Tíminn - 17.06.1953, Blaðsíða 5
AUKABLAÐ
5
TÍMiNN
Benedikt Jónsson frá Auðniim:
S K I P
„Ég trúi því, sannleiki, að sigurinn þinri
að síðustu vegina. jafni;.........
og því stíg ég hiklaust og vonglaður inn,
í frelsandi frnmtíðar nafni“.
Nýlega kom út á Englandi bók
ein, er vakti mikla eftirtekt.1)
Höfundurinn heldur því fram,
meðal annars, að andlegir hæfi-
leikar og þroski einstaklinganna
meðal Evrópuþjóða nú á tímum
séu í rauninni engu meiri en hjá
hálfviltum þjóðum, eða hjá
fornaldarþjóðunum. — Annar
merkur rithöfundur2) hefir
haldið því fram, að Forngrikkir
hafi haft eins mikla andans yf-
irburði yfir Evrópumenn nú á
tímum, eins og þeir hafi nú yfir
blámönnum. Gladstone gamli
hefir líka komizt að þeirri niður-
stöðu, að miðaldamenn hafi
verið búnir meira andlegu at-
gervi en nútímamenn. — Það er
ýmislegt, sem bendir til, að þess-
ar skoðanir séu á rökum byggð-
ar. Norðurálfumenn hafa litið
með fyrirlitningu til Japans-
manna og Kínverja, en nú sýnir
reynslan, að þegar þeim gefst
færi á að læra, þá hafa þeir fullt
eins góðar „gáfur“ sem Norður-
álfumenn.
Það eru ýmsar likur til þess, að
í sumum viltum þjóðum séu
hraustari og betur byggðir heil-
ar, en til eru í nokkurri haus-
kúpu í Norðurálfunin. En þessir
villimannaheilar hafa önnur
ytri skilyrði en hjá oss. Þeir hafa
annað starf aö leysa en vorir
heilar. Væri þeim fengið hið
sama starf, eru líkur til, að þeir
mundu leysa það eins vel af
hendi, sem vorir heilar nú gera.
x) Benjnmín Kidd: „Socinl Evolution"
= Félagsleg frnmþróun.
2) Gnlton: „Heréditary Genius“ (andans
arfur).
Að námsgáfum eru blámenn
ékki eftirbátar hvitra manna. Þá
skortir ekki heila, þá skortir að
eins skóla. í barnaskólum
Bandafylkjanna sýnir reynslan,
að svörtu börnunum gengur
námið eins vel og þeim hvítu.
En hverjar eru þá orsakir þess
að hinir hvítu Evrópu þjóðflokk-
ar hafa gerzt „herrar“ allra
annara þjóðflokka, hafa hvar-
vetna haft yfirhöndina yfir
þeim, og eru kennarar þeirra í
allskonar menning og listum?
Hvers vegna hafa Norðurálfu-
menn einir reist voldug menn-
ingarriki, með öllum þeirra
undrum og kynjum af vélum og
mannvirkjum? Hvers vegan
verða gáfaðir Japansmenn að
læra af Norðurálfubúum allt
það, er að menningu og verkleg-
um framförum lýtur?
Hinn enski höfundur svarar
þessum spurningum og segir, að
orsökin sé ein, og hún sé sú, að
Norðurálfumenn hafi lært að
nota fullkomnast félagslegt
skipulag (social organisation);
og því næst færir hann rök til
þess, að skipulegt félagslíf sé
grundvöllur allrar menningar;
að án þess geti engin menning
átt sér stað, án þess sé einstakl-
ingurinn-aflvana, en að i hag-
feldu skipulagi þúsundfaldist
afl og hæfileikar einstakling-
anna, þvi að það gerl hellar
þjóðir að einum liíandi líkama,
og einstaklingana að samvintt-
andi líffærum. Það, sem ein-
staklingurinn framkvæmir í
skipulegu félagslifi, verður öll-
Benedilct Jónsson frá Auðnum.