Tíminn - 07.06.1955, Síða 3
125. blað.
TÍMINN, þriðiudaginn 7. júní 1955.
Fyrsti barnaskóli í sveit
á Suðurlandi
í hinni ágætu og fróðlegu
grein séra SigurSar Ólafsson-
ar frá Ytri-Hól í Tímanum
laugardaginn 28. maí síðastl.
Endurminningar um Hábæj-
arskóla í Þykkvabæ, er eitt
atriði, sem vel má valda mis-
skilningi. Það er það, að
Hábæjarskólinn hafi verið
„fyrsti fasti skóli fyrir börn
og ungmenni, sem stofnaður
var til sveita á íslandi, ....
að minnsta kosti á Suður-
landi.“
Það er alveg rétt, aö þegar
Hábæjarskólinn tók til starfa
1892, var enginn annar barna
skóli til í sveitum Suðurlands-
undirlendis og hafði ekki ver-
ið um nokkur ár. Eins var Há-
bæjarskólinn eini fasti skól-
inn á þeim slóðum fram undir
eða fram yfir aldamót.
En tveir barnaskólar höfðu
áður starfað í sveit á Suður-
landi. Þeir tóku báðir til
starfa um haustið eða fyrri
hluta vetrar 1881. Annar var
í Gaulverjabæ í Flóa, en hinn
á Kröggólfsstöðum í Ölfusi.
Um Kröggólfsstaðaskólann er
það vitað, að hann tók til
starfa 1. desember 1881. Hann
starfaði sem fastur skóli til
1887. Kennari við hann var
öll árin Guðni Símonarson frá
Hallstúni í Holtum. Hann var
lengi bóndi á Kröggólfsstöð-
um, en síðar í Breiðholti í
Seltjarnarneshreppi. Hann
hafði búið sig undir kennslu-
starfið með nokkurri náms-
dvöl hjá tveim prestum. Sum-
arið 1881 hélt hann „sunnu-
dagaskóla“ austur í Rangár-
vallasýslu, þ. e. hann sagði
unglingum til eftir messu á
sunnudögum. Eftir að Krögg-
ólfsstaðaskóli hætti sem fast-
ur skóli 1886, hélt Guöni á-
fram barnakennslu og fékk
styrk til hennar sem „sveita-
kennari“ veturna 1890—91 og
1891—92.
Skólinn í Gaulverjabæ starf
aöi frá 1881 til 1890 (þó óvíst
um starfsemi hans veturinn
1884—85). Mun mega fullyrða,
að hann hafi verið stofnaöur
fyrir atbeina séra Páls Sig-
urðssonar í Gaulverjabæ, en
hann varð prestur þar 1880
og dó 23. júlí 1887. Fyrsta vet-
urinn kenndi við Gaulverja-
bæjarskóla Jón Jónsson yngri
frá Loftsstöðum. Þá kenndi
ívar Sigurðsson frá Gegnis-
hólaparti veturna 1882—83 og
1883— 84, en ekki er mér
kunnugt um kennara þar
1884— 85. Veturinn 1885—86
kenndi Sigríður dóttir Þórðar
sýslumanns Guðmundssonar,
mágkona srYa Páls og síðar
seinni kona séra Jóhanns Þor
steinssonar í Stafholti. Vet-
urna 1886—87 og 1887—88
kenndi Jóhanna Andrea, dótt
ir séra Páls, við skólann, en
næsta vetur Jón Jónsson
yngri á Loítstöðum. Síðasta
veturinn, sem skólinn starf-
aði sem fastur skóli, 1889—90,
var kennari við hann Jón Sig-
urðsson frá Gegnlshólaparti,
bróðir fvars. — Þess má enn
geta, að séra Jens Pálsson
beitti sér mjög fyrir að koma
upp slðóla á Þingvöllum, og
starfaði skóli þar a. m. k. vet-
urinn 1885—86. Væri vel, ef
einhver vildi rita sögu þess-
ara gömlu skóla eða segja
eitthvað frá stofnun þeirra og
starfsemi.
Hafnarfirði, 2. júní 1955.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Þing Ungmennasam-
bands Kjalarness-
þings
Styrkir veittir
tiE náttúrurann-
sókna
3. héraðsþing Ungmenna-
sambands Kjalarnessþúigs
var haldíð í Barnaskólanum
1 Kópavogshreppi þann 9. ap-
ríl s. 1. Á þinginu mættu 23
fulltrúar há 5 sambandsfé-
lögum.
Þingið tók fyrir mörg mál
og voru umræður fjörugar.
Meðal annars var samþykkt
ályktun gegn herliði í land-
inu, framkomu Breta í garð
íslendinga með löndunar-
banninu o. s. frv. Um endur-
heimt íslenzku handritanna,
sem geymd eru í Danmörku.
Þá var samþykkt áskorun til
fræðslumálastj órnarinnar
þess efnis, að hún hlutist tU
um að aukin verði hæðsla í
skólum landsins um skað-
semi áfengis.
Sambandiö er nú aö hefja
Undirbúning fyrir þátttöku i
landsmótinu, sem háð verð-
ur á Akureyri í sumar.
Hyggst sambandið senda
þangað hóp íþróttamanna og
heitir á alla félagsmenn að
gera sitt ýtrasta tU þess, að
.væntanleg ferð geti tekizt vel
og giftusamlega. Auk þess
mun sambandið leitast við að
halda uppi fjörugu íþrótta-
lifi innan héraðsins i sumar
og keppa við önnur héraða-
sambönd eins og undanfarin
ár.
Stjórn sambandsms skipa
nú: Axel Jónsson, form., Ár-
mann PétiU'sson, varaíorm.,
Páll Ölafsson, gjaldkeri, Gest
Menntamálaráð íslands hefir lok
ið úthlutun styrkja úr Náttúru-
fræðideild Menningarsjóðs, til rann
sókna á árinu 1955. — Úthlutunin
er svo sem hér segir:
Aðalst. Sigurðsson, fiskifr. kr. 2000
Ey.þór Einarss., stud. mag. — 2000
Finnur Guðm.ss. fuglafr. — 10000
Geir Gígja, skordýrafr. — 1500
Guðbr. Magnúss., kennari — 1500
Guðm. Einarss. frá Miðd. — 1500
Guðm. Kjartanss., jarðfr. — 4000
Guðm. Þorlákss., kennari — 2500
Hálfd. Björnss. frá Kvísk. — 1000
Herm. Einarsson, dr. phil. — 2500
Högni Böðvarss. cand.mag. — 2500
Ingim. Óskarss. grasafr. — 2500
Ingólfur Davíðss. grasafr. — 2500
Ingvar Hallgrímss. fiskifr. — 2000
Jakob Magnúss., cand.mag.— 2000
Jóhannes Áskelss., jarðfr. — 4000
Jón Eyþórsson, veðurfr. — 3500
Jón Jónsson, fiskifr. — 2500
Jón Jónsson, jarðfr. — 2500
Jónas Jakobsson, veðurfr. — 2000
Jöklarannsóknafél. íslands — 4000
Kristj. Geirm.ss., taxiderm. — 1500
Ólafur Jónsson, ráðun. — 1500
Rannsóknaráð ríkisins — 8000
Sigurður Pétursson gerlafr. — 2000
Sig. Þórarinsson, jarðfr. — 4000
Steind. Steindórss., m.sk.k. — 5000
Unnst. Stefánss. efnafr. — 1500
Þór Guðjónss. veiðimjstj. — 1500
Þorl. Einarss. stud. geol. — 1500
Þorst. Einarss., íþróttafltr. — 1500
Samtals kr. 86500
ur Guðmundsson, ritari og
Biguröur Gunnar Sigurðsson,
meðstjórnandi.
Vorþing umdæmis-
stúkunnar nr. 1
Vorþing umdæmisstúkunn-
ar nr. 1 var haldig í Reykja-
vík dagana 7. og 8. maí 1955.
Þingið sátu 86 fulltrúar úr
umdæminu.
Miklar umræður urðu á
þinginu um það ástand, sem
nú ríldr hér á landi hvað
snerúr áfengisneyzlu og vín-
veifingar.
Meðal þeirra samþykkta,
sem þingig gerði, var áskor-
un til framkvæmtíanefndar
umdæmisstúkunnar um að
hefja í Ríkisútvarpinu og víð
ar öfluga áróðursstarfsemi
gegn áfengisbölinu og að
leita samstarfs vsð stórstúku
íslands og áfengisvarnaráð
um auknar áfengisvarnir og
boðun bindindis.
Einnig voru samþykktar
svohljóðandi tillögur: „Vor-
þing umdæmisstúkunnar ger
ir þá kröfu tú hlutaðeigand1
aðila, að framfylgt sé tú fulln
ustu því lagaákvæði, að ungl
ingum innan 21 árs aldurs sé
ekki veitt vin í veitingahús-
um. Tehir þingi'ð nauðsyn-
Iegt að ailh’, sem vín er veht
á slíkum stöðum hafi í hönd-
um aldursvottorð í vegabréfs-
formi.“
„Þar sem reynslan liefir
sýnt, að vínveitingar við hina
svonefndu bari, leiða til sí-
aukinnar áfengisneyzlu, skor
ar vorþing umdæmisstúkunn
ar á framkvæmclanefnd stór-
stúkunnar og áfengisvarna-
ráð að beita sér eináregi'ð fyr
ir banni gegn slikum veiting-
um.“
Framkvæmdanefnd urn-
dæmisstúkunnar skipa nú:
Þorsteinn J. Sigurösson, um-
dæmistemplar, Þórður Stem-
dórsson, umdæmiskanzlari,
Svanlaug Einarsdóttir, um-
tíæmisvaratemplar, Maríus
Ólafsson, umdæmisritari,
Páll Kolbeins, umdæmisgj ald
keri, Jón Kn Jóhannesson,
umdæmisgæzlumaður ungl-
ingastarfs, Karl Karlsson,
umdæmisgæzlumaður löggjaf
arstarfs, Bjarni Halldórsson,
umdæmisfræðslustjóri, Krist-
jana Ó. Benediktsdóttir, um-
dæmiskapellán, Jón Hjörtur
Jónsson, umdæmisfregnritari,
Sigurður Guðmundsson, fyrr-
verandi umdæmistemplar. *
Umboðsmaður stórtempl-
ars var kjörinn Gísli Sigur-
geirsson, verkstjóri í Hafnar-
fírði.
Þorsteinn J. Sigurðsson,
nmdæmistemplar.
Maríus Ólafsson,
umdæmisritari.
VOLVO
vörubifreið 4—5 tonna |
seld með tækifærisverði
og góðum greiðsluskilmál-1
um. Símar 3570 og 4373.
Frá Kaupfélagi Árnesinga
Frá og með miðvikudeginum 8. júsní verða burtfar-
artímar sérleyfisbifreiða vorra frá Reykjavík kl. 8.45
f. h. í stað 9 og 6 e. h. í staö 6,30.
Ferðir tU Reykjavíkur á sunnudagskvöldum verður
eftirleiðis:
Frá Stokkseyri
— Eyrarbakka
— Selfossi
— Hveragerði
kl. 8,45
kl. 9,00
kl. 9,30
kl. 10,00
Aðrir tímar óbreyttir.
Kauirfélag Árnesinga.
8 f
tefSc naglafoyssur
Tvær gerðir.
Verð kr. 1100 og kr. 1700.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
élmeftha S^ih^apla^ii b^,
Borgartúni 7, sími 7490.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í ema setuliðsskemmu (stærð 12y2X
30 m) í götustæði Skipasunds til niðurrifs.
Tilboð veröa opnuð í skrifstofu minni, Ingólfsstræti
5, þann 10. þ. m. kl. 10 f. h. og gefur hún nánari upp-
lýsingar.
Eæjarvcrkfræðingiiriiui í Reykjavík
ISSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSSCSSW
esssssas»sssss»sssssssssss5&ssss»sssssss»ssss»s»»s»ssss»»s»ssss»ss»sss»
Ef þér aðeins hugsið um það, þá er ^
það yður í hag að kaupa bláu Gillette
blöðin í handhægu málmhylkjunum.
Og þrátt fyrir þessar hentugu um-
búðir hækka blöðin ekkert í verði.
Þessir eru kostirnir: Bláu
Gillette blöðin með heims-
ins beittustu egg, eru tilbú-
in til rakstursins, án papp-
írsumbúða, án fyrirhafnar.
Blöðin eru oliuvarin og
halda því fullkomlega bit-
inu. Á málmhylkjunum er
hólf fyrir notuð blöð. —
Þessar umbúðir hækka ekki
verð blaðanna.
10 Blá Bilette Blöð i málm-
hylkjum kr. 13,25.
láu Gillette blöðin