag. Af hálfu Framsóknarflokksins önnuð- ust þeir Steingrímur Stein- þórsson, forsæfisráðherra og Vilhjálmur Þór forstjóri þessi samtöl. Þeir ræddu við nefnd frá Alþýðuflokknum, en sú nefnd vildi engan mann heyra nefndan til framboðs nema Ásg. Ásgeirsson. Full- trúar Framsóknarfl. bentu Alþýðuflokksmönnum á, að vegna pólitískrar fortíðar Ásg. Ásgeirssonar væri hann sá maður, er Framsóknar- flokkurinn gæti sízt sam- þykkt, og hlyti Alþýðuflokkn- um að vera þetta ljóst. Eftir þessi samtöl fréttum við Framsóknarmenn á skot- spónum, að Alþýðufl. hefði samþykkt að styðja — það er að bjóða fram Ásgeir Ásgeirs- son, og var það gert án þess að ræða frekar við Fram- sóknarflokkinn um málið. Þessi saga Alþýöublaðsins, sem þar er margendurtekin, að Framsóknarflokkurinn hafi ekki rætt við Alþýðufl. um samkomulag við forseta- kjörið, er því einnig alger uppspuni. Með sæg af svona sögum, og arásum á einstaka menn, er nú baráttan háð, en eins og fyrr segir, í hinu orðinu talað um prúðmennsku og drengskap. Svona vinnu- brögð þurfa engra skýringa. Þau munu dæma sig sjálf og þeir, sem viðhafa þessi vinnubrögð, eiga ekkert er- indi upp í forsetastólinn. Breyttur -tónn. Ekki verður því þó neitað, að Alþýðublaðið og blað Al- þýðuflokksins á Akureyri hafa snögglega breytt um tón síðan framboð Ásg. Ásgeirs- sonar var ákveðið. í mörg undanfarin ár hafa blöð Al- þýðuflokksins haldið uppi látlausum árásum á Fram- sóknarfl., persónulegum á- rásum á flokksmenn, árásum á íslenzka bændur, árásum á flest þau hugsjónamál, sem Framsóknarflokkurinn hefir barizt fyrir. Á Akureyri hefir blað Alþýðufl. ofsótt KEA með látlausum árásum og stimplað stjórnendur kaupfé- lagsins sem steinrunna aftur- haldsklíku, o. s. frv. Allt þetta ætti að vera óþarfi að rekja eða minna á, svo fyrir- ferðarmikið hefir það verið í blöðum Alþýðuflokksins dag eftir dag síðustu árin. í Al- þýðuflokknum hefir ráðið fá- menn klika, sem dregið hefir Alþýðufl. til hægri, og hefir Asg. Asgeirsson verið forustu- maður hennar og er. Það er frá þessari deild í Alþýðufl., þeirri sem Ásg. Ásgeirsson stjórnar, sem þessar árásir undanfarin ár eru runnar, en þær hafa verið gerðar í óþökk fjölda ágætra manna, sem standa til vinstri í Alþýðu- flokknum og fá þar litlu eða engu ráðið. En nú lætur frambjóðandi Alþýðuflokksins, Ásg. Ás- geirsson, breyta um tón í blöðum sínum. Engar skamm- ir um Framsóknarfl., eng- inn o skætingur um bændur, engar árásir á KEA né stjórn þess. Blöð Alþýðuflokksins hafa þvert á móti fengið þá ofurást á Framsóknarflokkn- um, að Framsóknarmenn eru allt í einu flestir orðnir á- gætis menn. En sérstaklega brýst þessi ofu-rást deildar Ásg. Ásgeirssonar í Alþýðufl. út í því að vara Framsóknar- flokkinn við einum vondum manni, sem flokknum standi mikil hætta af, og það er Hermann Jónasson, sem nú er að eyðileggja þennan flokk, flokkinn sem Alþýðu- flokknum þykir nú skyndi- lega svo ákaflega vænt um. Þannig eru skrifin seinustu vikurnar. Það er ekki ónýtt fyrir Framsóknarflokkinn að eiga svo tryggan vin, sem varar Framsóknarmenn við og leið- beinir þeim á hættunnar stund. Ilvers vegna svona vinnubrögð? Alþýðuflokkurinn er nú fá- mennasti pólitíski flokkurinn j— hefir traust fæstra kjós- enda í landinu. Af þessu er og var augljóst, að hann hafði engan möguleika á því að fá j kosinn forseta úr röðum sinna manna með pólitísku (Framhald á 5. siðu.) 'V,VW.V.VVIW,,.S%,A\VWAWA’.V.,.V.-.W,V.'.VVW/ ZlV.’JVWpVVVW.VVVVViW.W.V.VVVVVAVVVVVVWV.W vnA^MWWV*JVWAV.V-Vl vw> f Fjórði hver vörubíll á Islandi er Chevrolet \ Af 4214 vörubílnm af 78 mis- munandi tegundum, voru lang- flestir Clievrolet, 1112 alls eða 26,4% liílanua. I ! Notið reynslu hinna 1100 vörubílstjóra, sem eiga Chervolet Getum útvegað þeim, sem hafa gjaldeyris- og innflutningsleyfi, Clievrolet vörubifreiðar með stuttum fyrirvara. § SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA VÉLADEILD BMWW/AW^VWíVVVVV'.V.WVWAiVVVVVVVVVVW WWWUVVVVVWJVVVVVV.VVWVVWVVVW.VWI.’JVWUVVy

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.