Tíminn - 03.06.1953, Side 4
TÍMINN, miðvikudaginn 3. juní 1953.
121. blað,
EinriLg þér
geíið
orðzð fegurri
Myrna Loy segir:
„Ég vanrœki aldrei
daglega andlitssnyrt-
ingu með hinni ilm-
andi LUX sápu“.
Hversvegna er her á islandi?
1. Vegna ótta Vesturveldanna við yíirgang Rússa.
2. Hræðsla um sömu örlög og Eystrasaltslöndin, Pól-
land, Rúmenía, Búlgaría, Tékkóslóvakía og önnur
fleiri lönd hafa hlotið.
3. AHir íslendingar myndu kjósa, að ekki þyrfti að vera
erlent setulið í landinu.
4. En mikill meirihluti þjóðarinar kýs þó frekar her-
inn, en annað verra.
5. Hvað er þetta, annað verra?
6. Það sem gerist í flestum einræðislöndum, og gerðist
síðast á liðnum vetri, í hinu vel mennta nágranna
og viðskiptalandi okkar, Tékkóslóvakíu, að ríkis-
stjórninni þótti nauðsyn bera til að hengja stóran
hóþ af fyrri samherjum sínum og forystu mönnum
flokksins.
7. Þær viðbjóðslegu játningar þessara og fjölmargra
annara fórnarlamba hinna kommúnistisku einræðis
landa, um sekt sína og réttamæta dauðarefsingu.
8. Læknamálið rússneska, þar sem margir frægi'r lækn
ar voru búnir að „játa“ á sig stór glæpi og morð, —
og biðu gálgans.
9. En svo dó einvaldur Rússlands, og þá kom í Ijós, að
allur málatilbúnaðurinn var uppspuni einn, en játn
ingar þeirra fengnar með þeim hætti, sem engi'n
siðmenntuð þjóð leyfir sér, að beita gegn þegnum
sínum.
10. Það er tilraun frjálshugsandi manna til að forðast
þetta hræðilega hlutskipti, sem veldur því, að nán-
ustu frændþjóðir okkar leggja á síg drápsklyfjar
vegna hervarna, og að íslendingar leyfa her í landi
sínu. B. G.
I fölu grasi
Ljóðabók eftir Jón Jóhannesson
I vetur kom út lítil ljóðabók.
Hún er ein af þeim fyrirbrigð-
um eða hlutum þessarar tíð-
ar, sem vekur athygli með
hljóðlæti sínu og látleysi, þeg- 1
ar allt annað hrópar á stræt-
unum.
Þetta er ljóðabók yngsta
breiðfirzka skáldsins, Jóns Jó-
hannessonar frá Skáleyjum á
Breiðafirði.
Pyrir löngu vissu vinir Jóns,
að hann var fæddur skáld.
Þær erfðir eru sterkar við
„fjörðinn". En hann hefir ver
ið hlédrægur og skort trú á
sjálfan sig, því varð biðin eft-
ir ljóðum hans orðin löng,
ekki sízt eftir að hann hafði
lesið í útvarpið nokkur kvæði,
sem Ijóðvinum þótti sem leik-
in á hörpustrengi angurblíðu
og átthagaástar.
En nú er bókin komin. Við
fyrsta lestur lætur hún lítið
yfir sér. En sé hún lesin aftur
verður lesandinn gripinn töfr
um ljóðrænnar fegurðar. Það
er líkt og deyjandi geislar eða
sítrandi regn hafi snortið
hjartað. Kvæðin eru flest
smá, og kannske ekki nógu
heilsteypt sem perlur, en það
þurfa smákvæði að vera til að
vekja strax áhuga á þeim tím
um hraðans og hávaðans, sem
nú herja sálir hinna hrein-
hjörtuðu, sem lesa ljóð. En í
hverju einasta þeirra glamp-
ar á lýriska kristalla í orðum,
tónum og hugsunum.
Og það fer um hugann eitt-
hvað mjúkt og milt eins og
breiðfirzk vorgola, dálítið sölt,
en ilmandi af minningum og
lnnibyrgðum söknuði, sofinni
þrá, heitri en hljóðri ástríðu.
TÖkum t. d. eina vísu valda
af handahófi á fyrstu blað-
síðu:
„Það huliðsblóm og háværð allri fjær
íkal hjarta mínu vagga í kyrrð og ró
sem óróleikans munablómi í mó
liinn mildi angurværi júníblær/1
„Og gamla sögu í rökkrinu ég rek
og rökkrið seitlar inn um gluggann
minn“.
Þetta eru aðeins tvær sam-
stæður úr fyrsta kvæðinu, sem
heitir Sonnetta.
Ef breiðfirzkur heimhugi
finnur ekki bergmál í þessum
kliðmjúku ómum, þá skil ég
ekki lengur.
Og þessi smávísa í Flæðar-
mál:
„Lávær hending í ljóði
laðar þig nið’r að sjá. .
Gull þín í gráan sandinn
grefur þar aldan blá.“
Þetta minnir á Jóhann Sig-
urjónsson og gæti verið eink-
unnarorð á forsíðu bókarinn-
ar. —
Jón er skáld þjóðvarnar-
stefnunnar. Hann er það ekki
pólitískt, heldur óvart sem
sannur sonur íslenzkrar sveit-
ar. Öll stærstu kvæðin eru
sveipuð krafti og trega þess
huga, sem elskar ísland djúp-
um sefa.
Og fólkið, sem var að berj-
ast við skortinn í kreppunni
um og eftir 1930 skilur með
sársauka þessa lokaspurningu
úr kvæðinu Stríðsgróði vor:
Erum við bráðum orðnir, þú
og ég, atvinnulausir menn á
gróðaskóm, sem endast skulu
á árunum sem bíða í aðra
hungurgöngu milli stríðá?
En kvæöið: Syng myrkur
þitt, Öxará, túlkar þó bezt
þennan hug og sársauka ís-
lendingsins.
Það er ekki unnt í örfáum
orðum að benda á fleira í þess
ari litlu, látlausu ljóðabók
Breiðfirðingsins, þar er svo
margt fallegt, það mun líka
Athugasemd
í Tímanum frá 30. f. m.
stendur þessi setning: „En
þegar þeir, (þ. e. forystumenn
Sjálfstæðisflokksins) gátu
veit Eyjölfi Jóhannssyni stöð-
una, urðu Sjálfstæðismenn
allt í einu því fylgjandi, að
starfrækt yrði Innkaupastofn
un ríkisins, því að þá var það
tryggt, að verzlað yrði á rétt
um stað, og gróðinn kæmi nið
ur á rétta einstaklinga“.
Ég hefi eftir að árin færð-
ust yfir mig hliðrað mér hjá
að svara aðkasti í minn garð,
j þó að birzt hafi í blöðum. En
j varðandi framanritúð um-
r mæli í heiðruðu blaði yðar,
j þá eru þau ekki aðeins meið-
i andi fyrir mig, persónulega,
j þau fela í sér slíka aðdróttun
j að óhjákvæmilega hlýtur að
I skaða þá opinberu stofnun,
j Innkaupstofnun ríkisins, er
ég veiti forstöðu.
Til að 'koma í veg fyrir að
j svo megi verða, leyfi ég mér
að taka fram eftirfarandi:
Enginn stjórnmálamaður hef
ir með einu orði reynt að hafa
áhrif á mig á einn eða annan
hátt, varðandi framkvæmda-
stjórn mína á Innkaupastofn
un ríkisins, að undanskildri
þeirri reglugerð, sem sett var
um stofnunina og starf mitt
af viðskiptamálaráðherra, og
birt hefir verið í Lögbirtingar
blaðinu.
Innkaupastofnun ríkisins
hefir haft þann hátt á varð-
andi innkaup fyrir hinar
ýmsu ríkisstofnanir, sem fela
henni forsjá innkaupa sinna,
að bjóða vörurnar út, þegar
um stærri kaup er að ræða.
en í öllum tilfellum, þegar því
verður við komið að panta
vörurnar beint frá útlöndum,
svo að ríkisstofnanirnar fái
vörurnar á framieipsluverði
og geti sparað bæði heildsölu
og smásöluálagningu. Ef um
kaup á lagervöru hér innan
lands er að ræða, telur Inn-
kaupástofnun ríkisins litla
ástæðu til að blanda sér í þau
kaup, nema hvað hún telur
í sjálfsagt þegar hún er um beð
in að greiða þar fyrir, meðal
’ annars með því að gera samn
inga um afslátt frá heildsölu
jVerði fyrir hinar ýmsu stofn
anir, er þær hafa leitað eftir
iSlíkri aðstoð.
I Ég þori að leggja starfsemi
Innkaupastofnunarinnar und
ir hvaða smásjá sem er í vissu
þess, að þar gæti aldrei fund
izt að nokkur kaup hafi verið
gerð án þess að hagsmunir
ríkisstofnananna hafi verið
það eina sjónarmið, sem ríkt
hefir.
Mér er ánægja að geta sagt,
að eftir því sem ég hefi getað
lesið í gegn viðskipti stofnun-
arinnar frá því í tíð fyrirrenn
ara míns, Finns heitins Jóns
sonar, er ég sannfærður um,
að slíkt hið sama sjónarmið
hefir einnig vakað fyrir hon-
um.
Með þökk fyrir birtinguna.
Eyjólfur Jóhannsson.
fyfr eða síðar sannast, að hún
geymir perlur, sem eiga eftir
að glitra og strengi sem eiga
eftir að óma „í annars minni,.
þótt þeir deyi um leið.“
J En eitt einkenni kvæðanna
' hlýtur að vekja strax eftir-
tekt allra, sem unna íslenzku,
' en það er fjöldi orða, sem eru
jný í ritmáli nútímans, t. d.
ofanlútur, þagnarlín, bróður-
stefja, regnúð, vaðblár, lág-
' gróður, sævartún svo að eitt-
hvað sé nefnt.
I CFramh. & 6. e0u).
Farið að dæmi hinnar fögru Myrnu Loy og þér getið orðið
eins fögur og kvikmyndastjarnan, sem þér dáið. Hið ilm-
andi mjúka löður Lux sápunnar gefur
yður ferksa og mjúka húð. Þvoið yður
úr volgu vatni með Luxj-skolið úr
köldu. Þér vcrð;ð fcgurri og ..meira
aðlaðandi en áður...............................
LUX
HANDSAPA
Hin ilmandi sáþa
kvikmyndastjarnanna
\ IM.V£R PRODOCT
Veiðimenn
Nú er vertíðin að byrja. — Hjá okkur fáið þið
allt, sem til veíða þarf í miklu fjölbreyttara
úrvali en nokkru sinni áður, svo sem stengur
frá „HARDY“, ásamt hjólum og línum. — Kast-
hjól. — Stálstengur. — Glasfibersténgur óg ó-
teljandi tegundir spóna frá hinu fráégá; sænska
„RECORD“ firma. — Torpedohead flugulínur. —
Extra strength kastlínur frá „ASHAWAy“. —
Lax- og silungaflugur eru og í góðu þr'ýftÍL
Allt eru þetta beztu fáanlegar vörur,
hver á sínu sviði. ... .
Sendum í póstkröfu. ......
Sundhöllin
er nú opin fyrir bæjarbúa almennt allan daginn til kl.
8 síðdegis. Eftir kl. 8,30 er sértími kvenna, og fá þá bað-
gestir sundleiðbeiningar ókeypis. Sundkennsla verður
allan júnímánuð. Kennslugjald barna kr. 40,00, full-
orðinna kr. 60,00.
Sumlliöll Reykjavikiir.