Tíminn - 10.05.1956, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.05.1956, Blaðsíða 12
Veðrið í dag: Norðaustan stinningskaldi. skýj ; aS, en víðast úrkomulaust. 40. árg.____________________________ Biti á nokkrum stöðum klukkaa 18: Reykjavík 10 stig, Akureyri 7 stig, London 11 stig, Khöfn 16 stig, París 20 stig, New York 14 stig. Brezka þingið ræðir hið duiarfuiia hvarf Crabb Sauðburðurinn er byrjaður London, 9. maí. — Neðri mál- stofa brezka þingsins ræddi í dag hið dularfulla hvarf Crabb, froskmanns, sem enn er algeng- asta umræðuefni almennings og blaða í Bretlandi þessa dagana. Eden gaf þá yfirlýsingu, að það væri ekki í þágu almenniugs- lieilla, að meira yrði skýrt frá máli þessu. Gaitskell varð fyrir svörum og gagnrýndi Eden mjög íyrir þá leynd, sem stjórnin vildi hafa uin þetta dularfulla mál. Sagði Gaitskell, að þetta væri sú undarlegasta yfirlýsing, sem brezkur ráðherra hefði nokkru sinni gefið. Sagði Gaitskell, að það væri sannarlega ekki í al- þjóðarþágu að þegja mál þetta í heJ og gefa þannig alJs kyns orð- rómi byr undir báða vængi. Ed- en svaraði aðeins því, að hann hefði engu við yfirlýsingu sína að bæta. Hefir mál þetta fengið enn þá dularfyllri blæ yi’ir sér eftir þessa einkennilegu vfirlýsingu Edens forsætisráðherra, Samsöngur í Austur- Mynd bessi er tekin í næsta nánrenni Reykjavíkur við Skerjafjörð. Sauð- bjrðurinn er nú víða rétt að byrja oq jafnvel nokkuð síðan fyrstu ærn- ar báru. Verður ekki annað saqt en vorið brosi við lambánum þessa dagana meðan gróðrarskúrir og sól hjálpa graenum sprotum upp úr moldarsverðinum. Vísi að dýragarði komið á fót í skemmtigarðinum TÍVOLÍ Gar'Surinn opnaftur í dag og ver'ður opimi allar helgar í sumar, hvernig sem vitírar Hinn vinsæli skemmtigarður Reykvíkinga, Tívólí, verður opnaður í dag. Það háir nokkuð starfsemi skemmtigarðs sem Tívólí, að hér er frekar votviðrasamt. Forráðamenn garðs- ins hafa þó ákveðið að Tívólí verði opið alla laugardaga og sunnudaga í sumar, hvernig sem viðrar, allt til 1. septem- ber, en þá verður garðinum lokað. Það er eklci langt síðan starf- rækzla skemmtigarðsins hófst, en vinsældir hans hafa aukizt með hverju ári. Þess ber að geta, að forráðamenn garðsins hafa lagt sig fram um að bæta hann og fegra að þesu sinni. Aður draugaliús — nú undrahús. Mörg félög og félagasamtök hafa tryggt sér garðinn í sumar og munu gangast fyrir ýmsum hátíða- höldum. Tæki garðsins verða að mestu þau sömu og í fyrra, en draugahúsinu hefir verið breytt og nefnizt eftirleiðis undrahúsið, en þar fara fram furðulegar sjón- hverfingar, sumar næsta hrollvekj andi, eins og títt er á samsvarandi stöðum erlendis. Erfendar fréttir í fáum orðum □ Miklár óeirðir urðu í Aþenu í gær vegna þeirrar ákvörðunar Breta að taka tvo unga pilta af lífi á Kýpur í dag, vegna morðs á óbreyttum borgurum og brezkum hermönnum, í óeirðunum biðu 7 manns bana og 200 særðust. Þeg ar múgurinn ætlaði að ráðast á brezka sendiráðið, sló í bardaga við lögregluna, sem liélt úflugan vörð um sendiráðið. □ Cppreisnarmenn í Alsír höfðu sig mjög í frammi í gœr. — Brénndu þeir 6 bóndabæi. Franska stjórnin hélt í gær fund um Alsír-málið. bæjarbíói á föstu- daginn Söngkór verkalýðsfélaganna heíd ur samsöng fyrir styrktarmeðlimi sína, föstudaginn 11. maí kl. 7,15 í Austurbæjarbíói. Kórinn hefir starfað af miklu fjöri í vetur. Söng stjóri er nú Guðmundur Jóhanns- son í fjarveru Sigursveins D. Krist inssonar, sem dvelur erlendis um þessar mundir. Kórinn hefir í hyggju að fara til Sandgerðis um helgina og halda þar samsöng. r Islandsferð sigurlaun í getrauna- keppni sænsks dagblaðs í gær komu hingað ung sænsk hjón með Heklu, milli- landaflugvél Loftleiða og sænskur blaðamaður frá Smá- lands Állahanda, sem er stærsta blað í Jönköping. Hjónin unnu sigur í getraunakeppni blaðsins, en verðlaun voru ís- landsferð. Hjónin koma hingað á vegum Loftleiða, en Or- lof sér um dvöl þeirra hér á landi. Hinir sænsku gestir fara utan fimmtánda maí. Storm og hafa verið gift í sex Hjónin heita Vivian og Áke ár. Áke Storm er bréíberari að at- 1 Ágætir hl jómleikar Sinf óníuhl jóm- sveitar íslands í fyrrakvöld Klarínettleikur Egils Jónssonar vakti sérstaka athygli — Þýzkur hljómsveitarstjóri stjórnar næstu hljómleikum Sinfóníuhljómsveit íslands lék verk eftir Mendelsohn, Schubert, Mozart og Beethoven á almennum hljómleikum í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld. Dr. Páll ísólfsson stjórnaði. Húsið var fullskipað og var hljómsveit, stjórnanda og einleik- ara, sem var að þessu sinni Egill Jónsson klarínettleikari, ágætlega tekið. Voru dr. Páll og Egill Jóns- son kallaðir fram á sviðið hvað eftir annað að hljómleikunum lokn um. hoven og Weber. Onnur viðfangs- efni verða eftir Wagner, Beethov- en, Brahms og Stravinsky. vinnu. Þau hjónin ætla að skoða landið, eftir því sem tími vinnst til, fara til Akureyrar, Mývatns og um Suð-Vesturland. Blaðamað- urinn, Uno Ericson verður í fylgd með þeim og mun rita greinar úr freðinni fyrir blað sitt. Smalands Allahanda er hægra sinnað blað og kemur út í fimmtán þúsund eintökum. Það efndi til myndagetraunar í vetur, sem stóð yfir í fimm vikur. Vikulegir sigur- / vegarar komust svo í úrslitaképpni, en Áke Storm bar sigur af hólmi í lokakeppninni. Það er vonandi að hætli að rigna, svo að sænsku gestirnir fái gott veður og ferðin verði ánægjuleg. Vísir að dýragarði. Þá verður það að teljast til al- gjörs nvmælis, að, í sumar verður komið á fót vísi að dýragarði í Tívolí. Verða þar sýnt bjarndýr, apar, allskonar skrautfuglar og fiskar. Er ekki að efa, að yngstu gestirnir munu skemmta sér kon- unglega við að horfa á dýrin. í dag verða ýms skemmtiatriöi, svo sem eftirhermur, búktal, töfra- brögð og að lokum flýgur flug- vél yfir garðinn og varpar niður gjafapökkum til gesta garðsins. Ferðir verða Irá Búnaðarfólags húsinu í sumar og annast S.V.R. um þær. □ Sir Winston Churcliill er um þess ar mundir í þýzka bænum Aac- lren til að veita viðtöku heiðurs- verðlaunum borgarinnar fyrir ó- metanleg störf í þágu einingar Evrópu. Slys á Akureyri Akureyri í gær. — Það slys vildi til hér á mánudagskvöldið, að Ing ólfur Árnason, verkamaður, hér í bæ féll af hjóli og slasaðist. Vildi það þannig til, að hjólið brotnaöi skyndilega í 3 hluta og kastaðist hann í götuna með þeim afleiðingum, að hann meiddist mikið i andliti. E.D. Bílarnir bíða við skaflana - Bagalegt að snjó er ekki rutt af fjölförnum fjallvegi f vetur liefir verið óvenju snjó- létt á Vestfjörðum, eins og víða annars staðar á landinu. Fjallveg- ir liafa þar verið ruddir um það bil ínánuði fyrr en vitað er um áður, frá því bílferðir hófust. Voru flestir fjallvegir opnir lil umferðar rétt fyrir páskana, ncma einn sem enn er ómokaður og ófær bílum á litlum kafla, vegna þess að v.egagerðin hefir ekki orðið við tilmælum fólks um að nota stórvirk tæki, sem til eru vestra og rutt geta snjónum af veginum á fáeinum klukkutínuim. Er liér um að ræða fjallveginn milli Arnarfjarðar og Dýrafjarð- ar, sem tengir sainan tvær byggð- ir, sem mikið liafa saman að sælda. Er mönnum vestra óskilj- anlegur sá dráttur, sem orðið Jiefir á því að opna þennan fjall- veg, vegna þess að þar er litill snjór, en tiltölulega mikil um- ferð. Þarf nú að skilja farartækin eftir á veginum við skafiana, en fólk að vaða snjóskaflana í vor- hlýindunum. Venjulega hefir ekki staðið lengi á því a vorin að vegagerðin hafi látið opua þennan veg, eftir að snjór var orðin lítill og er þessi dráttur mönnum vestra því lítt skiljanleg ur nú, þegar vorveðráttan skartar sínu fegursta. Er það eindregin ósk og von þes fólks, sem þarna á lilut að máli, að v.egagerðar- menn vestra fái fyrirmæli um að Ijúka þessu sjálfsagða verki til að greiða fyrir samgöngum fólks, sem-þarf á því að lialda. Fyrst á efnisskránni var Forleik- ur eftir Mendelsohn (Fingalshell- ir), síðan ballettmúsík úr Rósa- mundu eftir Schubert og þar næst Konsert í A-dúr fyrir klarínettu og hljómsveit eftir Mozart. Egill Jóns- son lék á klarínettupa, sem fyrr segir, og vakti leikur hans hrifn- ingu áheyrenda. Lék hann þetta erfiða verk af mikilli kunnáttu og smekkvísi, svo að hvergi skeikaði. Eftir hlé var leikin sinfónía nr. 1 í C-dúr eftir Beethoven, og reyndi þar mest á hljómsveitina. Tókst flutningurinn vel og jókst sveitinni ásmegin er leið á flutninginn, og lék síðustu kaflana tvo svo, að áhéýrendur hrifust mjög og létu það óspart í ljós að loknum tón- leikunum. Þýzkur hljómsveitarstjóri. Innan skamms lieldur hljóm- sveitin norður í land til hljómleika halds, en eftir heimkomuna æfir hún fyrir hljómleika, sem haldnir verða 12. júní n. k. Þýzkur stjórn- andi kemur hingað innan skamms, Wilhelm Schleuning frá Dresden, kunnur hljómlistarmaður. Á tón- leikunum 12. júní syngur Þorsteinn Hannesson, óperusöngvari, með hljómsveitinni, aríur eftir Beet- Framsóknarflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn héldu almennan kjósendafund í Keflavík í fyrra- kvöld. Var þetta mjög glæsilegur og fjölmennur fundur, troðfullt hús og fylgi bandalagsins mjög mikið. Stingur þessi fundur mjög í stúf við fund Sjálfstæðisflokks- ins í Keflavík fyrir nokkru, þar sem 94 komu til að hlusta á Bjarna Benediktsson. Mun þessi fundur hafa verið þrisvar sinnum fjöl- mennari. Þeir Eysteinn Jónsson og Guð- mundur í. Guðmundsson fluttu framsöguræður en síðan voru frjáisar umræður. í þeim umræð- um kom mjög glöggt í ijós, að þessi fjölmenni fundur studdi öfl- uglega mál umbótaflokkanna. Kom múnistar reyndu að andmæla, en fundu engan hljómgrunn. í mesta lagi 4—6 menn tóku undir mál- flutning þeirra. Fregnir víðar af landinu um fundi bandalagsflokkanna eru á sömu lund. Á Vestfjörðum voru þessir fundir einhverjir fjölsótt- ustu og ánægjulegustu stjórninála fundir, sem haldnir hafa verið þar í áratugi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.