Tíminn - 13.01.1957, Síða 1
1
r~"
Fylgizt meti tímanum og lesið
TÍMANN. Áskriftarsímar 2323 og
81300. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
41. árgangur.
Efni f blaðinu í dag:
Lífið í kringum okkur.
Munir og minjar og Mál og menn-
ing, bls. 5.
Gamall kommúnisti ritar um íhlut
un Rússa í Ungverjalandi.þls. 6.
Skrifað og skrafað, bls. 7.
10. blað.
versk bróðhióe í Skotlandi
Það bar til á Gorbridge í Skotlandi nú nýlega að sóknarpresturinn gaf saman 10 ungversk brúðhjón. — Þetta
var ailt flóttafólk og komu úr flóttamannabúðum víðsvegar á Skotlandi. Kaþólskur prestur framkvæmdi
hjónavígsluna og sést hér vera að óska brúðhjónunum til hamingju að athöfninni lokinni.
Afmælissýning Leikfélags Reykja-
víknr í fyrrakvöld var mjög vel tekið
Hússíjórn Iðnó veitir 10 þús. krónur til a§
styrkja áhugaleikara til utaníara
Macmillan ieggur fram
ráðherraiistann í dag
Bóizt er viS miklum og óvæsitnm
brey tingnm á stjórnmni i
Afmælissýningu Leikfélags
Reykjavíkur í íyrrakvöld var
mjög vel tekið og voru leikendur
kallaðir fram hvað eftir annað
svo og leikstjórinn. Blóinvcndir
og blómakörfur fylltu sviðið áð
framan. Gunnþórunn Halldórs-
dóttir, sem ein er á lífi af stofn-
endum L.R., kom fram á sviðið,
Brynjólfur Jóhannesson ávarpaði
hana og var hún hyllt af leikhús-
gestum og leikurum.
Baldvin Halldórsson, formaður
Félags ísl. leikara flutti L. R.
kveðju félagsins og Bryndís Pét-
ursdóttir flutti kveðju frá leilcur-
um Þjóðleikhússins.
10 þús. kr. styrkur til utanfara
Jón Árnason, forstöðumaður
Iðnó tilkynnti af hálfu hússtjórn-
ar að hún veitti allt að 10 þús. kr.
til að stvrkja áhugaleikara til utan
fara til þess að kynnast leikstarf-
semi og leikstjórn og starfsaðferð
um áhugamanna um leiklist. Gjöf
þessi er gefin í tilefni af 60 ára
afmæli L. R. og 30 ára leikafmælis
Brynjólfs Jóhannessonar.
Veglegt hóf í gærkveldi. _
Af hálfu leikhúsgesta talaði próf
Steingrímur J. Þorsteinsson. For-
maður Leikfélags Reykjavíkur,
Jón Sigurbjörnsson, þakkaði lof-
samleg og hvetjandi orð um félag-
ið, gjafir og árnaðaróskir.
í gær hafði Gylfi Þ. Gíslason
menntaniálaráðherra boð inni fyr-
ir leikara og fleiri gesti í tilefni
af afmæli L. R. og í gærkveldi
hélt félagið afmælishóf í Þjóð-
leikhúskj allaranum.
Fraoisókoarvist
miðvikiid. 23. jan.
Ráðgert er að Framsóknarvist
verði að Hótel Borg miðvikudag
inn 23. þ. m. á vegum Framsókn
armanna.
Hefir Vigfús Guðmundsson
dregist á að stjórna þessari sam-
komu rétt áður en hann fer al
farinn úr bænum þennan vetur
inn.
Eins og kunnugt er hefir Vig-
fús Guðmundsson stjórnað fjölda
skemmtisamkoma á vegum Fram
sóknarmanna hér í bæ síðustu
áratugina, og þá alltaf verið hús
fyllir, þó að í stærstu samkomu
liúsunum hafi venjulegast verið.
Þannig er sennilegt að verði nú
einnig.
í---------------------------
jEkkja Nansens
brennur inni
OSLO-NTB: Frú Sigrún Nan-
sen, ekkja Friðþjófs Nansen,
fórst í húsbruna nú fyrir nokkr
um dögum. Frú Nansen bjó í
einbýlishúsi í Askcr í Noregi
og var hún 88 ára að aldri.
Eldurinn kom upp á annarri
hæð og var frú Nansen þá gengin
til náða á þriðju hæð í hinum
enda byggingarinnar. Nágrannarn
ir urðu fyrstir varir við eldinn
og heyrðu að frú Nansen hrópaði
á hjálp og sáu hana standa við
glugga á þriðju hæð. Einn nágrann
inn gat komið stiga að gluggan
um en þegar hann var kominn
hálfa leið upp stigann hvarf hún
inn í húsið á nýjan leik. Hann
reyndi þá til að komast upp stiga
upp á þriðju hæð en varð að snúa
við vegna reyks. Slökkviliðið tafð-
ist vegna hálku á götunum en er
það kom loks á vettvang tókst
slökkviliðsmönnum að komast inn
í herbergið þar sem frú Nansen
lá og hafði greinilega kafnað af
reyk. í herberginu var einnig hund
ur frú Nansen og hafði hann einn
ig kafnað.
Olíuverð hækkar
LONDON: Britisli Mexican Petr
oleum Co. hefur hækkað olíu-
verðið úr geymum í höfnum í
Brasilíu.
í Ríó hefur brennsluolía hækk-
að um 26.10 dollara upp í 77.15
og í Santos um 60.05 dollara upp
í 109.65. Dieselolía kostar nú 126.
70 dollara í Ríó, 121 dollara í Sant
os og 118.90 dollara í Belem.
LONDON. 12. jan.: Fjölmargir
helztu Ieiðtogar brezka íhalds-
flokksins streymdu í dag inn í
forsætisráðherrabústaðinn að
Downings-street 10 til viðræðna
við MacMillan forsætisráðherra,
sem vinur sleitulaust aS myndun
hinnar nýju ríkisstjórnar.
Fyrstur kom Head hermálaráð
herra, síðan Sands húsnæðismála-
ráðherra, Lloyd George, aðstoðar
ráðherra og verkalýðsmálaráðherr
ann. Skömmu síðar gengu á fund
MacMillans Sir Walter Moncton og
Duncan Sands húsnæðismálaráð-
herra öðru sinni.
Lennox-Boyd nýlendumálaráð
herra fór í dag frá London flug
leiðis til M-Afríku, en þar hefir
yfirlýsingu, sem gefin var út í
dag frá aðalbækistöðvum brezka
hersins fyrir M-Aasturlönd á Kýp
ur, er ásökunum Jemen-stjórnar
um innrás í Jemen harðlega neit
að. Þar segir, að engir brezkir
Frjálsar kosningar í
sjálfstæðri og sameinaíri
Kóreu
NEW YORK. 11. jan.: Allsherjar-
þing S. þ. staðfesti í dag enn fyrri
stefnu sína í Kóreumálinu Var sam
þykkt ályktun þess efnis, að frjáls
ar kosningar skyldu fara fram í
öllu landinu, en síðan yrði landið
sameinað í eitt sjálfstætt og full
valda ríki. Ályktun þessi var sam-
þykkt með 57 atkvæðum gegn 8,
en 9 sátu hjá. Það voru fulltrúar
Rússlands og leppríkja þeirra, sem
greiddu atkvæði á móti ályktun
þessari.
Oryggislögregla Kadars fangels
a'ði í dag 8 helztu leiðtoga sam-
taka ungverskra háskólastúdenta
sem stofnuð voru í októberbylt
ingunni.
Ilalda átti landsfund samtak
anna í dag, en dagblöð kommún
ista segja, að fundinum hafi verið
„frestað“ af vissuin ástæðum.
Ungverska leppstjórnin hefir nú
gefið út hennar skýrslu um atburð
ina við Czepel-stálbræðsluna í gær.
í skýrslunni segir, að verkamenn
hann verið á ferð að undanförnu,
en hélt til London er fréttist um
stjórnarskiptin.
RÁÐHERRALISTINN BIRTUR
í DAG.
Elísabet Bretadrottning heldur
á morgun til London frá sveita
setri sínu og er þes vænzt, að
MacMillan muni sftömmu eftir
komu liennar leggja jáðherralista
sin fyrir drottningU-til samþykk
is.
Búizt er við, að MacMillan muni
gera miklar breytingar á stjórn
inni og segja fréttamenn, að sum
ar þeirra muni koma mjög á ó-
vart.
hermenn hafi stigið fæti sínum
inn fyrir landamæri Jemen og
hvorki skriðdrekar né flugvélar
hafi heldur farið inn fyrir landa
mærin.
í tilkynningunni segir, að brezk
ar deildir úr flug- og landher hafi
neyðzt til að beita valdi til a3
flæma árásarsveitir frá Jemen á
brott frá Aden, en mannfall hafi
ekki orðið teljandi. Fullvíst sé,
segir í tilkynningunni, að þessi á-
tök hafa aldrei átt sér stað innan
landamæra Jemen, heldur á lands
svæði Aden.
Sir Pierson Dixon gefur
yfirlýsingu.
Aðalfulltrúi Breta hjá S. þ. Sir
Pierson Dixon hefir lýst því yf
ir, að ekkert sé hæft í þeim full
yrðingum Jemen-stjórnar, að
brezkur her hafi hafið innrás f
Jemen. Sir Dixon sakaði hins
vegar stjórn Jemen um sífelid
ar árásir herdeilda frá Jemen
inn fyrir landamæri Aden.
hafi ráðist á vopnaða lögreglu og
hernfenn, sem hafi neyðzt til að
hefja skothríð á verkamenn. Að
eins einn hafi beðið bana í átök
um þessum.
FIMM VERKAMENN
SKOTNIR.
Öðrum ber hinsvegar saman um
að fimm verkamenn hafi verið
skotnir til bana og að minnsta
kosti 20 hafi særzt. Rússneskir
skriðdrekar og stríðsvagnar eru
(Framhald á 2. síðu.)
Með {tögninni játar íhaldið
í Reykjavík svik sín viS feorgaraua
Morgunbla(Si(5 hyggst reyna aí þegja hneykslit)
í útsvarsmáli SameinatSra verktaka í hel
Morgunblaðið þegir sem fastast um útsvarsmál Sameinaðra
verktaka, fæst vart til að segja orð um málið. Er hér um að
ræða einhverja hina aumlegustu uppgjöf, sern um getur í nokkru
máli. Með þessari þögn játar íhaldið á sig alia sök í þessu máli.
Það játar að hafa vanrækt að leggja venjulegt útsvar og veltu-
útsvar á þessi gróðasaintök og velt þeim útsvarsbyrðum, sem
þau áttu að bera, yfir á borgara bæjarins.
í öll þau ár, sem Sameinaðir verktakar liafa starfað, hafa þeir
verið útsvarsfríir lijá bæjarstjórnaríhaldinu. Ekki er þó því tii
að dreiía, að ofgnótt fjár hafi verið í bæjarfjárhirzlunni þessi
ár, heldur hefir fjárskortur staðið mörgum framfaramálum fyr-
ir þrifum. Hér kemur annað til. Bæjaryfirvöldin taka sér það
vald að ieggja skatta sína á einn en hlífa öðrum, Slíkur skjól-
stæðingur bæjarstjórnaríhaidsins hafa Sameinaðir verktakar
verið þessi ár, og liversu sem að hefir verið fundið, hefir engin
lagfæring fengizt. Sameinaðir verktakar skyldu vera útsvars-
frjálsir.
En þótt bæjaryfirvöldin hyggist breiða yfir svik sín og
lineyksli með þögninni, ættu borgararnir, sem orðið hafa að
greiða útsvörin fyrir þessa vini íhaldsins á síðustu árum, að
Ipggja þetta vel á minnið, og þeir ættu líka að muna vel þessa
sektarjátningu, sem íhaldið hefir gert með þögn sinni.
Bretar vísa á bug ásök-
unum um innrásí Jemen
Saka hins vegar Jemen-stjórn um sífelldar árásir
herdeiida frá Jemen inn yfir landamæri Aden
LONDON-NICOSIA. 12. jan.
Ungverska leppst jórnin lætur
fangelsa 8 leiðtoga stúdenta
TaliÖ aíi 5 verkamenn hafi veri(S skotnir til
bana í átökunum í fyrradag
LONDON-BUDAPEST. 12. jan.: