Tíminn - 02.03.1956, Page 7

Tíminn - 02.03.1956, Page 7
7 T í MI NN, föstudagiiin 2. marz 1956. Ræla Steingríms Steinþórssonar á þingi í gær: Atvinnuleysistryggingar skv. fyrirheiti rlkisstj órnarinnar Þöríin fyrir atvinimleysisbætur verður mest þar sem sér- sjóSirnir verða lægstir. Akvæði frv. gölluð^ en buudin af samkomulagi í sambandi yið lausn verkfallsins Frumvarp það um atvinnuleysistryggingar, |em hér ligg- ur fyrir, er flutt samkvæmt fyrirheiti því, er, ríkisstjórnin gaf um setningu slíkrar löggjafar í sambandi yið lausn verk- fallsins um mánaðamótin apríl og maí 1955. Skömmu eftir lok verkfallsins, skipaði ég í samráði við ríkisstjórnina fimm manna nefnd til þess að semja nauðsynleg lagafrumvörp svo ríkisstjórnin mætti efna það fyrirheit, sem gefið var. Nefndarskipun. Samlcvæmt fyrsta atriði sam- komulagsins skyldu lög þessi sett í samráði við verkalýðssamtökin og samtök atvinnurekenda. Sam- kvæmt tilnefningu þessara aðila voru því skipaðir í nefnd þá, sem samið hefur frumvarpið, þeir Eð- varð Sigurðsson af hálfu Alþýðu- sambandsins og Björgvin Sigurðs- son af hálfu Vinnuveitendasam- bandsins. Þegar nefnd þessi var skipuð var starfandi önnur nefnd að samningu nýrra laga um al- mannatryggingar. Þar eð atvinnu- leysistryggingar eru ein grein al- mannatrygginga, hefði í raun og veru verið eðlilegast að ákvæðin um atvinnuleysistryggingar hefðu verið samin sem einn kafli í al- mannatryggingalögunum og felld inn í þau lög. Það varð því að ráði, að skipa aðra nefndarmenn með hliðsjón af þessu. Auk áður- nefndra manna frá A. S. í. og V. S. í. voru þá skipaðir í nefnd- ina Gunnar J. Möller, hæstaréttar- lögmaður, Hjálmar Vilhjálmsson, skrifstofustjóri og Haraldur Guð- mundsson, forstjóri, sem skipaður var formaður nefndarinnar, en all- ir þessir menn áttu sæti í nefnd- inn, sem fjallaði um almanna- tryggingarnar. Það kom fljóít í Ijós, að óvænlega liorfði um sam- komulag í nefndinni, svo eigi þótti að svo stöddu fært að sameina löggjöf þessa almannatryggingalög unum. Það var ætlun ríkisstjórnarinnar, að leggja frumvarp þetta fyrir Alþingi snemma á þingtímanum, en það gat þó eigi orðið fyrr en nú og eru þessar ástæður fyrir drættinum, sem orðinn er á mál- inu„ - helstar: Ýmis þau atriði, sem samið var um að vera skyldu í frumvarpinu, sbr. fylgiskjal I við frumvarpið voru óljós. í nefndinni varð því ágreiningur um sum þessi atriði, einkum milli fulltrúa A. S. í og V. S. í. og tafði það mjög störf nefndarinnar. Nefndin hefir hald- ið um 20 bókaða fundi, auk fjölda funda, sem ekki eru bókaðir, sem formaður og einstakir nefndar- menn hafa setið. Tillögur um sam- komulag hafa verið ræddar fram og aftur, en árangurinn varð sá, að sámkomulag hefur ekki náðst í nefndinni og- liafa þrír nefndar- manna þeir Björgvin Sigurðsson, Eðvarð Sigurðsson og Haraldur Guðmundsson gert grein fyrir sér- stöðum sínum með sérstökum bók unum, sem birtar eru með athuga- semdum við frumvarpið. Mun ég koma að þessum fyrirvörum nokkru nánar áður en ég iýk máli mínu. Eg vii geta þess nú strax, að um eitt helzta ágreiningsefnið varflandi greiðslu bótanna, baufl ríkisstjórnin að leggja málið í gjörð, en því var hafnað af báðuin aðihim. Ríkisstjónin hefði verið fús að leggja fleiri þessi ágrein- ingsefni í gerð, ef deiluaðilar liefðu getað fallizt á slíka lausn. Ríkisstjérnin hefur í öllum at- riðum viljað efna það heit, sem hún gaf, en henni hefur verið mikill vandi á höndum varðandi þau atriði, sem mestum ágrein- ingi hafa sætt milli deiluaðil anna. Ilún vill í lengstu lög freista þess að fá samkomulag í þessu efni, en ef það ekki fengist, að deiluaðilar kæmu sér saman um gjörð, en eins og áður scgir var þess ekki kostur. Nauðug viljug hefur því rikis- stjórnin orðið, að leggja úrskurð á þessi deiluefni, sem sum eru þannig vaxin, að hver úrskurður sem á yrði lagður, myndi talinn brigð á því, sem heitið var, af öðrum hvorum aðila. Önnur ástæða sem orsakað hefir drátt á fram- lagningu frumvarpsins, er hreint og beint annríki ríkisstjórnarinn- ar. Önnur mál, sem meta hefir orð ið meira hafa orðið að sitja í fyr- irrúmi, en frumvarp það, sem hér liggur fyrir, orðið að bíða. Efni frumvarpsins. Ég mun nú snúa mér að frum- varpinu sjálfu. Það er ástæðulaust að fjalla hér um einstakar greinar. í því efni nægir að vísa til athuga- semda frumvarpsins. Ákvæði um atvinnuleysistrygg- ingar voru fyrst lögtekin hér á landi með lögum um alþýðutrygg- ingar frá árinu 1936. í V. kafla þeirra laga var gert ráð fyrir, að verkalýðsfélögin mynduðu atvinnu leysisstyrktarsjóði með iðgjalda- greiðslum sjóðfélaga sinna. Skyldi ríkissjóður, og hlutaðeigandi sveit arsjóður greiða hvor um sig fram- lög til sjóðanna er árlega næmu frá hvorum aðila 50 af hundraði greiddra iðgjalda sjóðfélaga. Þessi akvæði voru dauður bókstafur, og hafa aidrei verið framkVæmd. Þá má geta þess, að með lögum nr. 42 frá 1943 skyldi verja 3 millj. króna af verðlækkunarskatti til i þess að efla alþýðutryggingar. Þegar núvcrandi lög um al- mannatryggingar voru sett, var fé þessu óbeint rúðstafað til vænt anlegra atvinnuleysistrygginga,1 sbr. 100. gr. þeirra laga. Sjóður þessi nam við síðustu árslok ca. | lir. 4.360.000.00 og er þessi fúlga | stofnfé atvinnuleysistrygginga- sjóðsins, sbr. 1. gr. frumvarpsins og 7. atrifli samkomulagsins, sjá fylgiskjal I með frumvarpinu. Það frumvarp, sem hér liggur fyrir, er í ýmsúm efnum frá brugð ið þeim lögum, sem í öðrum lönd um gilda um slíkar tryggingar. Veldur þar mestu, ýms ákvæði, sem bundin voru í margnefndu samkomulagi deiluaðila, sjá fylgi skjal I við frumvarpið. Sem dæmi skulu hér nefnd aðeins tvö atriði. Verkamenn greiða ekki iðgjöld. í fyrsta lagi, náðist ekki sam- komulag um það, að verkamenn sjálíir greiddu iðgjöld. Sá háttur mun víðast vera á hafður í öðrum löndum og frámlög ríkissjóðs og sveitarsjóða þá miðuð við iðgjalda greiðslur þeirra eða sjóðfélaganna. í samkomulaginu bundu atvinnu rekendur sig.til að greiða iðgjöld til sjóðsins, sbr. 2. atriði sam- komulagsins. Framlög sveitarsjóðs og ríkissjóðs eru miðuð við iðgjöld atvinnurekendánna, framlög sveit- arsjóðanna jafnhá iðgjöldum þeirra og framlag ríkissjóðs tvöfalt. Fráleit niðurstafla — en bundin. í öðru lagi skal það, sem inn- STEINGRÍMUR STEINÞÓRSSON heimt er á félagssvæði og í starfs- grein hvers einstaks félags eða félagasambands, lagt inn á sér- reikning þess félags eða sambands í sjóðnum, sjá 1. gr. frumvarpsins og 4. atriði samkomu lagsins. Á þeim stöðum, sem mikil atvinna er, verða iðgjöld atvinnu rekenda mikil, sama gildir fram- lög ríkis og sveita. Sjóðir þess- ara staða verða væntalega brátt allgildir. Einmitt á þessum stöðum mun lítils f jár við þurfa til greiðslu atvinnuleysisbóta, því þar er næg atvinna. Öfugt við þetta er því farið á þeim stöðum, sem stopul er atvinna. Þar verða iðgjöld at- vinnurekenda tiltölulega lág, fram lög sveita og ríkis slikt hið sama. Á þessum stöðum verður þörf- in fyrir atvinnuleysisbætur mikil, vegna mikils atvinnuleysis, en möguleikarnir litlir til að mæta þeirri þörf. Segja má því, afl þörf in fyrir bótagreiðslur sé í öfugu lilutfalli við fjármagn þafl, sem fyrir hcndi er til greiðslu bóta. Þetta er vitanlega fráleit niður- stafla, en verður þó við svo búið að' standa, þar eð samkomulagið bindur þetta ótvírætta á þann veg, er nú var lýst: Því fráleitara er þetta, vegna þess, afl fjárins til trygginganna er að þrem fjórðu Iilutum aflað frá því opinbera. Að vísu er svo ákveðið í 19. gr. frumvarpsins að lána megi milli sérreikninga, ef ríkisábyrgð er fyr ir hendi. í þessu efni er það og mikilsvert atriði, sem segir í at- hugasemdum við 3. gr., en þar segir, að nefndin hafi verið sam- mála um það, varðandi þau útlán, sem fært yrði að veita úr sjóðnum, að forgangsrétt eigi lán, sem ætluð eru til varanlegrar atvir.nuaukn- ingar á þeim stöðum, sem þörf er fyri slíkar framkvæmdir. Frv. er frumsmífl. Ég hefi hér drepið á tvö atriði, sem eru næsta sérstæð og afbrigði leg í slíkri löggjöf sem þessari. Fleira mætti nefna, sem líkt stend ur á um, en ég mun sieppa því að sinni. Um frumvarpið sjálft vil ég taka fram, að þar eð hér er um frumsmíð að ræða, má gera ráð fyrir, að í Ijós komi, þegar lögin koma til framkvæmda, að láðst hafi að setja ákvæði, sem nauðsyn leg kunna að vera, eða ákvæði þau, sem sett eru reyndist að ein- hverju leyti gölluð. í þessu sam- bandi er rétt að vekja athygli á því, að lög þessi skulu endur- skoðuð eftir tvö ár, sbr. 22. gr. frumvarpsins og 9. atriði sam- komulagsins. Gefst þá kostur á því, að lagfæra það, sem áfátt kann að reynast þegar lögin koma til framkvæmda. Frumvarp um vinnumifllun. Frumvarpi því um atvinnuleys- istryggingar, sem hér liggur fyr- i_r fylgir frumv. um vinnumiðlun. Ég vil leyfa mér að fara um það frumvarp örfáum orðum. Það var ekki verulegur ágreiningur í nefnd inni um það frumvarp, og ein- stakir nefndarmenn hafa ekki lát- ið bóka neina fyrirvara um það. Þau lög, sem nú gilda um vinnu- miðlun, eru aðeins heimildarlög. Þar eð rétturinn til atvinnuleysis- bóta, skal sannaður með vottorði vinnumiðlunar, nægja ekki þau heimildarákvæði um þetta, sem nú gilda. Tryggja varð vinnumiðlun I á öllum þeim stöðum, sem lögin eiga að taka til. Til þess að fyrir- byggja umfangsmikið skrifstofu- bákn í sambandi við vinnumiðlun- ina, er svo ákveðið í frumvarpinu, að hver sveitarstjórn annist hana í sínu sveitarfélagi í samráði og með aðstoð fulltr. frá verkam. og atvinnurekendum. Sveitarstjórn er heimilt, að fela vinnumiðlun odd- vitum sínum, sveitarstjóra, bæjar- stjóra eða sérstökum manni og heimilt er bæjarstjórn að setja á fót vinnumiðlunarskrifstofur. Öll vinnumiðlun verði rekin undir yfir stjórn félagsmálaráðuneytisins, er njóta skal ráða og aðstoðar full- trúa frá A. S. í og V. S. í. um allt það, er vinnumiðlun varðar í landinu. Gert er ráð fyrir að ríkis sjóður beri að Va hluta kostnað við vinnumiðlun sveitarfélaganna og er þetta ákvæði í samræmi við þau ákvæði sem voru í eldri lögum um vinnumiðlun. Við samningu þessa frumvarps hefur verið höfð hliðsjón af samþykktum Alþjóða- vinnumálastofnunarinnar um vinnu miðlun. Ef frumvarp. þetta verður að lögum mun hægt að fullgilda þessar samþykktir I. L. O., sem til þessa hefur ekki verið hægt að gera vegna ófullkominna laga ákvæða hér á landi um þessi efni. Þess má geta, að flest Norður- löndin hafa fullgilt nefndar sam- þykktir I. L. O. Ákvæði laga um atvinnuleysisskráningar eru felldar inn í frumvarpið, þar eð slík skrá- ning er aðeins einn þáttur vinnu- miðlunar. Að lokum skal ég með .örfáum orðum geta um fyrirvara hinna einstökú nefndarmanna. Fyrirvari V. S. í. Björgvin Sigurðsson, fulltrúi V. S. í., hefur lagt til að iðgjalds- greiðsluskylda atvinnurekenda verði bundin við þær launagreiðsl ur einar, sem inntar eru af höndurrt til „tryggðs" aðila, sbr. 2. atriði samkomulagsins. Hér er eitt dæmi um óljóst orðalag samkomulags- ins Hver er tryggður aðili? Er það sá einn, sem nýtur bóta? Ef svo er, hvernig geta þá skattayfir- völdin vitað það ,þegar iðgjöld eru á lögð, hverjir kunna að njóta bóta? Sé með tryggðum aðilum átt við þá eina, sem eru meðlim- ir í verkalýðsfélagi, má segja að álagningin væri framkvæmanleg a. m. k. teoretiskt séð. En það yrði feikna viðbótarstarf, sem Iagt yrði á skattayfirvöldin, ef fara ætti að þessari greiningu. Þar að auki er sá alvarlegi Ijóður á þessu ráði, að með þessu móti yrðu launa- greiðslur atvinnurekenda lægri vegna þeirra verkamanna, sem eigi eru meðlimir í verkalýðsfélagi. Það hefur verið meginregla hvervetna þar, sem verkalýðsfélög starfa, að þau hafa ekki sætt sig við, að unnið væri fyrir lægra kaup en þau hafa samið um við atvinnurek epdur. Gildir þetta ekki aðeins félagsmenn heldur og alla þá aðra, sem unnið hafa vinnu, sem taxti hefur verið settur um. í frum- varpinu er því svo kveðið á, að atvinnurekendur greiða iðgjöld vegna allrar þeirrar vinnu, er unn in er á þcim stöðum þar sem lög- in gilda og hlutaðeigandi verka- lýðsfélag hefur sett eða samið um kauptaxta fyrir. Björgvin bendir réttilega á það í fyrirvara sínum, að ósamkvæmni sé í því, að með- limir verkalýðsfélaga einir geti öðlast bætur, þótt iðgjöld séu greidd vegna allra verkamanna. Rétt er að vekja athygli á því, að þeir eru nú ekki margir, sem ann- ars ættu rétt til atvinnuleysisbóta, sem ekki eru félagar í verkalýðs- félagi, svo mjög skaðlegt mun þetta ákvæði ekki reynast í framkvæmd inni. Það er svo hins vegar aðal- atriðið, að þar sem tekjur atvinnu- leysistryggingarsjóðs eiga að fær- ast á sérreikninga hlutaðeigandi verkalýðsfélaga, verður ekki séð, að fært sé, að ráðstafa þeim til utanfélagsmanna. Slíkt væri brot á samkomulaginu. Þá hefur Björg- vin haldið því fram, að það ákvæði frumvarpsins, sem ákveður, að út- hlutunarnefnd annist bótagreiðsl- ur, sbr. 21 gr. sé brot á þeim for- sendum, sem samkomulagið hafi verið byggt á. Þetta er að því leyti rétt, að orðið úthlutun, sem viðhaft er í samkomulaginu, sbr. 6. atriði þess, bindur það ekki í sér, að bæt urnar skuli greiðast af úthlutunar nefndum. Það er einmitt þetta at- 1 riði, sem ríkisstjórnin bauð deilu- aðilum að leggja í gjörðardóm og fá þannig útkljáð, en báðir að- ilar höfnuðu. Að vandlega athug- uðu máli var litið svo á, að umrætt fyrirkomulag stæði opið og valin sú leið, sem nánar segir í 21. gr. sem fulltrúi verkalýðssamtakanna Eðvarð Sigurðsson taldi sig eftir atvikum geta unað við. Önnur fyr irvaraákvæði Björgvins hafa minni þýðingu og mun ég að svo stöddu ganga fram hjá þeim. Fyrirvari A. S. f. Eðvarð Sigurðsson, fulltrúi A. S. í. gerir athugasemd við skipun þeirra tveggja manna í úthlutunar nefnd, sem laus er látin í samkomu laginu. Ég sé ekki ástæðu til að fjöl yrða um þessi atriði. Loks telur hann, að hámark bóta, samkvæmt 18. gr., ætti að vera hærra en þar er ákveðið. Hámark bótanna, sbr. 18 gr., er hið sama og bætur vegna slyss. Ef borin eru saman þessi tvö atvik, slysifl sem grundvöll bóta- greiðsla annarsvegar og atvinnu- leysið sem grundvöll bótagreiðslu hinsvegar, kemur í ljós, að hið fyrra er mun traustarai grundvöll ur fyrir bótagreiðslur en hið síðast talda. Minna má á það, að slysið er það atvik, sem fyrst þótti ástæða til að tryggja með sérstakri lög- gjöf hér á landi. Atvinnuleysifl hefur þótt öllu vafasamari grund- völlur, enda er það fyrst nú, að ráðist er í tryggingar á þessum grundvelli hér á landi. Það væri herfilegt ósamræmi ef greiða mætti hærri bætur vegna atvinnuleysis, sem óneitanlega má véfengja, a. m. k. í sumum tilvikum, heldur en vegna slyss, sem jafnan bera að með þeim hætti, að með engu móti verður véfengt. Telcjuöflunin sýnist ekki geta ráðið úrslitum í þessu efni. Atvinnurekendur ein ir bera uppi slysatryggingarnar en atvinnuleysistryggingarnar verða bornar uppi af opinberum aðilum að % hlutum, en af at- vinnurekendum að 1/4 hluta. Fyrirvari Haralds Guflmundssonar. Þá er fyrirvari Haralds Guð- mundssonar. Hann vill mynda sér- staka rikisstofnun til þess að ann ast vinnumiðlun, atvinnuleysis- tryggingar o. fl. Ég hef áður vakið athygli á því, að atvinnuleysis- tryggingar sé ein grein almanna- trygginganna. H. G. mun hafa að- hyllst þessa skoðun þegar hann á árinu 1936 beitti sér fyrir setn- ingu alþýðutryggingarlaganna. Hann var þá félagsmálaráðherra. Atvinnuleysistryggingarnar eru sérstakar tryggingar innan al- mannatrygginganna algjörlega sam svarandi slysatryggingum og sjúkra tryggingunum. Þær eiga því í raun réttri heima á sama stað og þessar tryggingar eða hjá Tryggingar- stofnun ríkisins. Sá staður er þeim búinn í því frumvarpi, sem hér liggur fyrir eftir því sem gallað samkomulag í harðvítugri vinnu- deilu frckast leyfði. Að öðru leyti gefur fyrirvari H. G. mér ekki tilefni til athugasemda. Loks skal þess getið, að Gunnar J. Blöller tók ekki afstöðu til 21. gr. frv., en lét þess getið í gjörð- arbók nefndarinnar, að hann teldi eðlilegast að félagsmálaráðherra leggði frv. fram með þeirri túlkun á 6. atriði samkomulagsins fskj. I, sem honum þætti hlýða. Skjótrar afgreiðslu vænst. Eins og Ijóst er af samkomu- laginu, sbr. fylgiskjal I, hefur ríkisstjórnin gefið fyrirheit um að frumvarp þetta skuli lagt fram á þessu þingi og afgreitt á því. Þótt svo langt sé liðið á þetta þing, þegar mál þetta er lagt fyrir legg ég á það höfuðáherzlu að ! háttvirt Neðri-deild afgreiði frum J varpið eins fljótt og ástæður frek- ast leyfa.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.