Tíminn - 23.03.1954, Blaðsíða 6
TÍMINN, þrigjudaginn 23. marz 1954.
68. blað.
^lll^
leikfeiag;
^EYKJAyíKB^
fiJÖÐLEÍKHÖSlD |Mýs og menn
Æðiko'lnrinn
Sýning í kvöld kl. 20.00.
Síðasta sinn.
Piltur og stúlha
Sýning miðvikudag kl. 20.00.
SÁ STERKASTI
Sýning fimmtudag kl. 20.00.
Pantanir sækist fyrir kl. 16 dag-
fam fyrir sýningardag, annars
seldar öðrum.
Aðgöngumiðasalan opin frá kl.
13,15 til 20. Tekið á móti pönt-
unum. Sími 8-2345, tvær línur.
Sölutnaður deyr
Tilkomumikil og áhrifarík, ný,
amerísk mynd, tekin eftir sam-|
nefndu leikriti eftir A. Miller,
sem hlotið hefir fleiri viðurkenn
ingar en nokkurt annað leikrit
cg talið með sérkennilegustu og
beztu myndum ársins -952.
Frederie March.
Sýnd kl. 7 og 9.
Síðasti
sjórœninginn
viöburðarík og spennandij
litmynd.
Paul Henry,
Sýnd kl. 5.
Bönnuð börnum innan 12 ára \
NÝJA BIÓ
— 1544 —
Fantomas!
(Ógnvaldur Parísarborgar.)
Mjög spennandi og dularfull
sakamálamynd.
Síðari kafli.
Danskir skýringartextar.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum yngri en 16 ára.
TJARNARBIO
Unaðsómar
(A Song to Remember)
Hin undurfagra litmynd um
ævi Chopins. Mynd, sem ís-
lenzkir kvikmyndahúsgestir hafa
beðið um í mörg ár að sýnd
væri hér aftur.
Paul Muni,
Cornel Wilde.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
BÆJARBÍÓ
- HAFNARFIRÐI -
Tveggja aura von
ítölsk verðlaunamynd, sem var
kjörin ein bezta mynd ársins
1952 í Cannes.
Vencenzo Musidiro,
Maria Piore.
ítalir völdu þessa mynd til þess
að opna kvikmyndahátíð sína í
New York, er þeir kynntu ítalska
kvikmyndalist. Myndin hefir
ekki verið sýnd áður hér á landi.
Danskur skýringartexti.
Sýnd kl. 7 og 9.
Sími 9184.
’XSERYUS GOLDX"
IrVAlJ——LTXA'J
0.10 HOLLOW GROUND 0.10
? mm VEUOW BLftDE mm
(skklMla kelntcfrHOt-
MSLiiMiwianHi iiii.i
Leikstjóri Lárus Pálsson.
Sýning í kvöld kl. 20.
Aðgöngumiðasala frá kl. 2 í dag,
sími 3191. — Börn fá ekki aðg.
Næst síðasta sinn.
Næsta sýning verður annað
kvöld kl. 20. — Aðgöngumiðar
seldir kl. 4—7 í dag.
Síðasta sinn.
Börn fá ekki aðgang'.
AUSTURBÆJARBIO
Hans og Pétur
t KVENNAHLJÓMSVEITINNI
(Fanfaren de Liebe)
Bráðskemmtileg og fjörug, ný,
þýzk gamanmynd. — Danskur
texti.
Aðalhlutverk:
Dieter Borsche,
Ingfc Egger,
Georg Thomalla.
Þessi mynd, sem er ein bezta
gamanmynd, sem hér hefir lengi
sézt, á vafalaust eftir að ná sömu
vinsældum hér og hún hefir hlot.
ið í Þýzkalandi og Norðurlönd-
um. ^
Sýnd kl. 5 og 9.
►♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦•
GAMLA BÍÓ '
Galdruharlinn í Oz\
(The Wizard of Oz)
Hin fræga, litskreytta, ameríska
söngva- og ævintýramynd með
Judy Garland,
Ray Bolger,
Frank Morgan.
Fyrir mynd þessa, sem sýnd var
hér fyrir nokkrum árum, hlaut
Judy Garland heimsfrægð.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Sala hefst kl. 2.
>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Píanótónleikar
Jórunnar Viðar
Á þriðjudaginn var hélt frú
Jórunn Viðar hljómleika í
Austurbæjarbíói.
Mjög ánægjulegt var að fá
tækifæri til þess að heyra
þessa snjöllu listakonu, sem!
er glæsilegt dæmi þess, hversu j
miklum þroska kona getur
náð á lista- og framabraut- j
inni, jafnframt því að gegna;
öðru æðsta og listrænasta j
hlutverki konunnar, húsmóð-
urhlutverkinu.
Því miður höfðu hljómleik-
ar borið svo ótt á að undan-
förnu, að sókn var ekki svo
góð og skyldi verið hafa.
Hljómleikarnir voru í heild
TRIPOLI-BÍÓ
Flakið
(L’Epave)
[Frábær, ný, frönsk stórmynd, er
jlýsir á áhrifaríkan og djarfan
jhátt örlögum tveggja ungra elsk
! enda.
Aðalhlutverk:
André Le GaJ,
Franeoise Amould.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Danskur texti.
[Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sala hefst kl. 4.
Allra síðasta sinn.
HAFNARBIO
Svarti hastalinn
(The Black Castle)
Ævintýrarík og spennandi, ný,
amerísk mynd, er gerist í göml-
um skuggalegum kastala í Aust
urríki.
Richard Greene,
Boris Karloff,
Paula Corday,
Stephen McNalIy.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TRICQ
hreinwir allt, Jafnt gólfteppt
sem fínasta silkivefnað.
Heildsölubirgðir hjá
CHEMIA H. F.
♦♦♦♦
Hetjur
SKÓGARINS
eftir J O. CURWOOD
20
öskur og læsti tönnunum í fót risans, þar sem buxunum
hafði verið svipt sundur.
Clifton veitti einum árásarmanninum mikið högg. Frakk-
inn sleppti taki sínu og leit undrandi upp. Clifton veitfi
honuih þegar annað högg og hann leið út af á jörðina. Clif-
ton þreif þegar í hinn næsta, luralegan mann með eldrautt
, _ , „ , .,hár, dró hann út úr þvögunni og lagði hann með hnitmið-
vanda ír og agætir, en frunni j ugu hökuhöggi við hlið félaga síns.
tókst sérstaklega vel upp í I
Þegar Clifton leit við aftur, sat risinn klofvega á síöasta
rómaiitískri fantasíu og fúgu! ^rásarmanni sínum og horfði undrandi á Clifton, Nú kom
eftir Bach, tæknin ágæt og
túlkunin og skilningur sér-
staklega góður. Aðalverkið á
tónleikunum, Kreizteríana
eftir Schumann, er mjög fjöl-
skrúðugt, og kom fjölhæfni
listakonunnar þar vel í ljós.
Etudur eftir Chopin lék hún
litli munkurinn hoppandi til þeirra. — Eg sver það við
heilagan Pétur, að hjálpin mátti ekki seinna koma, skrækti
hann á frönsku. Þetta var eins og þegar Davíð sigraði Golíat.
— Haltu þér saman, þrumaði risinn. Leyfir þú þér að gefa
í skyn, að ég hefði ekki haft í fullu tré við þá alla án hjálpar
iguðs eða manna? Ef þessi slettireka hefði ekki blandað sér
' í leikinn og eyðilagt allar mínar áætlanir, mundi ég nú hafa
þá alla undir, því að ég var rétt í þann veginn að koma þeim
einnig ljómandi vel og með . . . , TT . , . ,. , _. T . .
næmum og fínlegum ásiátti, »amkvœmd. Hverju skiptir það mig, Gaspar_ StIves, hvort
en þó með miklum þrótti og
ágætum tilþrifum.
Áheyrendur fögnuðu Jór-
unni ágætlega og margklöpp-
uðu hana fram, og varð hún
að leika aukalög.
E. P.
Enska knattspyrnan
(Framhald af 3. Biðu.)
Manch. City 35 11 8 16 49-67 30
Sunderland 34 11 5 18 65-74 27
Sheff. Utd. 34 9 9 16 59-74 27
Middlesbro 35 8 9 18 50-75 25
Liverpool 35 5 10 20 57-86 20
2 deild .
Everton 34 17 13 4 80-50 47
Leicester 34 18 9 7 81-51 45
Blackburn 35 18 8 9 ■75-45 44
Nottm. Forest 35 17 9 9 73-50 43
Birmingham 35 17 8 10 72-48 42
Rotherham 35 18 4 13 67-61 40
Luton Town 35 14 11 10 56-53 39
Fulham 35 14 9 12 84-69 37
Doncaster 34 15 7 12 53-46 37
Leeds Utd. 35 13 10 12 77-69 36
Bristol Rovers 34 10 15 9 54-47 35
Stoke City 34 10 14 10 57-47 34
West Ham 34 13 7 14 58-56 33
Notts County 35 10 11 14 40-63 31
Hull City 33 13 4 16 55-53 30
Derby County 35 10 10 15 54-70 30
Lincoln City 35 11 8 16 51-67 30
Bury 35 8 12 15 41-63 28
Swansea 35 10 8 17 46-69 28
Brentford 36 8 10 18 31-68 26
Plymouth 34 6 13 15 47-66 25
Oldham 33 6 8 19 31-72 20
Áfengislagafrumvarpið
(Framhald af 3. síðu.)
og veitingar áfengra drykkja.
Nú liggja fyrir á alþingi
mótmæli frá fimmtíu og fimm
kvenfélögúm og samþykktir
frá sambandsþingum kvenna
um aukningu á áfengismagni
í öli til neyzlu landsm. Að
þessum mótmælum standa um
níu þúsund atkvæðisbærra
kvenna í landinu, sem treysta
því, að háttvirt alþingi virði
óskir þeirra um þessi mál,
Viktoría Bjarnadóttir,
form. áfengisvarnarnefndar
kvenna í Reykjavík og Hafn-
arfirði
Gerist Vskriftindur ai
ZJímanum j
♦♦♦♦♦♦<
►♦M
andstæðingar mínir eru þrír eða tuttugu. Mig langar mest
til að lumbra á þér.
— Svona, svona, sagði litli karlinn og neri ánægður sam-
an höndunum. — Nei, í þetta sinn varstu yfirunninn, Gas-
pard. Þú gazt ekki hreyft annan hluta líkamans en fæturnar
lítið eitt, þegar hinn heilagi Mikjáll sendi okkur þennan
bjargyætt. Þakkaðu honum nú, ristu á fætur og þakkaðu
honum eins og heiðursmanni ber.
— Farðu til fjandans, munkur.
— Hefði hjálpin borizt tveim mínútum síðar, mundu þeir
hafa bitið af þér eyrun, Gaspard.
— Vitleysa, ég hefði sparkað þeim brott eins og gorjfúlum.
— Þakkaðu nú manninum, Gaspard, annars heldur hann,
að þú sért heimskingi eða á valdi skrattans. Þetta verður
þú að gera sjálfur, annars væri ég þegar búinn að því. ■
Risinn með kringluleita andlitið reis nú á fætur og urraði
við. Hann var nakinn til mittis og slettur blóðs og moldar
mátti víða á honum sjá. Annað eyra hans var rnarkað til
blóðs og för sáust á hálsi hans eftir tök árásarmannanna.
Vinstra augað var blóðhlaupið og sokkið til hálfs.
— Ég heiti Gaspard, bróðir Antoinette St. Ives, og hafi
hjálp sú, sem þér veittuð mér, verið nauðsynleg, sem ég
efast mjög um, þá leyfi ég mér að þakka yður, sagði hann
á fágaðri frönsku. Og þessi litli köttur er bróðir Alphonse,
munkur, sem litið hefir fífil sinn fegri en nú, var áður í
Mistassini-klaustrinu við St. John-vatnið. Ef hann leyfir
sér að halda því til streitu, að ég hafi ekki haft allt ráð
þessara aumingja þriggja í hendi mér, skal hann eiga mig
á fæti.
— Mér þykir leitt, að ég skyldi ekki geta stillt mig um
að blanda mér í þennan leik, og ég bið afsökunar á fram-
ferði mínu, sagði Clifton brosandi. Nú sé ég gerla, að þre-
menningarnir eru svo hart leiknir, að það hefði ekki getað
liðið á löngu, þangað til þeir gáfust upp. Ég trúi þvi hik-
laust, að þér hefðuð borið sigur af hólmi aö lokum.
Andlit risans varð þungbúið. — Haldið þér það í raun og
j veru? Einn þeirra hafði þó náð góðu taki um kverkar mér
og annar læst tönnunum í eyrað. Hinn þriðji var búinn aS
ná föstu tannataki á fæti mínum. Voru þeir tveir, sem þér
slóguð til jarðar, alveg að þrotum komnir?
Þeir voru aflvana eins og brjóstmylkingar, sagði Clif-
ton.
Hann lýgur eins og hann er langur til, skrækti munk-
urinn.
Allt í einu stakk Gaspard höndum í síður, kastaði höfðinu
aftur og hló hrossahlátri. gvo greip hann um hönd Cliftons
og hristi hana innilega, og Clifton fannst litlu mega muna,
að handleggurinn færi úr axlarlið.
— Engum bróður gæti þótt vænna um þig en mér, því
að þú ert sannur maður, sem ekki ert smeykur við að bregða
fyrir þig lyginni til að þjóna góðum málstað. Eiginlega átti
ég að verða prestur, en ég var fremur gefinn fyrir að takast
á við menn en predika sátt. Og svo mikið þekki ég til þeirra
hluta, að ég er viss um, að Antoinette sýstir mín hefði ekki
þekkt mig að leikslokum, ef þú hefðir ekki komið mér til
bjargar. Já, og ekki heldur Angelique Fanchon, sem er næst-
fegursta stúlka hér í Quebec, en hún vill ekki ganga að eiga
mig af því að ég vil ekki gerast bóndi og hugsa einvörðungu
um svín og kýr fyrir utan hana — nei, jafnvel hún mundi
ekki hafa þekkt mig.
Clifton fann öldu innilegrar samkenndar með þessum
manni streyma um sig.
Árásarmennirnir þrír voru nú teknir að jafna sig ofur-
lftið, og Gaspard tók að safna saman fötum sínum. Cliftón
sá, að Gaspard hafði verið búinn að veita andstæðirigum
sínum þungar búsifjar, því að föt þeirra voru í henglum.
Þeir voru líka bláir og blóðugir eftir högg hans, og einn
þeirra hafði fengið heiftarlegar blóðnasir. Eyra annars
hafði Gaspard nærri því bitið af, og bæði augun í hinum
þriðja voru sokkin. Þeir mæltu nú ekki aukatekiö orð af
vörum og sátu flötum beinum í grasinu, þegar Clifton, Gas-