Tíminn - 23.03.1954, Qupperneq 7
68. blað.
TÍMINN, þriSjudaginn 23. marz 1954.
Frá hafi
til heiba
Hvar eru skipin
Sambandsskip.
Hvassafell fór frá Norðfirði 18.
þ. m. áleiðis til Bremen. Arnarfell
fór frá Hafnarfirði 21. þ. m. áleiðis
til Gdansk. Jökulfell kom til Reykja
víkur í gær frá New York, fer vænt
anlega til Vestmannaeyja í kvöld.
Dísarfell fer frá Vestmannaeyjum
í dag áleiðis til Bremen og Rott-
erdam. Bláfell er í Aberdeen. Litla-
fell fór frá Reykjavík 21. þ. m. vest
ur um land í hringferð til Patreks-
fjarðar, Súganc^afjarðar, Hóim:i-
víkur, Hofsós og Akureyrar.
Ríkisskip.
Hekla fór frá Akureyri síðdegis
í gær á austurleið. Esja kom til
Reykjavíkur í gærkvöld að vestan
úr hringferð. Herðubreið er á leið
frá Austfjörðum til Reykjavikur.
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyrill
var á Skagafirði síðdegis í gær á
austurleið. Baldur fór frá Reykja-
vík í gærkvöld til Búðardals.
Eimskip.
Brúarfoss fer frá Reykjavík kl.
20., í kvöld 22.3. austur og norður
um land. Dettifoss fór frá Reykja-
vík 22.3. til Keflavíkur og Akraness.
Fjallfoss fór frá Vestmannaeyjum
21.3. til Belfast og Hamborgar.
Goðafoss fer írá Stykkishólmi í
dag 22.3. til Akraness og Vestm,-
eyja. Gullfoss fer frá Kaupmanna-
höfn í dag 22.3. til Leith og Reykja
víkur. Lagarfoss er í Ventspils, fer
þaðan til Reykjavikur. Reykjafoss
fer frá Antwerpen í kvöld 22.3. til
Rotterdam, Hull og Reykjavíkur.
Selfoss íór frá Reykjavík 17.3. til
Graverna, Lysekil og Gautaborg-
ar. Tröllafoss kom til New York
12.3., fer þaðan til Reykjavíkur.
Tungufoss fór frá Santos 16.3. til
Recife og Reykjavíkur. Hanne Skou
fór frá Gautaborg 19.3. til Reykja-
víkur. Katla fór frá Hamborg 19.3.
til Reykjavikur. Drangajökull fór
frá Hamborg 20.3. til Akureyrar.
Ur ýmsum áttum
1065 kr. fyrir 11 rétta.
Bezti árarigur í 11. leikviku var 11
réttir, sem komu fyrir á einfaldri
röð. Var Vinningurinn fyrir hana
1065 kr. Næstu 2 vinningar voru
660 kr. og 724 kr. fyrir 10 rétta.
Vinningar skiptust þannig.
1. vinningur 1032 kr. fyrir 11
rétta (1). 2. vinningur 532 kr. fyrir
10 rétta (2). 3. vinningur 32 kr.
fyrir 9 rétta (33).
Vinningar í getraununum.
1. vinningur 1065 kr. fyrir 11 rétta
(1). 2. vinningur 532 kr. fyrir 10
rétta (2). 3. viningur 32 kr. fyrir 9
rétta (33).
1. vinningur: 2558.
2. vinningur: 1296 (1.10., 6.9.) 2508
(1.10., 4.9.)
3. vinningur: 66, 1002, 1299, 1448,
1452, 2302 (4.9.), 2741, 2746, 2855
(2.9.), 2944 (2.9.), 3249, 3328, 3331,
3552, 3555, 5107, 5273, 5688.
Jarðarför
Soffíu Skúladóttur, húsfreyju að
Kiðjabergi í Grímsnesi fer fram í
dag frá Stóru-Borg í Grímsnesi.
Valur.
Knattspyrnuæfing meistara- og
1. flokks að Hliðarenda í kvöld kl.
8. Fundur með knattspyrnunefnd-
inni eftir æfinguna.
Kurr. . .
(Framhald al 8. síðu.)
kafla um söfnun peningra í
skálarnar, „um það leyti,
sem ferðum er að ljúka“ fel
ist nokkur aðdróttun í garð
alirar stéttarinnar, og þykir
hart að una því. Er töluverð-
ur kurr meðal vagnstjóra af
þessu og fleiri atriðum bréfs
ins, og munu þeir ræða málið
á fundi. Hefir jafnvel komið
til orða meðal þeirra, að
krefjast rannsóknar á atrið
um þeim, sem bréfið getur,
Erlendar fréttir
í fánm orðum
□ Brezka stjórnin hefir undan-
farið látið framkvæma rann-
sóknir á því, hvaða vörnum
verði helzt beitt gegn sýklahern
aði í styrjöld. Fara rannsóknir
þessar fram á vesturströnd Skot
lands. Ekkert er látið uppi um
árangur.
□ Yfirmenn flugflota Atlantshafs
ríkjanna komu saman til fund-
ar í París í gær. Upplýst var
á fundinum, aö einungis her-
flugvélar Breta og Bandaríkja-
manna verði útbúnar með
kjarnorkusprengjum og öðrum
kjarnorkuvopnum. Bækistöðv-
ar þessara flugvéla verða í N.-
Afríku og Bretlandi.
□ Eden sagði brezka þinginu í gær
að tillögur Molotovs um varn-
arbandalag Evrópu, sem hann
lagði fram í Berlín, hefði þann
eina tilgang að eyðileggja At-
lantsafsbandalagið og sundra
samvinnu Bandaríkjamanna og
Vestur-Evrópuríkjanna.
[] Réttarhöldum í hneykslismálinu
út af dauða Maríu Montesi,
var frestað í gær vegna þeirra
nýju viðhorfa, sem skapazt
hafa við ákæru Maríu Gaglio,
þar sem hún ákærir Piero Picc-
ione fyrir morðið á Montesi.
□ Indonesia og Noregur hafa gert
með sér viðskiptasamning. Indó
nesiumenn kaupa af Norðmönn [
um fyrir 42 milljónir króna, en
Norðmenn fá frá þeim vörur
fyrir 20 milljónir norskra króna.
□ Yfirmaður franska herforingja-
ráðsins ræddi í gær við Eisen-
hower um hið alvarlega ástand
í Indó-Kína. Síðar var til-
kynnt, að Bandaríkjamenn
myndu fúsir að leggja Frökkum
til fleiri flugvélar en þeir hafa
hingað til falazt eftir.
Stjómmáflayfirlýsing
Eru samningar um
Saar strandaðir ?
París, 22. marz. ■— Fréttarit-
arar hafa þaö eftir góðum
heimildum í París, að samn-
ingaviðræður Frakka og Vest
ur-Þjóðverja um 'framtíð
Saar-héraðsins hafi strand-
að, en viðræður þessar hóf-
ust fyrir hálfum mánuði síð- j
an. Orsökin er sögð sú, að
Þjóðverjar krefjast sömu
réttinda á viðskipta- og fjár-j
málasviðinu í Saar og Frakk
ar njóta þar nú. En þetta'
vilja Frakkar með engu móti
fallast á. Er talið víst, að
viðræður þessar verði ekki
teknar upp á ný, fyrr en þeir
'Adenauer og Bidault hafa
hitzt aftur, en viðræðurnar |
hófust eftir fund þeirra í byrj
un mánaðarins.
iiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiiiiiiiiiniiii
= * .2
I Olafur Jensson |
1 — Verkfræðiskrifstofa — |
| Þinghólsbraut 47,
| Kópavogi — Sími 82652 [
riiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiniiiiiiiiiH
(Framhald af 5. síðu.)
með því að vinna að þeim sjálfir, en frestað verði bygg-
ingu húsa með stórum íbúðum, enda verði um það séð
af hálfu stjórnarvaida ríkisins, að afskipti þess af hús-
næðismálum miði aö sama marki. — Jafnframt lýsir
miðstjórnin sig fylgjandi frumvarpi því til húsaleigu-
laga, er nú liggur fyrir Alþingi.
Verinhin sparifjárins.
Miðstjórnin lítur svo á, að stöðugt verðlag og peninga-
gildi innanlands sé annað frumskilyrði þess, að spari-
fjársöfnun geti farið vaxandi og hægt sé að sinna á
viðunandi hátt eftirspurn eftir lánsfé til framkvæmda
og rekstrar atvinnuveganna. Telur hún, að réttmætt sé
að gera tilraun til að verðtryggja sparifé í þessu skyni,
enda sé það þá bundið hæfilegan tíma í einhverjum
af lánsstofnunum þjóðarinnar. Er þá jafnframt mikið
undir því komið, að tryggt sé sannvirði framleiðslu og
vinnu.
U tanr íkismálin.
Miðstjórnin væntir þess, að forysta sú í utanríkis-
málum, er Framsóknarflokkurinn hefir tekið í sínar
hendur, greiði fyrir því, að koma fram breytingum á
framkvæmd varnarsáttmálans til samræmis við ályktanir
síðasta flokksþings. Það er skoðun miðstjórnarinnar, að
hættulegt sé að hafa landið óvarið meðan ekki hefir
tekizt að ráða bót á öryggisieysi því, er enn ríkir í al-
þjóðamálum. Hins vegar leggur hún áherzlu á, að Alþingi
og ríkisstjórn hafi jafnan hliðsjón af breytingum, er
verða kunna í þessum málum, og sjái svo um, að erlent
varnarlið dvelji ekki lengur hér á landi en nauðsyn ber
til. Miðstjórnin vill brýna það fyrir þjóðinni, að sambúð
við erlent varnarlið er eins og reynslan sýnir mjög
vandasöm og að áhrif stórframkvæmda í varnármálum
geta haft óheppileg áhrif á atvinnulíf landsmanna, nema
aðgæzia sé viðhöfð. Þjóðin hefir hér af öryggisástæðum
tekizt á hendur mikinn vanda, sem fyrirsjáanlegt var,
að erfitt hlyti að verða að leysa, en þó fært, ef með
festu er að því unnið og gagnkvæmur skilningur ríkir
hjá þeim aðilum, er í hlut eiga. Telur miðstjórnin vel
farið, enda óhjákvæmilegt, að teknir hafa verið upp
nýir samningar við Bandaríkin um þessi mál, og telur,
að það verði að sýna sig í þessum samningum, hvort
vörn landsins reynist framkvæmanleg á þann hátt, sem
til hefir verið stofnað.
; ampep w
BafUffiHr — Tí8f«r*w
Raftelknlnfas
Þingholtwtrætl II
Blmi 81556
til þess að hreinsa sig af að-
dróttunum þessum.
Bæjaryfirvöldin smeyk.
Þá munu bæjaryfirvöldin
vera orði nallsmeyk um þró-
un þessa máls og telja, að
forstjórinn hafi gengið feti
of langt í bréfi sínu, og eru
farin að reyna að finna ráð
til að miðla málum. Vagn-
stjórarnir munu hafa fullan
hug á að fyigja málinu eftir.
ísl. stúdentar í Höfn
hlynntir dönsku
tillögunum
Félag íslenzkra stúdenta í
Kaupmannaliöfn hélt fund
miðvikudaginn 17. marz
1954 um tillögur dönsku
stjórnarinnar í handritamál-
inu. Á þeim fundi báru þeir
Stefán Karlsson, stud. mag.,
og Ólafur Halldórsson cand.
mag., fram eftirfarandi til-
lögu til ályktunar:
„Fundur haldinn í Félagi
íslenzkra stúdent.a í Kaup-
mannahöfn miðvikudaginn
17. marz 1954, lýsir undrun
sinni á því, að Alþingi íslend
inga og ríkisstjórn skyldu
vísa tillögum dönsku stjórn-
arinnar um lausn handrita-
málsins svo skjótlega á bug
að lítt rannsökuðu máli.
Fundurinn telur að hlut-
skipti íslenzkra fræða og Há-
skóla íslands hefði batnað
til svo stórra muna ef tillög-
urnar hefðu náð fram að
ganga að á það hefði borið
að líta.
Fundurinn fær ekki betur
séð en að þessi afstaða stjórn
arvaldanna hafi komið mál-
inu í það öngþveiti, sem ó-
víst er hvernig ráðið verður
fram úr.
Jafnframt telur fundurinn
mikla nauðsyn að Alþingi og
ríkisstjórn undirbúi næsta
stig málsins með því að veita
nú þegar fé til að koma upp
stofnun til rannsókna og út-
IVýr bíll
(Framhald af 8. BfSu.)
Vélin er á milli fram- og aft
urhjólla undir gólfinu. Há-
marksþungi vagnsins er fjór
tán smálestir fullhlaðinn.
VÖTiduð yfirbygging.
Bílasmiðjan hefir byggt yf
ir þennan vagn. Er yfirbygg-
ingin mjög vönduð. Uppistöð
ur eru járnslegin trégrind,
sem kla:dd er aluminium. —
Bifreiðastjóri er lokaður frá
farþegum með skilrúmi úr
plexigleri. Aftast í vagninum
eru stæði fyrir farþega. Tvær
útgöngudyr eru á vagninum
og þar sem bifreiðarstj órinn
er lokaður af, þá er hátalari
í vagninum, en farþegar
hringja bjöllu, ef þeir vilja
fara út. Plexigler er í öllum
gluggum og einnig í skilrúm
um inni í vagninum.
Blikksmiðjan
GLÓFÁXI
[hRAUNTEIG 14. S/MI 7236.1 >
( Kyndiíl (
Smíðum okkar viður-1
Ikenndu sjálftrekks-mið-1
| stöðvarkatla, einnig katla |
| tyrir sjálfvirk kynditæki. |
Sími 82778.
: Suðurlandsbraut 110.
§ ___________________________________1
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiHUia
Togariim
(Framhald af 1. sítiu.)
Hélt sig kominn að
hafnarmynninu.
Togarinn, sem heitir Brun-
ham frá Hull hefir einkenn-
isstafina H39, byggður 1934.
Mun skipstjóri hafa álitið, að
hann væri kominn að hafn-
armynninu í Reykjavík.
gáfu á íslenzkum handritum
og tryggi henni nægileg fjár
ráð þegar fram líða stundir..“
Tillaga þessi var samþykkt
með 29. atkvæðum gegn 2.
(Frétt frá ríkisstjórninni).
SKiPAUTGeRD
RIKISINS
„Herðubreiö"
austur um land til Bakka-
fjarðar hinn 27. þ. m. Tekið
á móti flutningi til Horna-
fjarðar, Djúpavogs, Breiðdals-
víkur, Stöðvarfjarðar, Fá-
skrúðsf j arðar, Mjóafjarðar,
Borgarfjarðar, Vopnafjarðar
og Bakkafjarðar í dag og á'
morgun. Farseðlar seldir á
föstudag.
„HEKLA"
vestur um land í hringferð
hinn 29. þ. m. Tekið á móti
flutningi til áætlunarhafna
vestan Þórshafnar í dag og á
morgun. Farseðlar seldir ár-
degis á laugardag.
•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiniiiitHi
3
I Unglingsstúlka
I óskast til léttra skrifstofu-
Istarfa frá 1. apríl. — Um-
I sókn er tilgreini aldur,
| heimilisfang og síma send-
I ist afgreiðslu blaðsins fyrir
| föstudag merkt 16.
iiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiniiiiiiiiiiHintiiiiiiitniniHiiiniiMi