Tíminn - 19.08.1953, Blaðsíða 5
185. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 19. ágúst 1953.
S
Miðvikud. 19. áfgúst.
Vöxtur Samvinnii-
trygginga
Það vakti mikla athygli, og
jafnvel undrun, er það var
tilkynnt snemma á árinu, að
Samvinnutryggingar mundu
endurgreiða tryggingatökum
yfir tvær milljónir króna á
þessu ári til viðbótar við tæp-
lega eina milljón, sem félag-
ið hafði þegar endurgreitt á
þrem árum. Það var einstæð-
ur viðburður í íslenzkri trvgg
ingasögu, er slíkri upphæð af
tryggingafé landsmanna var
skilað aftur til einstaklinga
og fyrirtækja. Þau trygginga
félög, sem eru í eigu einstak-
linga, hafa aldrei skilað slík-
um arði, og er þetta glöggt
dæmi og raunhæft um yfir-
burði samvinnuskipulagsins.
Á aðalfundi Samvinnu-
trygginga, sem haldinn var í
fyrra mánuði í Bifröst í Borg
arfirði, fluttu þeir Vilhjálm-
ur Þór, formaður félagsstjórn
arinnar, og Erlendur Einars-
son framkvæmdastjóri ýtar-
legar skýrslur, er gáfu góða
hugmynd um vöxt og viðgang
félagsins á árinu 1952. Verð-
ur hér á eftir fylgt útdrætti
Samvinnunnar úr ræðum
þeirra:
„Það er þá fyrst frá að
segja, að starfsemin hefir
enn aukizt — fleiri viðskipta-
menn hafa falið Samvinnu-
tryggingum að annast trygg-
ingar fyrir sig og þannig hafa
vegur félagsins og vinsældir
þess vaxið. Iðgjaldaaukning-
in ein nam 2.147.000 krónum.
Þá er það athyglisvert, að
sjóðir félagsins hafa enn vax
ið verulega. Sjóðirnir eru það
bjarg, sem hvert tryggingar-
félag veröur að reisa alla
starfsemi sína á. Iðgjaldasjóð
ir Samvinnutrygginga juk-
ust um rúmlega 1,8 milljónir
og urðu 9.968.000 krónur —
tæplega helmingi meiri en
þeir voru 1950. Samtals námu
allir sjóðir félagsins 16.462.
000 krónum og er það mikill
stofn, þegar þess er gætt,
hversu ungt félagið er.
Næst var bent á það, að
endurtryggingar hefðu
minnkað stórlega. Þetta er
mikilsvert atriði. Auðvitað
geta tryggingafélög ekki tek-
ið á sig sjálf alla áhættu af
þeim tryggingum, sem þau
taka að sér, Þess vegna end-
urtryggja þau, ýmist innan
lands eða utan og þó stórum
meira utanlands. Nú er það
augljóst, að eftir því sem
tryggingafélag verður öfl-
ugra og eignast myndarlegri
sjóði, getur það tekið meiri
áhættu á sjálft sig, og þar
með losnað við kostnaðar-
samar endurtryggingar.
Það er einmitt þetta, sem
gerzt hefir hjá Samvinnu-
tryggingum. Félagið hefir
eflzt svo ört, að það hefir
getað tekið á sjálft sig meiri
áhættu, og hefir þannig spar
að stórfé á endurtryggingum.
Árið 1951 þurfti félagið að
greiða fyrir endurtrygging-
ar 25 aura af hverri einustu
krónu, sem það hafði í tekj-
ur. í fyrra var þessi tala kom
in ofan í 17,5 aura af hverri
krónu og varö af þessu mik-
ill sparnaður, því að krónurn
ar, sem félagið velti, urðu
margar. Það er þetta, sem er
ERLENT YFIRLIT:
Verkföllin í Frakklandi
Orsök þeirra var klanfaleg framkvæiud
réltmætra síjórnarráðstafana
Seinasta hálfan mánuðinn hafa
verkföllin í Frakklandi verið eitt
helzta íréttaefni blaða og útvarps
víðs vegar um heim. í fyrstu fóru
þau hægt af stað og var þá ekki
búizt við, að þau m,vndu draga til
neinna alvarlegra tíðinda. Nú er
hins vegar svo komið, að næsta
erfitt er að segja fyrir um, hvar
þau kunna að enda. Ef til vill
hjaðna þau smám saman og ríkis-
stjórnin gengur með sigur af hólmi.
Ef til vill magnast þau og verða
upphaf ólgu og ringulreiðar, sem
fætt getur af sér byltinguna, sem
kommúnistar hafa lengi látiö sig
dreyma um.
I Þótt kynlegt kunni að virðast,
voru það ekki kommúnistar, er
hófu verkföllin, þótt þeir hafi
stærsta verklýðssambandið að baki
sér. Kommúnistar eru tregir til að
hefja verkföll einsamlir, því áð þeir
hafa oröið slæma reynslu af því.
Nú voru það líka aðrir, sem byrj-
' úðu, eða jafnaðarmenn. Þegar
skriðan var komin af stað,. tóku
kommúnistar hins vegar við for-
ustunni og hafa haft hana síðan.
Þetta er svipuð saga og gerzt hef-
ir víöa, þótt illa hafi gengið að
iæra af henni.
I
Þing hinna mörgu flckka.
i Verkföllin í Frakklandi eiga sér
hins vegar orðið langan aðdrag-
anda. Segja má, að síðan styrjöld-
inni lauk hafi aldrei verið starf-
hæf stjórn í Frakklandi. Flokk-
( arnir eru svo margir, að ógerning-
ur hefir verið að mynda stjórn,
nema með stuðningi fleiri flokka,
sem eru meira og minna ósam-
stilltir. Engin stjórn hefir því lif-
að nema skamma hríð og því ekki
getað tekið með festu og einbeittni
á neinu rnáli. Alveg sérstaklega hef
ir þetta gengið út yfir fjármála-
stjórnina. Embættiskostnaður er
óheyrilega mikill og skattheimtan
í fullkomnasta ólagi. Hvers konar
fjármálasvindl þrífst óátalið. Hall-
inn á ríkisrekstrinum hefir farið
sihækkandi. í stað þess að ráðast
gegn þessum meinum, hefir hver
stjórn hugsað um það helzt að
reyna að hanga og fleyta sér áfram
með bráðabirgðaráðstöfunum. Öll-
um þýðingarmestu málunum hefir
verið slegið á frest, eins lengi og
hægt hefir verið. Nokkurt dæmi
um þetta er það, að þingiö hefir
ekki rætt um Túnismálið síðan í
júní í fyrra, ekki rætt um Evrópu-
herinn síðan í febrúar og ekki um
Indó-Kína síðan í apríl, en þetta
eru þó lang stærstu viöfangsefni
Frakka á sviði utanríkismála.
i
Stjórn Laniels.
Núverandi stjórn Frakka, sem er
undir forsæti Jósefs Laniels, var
I ntynduð seinustu dagana í júni að
afstaðinni margra vikna stjórnar-
kreppu, sem var lengsta stjórnar-
! kreppan i sögu Frakklands. Sást
j bezt á henni, að alltaf sígur nú
meira og meira á ógæfuhlið í stjórn
1 málum Frakka.
I Eftir að stjórn Laniels var mynd
uð, sat þingið að störfum í rúm-
an mánuð, en gerði lítið á þeim
tíma. í júlílok var því frestað
þangað til í október. Áður en því
var frestað, gaf það stjórn Laniels
heimild til að gera ýmsar ráðstaf-
anir með bráðabirgðalögum, eink-
um þó á fjármálasviðinu.
Stjórn Laniels styðst við mið-
flokkana og hægri flokkana, en i
stjórnarandstöðu eru kommúnist-
ar og jafnaöarmenn. Sjálfur er
Laniel óháður ihaldsmaður. Fjár-
málaráðherra er Edgar Faure, einn
af hinum yngri leiðtogum radikala
flokksins og er liann sagður i
vinstra armi lians. Fleiri frjálslynd
ir menn eru í stjórninni og verð-
ur hún því ekki meö réttu talin
hægri stjórn.
Óvinsælar ráöstafanir.
Strax eftir að þingið var farið
heim, hófst stjórnin handa um ýms
ar ráðstafanir til úrbóta á sviði
fjármálánna. Var ætlun hennar,
að þar ætti að vera um víðtækar
ráðstafanir að ræða, sem yrðu gerð
ar smátt og smátt. Það virðist nú
komið í Ijós, að stjórnin hafi þar
valið ranga starfsaðferð og miklu
heppilegra hefði verið að gera þess '
ar ráðstafanir allar í -einu.
Fyrstu ráðstafanirnar, sem;
stjórnin tilkynnti, voru tvenns kon
ar. Aðrar þeirra fjölluðu um það,
' aö opinberum starfsmönnum yrði
fækkað mjög verulega, en þó ekki
nema smám saman. Hinar þeirra
snerust um það, að rikið hætti að
kaupa af vínbændum vín, sem þeir
gætu ekki selt.
j Báðar þessar ráðstafanir voru
vel réttlætanlegar. Fjöldi opinberra
starfsmanna í Frakklandi er óhæfi
lega mikill. Launakjörin eru hins
vegar mjög bágborin. Kaup ríkis- 1
ins á víni, sem bændur gátu ekki
selt, áttu upphaflega að vera bráða
birgöaráöstöfun, sem skyldi aðeins
gilda meðan þeir væru að koma
framleiðslu- og söluháttum sínum
í betra horf. Niðurstaðan hefir
hins vegar orðið sú, að vegna þess- :
ára kaupa ríkisins hafa bændur'
orðið áhugaminni en ella að koma 1
þessum endurbótum í framkvæmd.!
Vínbændur eða vínframleiðendur í
Frakklandi eru mjög margir, eink- !
úm í Suður-Frakklandi, en búa
flestir við mjög slæma afkomu.
I
Verkföllin hefjast.
Þótt báöar þessar ráðstafanir
Lanielsstjórnarinnar væru vel rétt- '
lætanlegar frá fjármálalegu sjón- j
armiði, mæltust þær strax illa fyr-
ir meðal alþýðustéttana. Því var
haldið fram af þeim, að hér væri
ráðist á garðinn, þar sem hann
væri lægstur, því að opinberir
starfsmenn og vínbændur væru
þær stéttir, sem væru einna verst
settar. Stjórninni hefði verið nær
að snúa sér að milliliðunum. Þetta
sýndi bezt, að hún væri hin versta
íhaldsstjórn.
1 Stjórnin svaraði því til, að hér
! væri aðeins að ræða um fyrstu I
ráðstafanir sínar, en hún myndi |
LANIEL
síðar gera ráöstafanir, er drægju
úr gróða milliliðanna. Slíkar ráð-
stafanir þyrftu hins vegar meiri
undirbúning.
Þessum skýringum henna'r var
hins vegar ekki sinnt. Jafnaðar-
menn, sem eiga traustasta fylgi sitt
hjá opinberum starfsmönnum, á-
kváðu að hefja mótmælaverkfall
póstmanna, símamanna, járnbraut
armanna og fleiri slíkra starfs-
stétta. Verkfall þetta skyldi aðeins
standa stuttan tírna. Jafnframt
fyrirskipuðu jafnaðarmenn verka-
lýðssambandi sínu að geia samúö-
arverkfall. Katólski flokkurinn, er
styður stjórnina, gaf verkalýös-
sambandi sínu sömu fyrirmæli.
Þáttur kommúnista.
Það var ekki fyrr en allt þetta
var um garð gengið og verkfalls- '
aldan var hafin, að kommúnistar
blönduðu sér í leikinn. Verkföllin
urðu þá mjög útbreidd, þar sem
þeir hafa stærsta verkalýðssam-
bandið að baki sér. Síðan hafa
haldizt meiri og minni verkföll í
Frakklandi. Fregnir af þeim eru
annars ósamhljóða, en augljóst er
þó, að allt athafnalíf Frakka hefir .
verið meira og minna lamað á aðra
viku. Seinustu dagana virðast jafn
aðarmenn og katólskir heldur hafa
reynt að draga úr verkföllum, en
ekki getað við neitt ráðið.
Verkfallsfyrirskipanirnar fengu
strax góðar undirtektir hjá frönsk
um verkamönnum. Smátt og smátt
hafa verkföllin líka fengið annan
blæ en upphaflega. Af hálfu verka-
manna hafa kröfur um hækkað
kaup og bætt kjör orðið stöðugt
háværari, en kjör þeirra hafa farið
versnandi undanfarið vegna auk-
innar dýrtíðar.' Andstaðan gegn
ráðstöfunum stjórnarinnar hefir
horfið meira og meira í skuggann.1
Kommúnistar hafa gert sitt til að
beina þeim í þann farveg, enda hef
ir það skapað þeim miklu vinsælli
grundvöll.
Tvísýn úrslit.
í byrjun verkfallanna komu
fram kröfur um það, að þingið
væri kvatt saman, en Laniel hefir
neitað að verða við því, þar sem
ekki sé hægt að láta verkfalls-
menn segja þinginu fyrir verkum
um það, hvenær það skuli starfa
eða ekki. Laniel hefir jafnframt
neitað að ræða við verkfallsmenn
um kaupkröfur þeirra meðan verk
föllin standa yfir. Hins vegar seg-
ist hann hafa mikla samúð með
(Framhald á 7. slðu).
I
höfuðástæðan fyrir þeirri á-
gætu afkomu Samvinnu-
trygginga, sem gerði félaginu
kleift að skila aftur yfir |
tveim milljónum króna til
tryggingataka.
En það var fleira, sem stuðl
aði að hinni ágætu afkomu.
Reksturskostnaður Sam-
vinnutrygginga hefir frá önd
verðu verið mjög lítill, og var
svo enn 1952. Það þykir ekki
tiltökumál, þótt reksturs-
kostnaðurinn sé um 25% af
brúttó iðgjöldum. En hjá
Samvinnutryggingum er
þetta aðeins 16,5%, og hefir
lækkað hlutfallslega um
0,5% frá fyrra ári.
Endurtryggingadeild hefir
einnig verið rekin með góð-
um árangri og komu til fram
kvæmda á árinu tveir nýir
endurtryggingasamningar.
Taka nú Samvinnutrygging-
ar endurtryggingar frá mörg
um löndum, Svíþjóð, Bret-
landi, Kanada, Noregi, ísra-
el, Indlandi og Ceylon, Banda
ríkjunum og Ástralíu. Með
þvi að taka slíkar endurtrygg
ingar fær þjóðin nokkrar
gjaldeyristekjur, sem vega
örlítið á móti þeim gjaldeyr-
iskostnaði, sem er af því að
kaupa endurtryggingar í öðr
um löndum.
Allt það, sem hér hefir ver-
ið talið, varð til þess að gera
1952 bezta ár Samvinnutrygg
inga og sannarlega bezta ár
þeirra, sem hjá þeim tryggja
hvað kjör snertir.“
Það, sem hér hefir verið
rakið, gefur það vissulega
glöggt til kynna, að Sam-
vinnutryggingar njóta ör-
uggrar og farsællar forustu.
Annars hefði ekki náðst slík-
ur árangur og raun ber vitni
um. Þetta skýrir jafnframt
vel þær árásir, sem þær og
önnur hin nýju fyrirtæki sam
vinnumanna hafa orðið fyrir.
Með starfsemi þeirra er dreg-
inn vænn spónn úr aski
gróöamannanna. Þess vegna
beina þeir áróðursvopnum
sínum gegn þessum fyrirtækj
um og reyna að spilla fyrir
þeim á allan hátt. Svar al-
mennings við árásunum er
hins vegar það, að þessi fyrir
tæki eflast og vaxa, eins og
Samvinnutryggingar sýna
bezt.
Getraunir
í þessari viku hefja fslenzk
ar getraunir aftur starfseml
sína, eftir nokkurra vikna
sumarhlé. Getraunaleikirnir
verða, eins og í fyrra, teknir
úr ensku deildakeppninni, að
allega úr 1. deild, en þar eð
ekki eru nema 11 leikir I
hverri umferð í 1. deild, verð-
ur 12. leikurinn tekinn úr 2.
deild. i
Flestum reynist erfitt að
segja fyrir um úrslit leikj-
anna, því oftast verða fleiri
eða færri óvænt úrslit. Segja'
má, að sérstaklega sé erfitt
fyrir okkur hér úti á íslandi
að spá um úrslit fyrstu vik-
urnar. Við höfum þá ekkert
við að styðjast annað en
árangur liðanna á síðasta leik
tímabili. En eftir sumarhléið
eru þó oft orðnar ýmsar breyt
ingar á liðunum. Lið, sem
hafa staðið sig illa hafa feng-
ið nýja menn, e. t. v. tekið
upp nýjar leikaðferðir o. fl.
auk þess sem flestir leik-
menn munu vera ómeiddir í
byrjun leikársins. Að öllu
þessu athuguðu má telja, að
ekki væri óráðlegt að láta ten
inginn ráða ágizkununum
fyrstu vikurnar. Hér verður
þó gerð tilraun til að setja
saman spá til leiðbeiningar:’
Arsénal sigraði í 1. deild í
fyrra, en Huddersfield vann
sig upp úr 2. deild, eftir að
hafa leikið þar í 1 ár. 1951
gerðu þau jafntefli 2—2
Blackpool var í fyrra langt-
um betra en Chelsea,. sem var,
í fallhættu undir lokin. Car-
diff vann sig upp í 1. deild
1951 og stóð sig allvel í fyrra,
sérstaklega á heimavelli, sigr
aði 7 sinnum og gerði 8 jafn-
tefli. Charlton og Burnley,
reyndust mjög jöfn í fyrra
og er jafntefli líklegt. Manch.
United gekk illa framan af
leiktímabilinu í fyrra, enda
liðið þreytt eftir langt og mik
ið ferðalag. Hins vegar vann
það báða leiki sína við Liver-
pool og ætti einnig að vinna
nú. Manch. City gekk illa
lengi framan af í fyrra, en
vann þó Úlfana 3—1. Úlfarnir
eru hins vegar þekktir að því
að fá mörg stig fyrri hluta
leikársins svo rétt er að tví-
tryggja. Preston stóð sig
mjög vel í fyrra og ætti að
ráða við Midlesbrough.
Sunderland ætti að vera
sterkara en Newcastle, en
betra er að tvitryggja. Shef-
field United vann í II. deild
í fyrra með yfirburðum, en
erfitt er að segja hvernig
þeir reynast í I. deild. Tví-
tryggður leikur. Sheffield
Wednesday átti lengst af erf
itt uppdráttar í fyrra og varð
ist rétt falli. Þeir unnu þó
Tottenham 2—0. Rétt að
tryggja þennan leik. W. B.
A. vann 13 af heimaleikjum
sínum í fyrra, svo að líklega
'ætti ekki að þurfa aö tryggja
þennan leik. 12. leikurinn er
úr 2. deild, en venjulega reyn
ast leikir þar erfiðari til spá
sagnar en I. deildar leikir.
Hér verður því tekinn sál
leik.
1
Arsenal — Huddersfield 1
Blackpool •— Chelsea 1
Cardiff — Aston Villa 1
Charlton — Burnley x
Liverpool — Manch. Utd. 2
Manch. City — Wolves (1) 2
Middlesbrough — Preston 2
Newcastle — Sunderl. (x) 2
Portsm. — Sheff. Utd. x (2)
Sheff. Wed. — Tottenh. (1) 2
W. B. A. — Bolton 1
Fulham — Stoke 1 (x 2)
S. K,