Tíminn - 26.02.1956, Side 2
2
TÍMINN, sunnudaginn 26. febrúar 1956.
Mynd þessi var tskin í veglegu hófi, er Halldóri Kiljan s_axness var haldió í Þjóðleikhússkjaliaranum síðast
liðið mánudagskvöld. Guðlaugur Rósinkranz, þjóðieikh jsstjóri setti hóxið og stjórnaði þvi, en ávörp vluttu
Bjarni Benediktsson, mennt3málaráðherra, Jón Leifs tónskáld, formaður Bandaiags íslenzkra listamanna,
Helgi Hjörvar rifhöfundur, formaður Rithöfundafélags íslands, Ragnar Jónsson, forstjóri, og Jakob Benedikts-
ion magister. Strengjakvartett lék og Rögnvaidur Sigurjónsson lék á píanó. Á myndinni sjást talið írá vinstri:
Bjarni Benediktsson, frú Ajður, Halidór Kiijan og Guðlaugur Rósinkranz.
Fálkaorðunoi
stolið frá Fétri
Um kl. 10 í fyrrakvöld, er Pétur
‘iloffman var að loka gull- og silf-
jrmunasýningu sinni í Listamanna
skálanum, voru tveir 12 ára dreng-
ir inni og auk þess tvenn ung hjón.
Lykill var í skrá sýningarkassa
aess, er fálkaorðan var geymd í.
Pétur fylgdi hjónunum til dyra og
sneri þá baki að drengjunum, en
litlu síðar yfirgáfu þeir salinn. í
pví komu tvær ungar stúlkur, sem
vildu sjá sýninguna, og hleypti
Pétur þeim inn og að kassanum,
sem geymdi fálkaorðuna.
Sá hann þegar, að hún var horf-
,n og hljóp hann því á eftir drengj
jnurn og bar á þá. að hafa tekið
orðuna. Neituðu þeir því og sögðu
honum að leita á sér. Kallaði Pét-
ur þá til dyravarðar og sagði hon-
um að hringja í lögregluna, en
sagði um leið við drengina. „Ef
þið skilið mér orðunni, skal ég
ekki láta pólitíið taka ykkur“. Fór
þá annar drengurinn að skæla og
kvaðst hafa tekið hana, og hún
væri á grasblettinum fyrir utan
skálann. Sagði Pétur þá við dreng-
ina, að hann skyldi ekki láta lög
regluna vita um þetta, en þeir
yrðu þá að lofa sér því, að vera
heiðarlegir héðan í frá, og játuðu
þeir því.
út í hátíðahúningi
í mmniiigd iím veitingu
UM ÞESSA RMUNDIR kemur út fjórða útgáfa af Aiþýðubókinni
efttir Halldór Kiljan Laxness, og er þessi útgáfa gerð í minningu um
Nóbelsverðlaunaveitinguna Laxness til handa og til hennar vandað
í samræmi við það. Útgefandi er Mál og menning.
Norræn úlvarps-
skákkeppni
Kaupmannahöfn í gær: í hrað-
skákkeppni þriggja Norðurlanda,
sem fram fer gegnum útvarp, urðu
þau úrslit í gær, að þeir Krogdahl
í Osló og Stahlberg í Stokkhólmi
gerðu jafntefli. Fjöldi manna
fylgdist með skákinni, því að leikj-
unum var jafnharðan útvarpað um
margar stöðvar. Skákin stóð í 35
mínútur og varð spennandi, þótt
jafntefli yrði að lokum. En þar
með er útvarps-meistarakeppnin
enn óútkljáð og tefla sömu menn
úrslitaskákina 5. marz. — Aðils.
Reksfur véSfcáta
(Framhald af 1. síðu.)
stærri skip. í vetur hafa Patreks-
fjarðarbátarnir aflað ágætlega,
eins og áður er sagt. Lætur nærri
að meðalafli í róðri frá því um
áramót, sé um 9 lestir á bát .
Bátarnir róa ýmist beint út af
Patreksfirði, eða suður á Breiða-
fjörð. Yfirleitt er nokkuð langt
sótt en afli oftast jafn og góður,
þegar vel viðrar.
Það rekstrarfyrirkomulag, sem
hér um ræðir mun vera svipað því
sem átt hefir sér stað við Lófót
langa tíð og gefizt vel. Það hefir
líka sýnt sig, að þetta gefst vel
hér og lækkar úthaláákestnaðinn
verulega.
Jón Helgason, prófessor í Kaup
mannahöfn, ritar allýtarlegan for-
mála. Margar myndir eru í út-
gáfunni prentaðar á sérstakan
myndapappír. Eru þær flestar af
skádinu frá ýmsum æviskeiðum
þess, og síðast nokkrar myndir frá
Nóbelshátíðinni í Stokkhólmi. Þá
birtast þarna formálar þeir, sem
Kiljan reit að fyrri útgáfum Al-
þýðubókarinnar. Útgáfa þessi er
aðeins ætluð félögum Máls og
menningar og ekki seldar á bóka
markaðinum. Alþýðubókin hefir
allmikla sérstöðu meðal rita Kilj-
ans og markaði á sínum tíma mót
á rithöfundarbraut hans.
„Burt með lénsskipu-
lagið í Sódan
Kartún, 25. febr. — Tveir lög-
regluforingjar og allmargir lög-
regluþjónar voru handteknir í
þorpinu Kosti í Súdan í dag. Eru
þeir ákærðir fyrir að bera að veru
legu leyti ábyrgð á dauða 192 land
búnaðarverkamanna, sem teknir
voru höndum um seinustu helgi og
látnir allir í eitt herbergi, þar sem
flestir þeirra fundust dauðir að
morgni. Höfðu þeir kafnað eða
látizt af þorsta og vanlíðan. Verka
menn fóru kröfugöngur um götur
í Kosti og höfuðborginni í dag.
Lét lögreglan þá óáreitta. Báru
verkamenn spjöld, sem á var rit-
að :Burt með lejisskipulag mið-
aldanna-
BúnaSarþing
(Framhald af 1. síðu.)
skattanefnda, sem miða að sam-
ræmingu innan hvers sveitar-
félags.
Færa niður verð fasteigna.
Ennfremur, að haldði verði á-
fram þeirri reglu, að færa niður
verð húseigna í sveitum líkt og
gert var við fasteignamatið 1942.
Þegar þessar og fleiri athuganir
hafa verið teknar til greina af
landsnefnd, verði mötin send heim
i viðkomandi sveitir til athugunar
á ný.
Bústofnsláiiadeild.
Þá samþykkti þingið, að skora á
ríkisstjórn og alþingi að veita veð-
deild Búnaðarbankans framlag eða
hagkvæmt lán að upphæð 8 millj.
kr. á ári í næstu 10 ár. Verði fé
þessu varið til bústofnslána að
verulegu leyti.
tfualtjAið í 7wanum
Róið hvem dag í þrjár vikur í Grindavík
- jafn afli cg mikiil hhiti ýsa
Frá fréttaritara Tímans í Grindavík.
Mikið á þriðju viku hefir ekki fallið úr einn einasti róðra-
dagur í Grindavík, en þar er einnig róið á sunnudögum. Að
undanförnu hefir verið ágæt veðrátta og afli er sæmilegur
hjá þeini 19 bátum, sem byrjaðir eru róðra.
Vertíðarsvipur er nú mikill kom-
ir.n á kauptúnið, enda margt að-
komufólk á vertíðinni, ýmist við
róðra á bátunum eða fiskvinnu í
landi. Mun láta nærri að um þriðj-
ungur íbúanna um þessar mundir
sé fólk, sem þar er aðeins tima-
bundið við vertíðarstörf.
Aiiir sex aökomubátarnir eru
skipaðir áhöfnum, sem með þeim
komu í verið, bæði til landvinnu
og sjósóknar. Fylgja þannig hverj-
um bát 10—12 vertíðarmenn. Auk
þess er um helmingur áhafna
Grindavíkurbátanna aðkomumenn.
Að undanförnu hafa bátarnir afl-
Öldruð kona
lærbrotnar
Um fimm leytið á fimmtudag-
inn varð öldruð kona, Guðrún
Agústa Jónsdóttir, til heimiiis að
Vitastíg 8A, fyrir bíl á gatanmót-
um Vitastígs og Laugavegar. Féll
hún í götuna og lærbrotnaði.
Tildrög slyssins voru þau, að
fólksbíll ók upp Vitastíg og á
gatnamótum Laugavegar beygði
hann til hægri. Síðan leit bílstjór-
inn til vinstri til að athuga um-
ferð á Laugavegi, og sá hann eng-
ann bíl, nema einn, sem ók fram-
hjá. Er bílstjórinn leit til hægri
aftur sá hann konu fyrir framan
bílinn. Hemlaði hann þegar og
stanzaði bílinn sem sagt strax, en
hann var á hægri ferð. Bíllinn
snerli þó konuna og féll hún á
götuna. í því bar að' mann, sem
aðstoðaði konuna við að rísa á
fætur, og hjálpaði henni síðan upp
á gangstéttina, en þar settist kon-
an á tröppur verzlunarinnar. Bíl-
stjórinn ók að þeim stað, og hjálp-
aði maðurinn þá konunni inn í bíl-
inn. Bílstjórinn spurði konuna
hvort hún væri mikið meidd, en
hún hélt ekki. Ók hann síðan með
hana á læknavarðstofuna, og er
þangað kom, kvartaði konan um
verk í fæti. Bar bílstjórinn hana
inn á læknavarðstofuna. — Þegar
myndir voru teknar af fæti henn-
ar kom í ljós að hún hafði lær-
brotnað og liggur hún nú á Land-
spítalanum. Guðrún er 79 ára að
aldri.
Það eru tilmæli rannsóknarlög-
reglunnar, að maður sá, er hjálp-
aði konunni, svo og aðrir sjónar-
vottar, gefi sig fram við hana.
Fréttir frá landsbyggöinni
Smáhluinm stoliS frá fær-
eyskum sjómönnum
Færeyskir skipverjar á togaran-
ura Úranusi tilkynntu til rann-
sóknarlögreglunnar s.l. fimmtu-
dag, að stoiið hefði verið frá þeim
rafmagnsrakvél og fleiru smáveg-
is, og fjórar töskur þeirra brotnar , . .. , .
upp og aiit tætt tii í þeim. skipið Fjolmennt a leiksynmgu
lá í höfninni í Reykjavík. I-Iöfðu' j Skjólbrekku
Nýgræðingur sést á
HératJi
Egilsstöðum, 25. febr. — Hér er
heldur að kólna í veðri. í morgun
var þoka og rigningarsúld, en síð-
degis létti til með vestlægri átt
og kólnaði. Flugvél kom liingað
í dag og hafði komið við á Þórs-
höfn og orðið að bíða þar brott-
farar vegna dimmviðris. Flutning-
ar eru enn rniklir yfir heiðarnar.
Veðurblíðan hefir verið svo mikil
síðustu daga, að sums staðar sést
nýgræðingur vera íarinn að lifna.
ES.
þeir engan grunaðan um þjófnað-
inn.
Haukur Bjarhason, rannsóknar-
lögreglumaður, tók að sér rann-
sókn málsins, og vi^ athugun
komst hann að því, að meðal skip-
verja á Úranusi var gamall kunn-
ingi lögreglunnar. Fór hann heim
til þessa manns, og fannst þar
hlutur, sem stolið hafði verið frá
Færeyingunum. Er maðurinn
vissi, að lögreglan var komin á
slóð hans gaf hann sig fram og
skilaði rakvélinni.
F'osshóli, 25. febr. — Fært er
nú um allar byggðir sem á sumar-
degi. í kvöld sýna Mývetningar
leikinn Upp við fossa í félags-
heimili sínu Skjólbrekku og mun
verða fjölsótt þangað úr öðrum
sveitum. Tveir bílar fara til dæm-
is með fólk framan úr Bárðardal.
Dorgarveiði er nú stunduð á Mý-
vatni og aflast sæmilega. Menn
fara líka á dorg á önnur vötn hér
á heiðunum, t. d. Kálfborgarár-
vatn, og er hægt að aka þangað
á jeppa
Stykkishólmsbátar afla
sæmilega
Stykkishólmi, 25. febr. — Hér er
róið dag hvern og er afli sæmileg-
ur, - 5—12 lestir í róðri. Róið er
ýmist út að nesi eða út fyrir
nes. KG.
Bændafundur í Hornafir (Ji
Hornafirði, 25. febr. — í dag
hófst hér í Höfn áriegur bænda-
fundur, sem hér er haldinn iil
þess að ræða mál héraðsins. Er
hann allfjölsóttur, og komu nokkr
ir bændur flugleiðis frá Öræfum
á fundinn í gær. AA.
Er búinn aí afla500 skip-
pund á vertíðinni
Hornafirði, 25. febr. — Svo
ntiklar gæftir hafa verið, að bát-
arnir hafa getað róið 16 daga sam-
fleytt, en slíkar gæftir eru óvenju
legar hér. Aflahæsti báturinn,
Gissur hvíti, er búinn að fá yfir
500 skippund á vertíðinni, og er
það miklu betra en var á sama
tíma í fyrra. í kvöld munu bátarn-
ir ekki róa, því að laugardagur er,
og ætla sjómenn að fá sér hvíld
um helgina. AA
að 6—14 lestir í róðri. Margir oft
með um 10 lestir. Mikið af aflan-
um er ýsa og er hún öll fryst. Þar
sem frystihúsin geta ekki annað
frystingu alls aflamagnsins, þegar
svo margir bátar sækja sjó dag
eftir dag, verður lítið annað fryst
en ýsan. Þorskurinn er saltaður
og hertur.
EvrópuráðiíJ gengst fyrir
esperantó-kennslu
Menningar- og vísindanefnd
Evrópuráðsins samþykkti í einu
hljóði á fundi sínum í París 25.
jan. s.l. að mæla með tillögu 14
fulltrúa ráðsins þess efnis, að ráð-
ið gangist fyrir kennslu í esper-
anto í fimm skólum í Englandi,
Frakklandi, Þýzkalandi, Ítalíu og
Hollandi. Verði börn á aldrinum
11—14 ára látin njóta þessarar
kennslu og að ári látin sanna ráð-
inu getu sína í Strassbourg. Verði
tilraun þessi þáttur í leit að við-
unandi lausn á þeim vanda ,sem
málaglundroðinn í Evrópu hefir í
för með sér.
Laxness og esperanto.
„Norda Prismo“, seperantotíma-
rit um bókmenntir og listir, sem
gefið er út í Svíþjóð, birtir sögu
Halldórs Kiljans Laxness „Lilju“
í desemberhefti 1955. Þýðandi er
Baldur Ragnarsson, stud. mag.
Áf engissalan ti!
Akureyrar 1955
Sent frá Reykjavík gegn póst-
kröfu kr. 1.607.120,00 og frá Siglu
firði kr. 1.305.674,oo eða samtals
fyrir krónur 2.912.794,00.
Er þetta dálítið hærri upphæð
en fyrra ár héraðsbannsins, en þá
var áfengissala hingað samkvæmt
reikningum Áfengisútsölunnar kr.
2.278.662,oo. Mun það stafa af
hækkuðu verði og því, að margir
hér hafi átt einhverjar vínbirgðir,
er vínverzluninni var lokað 9. janú
ar 1954. En til samanburðar má
geta þess, að árið fyrir héraðs-
bannið, 1953, seldi Áfengisverzlun
ríkisins áfengi á Akureyri fyrir
7.069.204,oo krónur, en í þeirri
upphæð fellst einnig það, sem
selt var út úr bænum.
(Áfengisvarnarnefnd Akureyrar).
Tímarii
Ægir
rit Fiskifélags íslands, 3. hefti 49.
árg. hefst á greininni útgerð og
aflabrögð, þá ritar Sigurður Péturs-
son um Hitun eða geislun til geril-
sneyðingar, síðan erlendar fréttir,
og loks skrá yfir útfluttar sjávaraf-
urðir frá 31. des. 1954 til 31. des
1955.
Heimilisblaðið Haukur
febrúarhefti 1956 er að vanda fjöl-
breytt að efni. í því er grein um
Margréti Danadrottningu, smásaga
eftir Guðjón Sigurðsson, sem nefn-
ist Hún hafði ekki gleymt, Hjúskap
arskrifstofan, smásaga eftir H. S.
Back, Listamannaþáttur Hauks um
Erun Sigurleifsdóttur leikkonu,
Skotta skipstjórans, myndasaga. Eg
barðist gegn aldrinum, sönn smá-
saga, Gaman og alvara, krossgáta,
framhaldssaga og ýmislegt fleira.
..........................
FRÍMERKI
\ Notuð íslenzk frímerki I
l kaupi ég hærra verði en |
e aðrir.
William F. Pálsson
í Halldórsstaðir, Laxárdal, S.-Þlng. 5
ItMIHlllllUlltlllIIIIIIIllllinllllllllllllllll-UUIIIIMllUllJ