Tíminn - 14.12.1954, Blaðsíða 9

Tíminn - 14.12.1954, Blaðsíða 9
283. blað. TÍMINN, þrigjudaginn 14. descimber 1954. 9. eru kornin í bókaverzlanir, Dr. Alexander Jóhar.nesson segir í formála m. a.: Þjóðhátíóarárið 1874 fœddist Guðmundur Guð- mundsson skáld, er talinn hefur verið einn ljóðhagastur allra ís- lenzkra skálda . . . Fáir hafa kennt nánari skyldleika við náttúruna en Guðmundur Guðmunösson. Ljóðin liðu af vörum hans eins og hægur andvari á sumarkveldi, og sál hans fylltist fögnuði. Öll veröldin varð að hljómdýrð, er barst til skáldsins frá ströndum Huldulanda. Ljóðvinir gefa þessa bók í jóla- gjöf. — Það er fögur gjöf og veitsr varanlega gleði. Fjarlæg Sönd ©g Iramandi þjóðir eftir RANNVEIGU TÓMASDÓTUR Rannveig Tómasdóttir ferðaðist um Mexikó og V.-Indl.eyjar. Nokkra þætti úr ferðasögunni las hún í útvarpið í sumar og hafa fá erindi vakið almennari athygli, enda voru þau frábærlega skemmtilega flutt. — Nú er þessi fallega. bók komin í bóka- verzlanir og verður ein af vinsælustu jólabókunum. — En dragið ekki að kaupa bókina, hún ver'ður að líkindum uppseld fyrir jól. Riftsaln Ben. Grördal V LokaMndi. í þessu bindi eru bréf Gröndals og skýringar. — Eins og al- þjóð er kunnugt, hefur líklega enginn íslendingur skrifað skemmtilegri og fjörlegri bréf en Benedikt Gröndal, og verðum mönnum þetta þó Ijósara nú, er bréf hans birtast í heild. — Gröndal skrifar um allt milli himins og jarðar og gneistar fyndnin og fjörið í hverju bréfi, svo að kunningjabréf um lítilfjörlegustu efni verða að fáguðum perlum. ’— Nú þegar, ritsafn Gröndals er kornið allt, er það ein A'eglegasta jólagjöfin, sem nú er í bókavérzhmum. Þjöðsögur Þ©srsfte£i%s Frftistgssonar eru r.ú komnar í bókavcrzlanir. Þjóðsögur þessar eru með þrennu móti frá Þorsteini komnar: Sumt skráð af honum sjálfum, og er það kjarni bólcarinnr. Sumt er skráð af öðrum eftir frásögn hans, og sumu hefur hann safnað víðsvegar að. — Þetta viðfangsefni, þjóðsögur og sagnir, var Þorsteini hugleikið frá fyrstu tíð. Næmleikur hiiís íslenzka eðlis fyrir öllu því, sem dularíullt er að baki þess hversdagslega og sýhilega, hefur verið honum í blóð borinn. Allt, sem þjóölegt var og ramislenzlít, fann hjá honurn „næmasta grunninn“. — C!g §í§t liafa þær þjóðlegu glæð.ur kulnað á uppvaxtarárunum hjá ömmu hans í Hlíðarendakoti, en þar ólst hann upp.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.