Tíminn - 17.06.1953, Blaðsíða 8
37. árgangur.
Reykjavík,
17. júní 1953.
133. blað.
Verkamenn A.-Þyzkal. krefja
valdhafana um úrbætur
Fjðlmennai1 kröfisgöngur til forsa»íisrá<SiB“
n., kraíizí laanabóta og stjónsmálafrelsis
Verkamenn í Austur-Þýzkalandi virðast ekki ætla að
láta á sér sitja að notfæra sér það aukna frjálsræði, sem
austur-þýzka kommúnistastjórnin hefir auglýst undan-
farna dag og heitið. í gær hófu þeir miklar kröfugöngur
til forsætsáðherrabústaðarins og kröfðust kjarabóta og
aukins stjórnmálafrelsis og frjálsra kosninga.
völdin reyndu ekki að beita
alþýðulögreglunni í kröfu-
göngum þessum.
Það voru byggingaverka-
menn, sem áttu upptök að
þessari kröfugöngu. Varð
hún mjög fjölmenn og kröfð-
ust verkamenn þess að ná
tali af Grotewohl forsætisráð
herra. Ýmsir ráðherrar aðr-
ir reyndu að tala um fyrir
múgnujm, en árangurslaust.
Verkamenn kröfðust m. a.
þess, að kröfu stjórnarvald-
anna um 10% framleiðslu-
áukningu án kjarabóta yrði
af létt. Að lokum tókst námu
málaráðherranum að fá
hljóð og lofaði hann að fallið
skyldi frá þessari kröfu, og
héldu verkamenn þá brott.
Látið undan síga.
Síðdegis í gær samþykkti
svo stjórn austur-þýzka
kommúnistaflokksins, að
þessi krafa um framleiðslu-
aukninguna væri ósanngjörn,
og ekki væri rétt að gera slíka
kröfu nema jafnframt fylgdi
loforð um tilsvarandi kjara-
bætur. Var þetta tilkynnt í
útvarpi og gjallarhornum á
bílum, sem fóru um götur.
Af þessum fregnum virðist
mega augljóslega ráða, að
ekki hafi verið ríkjandi full-
komin sæla meðal austur-
þýzkra verkamanna, þrátt
fyrir fullyrðingar kommún-
ista erlendis og hér heima um
það, þar sem verkamenn
nota þegar tilslakanir aust-
urþýzku stjórnarinnar til að
krefjast úrbóta og meira
stj órnmálafrelsis og umfram
allt frjálsra kosninga. Það
vaJkti athygli, að stjórnar-
Konan, sem vantaði
vegabréfið, komin
Það var frá því skýrt við
komu vestur-íslenzku gest-
anna um daginn, að ein kona
hefði orðið eftir vestra á slð
ustu stundu vegna þess að
hún hafði ekki fengið sér
vegabréf. Nú hefir úr þessu
rætzt, og í gær kom þessi
kona, frú Anna Matthiesen
frá Vancover hingað til
Reykjavíkur með flugvél Loft
leiða og bætt'st í hópinn, og
var það gleoiefni. Það skal og
leiðrétt, að kona þessi er ekki
á tíræðisaldri, eins og sagt
var um daginn, heldur á ní-
ræðisaldri.
— Við höfum nú verið á
ferðalagi um Suðurland og
allt gengið vel, sagði Finn-
bogi Gu^mundsson, pró-
fessor í samtali við blaðið í
gærkveldi. — í kvöld förum
við saman í þjóðleikhúsið, en
í fyrramálið dreifist hópur-
ínn vlðs vegar um land í
heimsóknir til vina og ætt-
ingja.
Góð færð inn að
Landmannalaugum
Páll Arason fór fyrstu bíi-
íerðina á þessu vori inn að
Landmannalaugum um helg-
ina með fólk. Þar var nú
minni snjór en um miðjan
júlí í fyrra að sögn Páls.
Hann fór þó ekki yfir Jökul-
! gilskvísl því hún var í vexti.
Færð var góð og hvergi aur
bleyta eða ófærur.
Gotí or að hafa
tungur tvær
Mbl. birtir stefr.u Sjálf-
siæðisflokksins í svczta- j
stjémarmálum. Flakkurinn |
vill bæta úr erffðu f jár-:
málaástandi sveitarfélaga
og þá væntanlega Reykja-
víkur efnnig.
En öll úrræði Sjálfstæðis
manna tzl að bæta hag
sveitarfélaganna eru kröf-
ur á ríkissjóðinn. Ýmist að
sveitarfélögin fái hluta af
tekjum ríkissjóðs (söluskatt
inn) eða að ríkissjóður
auki framlös til sveitarfélag
anna vegna löggæslu,
fTæðs!umála og sjúkrahúsa.
Ennfremur, að ríkissjóður
hraði mjög greiðslum vegna
hafnargerða, skólabyggznga
og sjúkrahúsa.
En sé flett upp í skatta-
málatzllögum flokksins, tel
ur hann stefnu sína að
draga úr sköttum, lækka
skatta á f jölskyldufólki,
lækka skatta á hjón-
um, auka persónufrádrátt, j
skattfrelsi á lágtekjum og
(Framhald á 7. síðu).
Sláttur hafinn ailvíða
i Eyjafirði og víðar
tílit i'vrir, að sláttur IiefJist esjbi allt !and
fyrir eSfa íim næstn ináisaðamót
Grasvöxtur hér í 'Eyjafirði er nú orðinn eins góður nú
og viku af júlí í fyrra að sögn bænda sagði fréttaritari hlaðs
ins á Akureyri í gaefeSláttur er hafinn víða um Eyjaf jörð, og
mátti víða sjá slefgá bletti þar í gær.
jðrarstöð
•tt' fyrir
íydaginn
fir bænd
nn. Hér
-nvindur
tð þýtur
Sláttur hófst í
inni á Akureyri
helgina, og á la
og í gær hófu all:
ur í firðinum sll
er sól og su:
flesta daga og grí
upp. IK
Sláttur hófst íS^ilrauna-
stöðinni á Reykhjjjjjsöm fyrir
helgina, og er þar^mu sögu
að segja og í Eý&firði, að
spretta er þar eiajfegóð og í
byrjun júlí í fygjia; Búast
má við, að sláttu^gjij’érði haf-
inn svo að segja um allt
land fyrir mánaðarmót, og
mun það sjaldgæft, að svo
jafnvel ,g.é , sprottiö og
snemma um allt land, sem
nú.
Blaðinu hafa borizt ‘þær
fregnir úr Skagfirði, aö þar
sé sláttur hafinh á sáðslétt-.
um. Spretta e'r þar gðð og
munu bændurp hefjá slátt
almennt éinhverja næstu
daga.
Hvernig er hiutur kvenna
tryggður á framboðslistum?
Þegar framboð Rannveigar Þorsteinsdóttur var
tilkynnt hér í Reykjavík fyrir kosningarnar 1949 dró
Vísir, annað aðalblað Sjálfstæðisflokksins af því eft-
irfarandi ályktun, sem lesa mátti í hugleiðingum
blaðsins um framboðið:
„Af framboði Rannveigar hlýtur að leiða, að kon-
ur skipi nokkurn veginn trygg sæti á öðrum listum,
og að valið verði vandað.“
Með þessum o.rðum var það viðurkennt af and-
stæðingunum, að Framsóknarflokkurinn hefði rétt
mjög viff hlut þess helmings kjósenda, sem konur
eru, með framboði Rannveigar og knúið aðra flokka
til að fara sömu leið. Aðrir flokkar höfðu og nokkra
tilburði til þess fyrir síðustu kosningar, þótt sæti
Rannveigar reyndist öruggast og hún ein kvenfram-
bjöffenda næði kosningu í Reykjavík.
★ ★ ★
Áður en framboð til þessara kosninga voru ákveð-
in. rituJu samtök kvenna flokkunum bréf, þar sem
/nælzt var til þess, að konur væru hafðar í öruggum
sætum. Þessi tilmæli hafa allir flokkkar hunzað,
nema Framsóknarflokkurinn, sem hefir konu í efsta
sæti. Þetta munu konurnar kunna að meta. Rann-
veig Þorsteinsdóttir er vel menntuð, duglegur og á-
kjósanlegur fulltrúi kvenna, enda hafa konurnar
sjálfar valið hana í stjórn Kvenfélagasambands ís-
lands og til margra annarra trúnaðarstarfa.
★ ★ ★
En hvaff gera hinir flokkarnir? Alþýðuflokkurinn
hafði konu í þriðja sæti 1949 (vonlausu þó), frú
Seffíu Ingvarsdóttur. Hún var hrakin brott af fnll-
trúaráði flokksins í uppha.fi kosningabaráttunnar,
og Jóhanna Egilsdóttir sett í staðinn, en þegar til
félagsfundar kom, var hún einnig kolfelld, og finnst
nú engin kona ofar en í 10. sæti.
Kommúnistar hafa konu í 5. sæti, sem er ger-
samlega vonlaust. Sjálfstæðisflokkurinn hefir einn-
ig konu í vonlausu sæti, nema sú veika von rætist,
að hún nái uppbótarsæti. Um nýju flokkana þarf
ekki að tala, enda eru konur þar hvergi í efstu sæt-
um.
★ ★ ★
Konur munu á kjördegi minnast þess, hvaða
fiokkur tekur mest tillit til áhugamála kvenna og
v veita honum verðskuldað brautargcngi á sama hátt
og konur í Kaupmannahöfn í dönsku kosningunum,
en þar fengu þeir framboðslistar hlutfallslega flest
atkvæði, sem höfðu konur í efstu sætum. 23. júní
munu reykvískar konur veita þeim flokkum verð-
skuldaða hirtingu, sem hafa hunzað óskir helmings
kjósenda — kvennanna — um eðlilegt jafnvægi í
þessum efnum.
* —
Agætt söngmót
Heklu um helgina
Hekla, karlakórasamband
Norðurlands hélt 7. söngmót
sitt á Akureyri og í Skaga-
firði um síðustu helgi. Kór-
arnir komu saman á Akur-
eyri s. 1. föstudag og hófu
samæfingar í ‘Akureyrar-
kirkju. Kórarnir, sem þátt
tóku í mótinu eru: Karlakór
Mývatnssveitar, söngstjóri
Jónas Helgason, Karlakór
Reykdæla, söngstjóri Páll H.
Jónsson, Karlakórinn Þrym-
ur, Húsavik, söngstjóri Sig-
Vígður til Raufar-
hafnarprestakalls
Föstudaginn 19. júní klukk
an 10,30 f.h. verður synodus-
guðsþjónusta. Fyrir altari
þjóna Friðrik A. Friðriksson,
prófastur Húsavik, séra Björn
Jónsson, Keflavik og séra
Jón Auðuns, dómprófastur. j urgur sigurjónsson, Karlakör
Predikun og ..vígslulýsing. inn Geysir, söngstjóri Ingi-
Prestsvígsla, Sigurgeir Sig- j mimdur Árnason, Karlakór
urðsson biskup vígir cand. Akureyrar, söngstjóri Áskell
theol. Ingimar Ingimarsson
til Raufarhafnarprestakalls.
Vígsluvottar: * Ásmundur
Sveinsson, prófessor, séra
Jakob Jónsson, - Birgir
Snæbjörnsson og séra Björn
Jónsson. Hinn ný.vigði prest-
ur flytur ræðu og guðsþjón-
ustunni lýkur með altaris-
göngu.
Jónsson, og karlakórinn
Heimir í Skagafirði, sörig-
stjóri Jón Björnsson.
Á laugardag voru tvær
söngskemmtanir haldnar í
Akureyrark’rkju við húsfylli,
söng hver kór þrjú löé og síð
an sameiginlega undir, stjórn
hvers söngstjóra, og .var það
(Framhald á 7. siöu).
Sjálfstæðisflokkurinn h.f.
Hér í blaðinu í gær var varpað fram þeirri spurn-
ingu, hvers ve#na Mbl. væri oft kallað Familie-Journ-
al. Ástæðan er sú, að Thorsararnir og nánustu klíku-
bræður þeirra hafa náð blaðinu undir yfirráð sín og
beita því eingöngu í þjónustu hagsmuna sinna.
En þeir hafa riáð meiru en Mbl. einu í því skyni.
Þeir hafa náð yfirráðum í Sjálfstæðisflokknum og
beita öllum brögðum til þess að halda þeirh. Þess er
vandlega gætt, að ekki komist aðrir til áhrifa í flökkn-
um en þeir, sem dyggilega þjóna klíkunni. Vegna þess
var Björn Ólafsson einu sinni felldur frá. kosningu
með útstrikunum, því að hann var þá ekki talinn nógu
fylgispakur, og vegna þess var Gunnari Einarssyni
vikið úr bankaráði Útvegsbankans. Þegar óttast er urn
yfirráðin í flokknum, eru leynilegar kosningar af-
numdar og menn kúgaðir til að kjósa hina „útvöldu“
með handauppréttingu, sbr. seinasta landsfund.
Af klókindum er Sjálfstæðisflokkurinn kallaður
„flokkur allra stétta“ og oft Iátinn fylgja ýmsum um-
bótavnálum, ef þau ganga ekki á hlut klíkunnar. Hins
vegar beitir hann sér gegn öllum málum, sem eitt-
hvað geta skert gróða hennar, eins og umbótum í
verzlun, siglingum og tryggingum. Sérstök áherzla er
Iögð á, að ná yfirráðum yfir voldugum fjármálastcfn-
unum, eins og bönkum, svo að þannig sé hægt í kyrr-
þey að hlynna að helztu gæðingum kiíkunnar.
Af þessum ástæðum hefir það verið sagt, að rétt-
ara sé að kalla Sjálfstæðisflokkinn hlutafélag en
stjórnmálaflokk. Þetta er líka fleirum og fleirum að
verða Ijóst og því er hrun flokksins nú að byrja fyrir
alvöru. Um þaff verður rætt nánar síffar.