Tíminn - 17.06.1953, Page 23

Tíminn - 17.06.1953, Page 23
AUKABLAD TlMINN 23 stefna óg eðli kaupfélagsskap- . arins er 1 samræmi við nýjustu og þroskuðustu skipulagshug- myndir meðal annara þjóða, og það er sennilegt, að sagan muni síðar meir telja það merkilegan viðburð, að slíkar skipulagshug- myndir skyldu koma hér upp og veróa framkvæmdar í svo óþrosk uðu þjóðfélagi, sem vort er. En fyrst nú kaupfélagsskapur- inn er rétt spor i rétta átt fyrsta spor til nýs og betra skipulags, þá sjá allir, hvílík nauðsyn oss er að leggja rækt við hann, að afla oss þeirrar þekkingar og þess þroska, er gerir oss færa um að fullkomna þennan visi, að skilja og nota þá eðlisstefnu (tendens), sem fólgin er í slíku skipulagi, og sem gefur þvi þá kosti, sem það hefir fram yfir annað skipulag. Og það er ekki einungis í kaup skap eða verzlun, að þetta skipu- lag — samvinna og sjálfsábyrgð — er framkvæmanlegt og hent- ugt; það er hvarvetna hægt að koma því við. og hvarvetna mun það reynast réttlátara og far- sælla en nokkurt annað fyrir- komulag, sem reynt hefir verið, enda ryöur það sér hvarvetna til rúms meðal annara þjóða, og hrindir fram hinum stærstu framfarafyrirtækjum. Á sama hátt sem vér nú rekum á okkar mælikvarða stórkostleg verzlun- arviðskipti, með nærfelt hálfu minni tilkostnaði en áöur var gert, á sama hátt getum vér rek- ið hver önnur fyrirtæki í búnaði, iðnaði og bókmenntamálum. En til þess þarf almennari menntun og þekkingu mikið að fara fram hjá oss, og margir hleypidómar að hverfa. Og einnig því fáum vér hægast komið til leiðar með samvinnunni. Engin konungleg lagaboð gera oss að frjálsum og menntuðum mönnum, heldur vorir eigin hæfileikar til skipu- legs félagslífs og djarflegrar framsóknar. B. 3. Extra Motor Oil Fullkomnasta. bifreiðaolían á /leims* markaðinum. ★ Hreinsar um leið og liún smyr ★ Veitir mesta viðnám gcgn sýringu ★ Hefir hærri seigjugráðu en nokkur önnur bifreiðaolía ★ Er stöðug við mikinn hita og liátt álag. ESSOLUBE HD Fullkomnasta smurningsolían fyrir dieselvélar í bifreibum. Samtlmis því, sem (Ueselbifreiðum fjölgar stöSugt í landinu, skapast aukin þörf fyrir fullkomna smurn- ingsolfu, sem heldur bifreiðadieselvélunum hrein- um. verndar þær við erfiðustn aðstæðttr og eykur endingu þeirra. Kin þekktasta bifreiðadiescl-smurn- ingsolian á heimsmarkaðintun er ESSOLVBE fiD. ESSOLUBE HO inniheldur sérstök sýruverjandi efrii og hreinsiefni, sem fyrirbyggir festingu stimp- ilhringja og heldur ventlum og öðrum vélahltitum hreinum. ESSOLUBE HD fæst við flestar ESSO-benzíndælur. OLÍUFÉLAGIÐ H.F. Sími 81600 — Reykjavík

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.