Tíminn - 19.01.1956, Síða 4
TÍMINN, fimmtudaginn 19. janúar 1956.
1S. bla3.
/ slendingajpættir
Dánarminning: Aðalsteinn Pálsson,
skipstjóri
Það hefir löngum verið stolt
Vestfirðinga að eiga harðfenga og
ötula sjómenn. Þar í hópi er
margra mætra manna að minnast,
heima og heiman, lífs og liðinna.
Að þessu sinni hvarflar hugurinn
til eins hins allra fremsta í þeirri
glæstu fylkingu vaskra drengja
— manns, sem stundaði sjó frá
bernsku og fram undir sextugt, á
svo að segja öllum tegundum
fiskiskipa, og hafði þá stjórnað
fleyi alla starfsævina óslitið frá
fermingaraldri og af þvílíkri reisn
og giftu, að löngu er landfrægt.
Þessi öndvegismaður er Hnífsdæl-
ingurinn Aðalsteinn Pálsson, sem
í dag verður borinn til hinztu
hvílu í skauti ættjarðar sinnar
eftir órofinn og erilsaman starfs-
dag á öldum hafsins kringum land
ið. Honum ætti að verða hvíldin
góð, því hann stóð í aðkallandi og
ábyrgðarmikilli önn þrotlaust til
síðustu stundar, að það kallið kom
nálega fyrirvaralaust, sem „enginn
kaupir sér frí“ frá. Hann andaðist
að heimili sínu úr hjartabilun að-
faranótt 11. þ. m. Með Aðalsteini
er genginn til moldar höfðingi og
hetja úr íslenzkri sjómannastétt
.— einn þróttmesti og glæsilegasti
kappinn í úrvalaliði íslendinga á
fyrrihluta tuttugustu aldarinnar.
Aðalsteinn Pálsson er fæddur
að Búð í Hnífsdal 3. júlí 1891. For
eldrar hans voru ágætar og vel
ættaðar myndarmanneskjur: Guð-
björg Bárðardóttir úr Dýrafirði og
Páll Halldórsson í Búð. Aðalsteinn
ólst að mestu upp í Hnífsdal hjá
föðurömmu sinni, merkiskonunni
Sigríði Össurardóttur. Fékk hún
snemma mikið ástríki á sveinin-
um, sem brátt þótti afbragð ann-
arra manna.
Tólf ára að aldri hóf Aðalsteinn
sjóróðra í Hnífsdal, og tveim ár-
lim síðar var hann orðinn formað-
ur og hófst þá þegar hinn langi
og viðburðaríki forustuferill hans
á sjónum, sem stóð nálega óslitið
í 45 ár á smærri og stærri skip-
um.
Það mun hafa verið 1912, að
Aðalsteinn fluttist hingað suður
og settist í Sjómannaskólann, þar
sem hann lauk bæði farmanna- og
eimvélaprófi árið 1914. Má segja,
að síðan hafi hann verið þjóð-
kunnur maður, sem helzti og til-
komumesti skipstjóri togaraflot-
ans. Mun engum þeirra miklu
dugnaðarmanna, sem þar hafa
skipað og skipa veglegt rúm,
þykja sér vansæmd eða óréttur
gerr með þessari fullyrðingu, enda
vitað, að Aðalsteinn var beinlínis
lærifaðir og fyrirmynd ekki svo
fárra þeirra. — Og í þessu sam-
bandi sérstaklega, get ég ekki
stillt mig um að geta þess, að frá
Hnífsdal, þessu litla, fámenna sjáv-
arþorpi vestur á fjörðum, hefir
komið alveg ótrúlega hár hundraðs
hluti yfirmanna togaraflotans, og
Aðalsteinn Pálsson átt drýgri hlut
en nokknr maður annar að því þýð-
ingarmikla sjómannsuppeldi, sem
þar er um að ræða, og má kannske
ekki hvað sízt af því marka, hverja
þýðingu og áhrif hann beint og
óbeint hefir haft á mótun þeirra
manna margra hverra, sem hafa
stjórnað og stjórna þessum mikil-
virkustu framleiðslutækjum sjáv-
arútvegsins, enda margir þeirra
nákomnir frændur hans og vinir.
Fyrir þetta hlutverk einnig, stend-
ur þjóðin í þakkarskuld víð Aðal-
stein.
Þegar Aðalsteinn „kom í land“
fyrir réttum 5 árum, kominn fast
að sextugu, hefði margur mátt
ætla, að hann settist nú í helgan
stein og nyti í kyrrð og friði efri
ára. En slíkt var honum ekki að
skapi, og fór mjög á annan veg.
Meðan hann var sjómaður, hafði
hann oftlega verið méðeigandi í
útgerð skipa sinna, og tók hann
nú algerlega að sér útgerðarstjórn
„nýsköpunartogara" síns „Fylkis“,
er hann sjálfur síðast hélt til veiða
Rekstur togarans annaðist Aðal-
steinn svo vel, að til fyrirmynd-
ar var, — og seinasta æviárið
hafði hann einnig með höndum
framkvæmdastjórn „Geirs“. Þann-
ig varð ævistarfið ekki endasleppt
hjá þessum mikla dugnaðar- og
athafnamanni. Þar að auki hefir
hann mörg undanfarin ár setið í
stjórn stéttarsamtaka útgerðar-
manna og ýmissa fyrirtækja —
alls staðar virtur að verðleikum.
Aðalsteinn Pálsson var mikið
glæsimenni að vallarsýn; með
allra hæstu mönnum og þrekinn
þar eftir, í sénn fríður og karl-
mannlegur, rammur að afli og
myndi að góðu og gömlu mati
hafa verið tálinn a. m. k. tveggja
manna maki. Yfir allri persónunni
hvíldi hógvær virðuleikablær og
þrekmennska, sem árin fengu
lítt á unnið.
Aðalsteinn var tvíkvæntur, og
voru báðar hinar góðu konur
hans heiman úr Hnífsdal. Fyrri
kona hans var Sigríður Pálsdóttir
Halldórssonar útvegsbónda í
Heimabæ, systir hinna þekktu
Brekkubræðra Jóakims, Halldórs
og Páls. Hún var glæsileg fríð-
leikskona, og voru þau hjón
frændsystkin. Þau gengu í hjóna-
band 1915. Þeirra börn urðu 6,
en 5 eru á lífi: Páll, togaraskip-
stjóri í Englandi, Sigríður, lyfja-
fræðingur, sem stjórnar Stjörnu-
apóteki KEA á Akureyri; Össur,
starfsmaður hjá B. P.; Guðbjörg,
gift hér í Reykjavík og Elín, ógef
in í föðurgarði. Frú Sigríður lézt
árið 1930. Síðari kona Aðalsteins
var Elísabet Jónasdóttir kaup-
manns Þorvarðarsonar á Bakka,
menntuð myndarkona. Þau gift-
ust 1932 og eiga einn son, Jónas
Aðalstein stud jur. — Öll eru
börnin frítt og föngulegt myndar-
fólk, eins og þau eiga kyn til í
báðar ættir.
Eins og þegar hefir komið fram,
var Aðalsteinn Pálsson knýttur
Hnífsdal sterkum og margþætt-
um böndum uppruna, ættar og
tengda. Hann sýndi líka þessu
byggðarlagi mikla tryggð og rækt
arsemi alla tíð. Það kom þráfald-
lega fram í höfðinglegum gjöfum
þangað til einna og annarra fram
fara- og menningarmála, síðast í
sambandi við skóla- og kapellu-
byggingu. Og ekki hvað sízt mun
um við gamlir sjómenn að vestan
glöggt og árvakurt vinarauga
hans gagnvart smáfleytunum úr
Hnífsdal hér áður fyrr, þegar
stórviðri brast á og hann var
nærri á stóru skipi sínu. Þá sýndi
hann ósjaldan göfugt hugarfar og
hjartalag Þorbjörns Kólku, og var
„hjálparþurfum hjálparsnöggur
í hættum kaldur bæði og djarfur",
eins og Grímur segir, þótt meira
en tvær árar lylu stjórn garpsins
til hjálpar .... En það er saga,
sem fremur verður fundin en
sögð af þeim, sem hlut áttu að
máli.
★
Ég naut þeirrar ánægju að
kynnast persónulega jæssum
merka sveitunga mínum tvö síð-
ustu æviár hans, vegna viðskipta,
er við áttum saman. Vil ég nú að
leiðarlokum þakka honum þá
kynningu; vináttu hans, hlýhug
og drengskap. Við ýms tækifæri
fann ég, að ennþá logaði glatt
innri eldur hans, þótt sjálfur hann
saknaði yngri ára í sambandi við
framgang áhugamála sinna. Aðrir
höfðu vissulega ekki neinnar vönt
unar að sakna í dagfari þessa
hártnær hálfsjötuga afburða-
manns, hvorki til orðs né æðis.
❖
Margir hafa nú mísst mikið;
Hnífsdálur ástfólginn og trygg-
lyndan son, íslenzk sjómannastétt
einn sinn hraustasta víking, þjóð-
fél. stórbrotinn athafnamann. Allir
sem til þekktu, trega Aðalstein
Pálsson, en þeir að sjálfsögðu sár
ast, sem næstir standa; ástvinir
hans, eftirlifandi kona og börn.
En mikill harmaléttir og raunar
þakkarefni má það öllum vera að
hafa átt svo dáðríkan dreng að
missa.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Enska knattspyrnan
Úrslit síðastliðinn laugardag:
1. deild.
Arsenal - Tottenham ..
Birmingham - Burnley
Blackpool - Aston Villa
Bolton - Portsmouth ..
Cardiff - Manch. City ..
Chelsea - Sunderland ..
Everton - Charlton ....
Huddersfield - Wolves
Manch. Utd. - Sheff. Utd.
Newcastle - Luton Town
West Bromwich - Preston
2. deild.
Barnsley - Leicester
Blackburn -P lymouth
Bristol City - Fulham ...
Hull-Stoke (féll niður)
Lincoln - Liverpool (féll n
Middlesbro - Bury ......
Nottm. For. - Bristol Rov.
Port Vale - Notts County
Rotherh. - Swansea (féll n
Sheff. Wed. - Doncaster
West Ham. - Leeds Utd.
0-1
1-2
6-0
4-0
4-1
2- 3
3- 2
1-3
3- 1
4- 0
3-2
0-1
2-1
2-1
)
)
í 3. deild syðri hefir Ipswich,
sem féll niður í vor, þrjú stig
meira en Brighton og Leyton Ori-
ent, en Orient hefir leikið tveim-
ur leikjum færra. í nyrðri.deild-
inni hefir Grimsby 38 stig, en
Accrington hefir 36 stig, en hefir
leikið einum leik rninna.
Sfaðan er nú þannig:
1. deild.
Veður var mjög slæmt í Eng-
landi á laugardaginn og varð að
fresta 18 knattspyrnuleikjum, en
af þeim voru aðeins þrír í tveim-
ur efstu deildunum.
Litlar breytingar urðu á röð
liðanna í 1. deild og Manch. Utd.
hefir ennþá fjögur stig meira en
næsta lið. Sagt er, að Manchester
hafi lagt litla áherzlu á bikarleik-
inn í Bristol í 3. umferð, þar sem
framkvæmdastjórinn er á þeirri
skoðun, að lið hans hafi mikla
möguleika til að sigra í 1. deild,
og margsannað sé, að ómögulegt
sé að sigra bæði í deildinni og
bikarnum. Var því bikarkeppnin
strax gefin á bátinn, en þess í
stað á að einbeita sér að deildar-
keppninni. En ef til vill verða
Blackpool og Úlfarnir erfiðir við-
ureignar, en bæði liðin hafa ver-
ið slegin út í bikarnum.
í 2. deild er Sheff. Wed. ennþá
efst og Leicester í öðru sæti, en
bæði liðin sigruðu á laugardag-
inn. Mörg lið fylgja fast á eflir
og úrslit í deildinni eru mjög tví-
sýn. Hins vegar er nokkuð sýnt,
að Hull og Plymouth koma til
með að leika í 3. deild næsta ár.
1. Manch. Utd. 27 15 6 6 56-39 36
2. Blackpool 26 13 6 7 57-40 32
3. Burnley 26 12 7 7 41-32 31
4. Sunderland 26 12 6 8 57-60 30
5. Wolves 26 12 5 9 59-44 29
6. Luton Town 26 12 5 9 48-38 29
7. Everton 27 11 7 9 42-43 29
8. Newcastle 27 13 ,2 12 64-46 28
9. Bolton 26 12 4 10 51-35 28
10. Charlton 27 12 4. 11 58-54 28
11. W Bromwich 27 12 4 11 38-38 28
12. Portsmouth 28 11 5 10 50-59 27
13. Chelsea 26 10 7 9 38-44 27
14. Mnach. City 26 9 8 9 48-48 26
15. Preston 27 10 5 12 49-44 25
16. Birmingh. 27 9 6 12 50-45 24
17. Arsenal 62 8 8 10 34-42 24
18. Cardiff 26 10 4 12 36-50 24
19. Tottenham 26 9 3 14 33-42 21
20. Aston Villa 27 5; 9 13 31-51 19
21. Sheff. Utd. 26. 7 4 15 35-49 18
22. Huddersfield 26 6 5 15 33-65 17
2. deild.
1. Sheff. Wed. 27 11 11 5 62-40 33
2. Leicester 27 14 4 9 66-50 32
3. Bristol City 26 14 3 9 61-46 31
4. Leeds Utd. 26 14 3 .9 46-41 31
5. Bristol Rov. 26 13 4 9. 81-48 30
6. Swansea 26 13 4 9 48,48 30
7. Stoke City 26 13 3 10 47-40 29
8. Port Vle 26 10 9 7 36-33 29
9. Liverpool 25 11 6 8 54-39 28
10. Fulham 27 13 2 12.58-55 28
11. Nottm. For. 26 12 4 10 44-45 28
12. Lincoln City 25 10 6 9 44-35 26
13. Blackburn 26 11 4 11 53-46 26
14. Bury 27 9 .6.12,51*63 24
15. Doncaster 27 9 6 12 51-63 24
16. Hiddlebsro 26 9 6.11 42-54 24
17. Barnsley 27 8 8 11 34-48 24
18. West Ham. 26 8 7 11 50-43 23
19. N. County 27 8 7 12. 41-47 23
20. Rotherham 26 8.7 11 37-47 23
21. Plymouth 27 6 5 16 32-55 17
22. Hull City 25 5 3 17 27-57 13
Aætlun ura ferðir M.s. Dronning Alexandrine
milli Reykjavíkur, Færeyja og Kaupmannahafnar jan.—sept. 1956.
Frá Kaupmannahöfn:
17/1 11/2 28/2 23/3 10/4 25/4 19/5
12/6 6/7 20/7 3/8 17/8 31/8 14/9
Reykjavík:
24/1 20/2 6/3 31/3 17/4 12/5 5/6
29/6 13/7 27/7 10/8 24/8 7/9 21/9
Ferðirnar frá Kaupmannahöfn 25/4., 19/5. og 12/6. verða um Grænland til Reykjavíkur. Ferðin
frá Reykjavík 21/9. verður um Grænland til Kaupmannahafnar Skipið kemur við í Færeyjum
í öllum ferðum. Breytingar á brottfarardögum, eða skipsferð falli niður getur átt sér stað fyrir
varalaust, ef kringumstæður krefjast þess.
Fargjald:
1 farrými C
1. do D
2. do
3. do
Rvík/Kaupmannahöfn:
Kr. 1111,20
Kr. 1037,12
Kr. 740,80
Kr. 530,91
Rvík/Þórshöfn:
Kr. 506,22
Kr. 469,17
Kr. 321,05
Kr. 246,93
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen
— Erlendur Pétursson. —
»
:
ITALSKAR (JRVALS
SAFAMIKLAR VÍTAMÍNRÍKÁR
SfTRÓNUR
fást nú í öllum matvöruverzlunum