Tíminn - 17.06.1953, Blaðsíða 23
AUKABLAD
TlMINN
23
stefna óg eðli kaupfélagsskap-
. arins er 1 samræmi við nýjustu
og þroskuðustu skipulagshug-
myndir meðal annara þjóða, og
það er sennilegt, að sagan muni
síðar meir telja það merkilegan
viðburð, að slíkar skipulagshug-
myndir skyldu koma hér upp og
veróa framkvæmdar í svo óþrosk
uðu þjóðfélagi, sem vort er.
En fyrst nú kaupfélagsskapur-
inn er rétt spor i rétta átt fyrsta
spor til nýs og betra skipulags,
þá sjá allir, hvílík nauðsyn oss
er að leggja rækt við hann, að
afla oss þeirrar þekkingar og
þess þroska, er gerir oss færa um
að fullkomna þennan visi, að
skilja og nota þá eðlisstefnu
(tendens), sem fólgin er í slíku
skipulagi, og sem gefur þvi þá
kosti, sem það hefir fram yfir
annað skipulag.
Og það er ekki einungis í kaup
skap eða verzlun, að þetta skipu-
lag — samvinna og sjálfsábyrgð
— er framkvæmanlegt og hent-
ugt; það er hvarvetna hægt að
koma því við. og hvarvetna mun
það reynast réttlátara og far-
sælla en nokkurt annað fyrir-
komulag, sem reynt hefir verið,
enda ryöur það sér hvarvetna til
rúms meðal annara þjóða, og
hrindir fram hinum stærstu
framfarafyrirtækjum. Á sama
hátt sem vér nú rekum á okkar
mælikvarða stórkostleg verzlun-
arviðskipti, með nærfelt hálfu
minni tilkostnaði en áöur var
gert, á sama hátt getum vér rek-
ið hver önnur fyrirtæki í búnaði,
iðnaði og bókmenntamálum. En
til þess þarf almennari menntun
og þekkingu mikið að fara fram
hjá oss, og margir hleypidómar
að hverfa. Og einnig því fáum
vér hægast komið til leiðar með
samvinnunni. Engin konungleg
lagaboð gera oss að frjálsum og
menntuðum mönnum, heldur
vorir eigin hæfileikar til skipu-
legs félagslífs og djarflegrar
framsóknar. B. 3.
Extra Motor Oil
Fullkomnasta. bifreiðaolían á /leims*
markaðinum.
★ Hreinsar um leið og liún smyr
★ Veitir mesta viðnám gcgn sýringu
★ Hefir hærri seigjugráðu en nokkur
önnur bifreiðaolía
★ Er stöðug við mikinn hita og liátt
álag.
ESSOLUBE HD
Fullkomnasta smurningsolían fyrir
dieselvélar í bifreibum.
Samtlmis því, sem (Ueselbifreiðum fjölgar stöSugt
í landinu, skapast aukin þörf fyrir fullkomna smurn-
ingsolfu, sem heldur bifreiðadieselvélunum hrein-
um. verndar þær við erfiðustn aðstæðttr og eykur
endingu þeirra. Kin þekktasta bifreiðadiescl-smurn-
ingsolian á heimsmarkaðintun er ESSOLVBE fiD.
ESSOLUBE HO inniheldur sérstök sýruverjandi
efrii og hreinsiefni, sem fyrirbyggir festingu stimp-
ilhringja og heldur ventlum og öðrum vélahltitum
hreinum.
ESSOLUBE HD fæst við flestar ESSO-benzíndælur.
OLÍUFÉLAGIÐ H.F.
Sími 81600 — Reykjavík