Tíminn - 30.09.1955, Qupperneq 5

Tíminn - 30.09.1955, Qupperneq 5
221. blað. TÍMINN, föstudaginn 30. september 1955. 5 Horft fram á vetur Þessa dagana birtast hér i blaðinu þættir eftir Pál Zóph- óníasson, búnaðarmálastj óra, urn heyskap í sumar, ásetning bænda og fóðrun búpenings- ins. Það er alkunna að eftir versta óþurrkasumar á þess ari öld í stærstu og þéttbýl- ustu landbúnaðarhéruðum landsins, er bændum meiri vandi á höndum í þessum efnum en beú’ hafa áður lif- að. Þar sem heyfóðrið er litíð, létt og skemmt er það mikil búmannsraun að sigla heilu skipi úr þeim skerjagarði, er næsti vetur hlýtur að verða alla leið fram í græn grös næsta vor. Til þess að þetta takist, má engin fyrirhyggja bregðast, hyer smávægdegur misreikningur getur orðið þar örlagaríkur, valdið bústofns- missi og illbætanlegu tapi fyrir bóndann. í þáttum þessum reynir búnaðarmálastjóri, sem hefir í senn lengri og meiri reynslu af þessum málum og yfirgrips mikinn kunnugleik á ástand- inu eins og það er nú, að vekja bændur til fullrar aðgæslu í þessum efnum og fyrirbyggja hugsanleg mistök. Það er full komin ástæða til að benda bændum á að gefa orðum hans góðan gaum. Þeir vita, að þar talar maður af fullum heilindum og ejnlægum vilja til þess að verða að liði í þessum efnum. Eins og bænd um er kunnugt hefir hann á undanförnum vikum lagt á sig þrotlaust erfiði í ferðum um þvert og endilangt landið til þess að kynna sér á- standið og ræða við bændur um tiltæk úrræði og forystu- menn hreppanna um ástand og horfur og sameiginlegar aðgerðir. Á þessum trausta grundvelli hefir hann svo byggt tillögur sínar um nauð synlegustu aðgerðir og komið á samstarfi milli oddvita á þurrkasvæðmu annars vegar cg óþurrkasvæðinu hins veg ar. Mun bað almannamál meðal bænda. að hann hafi brugðizt við þessum vanda af sínum óvenjuiega en þó al- kunna dugnaði. Nú beinir hann síðustu varnaðarorðum sínum til bænda áður en full or ákvarðanir eru teknar um ásetninginn. JI'Midarsamtök bænda, Bún aöajrfélagið og Stéttarsam- bandið hafa fjallað um þessi mál af framsýni og fyrir- hyggju, og .er þess að vænta að stefnu þeirri, sem þau hafa markað verði vel framfylgt og landbúnaðinum þar með bjargað svo sem verða má frá þungum áföllum og þjóðinni allri frá þeim vandræðum, sem slík áföll mundu valda henni. í langflestum sveitum landsins eru nú starfandi fóðurbirgðafélög og sums staðar hafa þau starfað lengi. Þar hafa yfirleitt myndazt . fastar venjur um ásetninginn og er úr sögunni að tefla á tæpt vað. Þetta sumar ætti að verða til þess að fóður- birgðafiílög yrðú stofnuð í . hverri sveit landsins og full- komnu eftirliti með ásetningi komið á. Starf eftirlitsmánna með ásetningi er nú vandasamara Sameining Þýzkalands Það muii seMÍlega ver'ða eiít aðal vandamálið á furnli uian- ríkisrálliesra fjórveldanna í haust. Eitt af verkefnum utanríkisráff- hcrrafundar stórveldanna í Genf mun verffa aff ræffa um samein- ingu Þýzkalands, og þui mtix fafnframt verffa eitt affaldeilu- efniff. — Éftirfarandi grein bírt- ist nvlega í New York Times eftir fréttaritara þess blaffs í Bonn, M. S. Handler. Fyrir rúmri. viku síðan var í Moskvu undirritaður samningur milli Austur-Þýzkalands og Rúss- lands, sem felur í sér viffurkenn- ingu Rússa á '-sjálfstæði Austur- Þýzkalands. Má líklegt telja, að þessi samningúr. muni verða til þess, að í framtiðinni verða Vest- urve’din að geia meiri gaum mál- efnum Austur-Þýzkalands en áður. Frá hendi Rússá er þessi leikur gerður til þess aff geta teflt Aust- ur-Þýzkalandi ffam sem sjálfstæðu og sambærilegu'ríki við Sambands lýðveldið Þýzkaland. Þessi samn- ingur hlýtur þó að auka á valda- streituna um yfirráðin á þýzku landi. Mcff þessum samningi hlýtur A- Þýzkaland sama.. sess í bandalagi Austur-Evröpurikjanna og Sam- bandslý.ðveldið Þýzkaland hefir í varnarsamtökunv.; vestrænu þjóð- anna. Þannig er hið raunverulega ástand i Þýzkálandi nú. Með' stuðningi Sovétríkjanna gerir austur-þýzka kommúnista- stjórnin kröfu til þess að vera talin hin eina rétta . .stjórn sameinaðs Þýzkalands. Á - sama hátt gerir Bonnstjórnin með stuðningi Vest- urveldanna kröfu tit þess að vera skoðuð sem hin eina lýðræðislcga kjörna stjórn Þýzkalands og því hinn eini rétti, opinberi málsvari þýzku þjóðarinnar. Þetta eru þau vandamál, sem utanríkisráð'herrar Vesturveldanna verða að hafa .gert sér grein fyrir, er þeir koma til móts við Moiotov á næsta fundi þeirra í Genf. En hvað er þá Austur-þýzka lýð- veldið? Stjórnarfarslega er það al- þýðulýðveldi, eins og nafngiftin heitir í kennisetningum kommún- ista. Ríkið var stofnað með her- stuðningi Sovétríkjanna á rúss- neska hernámssvgsðinu og hefir síðan notið stuðnfngs þeirra. Landfræðilega er Austur-þýzka lýðveldið Mið-Þýzkaland, en ekki Austur-Þýzkaland eins og það er venjulega nefnt. Landamæri þess takmarkast að austan af Oder- Neisse línunni og .af landamærum Sambandslýöveldisins að vestan. Austur-þýjzka lýðveidáð nær jpr 40.725 fermilur lands, en Sam- bandsiýðvcldið 94.500 fermílur, og er þá ekki tillit tekið til Berlínar. Það, sem eitt sinn .var kallað Aust- ur-Þýzkaland, var, á Potsdamráð- stefnunni lagt undir Pólland og Rússland. Um fólksfjqlda í þessum lönd- um kemur - mönnum ekki saman. Austur-þýzka stjórnin telur, að í Austur-Þýzkalandi séu 17,6 milj. ADENAUER GROTEWOIIL og i Austur-Berlín 1.175.000. Yfir- völdin í Vestur-Berlín telja hins vegar ,að samanlagður fólksfjöldi í Austur-Berlín og Austur-Þýzka- landi fari ekki fram úr 16,8 milj. í lok júní s. 1. komst fólksfjöldi í Vestur-Þýzkalandi upp fyrir 50 :niljónir. Meira en 80% af iðnaðarhráefn- um Þýzkalands eru í Vestur-Þýzka landi. Tvö dæmi sýna hlutfallið, sem er á milli framleiðsluretu þess- ara tveggja landa. Á þessu ári er gert ráð fyrir, að framleidd verði 21 miij. tcnna af stáli og 120 milj. tonna af kolum, en í .Austur-Þýzka landi er gert ráð fyrir 2 milj. tonna af stáli og 25 milj. tonna af kolum. Mismunurinn á lífskjörum fóiks í þessum tveimur ríkjum er stór- kostlegur. 1 Vcstur-Þýzkalandi ríkir nú mikil bjartsýni og góð lífskjör. Á aðeins sjö árum hefir Vsstur- ÞjóSyerjum tekizt að vinna sig aftur upp í sinn gamla virðingar- sess sem ein fremsta iðnaðarþjóð heimsins og i Evrópu jafnfætis Bretum. Allt bendir einnig til þess, að lífskjör í Vestur-Þýzkalandi muni fara batnandi. Áætlað er, að og ábyrgðarmeira en nokkru sinni fyrr sunnan og vestan lands. Á þeim hvílir erfið skylda um að vera strangir í kröfum. Undan henni mega þeir ekkl; víkjast, því að á starí'i þeirra getur hvílt heill og afkoma byggðarlagsins næsta ár; Bændur verða og að líta með skilningi á strang ar kröfur þeirra og hlíta þeim því að með því er hagur þeirra sj'alfra þezt tryggður. Hér ber á svo' margt að líta, sem ekkirer unnt að rekja hér, en þSiidum skal eindreg ið ráðlagt að fylgjast sem bezt með varnaðarorðum og lei'ðbeiningum búnaðarmála- stjóra hér í blaðinu þessa og næstu daga. Ýmsum kann að finnast, að gamla íslenzka máltækið um að bezt sé aö búazt við hinu illa því að hið góða skaði ekki, sé aðeins orð tak svartsýnna manna, sem beygðir eru af kulda og kvöl margra alda. Ef til vill á það ekki við ævmlega og alls stað ar, en þegar horft er fram á íslenzkan vetur er ekkert heil ræði betra. á þessu ári muni þjóðarframleiðsl- an aukast um 10%. í Austur-Þýzkalandi hafa lífs- kjprin hins vegar staðnað á mjög lágu stigi, vegna þess að allt fjár- magn landsins hefir verið lagt í að koma íótum undir þungaiðn- aóinn. Iðnaðarvörur eru fágætar, lélegar og dýrar. Þegar undan eru skilin nokkur hverfi, sem reist hafa verið sem sýnishorn af hinni aust- rænu sælu, þá er húsnæði lélegt og sums staðar hefir ekki neitt verið reist úr rústum. í Austur-Þýzkalandi hefir gæð- um iðnaðarvara farið hrakandi. Skriffinnska hefir háð bæði iðn- aðinum og viðskiptalífinu yfirleitt. Landbúnaðurinn getur varla séð í- búunum fyrir nægilegri fæðu. Flók ið kerfi samyrkjubúa, rikisbúa og einkabúa hefir lamað framtak bænd anna, sem þó njóta nokkurra hlunn inda í ódýrum iðnaðarvörum og ó- dýru byggingarefni. Viðskipti Vestur-Þýzkalands fara jöfnum höndum fram við Vestur- veldin, Miðjarðarhafslöndin og A- Asíulöndin, en viðskiptatengsl Aust ur-Þýzkalands eru eingöngu bund- in við Sovétríkin. Borið saman við Vestur-Þjóð- verja eru Austur-Þjóðverjar undir- okaö fólk, sem er jafnvel fyrirlitn- ara af húsbændum sínum en Pól- verjar og Tékkar. Ágreiningurinn milli hinna tveggja þýzku ríkja hefir því sízt farið minnkandi, og mismunurinn fer vaxandi, eftir því sem hin tvö hagkerfi fá að þróast þar lengur, þar sem önnur þjóðin býr við góð hfskjör, en hin við lé- legt viðurværi. Suniir vestur-þýzkir stjórnmála- menn hafa jafnvel orðið af því á- hyggjur, að mismunurinn á þess- um tveimur yíkjum kunni að verða svo mikill, ef málin fá að þróast lengi, svo sem fram hefir farið síðan i styrjaldarlok, að erfitt kunni að verða að. uppræta hann. Stjómarfarslega er Austur-Þýzka land kommúnistískt einræðisríki, þar sem. stjórnin fer fram undir yfirbragði þingræðislegra stjórnar- hátta, en er I raunveruleikanum flokksræði kommúnistaflokksins. Þingið (Volkskammer) er kosið á fjögurra ára fresti. Opinberlega er svo látið heita, að öllum flokkum sé frjálst að bjóða fram, en í fram- kvæmd eru kosningarnar bundnar viö einn lista, ef frá eru teknir ör- fáir frambjóðendur annarra flokka. í tilkynningu austur-þýzku stjórn arinnar frá kosningunum 17. októ- ber 1954 var frá því skýrt, að 91,46% af öllum atkvæðisbærum mönnum hefðu greitt lista kommúnistaflokks ins atkvæði. Þetta er skýrast dæmi um það, hve mikið frelsi mönnum sé gefið til að bjóða fram á móti stjórnarvöldunum. Þingi’ð er ekki löggjafarsamkoma í vestrænum skilningi, heldur miklu fremur ráðgjafarsamkoma stjórn- arvaldanna. Forseti þess er Johann- es Dieckmann, sem er fulltrúi fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn, en sá flokkur á fjóra menn á þíngi. Ráðuneyti, sem kosið er af þing- inu og síðan staðfest af stjórn kommúnistaflokksins hefir með framkvæmdavaldið að fara. For- sætisráðherra er Otto Grotewohl, en honum til leiðbeiningar eru sjö aðstoöarforsætisráðherrar og leið- togi þeirra er Walter Ulbricht, for- maður kommúnistaflokksins. Auk þess eru nitján ráöherrar og ellefu aðstoðarráðherrar. Hið raunverulega vald er í hönd- um Ulbrichts, Grotewohls og Wil- (Framhald & 6. siðu). Gróa á Leiti í gerfi alþýðuforingja Stöðugt sígur nú á ógæfu- hlið hjá Kópavogskommúnist um. Framundan blasa við þeim brim og boðar og hin hripleka stjórnarskúta þeirra hér í Kópavogi mun brotna niður með gný miklum. Mun um við íbúarnir óspart fagna, er við losnum við skömmina og niðurlæginguna, sem fylg ir því að búa^undir stjórn rauðUða, auk hins mikla tjóns sem framfaramál vor hafa beðið af því að Fmnbogi Rút ur hefir verið oddviti hér. Rógur liðs Finnboga um Hannes . Jónsson einkennir helzt kosningabaráttuna hér. Holskeflur rógsins, sem lenda á einarðlegum andstæðing- kommúnista á Vesturlöndum er tækið, sem kemur í stað þrælabúðanna austan menn- ingar. Hvort tveggja á eitt markmið — að beygja og eyðileggja. Kommúnistar geta ekki unnið, ef rök og afrek eiga að ráða. Valdið er tækið, sem hefir reynst þeim bezt, og rógurinn, þar sem honum verður beitt. Hannes Jónsson er sú teg- und stjórnmálamanna, sem kommúnistar óttast mest. Ungur alþýðumaður, sem hef ir brotist áfram af eigin rammleik, séð lýðskrumið og krabbameinið í kommúnistm anum og ráðist gegn honum. Hann hefir gengiö út með liðs mönnum sínum og byggt fé- lagsverzlun meðan kommún- istaoddvitinn sat og spekúler aði hvernig bezt væri að kúga smælingjann. Hann hefir að stoðað efnalaust fólk við að koma þaki yfir höfuðið, með- an kommúnistaoddvitinn sat með ráðgjöfum sínum og reyndi að koma í veg fyrir að slíkt tækist. Sementskaup maðurinn og kjötbraskarinn i Borg, sem íhaldið í Reykja- vik setti til höfuðs húsnæðis- leysingj um höf uðstaðarins fékk ágætan liðsmann — kommúnistaoddvitann í Kópa vogi, til að reyna að hrekja húsnæðisleysingjana enn lengra í burtu. Utan landa- mæra svarta íhaldsins var rauða íhaldið, sem tók flótta mönnum ómjúkum höndum og meinaði þeim vatns og raf magns. Það hefir oft áður sannast, að ekki er ýkjalangt milli öfgapólanna — og skemmra en margur heldur. Eitt er víst — aldrei hurfti Finnbogi Rútur að óttast and stöðu hins steinrunna Uðs Sjálfstæðismanna í Kópavogi og Hannes Jónsson hóf fyrst ur '-aunhæfa andstöðu gegn kommúnistum- hér. „Mér væri skapi næst að henda h.....honum Hann- esi út úr hreppnum.“ Þetta sagði ein kommúnistaspraut- an við kunningja sinn. Þetta eru okki ósvipuð viðbrögð við vandanum og þegar vikapilt- ur Bjarna Ben. á Suðurnesj- um fann það út, í grein sem hann ritaði í málgagn Sam- einaðra verktaka, að eina ráðið gegn umbótastefnu Framsóknarmanna væri að gefa þeim rottueitur og losna þannig við þá. Svona aumir standa and- stæöingarnir frammi fyrir rökum og úrræðum samvmnu stefnunnar. Vald og eitur, eru einu tækin, sem þeir eygja í baráttunni. Samvinnustefnan (Framnald á 6. síðuu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.