Tíminn - 20.11.1953, Page 2
2
TÍMINN, föstudaginn 20. nóvember 1953,
264. blað.
verður haldinn að Hlégarði laugardaginn 21. nóvem
ber og hefst kl. 9.
— ÖLVUN BÖNNUÐ —
Ferð frá Ferðaskrifstofunni kl. 9,
U. M. F. AFTURELDING
Lygasaga um huilsin fjársjóð hef-
S.Í.B.S
S.Í.B.S.
ir ieitt af sér hundrað leiðangra
XJm þcssar mundir er veriö að undirbúa 2 leiðangra til leitar að fjár-
sjóði, sem sagður er vera falinn á Kókóseyju. líókóseyja er eign Costa
Rica og liggur fimm hundruð og fimmtíu mílur vestur af Fanama. Á
eynni er sagt að faldir séu skartgripir og gull, sem sé sextíu milljón
dollara virði.
| gömul og velkt kort. Aðrir hafa
Sagan segir, að tveir sjómenn fenc fg vitneskjuna hjá dovjandi
hafi orðið' skipreika á Kókóseyju, sjómímni eöa presti, sem hefir þjón
sem er þrettán fermílur að flatar- J
ináli. Varð þessum mönnum geng-
ið fram á helli, sem þeir rannsök-
uðu nánar. í hellinum fundu þeir
fornlegar kistur og hirzlur, sem ■
höfðu að geyma silfurpeninga, silf-
urmuni, gimsteinumlögð sverð, gull
og gulilíkneski af heilagri jómfrú
í nær fullri líkamsstærð.
Hlutur sjóræningjans.
Og vitanlega á sjóræninginn sinn
hlut í þessari sögu. Árið 1821 er
sagt, að enskur sjóræningi, Thomp-
son að nafni, hafi flutt þessa fjár-
sjóði frá Callao i Perú til Kókós-
eyjar. Átti hann að hafa flutt mun
ina á skipi sínu, Mai’y Dear. Hins
vegar hafa aldrei verið færðar
sönnur á það, að maöur þessi hafi
verið til, né skip hans.
Saga deyjandi manns.
Hinir skipreika sjómenn komast
til meginlandsins, en gæta þess
vandlega, að ekki kvisist neitt um
fjársjoöinn. Annar þeirra deyr um
þessar mundir, en hinn, sem ekki
hefir efni á að stofna til leiðangurs
til eyjarinnar, segir vini sínurn frá
fundinum og afhendir honum jafn
framt kort af staðnum, sem sýnir
hvar fjársjóðurinn er grafinn. Þetta
gerist þó ekki fyrr en síðari sjó-
maðurinn er kominn í dauðann og
veit að hann getur engin not haft
lengur af vitneskjunni um fjár-
sjóðinn.
Hundrao ára gömul saga.
Með litlum breytingum er þetta
hin hundrað ára gamla saga af
fjársjóðnum á Kókóseyju. Kortun-
um, sem sýna staðinn, hefir fjölg-
að ört á þessum tima og sagt er að
nokkur hundruð þeirra séu í um-
ferö um þessar mundir. rjöldi skip-
reika sjómanna hafa komið fram
á sjónarsviðið síðan 1821 og .sýnt
„FUGLINN ER FLOGINN“
Einhver vonsvikinn náungi
hefir grafið þessi orð í tré á
Kókóscyju
ustað deyjandi sjómann. Kort þessi
eru boöin til sölu fyrir álitlegar
upphæðir.
Þaff eina, sem vantar.
Það eina, sem vantar, svo allt sé
fullkomið, cr fjársjóðurinn. Hann
hefir ekki fundizt enn, þrátt fyrir
ýtarlega leit, árum saman. Ótrú-
lega margir hafa trúað því fast-
lega, að fjársjóð væri að finna á
eynni. Þetta fjársjóðsæði hefir geng
ið svo langt, að stjórn Costa Rica
hefir séð sig tilneydda að takmarka
leyfi til leitar á Kókóseyju. Um
hundrað leiðangrar hafa íarið til
eyjarinnar á síðastliðnum hundr-
að árum. Sami maöur hefir gert út
sex leiðangra, en honum var. málið
■ skylt, þar sem hann staðhæfði að
í langafi sinn hefði verið háseti hjá
| Thompson sjóræningja, Síðasti leið
angur þessa manns var vel út bú-
inn, voru þar í förum fimm hundr-
uð tonn af ýmis konar mokstursvél
um. Bar þó leiðangurinn engan ár-
angur, enda er sagt, að grafið hafi
[ verið í meginið af yfirborði eyjar-
i innar. Samt sem áður eru nú tveir
leiðangrar að legg ja upp til Kókós-
ey. Annar er frá Kaliforníu, en
hinn leggur upp frá Englandi, að
því að sagt er vegna nýrra „upp-
lýsinga". Hverjar sem þessar „upp-
lýsingar" kunna að vera, þykir víst
að árangur verði enginn, snda tal-
iö sannað, að enginn fjársjóður sé
á eynni.
Útvarpib
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
18.55 íþróttaþáttur (Sigurður (Sig-
urðsson).
19.25 Harmoníkulög (plötur).
20.20 Lestur fornrita: Njáls saga; II.
(Einar Ól. Sveinsson próf.).
20.50 Tónleikar: Ameríski karlakór-
inn Radio City Glee Club syng
ur (plötur).
21.15 Dagskrá frá Akureyri:
Leikrit: „Af sama sauöahúsi"
eftir J. O. Prancis. Leikstjóri:
Guðmundur Gunnarsson. æik
endur: Guömundur Gunnars-
son, Andrés Guðmundsson,
Eggert Ólafsson og Sigurður
Kristjánsson.
21.45 Frá útlöndum (Benedikt
Gröndal, ritstjóri).
22.10 Útvarpssagan: „Halla“ eftir
Jón Trausta; IV (Helgi Hjörv-
ar).
22.35 Dans- og dægurlög: Lee Con-
itz og hljómsveit hans leika
(plötur).
23.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastír liðir eins og venjulega.
17.30 Útvarpssaga barnanna: „Kapp
flugið umhverfis jörðina" eít-
ir Harald Victorin í þýðingu
Freysteins Gunnarssonar; IV.
(Stefán Jónsson námsstjóri).
19.25 Tónleikar: Samsöngur (plöt.)
20.30 Tónleikar (plötur): „Dans-
skólinn", ballettmúsík eftir
Boceherini (Philharmoníska
hljómsveitin í London leikur;
Antal Dorati stjórnan.
20.45 Leikrit: „Gálgamaðurinn" eft-
ir Runar Schildt, í þýðingu sr.
Sigurjóns Guðjónssonar. —
Leikstjóri: Þorsteinn Ö. Steph
ensen.
21.45 Tónleikar: Miliza Korjus syng
ur Strauss-valsa o. fl. (pl.).
22.10 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Gaston hef ir meðgengið
morðin í S.-Frakklandi
Ætiaði að fyrlrfara sér á leið í fang'elsi
Eftir næturlanga yfirheyrzlu, játaði Gaston Dominici að hafa myrt
Jack Drummond, konu hans og dóttur. Eins og skýrt var frá í blaðinu
í gær, höföu synir. hans tveir borið við yfirheyrzlu, að hann væri sekur.
Gaston hefir nú lýst aðdraganda
morðanna. Segir hann, að um kvöld
ið sem þau hjónin tjölduöu á land-
areign hans, hafi hann farið og
fylgzt með því, hvað þau tóku sér
fyrir hendur. Voru þá mæðgurnar
að baða sig. Horfði hann á þær á
meðan, en Drummond tók eftir
honum og vildi reka hann i burtu.
Reiddist Gaston því, að þessi ó-
kunni maður skildi gera sig svo
heimakominn á landi hans og skaut
hann. Síöan skaut hann frúna. Fór
þá telpan að hlaupa, en hann elti
hana uppi og barði hana í hel með
byssuskeftinu, þar sem hún gat orð
ið hættulegt vitni.
Hóta hefndum.
Kvenfólkið í fjölskyldu Gastons
hefir hótað lögreglunni hefndum og
biður hana að vera minnuga þess,
að það, eins og Gaston, sé ættað frá
Korsíku, landi blóðhefndarinnar.
Eftir að Gaston hafði játað á sig
glæpinn, gerði hann tvær tilraunir
til að fyrirfara sér. í annað skiptið
var hann að fara yfir járnbrautar-
brú, til að sýna lögreglunni, hvaða
leið telpan hefði hlaupið, þegar
hún flúði. Hljóp hann út á brúna
og ætlaði að kasta sér út af, en lög
reglumaður greip hann á handrið-
inu. í síðara skiptið var verið að
GASTON DOMINICI
(með hattinn)
horfði á mæðgurnar baða sig
flytja hann í fangelsi. Reyndi hann
þá að kasta sér út úr bifreiðinni.
Var hann svo ákveðinn, að níu lög-
reslumenn urðu að gæta hans.
//&r er faytjytirf /
mváwmá&g&œm*'
HriclgekeiiiiMÍ
(Framhald af 8. síðu).
son 1788. 13. Rósa Ivarsd.-
Sigríður Siggeirsd. 1778V2- 14.
Kristinn Bergþórsson-Lárus
Karlsson 1773. 15.. Árni Guð-
mundsson-Ól. Þorsteinsson
1770 y2. 16. Mikael Sigfússon
St. J. Guðjohnsen 1766y2.
Arnbj. Siggeirsson-Guðm. G.
Ólafsson 17765. 18. Páll Böðv
arsson-Vagn Jóhannsson,
Hafnarfirði, 1764. 19. Gunnar
Vigfússon-Jón Ólafsson, Sel-
fossi 1763. 20. Ilafliði Stefáns
son-Zóph. Sigriksson, Akra-
nesi, 1740 y2.
Keppt var eftir hinu svo-
nefnda Barómeter-kerfi og
er það í fyrsta skipti, sem
það er reynt hér á landi.
HLJÓMIEIKAR
í Austiubæjarbíó i kvöld kl. 11,15, laugardag kl.
7 og 11,15, sunnudag kl. 7 og 11,15. Aðgöngumiða
sala í Austurbæjarbíó og skrifstofu S.Í.B.S.
ADALFUNDUR
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn í
Sjálfstæðishúsinu þriðjudaginn 24. nóv. n. k.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Félagar sýni skírteini við innganginn.
STJÓRNIN.
Trésmiðafélag Reykjavíkur
heldur fund sunnudaginn 22. nóvember 1953. kl. 2 e. h.
í Baðstofu Iðnaðarmanna. 1
DAGSKRÁ:
1. Kosning í iðnráð.
2. í stjérn húss Félags iðnaðarmanna.
3. í uppsíillingarnefnd.
4. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Málaðir stofuskápar
og kommóður
aftur fyrirliggjandi.
Komið og skoðið áður en þér festið kaup annars staðar.
Húsgagnaverzlun
Guðinundar Guðmundssonar |
Laugavegi 166. J
•flfJc'Xi
TEMAMUl,
ASKRDFTASIMl 3582Se