Tíminn - 13.01.1957, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, sunnudaginn 13. janúar 19g?»
„ Ötgefandl: g’ramsóknarflokkuriim.
Ritstjórar: Haukur Snorrason
, Þórarinn Þórarinsson (áb.).
Skrifstofur I Edduiiúsi vlB Lindargötu.
Simar: 81300, 81301, 81302 (ritstj. og blaöamenn),
auglýsingar 82523, afgreiSsla 2323.
PrentsmiSjan Edda bi;
------------------------ —---------
Skemmdarstarfsemi milliIiSanna
ÞRÁTT FYRIR ítrekað-
ar áskoranir hafa foringjar
Sjálfstæðisflokksins enn ekki
treyst sér til að skýra þjóð-
inni frá því, hver hafi verið
úrræði þeirra í aðsteðjandi
vandamálum framleiðslunn-
ar nú, áður en vertíð hófst.
Blöð þeirra kappkosta samt
að fordæma aðgerðir núver-
andi stjórnar. En nú er ver-
tíðin hafin, bátarnir róa og
flytja afla að landi, vinnslu-
stöðvar eru í gangi. Stjórnin
'.hafði þegar fyrir jól leyst
vanda^ sem fyrrv. stjórn sá
ekki framair fyrr en í janúar
lok. Nú segja foringjar Sjálf-
stæðisflokksins að gerðir rík
isstjórnarinnar séu óréttlát-
ar, en hvað vildu þeir gera?
Þessi spurning hefur dunið
á þeim síðan fyrir jól, en þeir
svara engu. Raunar er fyrir
'hendi vísbending um, hvað
Sjálfstæðisflokkurinn hefði
gert, ef hann hefði verið við
völd. Það var eitt af síðustu
verkum Ólafs Thors í ríkis-
stjórn, að lofa síldarútvegin-
um stórfelldum styrk af ríkis
fé. Hann samþykkti víxil rétt
fyrir kosningarnar og valdi
falldag hans fyrir jól. Engar
ráðstafanir voru jafnhliða
gerðar til fjáröflunar. Þegar
menn gefa út stórvíxla, er
heppilegt að hyggja í tíma að
fé til afborgunar og. vaxta.
Það gerðu ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins ekki. Þeir
veltu áhyggjum af því yfir á
framtíðina og í hendur eftir-
manna. Vitaskuld hefði Sjálf-
stæðisflokkurinn skattlagt
þjóðina til þess að greiða
þessa víxla, og margar aðrar
skuldir, ef hann hefði ráðið.
Hann hefði gert það með
sama hætti og undanfarin ár,
hækkað álögur til hægri og
vínstri, og tekið meira tillit
til kaupsýslusjónarmiða og
gæðinga en hagsmuna al-
mennings. Milliliðirnir hefðu
hiklaust fengið að velta öll-
um hækkununum af sér yfir
á almenning. Það fá þeir ekki
nú, og þykir hart, og ganga
íram í Morgunblaðinu og róg-
bera ráðstafanir ríkisstjórn-
arinnar sem mest þeir mega.
Meðan Mbl. þegir við endur-
teknum fyrirspurnum um
efnahagsmálaúrræði Sjálf-
stæðisflokksins, hlýtur al-
menningur í landinu að líta
á reynslu liðinna ára og slíka
víxla Ólafs Thors, sem vís-
bendingu um, að flokkurinn
eigi ekkert nema hin gömlu
íhaldsúrræði i handraðanum,
nýjar álögur á almenning,
sem innheimtar yrðu með til-
liti til hagsmuna kaupahéðna
og milliliða.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
INN er í þessu máli dæmdur
af líkum, sem stappa nærri
fullvissu. Hins vegar þarf
ekki að leiða neinar líkur að
því, að flokkurinn reynir að
grafa undan þeim aðgeröum,
sem stjórnin er að gera, þótt
það kosti í senn að blekkja
þjóðina og vinna þjóðfélag-
inu í heild tjón. Unnið er að
því að dreifa út stórkostleg-
um blekkingum og gróusög-
um um verðhœkkanir á ýms-
um vörutegundum. Enn sem
komið er hafa aðalblöð flokks
ins farið sér hægt í aö birta
slíkar sögur, þótt þau undir-
búi kappsamlega jarðveginn,
en úti um land er reynt að
hleypa af stað kaupæði með
þvi að birta rangar fregnir.
Þannig segir blað Sjálfstæð-
isflokksins á Akureyri frá því
nú í vikunni að í Reykjavík
sé „stórkostleg vöruhömstr-
un“, vörur séu „rifnar út“ hjá
heildsölum, fólk rífi út „inn-
stæður í bönkum og spari-
sjóðum“, o.s.frv. í Reykjavík
segja íhaldsmenn svona sög-
ur frá kaupstöðum „úti á
landi“, en hafa ekki þorað að
birta þær. En þannig gengur
kvörnin. Þessar fregnir íhalds
blaðsins nyröra eru að sjálf-
sögðu hreinn uppspuni, en
jafnframt dágott sýnishorn
af vinnúbrögðum stjórnarand
stöðunnar, sem er að reyna
að koma af stað glundroða í
verzlunar- og peningamálum
um leið og blöðin þjóna hús-
bændum sínum með því að
reyna að útvega þeim mark-
að fyrir gamlar vörubirgðir.
Um þjóðhollustu peninga-
lýðsins út á við vitna ófræg-
ingarskeytin. Um ábyrgðina
inn á við vitna gróusögurnar,
og tilraunin til að valda þjóð
inni tjóni með því að skapa
glundroða á vöru- og peninga
markaði. Þannig koma „hags
munir okkar“ heim og saman
við þjóðarhagsmuni þessa
stundina.
Downing Street og Kreml
f TILEFNI af brottför
Edens úr forsætisráðherra-
stóli í Bretlandi, segir Manc-
hester Guardian s. 1. fimmtu
<dag: „ . . . Brottför Edens var
nauðsynleg af öðrum ástæð-
um jafnframt (en heilsu-
leysi). Það er engum til góðs
að \uðhafa tæpitungu um það
Stefna hans hefur komið
þjóðinni í þann mesta vanda,
sem hún hefur átt við að
striða síðan 1940, og á.meðan
hann var í Downing Street
var vonlaust að bæta tjónið.
Skipti á mönnum í forsætis-
xáðherrastóli var frumskil-
yrði þess að þjóðin gæti byrj-
að afturbatann . . . “
ATBURÐIRNIR í Bret-
landi og slík ummæli í áhrifa
miklu blaði minna á, hvernig
umhorfs er í lýðræðisríkjum
og einræðisríkjum. — í
Rússlandi hafa stjórnarherr-
arnir sigað hersveitum á smá
þjóð og unnið hin herfileg-
ustu hervirki. Samt er óhugs
andi að nokkurt rússneskt
blað — jafnvel nokkurt
kommúnistablað, hvar sem
er — birti sannleiksorð á borð
við þau, sem hér að ofan eru
Meðlimur í miðstjórn danska kommúnistaflokksins segir:
*
Ihlutun Rússa í Ungverjalandi jók
verulega stríðshættuna í heiminum
Inger Merete Nordentoft námsstjóri segir stiórn ; bjóðsieg morð, sé ekki sönnun þess
ft i i • i r 1 L' 1 |j . A’ , ! að fasistar hafi náð tökum á al-
Ilokksms hafa syiklð þa skySdu Sina, aó meta I mannahreyfingunni, heldur hafi
raunhæft atburoi síliustu mána'ða jleiðtogar fólksins verið þeirrar
i skoðunar, að þeir gætu sjálfir ráð
Átökin í danska kommúnistaflokknum halda áfram. Fyrir ið við fasistená eftir að sigur væri
dyrum stendur flokksþing, sem á að hefjast 18. þ. m. og u”n,nn; aI'?eg ems og við í Dan-
í sérstökum aukaútgáfum kommúnistablaðsins fara frarn 1 k ^ hernámsárunum þóttumst
umræður um atburði siðustu manaða og afstoðu rlokks pjóðverja úr landinu. gætum við
stjórnarinnar, og ber mikið á harðri gagnrýni á Moskvulínu sjálf gert upp við glænahyskið,
Aksels Larsens, sem hefir í blaðinu ástundað svipaða undir- sem var eins og snýkjúdýr á mót-
gefni og hugsunarlaust ósjálfstæði og opinherast í ýmsum sPyrnuhreyfingunni.
skrifum Þjóðviljans hér, einkum upp á síðkastið (Örvarodd- °s a,:5 mjnnsta kostl hélt almanna
ur & Co.).
Áður er hér í blaðinu rakið það,
sem kunnur kommúnisti, Heiberg
arkitekt, hafði um málin að segja;
hér á eftir er aðalefni greinargerð
ar frá mjög kunnum kommúnista
og flokksleiðtoga, Inger Merete
Nordentoft, sem á sæti í miðstjórn
flokksins. Áður en frk. Nordentoft
birti greinargerð sína, hafði hún
lent í hörku rimmu við Aksel Lars-
en á miðstjórnarfundi, og var frá
þeirri sennu sagt í blöðum fyrir
nokkru.
Völd fengin með útlendri
hjálp.
í upphafi máls segir frk. Norden
toft, að hún hafi aldrei efast um
að við mikil vandræði væri að
stríða í „alþýðulýðveldunum". —
í þessum löndum fengu kommún-
istaflokkarnir ekkf völd af því að
þeir hefðu meirihluta fylgi, segir
hún, heldur einfaldlega vegna þess,
að löndin voru austan þeirrar
merkjalínu, sem þeir Roosevelt,
Churchill og Stalin drógu yfir
Evrópu á Yaltafundinum. í viðbót
við þetta er svo sú sögulega stað-
reynd, að flest þessara landa hafa
í aldir átt í harðvítugri baráttu við
rússneskt vald.
Við höfum svikið skyldu okkar.
í framhaldi af þessu telur frk.
Nordentoft, að danski kommúnista
flokkurinn hafi „svikið þá skyldu
sína, að gera upp á sjálfstæðan og
raunhæfan hátt atburðarás síðustu
mánaða, og síðan segir: — Að mín-
um dómi hafa atburðirnir í Ung-
verjalandi orðið hið alvarlegasta
áfall fyrir kommúnistaflokkana í
Rússlandi og Ungverjalandi, og
fyrir þá tegund sósíalisma, sem
þcssir tveir flokkar hafa verið að
framkvæma. Ilins vegar hefur
danska flokksstjórnin hingað til
viljað segja, að allt sé að kenna
ungverska flokknum og afturhalds
öflum. Uppljóstranirnar á 20. i
flokksþinginu í Moskvu sýndu ótví
rætt, að bæði í Rússlandi og í Ung |
verjalandi hafði málfrelsið verið
kæft og réttaröryggið að engu
haft.
Miklar harmsögur.
— Þetta ástand hefur skapað
fjölmargar harmsögur. En stærst
þeirra er Ungverjalandsmálið. Hér
varð uppgjörið út af þeim alvar-
legu mistökum, sem flokkurinn var
Ingar Merete Nordentoft
sekur um — sem voru í senn efna
hagslegs eðlis, snertu daglegt líf
verkafólks, og ruddaleg pólitísk af-
hrevfingin velli eftir að búið var
að fjarlægja helztu fasistísk öfl
mcð tilstyrk rússnesks hers. er
hann var kvaddur á vettvang I
seinna sinn.
I
Á "illigötum.
Enn segir Inger Merete Norden-
toft:
Almenningsverkföllin (í Ung*
verjaíandi) hafa haft sterkust á*
hrif á mig. Áður en þau skullu á,
hafði ég vonað, að fyrsta hug-
myntl mín um orsakir atburðanna
gæti veri'ð á röngum forsendum
reist. En nú er sá efi á brott, og
þegar því er haldið fram, að hér
sé stéttarbarátta, að ungverska
þjóðin hafi risið upp gegn ódug-
legri og ranglátri stjórn, sem hafi
leití sósíalisma á villigötur, og
þess vegna hafi íhlutun Sovétríkj
anna verið réttmæt, tel ég að þar
sé alvarleg rangtúlkun.
Og þessi skoðun er styrkt af svik
unum á þeim griðum, sem Nagy
var heitið, og af hindrunum þeim,
glöp — gerð með þeim hætti, að sem urðu á vegi fyrstu hjálpac-
almenningur stillti sér upp á bak
við kröfurnar um nýja stefnu. Þeg-
ar kröfunum var ekki sinnt, breytt
ist hæglát mótspyrnan í uppreisn.
Slíkt var auðvitað hættulegt í
landi, sem fyrir 12 árum hafði búið
við fasistíska stjórn, og margir
gamlir fasistar fengu nú tækifæri
til að sýna innræti sitt, og settu
þar með blett á baráttu fólksins.
En þrátt fyrir þetta og allt
annað, var ekki hægt að stöðva
þessa skriSu, og einmitt það sann
ar, hve sterk og almenn hún
var.
leiðangra Rauða krossins og neit-
uninni að taka á móti framkvæmda
stjóra Sameinuðu þjóðanna.
Stefndi friðinum í hættu.
Því er líka haldið fram, að íhlut-
un Rússa hafi verið nauðsynleg
vegna varðveizlu friðarins. Ég tel
að .þar hafi þvert á móti friðinum
verið stofnað í hættu.
Að lokum leggur frk. Norden-
toft áherzlu á, að hún sé andvíg
„fjöldaaftökum, hengingum og því,
að menn séu skotnir til bana sam-
kvæmt úrskurði skyndidómstóla“
og hún leggur að lokum til að hefj-
Ég tel, að sú staðreynd, að al-! ist verði handa um algera skipu-
menningur snerist ekki á sveif með . lagsbreytingu og^gndurbót á komm
stjórn og flokki, þrátt fyrir við-' únistaflokki Danmerkur.
tilfærð. Menn geta gert sér
það til gamans að setja orðin
Krútsjoff og Kreml í staðinn
fyrir Eden og Downing Street
í greinarkorninu hér að ofan,
og sjá þá í einu vettvangi,
hin óskaplega mun einræðis
stjórnar og bundinnar þing-
stjórnar í lýðfrjálsu landi.
Stalin stjórnaði Rússum
með harðri hendi áratugum
saman, meðan stjórnir komu
og fóru um vestræn lönd. í
lýðræðisríki standa menn og
falla á verkum sínum. í ein-
ræöisríki kommúnismans
standa menn og falla með
hollustu hers og leynilögreglu
og annarra kúgunartækja.
Um vilja hins almenna þegns
er aldrei spurt.
A SKOTSPONUM
Senn kemur á markað smásagnasafn eftir Indriða G.
Þorsteinsson.... annars er fábreytilegt á bókamarkaði
fyrstu mánuði ársins. . . Arnór Sigurjónsson hefir ritað
ævisögu Einars Ásmundssonar í Nesi og mun fyrri hluti
koma út á þessu ári. . . .Bitlingabrask kommúnista og
SjálfstæSismanna í bæjarstjórn Akureyrar vekur mikla
athygli um land allt. . . .Varpar íjósi á einlægnina í
kommúnistafordæmingu Morgunblaðsins . . í uppsigl-
ingu er samstarf kommúnista og íhaldsmanna í Hafnar-
firði. . .Hagsmunirnir sigla jafnan ofan á. .. Undir
Draugahálsi stendur skáli og er allmikið mannvirki og
ekki af vanefnum gert. . . .Þar er samkomusalur, eldhús
og svefnloft. . .Á svefnlofti er skilti; Umgengni sýnir
innri mann. . . .og er hún þarna svo neðan við aliar he!!-
ur að einsdæmi mun vera á íslandi og er nokkuð sagt
. . . .Á neðri hæð er stór mynd af Lenin og önnur jafn-
stór af Stalín. . . .Á svefnlofti eru ekki færri en 7 mynd-
ir af Stalín. .. Menn geta sér til að þarna sé hof og hafi
rétttrúaðir skotizt þangað til að blóta á laun eftir að
fregnir bárust um 20. flokksþingið . . Stalínsmyndir
hurfu úr öðrum samkomuhúsum og mörgum heimilum
í vetur er leið, eftir að Krútsjoff lýsti goðinu.... Það
vekur athygli í verstöðvunum við Faxaflóa, að á aðkomu-
bátunum utan af landi eru yfirleitt ekki Færeyingar....
þorpin hringinn í kring um land virðast leggja til mik-
inn hluta sjómannastéttarinnar. . . .Uppi munu vera
ráðagerðir á alþjóðavettvangi að leyfa aukna hleðslu
skymasterflugvéla og þá er spurning, hvort Reykjavík-
urflngvöllur verður hæfur til að taka á móti þeim nema
lengja flugbrautir. ... .