Tíminn - 19.05.1956, Qupperneq 1
I blaðinu í dag:
Skrifstofa Framsóknarflokksins er
í Edduhúsinu, Lindargötu 9A,
III. hæð, sími 6066.
íbúð í nýju húsi fyrir 10 kr., ef
heppnin er með. Nú líður að því
að dregið verði í hinu glæsilega
happdrætti Framsóknarmanna.
Kristján Eldjárn ritar um muni og
minjar og dr. Halldór Halidórs-
son um mál og menningu, bls. 5.
Walter Lippmann ritar um Alsír,
bls. 6.
Eætt um stjórnmál og kosningar
bls. 7.
40 árg.
Reykjavík, laugardagurinn 19. maí 1956.
112. blað.
*
Félagsmsnn í Framsóknarféiögunum í Reykjavík og
miðstjórnarmersn, búsetfir í Reykjavík, eru beðnir að
taka þátt í prófkjöri, sem ákveðið hefir verið að láta
fram fara í skrifstofu fiokksins í Edduhúsinu í dag (laug-l
ardsg) ki. 1—10 cg annan hvítasunnudag kí. 10—10.
Nánari upp'ýsingar eru veiítar í sírrsa 5535 og 5564
og í skrifstofunni.
Fundur í FUF næsta þriðjud.
Félag ungra Framsóknarmanna í Reykjavík heldur
fund þriðjudaglnn 22. maí kl. 8,30 síðdegis í fundarsai
Edduhússins við Lindargötu. Fundarefni er kosning full-
trúa á þing Sambands ungra Framsóknarmanna að Bif-
röst 25.—27. maí n. k.
Etnnig verða rædd önnur mál. Félagar fjöimenni.
Boðað ti
funda á Snæfellsnesi
Alþýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn halda almenna
kjósendafundi á Snæfellsnesi á þessum stöðum:
HELLISSANDI 24 maí og ÓLAFSVÍK 25. maí. Fundirnir
hefjast kl. 8,30 síðd. Frummælendur á þessum fundum verða
Pétur Pétursson, skrifstofustjóri, frambjóðandi Alþýðuflokks-
ins I sýslunni, dr. Kristinn Guðmundsson, utanríkisráðherra og
Emil Jórisson alþingismaður.
Næstu fundir verða að Breiðabliki 26. maí kl. 2 síðd. og í
Grafarnesi 26. maí kl. 8,30 síðd. og að síðustu í Stykkishólmi
27. maí kl. 8,30 síðd.
Frummælendur á þessum þrem seinni fundum vcroa Pétur
Pétursson, frambjóðandi í sýslunni, séra Sveinbjörn Högnason,
prófastur, og Benedikt Gröndal, ritstjóri.
íslands-deifdin á fiskiðnaðarsýningunni í
Höfn myndar kjarna hennar ásamt deild-
um nokkurra annarra ríkja
Frá fréttaritara Tímans i Kaupmannahöfn í gær.
í dag vai’ hin alþjóðlega fiskiðnaðarsýning opnuð í Forum
í Kaupmannahöfn. Formaður danska fiskveiðaráðsins og
danska fiskveiðisambandsins, Niels Bjerregaard, opnaði sýn-
inguna með ræðu. Knútur prins átti að opna sýninguna en
var forfallaður.
Vertíðarlok
í Þorlákshöfn
Vertíð lauk hér í Þorlákshöfn
5. maí síðastliðinn. Heildaraflinn
nam 3800 lestum upp úr sjó, en
sjö þilfarsbátar voru gerðir út frá
verstöðinni.
í fyrra nam aflinn 4400 lestum
frá sex þjlfarsbátum. Hæsti bátur
var mb. Þorlákur með 663 lestir.
Formaður á bátnum var Guðmund-
ur Friðriksson. Hæsti hásetahlut-
ur varð rúmar 30 þúsund krónur
í ár á móti fjörutíu og tveimur
þúsundum í fyrra.
Vinna er að hefjast við hafnar-
gerð. Þrjú steinker voru steypt í
fyrra og af þeim verða tvö sett
niður í næsta stórstraumi. Nokk-
uð er um íbúðarhúsabyggingar á
þessu ári og í sumar verður lokið
við smíði verzlunarhúss og íbúðar
húss, sem Kaupfélag Árnesinga
reisir yfir útibú sitt í Þorláks-
höfn.
Frá Ráðhúsíorginu að Forum
var samfelld röð þjóðfána þátttöku
ríkjanna með fram götunum sem
auglýsing og vegvísir til sýningar-
innar.
ísland í fremstu röð.
Blöðin láta sér tíðrætt um sýn-
inguna og segja, að kjarni hennar
séu hinar stóru sýningardeildir frá
íslandi, Vestur-Þýzkalancli, Austur-
Þýzkalandi og Grænlandi. Þojm
verður tíðrætt um það, að ísland
taki nú í fyrsta sinn á myndarlegan
hátt þátt í slíkri sýningu í Dan-
mörku til þess að sýna hinar kunnu
fiskivörur sinar og gefa hugmynd
um það með skýringarmyndum og
töflum, hvernig íslendingar leitast
við að vera meðal fremstu fisk-
veiðiþjóða heims.
Vel fyrir komið.
Staður íslands-deildarinnar á
sýningunni á svölum með mjög
áberandi auglýsingum leynir sér
ekki, og deildin virðist sérlega vel
fyrir komið. Hún var alveg full-
búin, er sýningin var opnuð. Aðils.
ÞarkomVssirmeöþaö:
Það eru peningasjónarmiðin sem ráöa af-
stöðu sjálfstæöisforingjasina í varnarmálunum
Þeir trúa ekki sjálfir á siríSkættnna,
sem Morgunblaðið kíifar sífellt á
Sú spá Tímans, að eymdarárcður íhaldsins mundi færast
í aukana undir eins og tilkynning hermálastjórnar Bandaríkj-
anna hafði verið birt, rættist skjótt. Vísir setti í gær upp á
forsíðu efni, sem íhaldsmenn hafa um skeið rætt á fundum
og í kosningaáróðri. Efnið er í stuttu máli þetta: Við getum
ekki lifað í landinu nema fá tekjur af hernaðarframkvæmdum.
Yfirlýsing
Að gefnu tílefni skai það tekið
fram, a3 ég er ekki í fram'ijoði við
prcfkjör það, sem auglýst hefur
veirð á vegum Framsóknarfélag-
auua í Reykjavík.
Þórarinn Þórarinsson.
Vegna helgidaganna kemur
blaðið ekki út aftur fyrr en mið-
vikudaginn 23. maí.
Þjó'ðleikhússtjóri afhendir burtfarar-
skírteini úr leikskóla Þjóðleikhússins
Vísir orðar þetta þannig: „Al-
varleg viðhorf í efnahagsmálum.
. . . . Skyndileg stöðvun (peninga
frá hernum) getur haft ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar.“
„Kosningabrellan" sprungin
Með þessum skrifunv er alveg
söðlað um. Allt til þessa hefir
samþykkt Alþingis í varnarmál-
inu verið auðvirðileg „kosninga-
brella“ á máli íhaldsins. Það sím
uðu Vísir og Mbl. út um heim.
Tilkynning herstjórnarinnar um
að ekki verði ráðist í nýjar fram
kvæmdir hér sprengdi þessa á-
róðursbombu í Iiöndíím íhaldsins.
Tiikynningin sýriir að ályktun Al-
þingis er talin túlka vilja meiri-
hluta þings og þjóðar. Amerískir
aðilar leggja því engan trúnað á
að „fréttir“ íhaidsins um „kosn-
ingabrellu“.
Péningasjónarmiðin
koma fyrst
Þá tekur íhaldið það til bragðs
að hræða með efnahagsvandræð-
um og gjaldeyrisskorti.
Þeir trúa ekki sjálfir á stríðs-
hættuna, sem Morgunblaðið er sí-
fellt að klifa á.
Hvernig yrði söngurinn
eftir nokkur ár?
Þessi breyting, að eymdaráróður
íhaldsins er kominn úr fundarsöl-
unum í blöðin, sannfærir aðeins
fleira fólk en áður, hver nauðsyn
það er orðin að framfylgja stefnu
umbótaflokkanna í varnarmálun-
um. Hvernig halda menn að hljóð
ið verði í íhaldsblöðunum eftir
nokkur ár, fyrst þau leyfa sér í
dag að halda því fram að ekki sé
hægt að liía í landinu nema að
hafa tekjur af útlendum her?
HræSsluskrif íhalclsins eru
sferk rök fyrir því, að ekki
megi kvika frá stefnunni í
varnarmálinu. Leppsjónar-
miðin leiða rakleitt til glöt-
unar.
Hvað líður síörfum
loftvarnarnefndar?
Þórður Björnsson endurtók á
fundi bæjarstjórnar í gær fyrir-
spurnir þær, sem liann liefir
margoft borið fram við borgar-
stjóra um starf loftvarnanefndar,
án þess að fá svör. Spurningarn-
ar eru þessar:
1. Hvert hefir verið starf loft-
varnanefndar síðastliðin 3 ár?
2. Hvað hefir orðið af fjár-
framlögum til loftvarna s. 1. 3
ár, samtals 4,5 millj. kr.?
3. Hver hefir verið kostnaður
við loftvarnanefnd og fram-
kvæmdastjórn loftvarna hér í
bænum s. I. 3 ár?
Fimm leikarar brautskráð-
ir úr skóla Þjóðleikhússins
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins var slitið s. 1. miðvikudag
5 nemendur voru í skólanum í vetur. Var það síðara námsár,
þeirra og luku þeir allir burtfararprófi með góðum vitnis-
burði.
Þau, sem útskrifuðust að þessu
sinni eru Erlingur Gíslason, Guð-
rún Ásmundsdóttir, Katla Ólafs-
dóttir, Ólafur Jónsson og Rósa Sig
urðardóttir, öll úr Reykjavík.
Þjóðleikhússtjóri, sem veitir
skólanum forstöðu, ávarpaði nem-
endur og gat þess, að þetta væri
5. hópurinn, sem kveddi skólann,
en alls hefðu nú útskrifazt úr Leik
listarskóla Þjóðleikhússins 26 leik-
arar og leikkonur. Óskaði hann
fimmmenningunum allra heilla á
leiksviðinu í íramtíðinni.
Námsgreinar i Leiklistarskóla
Þjóðleikhússins eru framsögn, tal-
tækni, leiklist, látbragðslist, skylm
ingar, plastik og andlitsgervi. —
Kennarar við skólann eru 6 leik-
stjórar og leikarar við Þjóðleik-
húsið. Námið tekur tvö ár og eru
því nemendur aðeins teknir í skól-
ann annað hvert haust. Inntöku-
próf munu því, samkvæmt reglu-
gerð, fara fram síðustu vikuna í
september í haust, en umsóknar-
frestur er til 1. september. Um-
sókn eiga að fylgja meðmæli frá
leikara, sem kennt hefir nemand-
anum. Inntökuskilyrði er gagn-
fræðapróf eða önnur sambærileg
menntun, en lágmarksaldur nem-
anda er 16 ára.
Hreyfils-menn unnu
bankamenn í skák
Bifreiðastjórar á Hreyfli háðu
s. 1. þriðjudag skákkeppni við
bankamenn í Reykjavík. Teflt var
á 29 borðum og unnu Hreyfils-
menn með 2014 vinning, en banka-
menn höfðu 8*4 vinning. Þar af
voru 5 jafntefli.
Þeir, sem útskrifuSust úr leikskóla ÞjóSleikhússins.