Tíminn - 13.01.1957, Qupperneq 8
TÍMINN, sunnudaginn 13. janúár 1957.
3
* G> 0
f MIÐSTÖÐVARDÆLUR |
fyrirliggjandi.
| = HÉÐINN~|
■ MMIIIIIrtvrMIIIIIIIMIIIIIIIIIMMIIIIMIIIIIIIIIIIIIllMIIMIIMII
Snjóhvít skyrta vekur aðdáun, bæði á mann-
inum og í þvottinum. Algengt þvottaduft
skilar þvottinum hreinum, en ekkert nema
hið bláa Omo skiiar hvítum þvotti, sem er
reglulega skjallhvítur. Sé fatnaðurinn mis-
litur, verða litirnir langskærastir, ef hann
er þveginn úr ilmandi bláu Omo. Þetta
kemur til af því, að Omo hreinsar hverja
ögn af óhreinindum, hversu grómtekin sem
fötin eru. Reynið það í næsta þvotti! Þá
munuð þér sjá muninn.
HIÐ BLÁA VmV SKILAR YDUR
mmsm mírnm Þvumf
X-OMO 14/3-Zl 87-!
-vxtixi:tittxtxttiiiniiiiitxttttxixxixxitxtxtxxxxxtixtxixixxitv.xixtiixixixiittinxtixxixxxt<
i: Hf. Eimskipafélag fslands:
AHALFUNOUR
::
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands
verður haldinn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykja-
vík, laugardaginn 1. júní 1957 og hefst kl. 1,30 e. h.
1. Stjórn félgasins skýrir frá hag þess og framkvæmd-
um á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfir-
standandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur
fram til úrskurðar endurskoðaða rekstursreikninga
til 31. des. 1956 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og til-
lögum til úrskurðai frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skipt-
ingu ársarðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað
þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykktum fé-
íagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda 1 stað þess er írá fer,
og eins varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem
upp kunna að vera borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöágu?íiiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönjjum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dag-
ana 27.—29. maí n. k. Menn geta fengið eyðublöð fyrir um-
boð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins' í Rvík.
Oskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri umboða séu
komin skrifstofu félagsins í hendur til skrásetningar, ef unnt
er 10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 19. maí 1957.
:1_______
SXXXXXXtttX-
Reykjavík, 8. janúar 1957.
Stjórnin
1 . . 1 1 - - . . 1 1 1 z - x 1 ! - ■ 1 ; - - . ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦•♦♦♦«♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦«♦♦*♦' 1
VBÐVORUN
Næstu daga verður eitrað fyrir refi í afréttar- og heima- :;
löndum í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Af fuglum, sem
þessu skyni, verður stífður
hægri ::
«♦ eitraðir verða
♦♦
:: vængur.
:: Hafnarfirði, 11. jan. 1957. ::
:: ::
Sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu. «
«:itttn::t::t:t::tt::tt:nt:t:nttt:t::ttnttttut:t:t:ttttttt:t:t»::tt:t:::t:
Skrifað og skrafað
50 ára: Magníís ísleifsson, Stykkishólmi
BORBYSSUR
600—1750 snúninga
Verð kr. 657,50.
HEÐINN
(Framhald af 7. síðul.
bændur vilja sjálfir eiga jarðirn-
ar, en hafa samvinnu um ýmsan
rekstur. Það er stefna félagsrekst-
ursins, sem á mest ítök hjá þessu
fólki. Á sama hátt fer gengi þess-
arar stefnu einnig vaxandi hjá
þeim þjóðum Asíu og Afríku, sem
nú eru að losa sig undan nýlendu-
drottnun. Þar verður lögð áherzla
á félagsrekstur á sem allra flest-
um sviðum, ríkinu ekki ætlaður
nema viss stórrekstur og einstakl-
ingum ekki nema minniháttar
rekstur í landbúnaði, útvegi, iðn-
aði og ýmsum þjónustugreinum.
Kommúnisminn og stórkapital-
isminn eru þannig á undanhaldi
í heiminum. Félagsstefnan, sem
byggist á hinuin margvíslcgu úr-
ræðum samvinnunnar, er í sigur-
för. Sú þróun þarf einnig að
verða hér á landi. Mikilvægur
grundvöllur var lagður að fram-
gangi hennar með stofnun banda-
lags Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokksins í fyrra. Það banda-
lag þarf að stækka og Iáta það
ná til allra þeirra, sem ekki að-
hyllast Moskvukommúnismann
eða stórkapitalismann.
Takmarkið á að vera, að ísland
geti orðið fyrirmyndarríki, sem
sýni öðrum þjóðum ágæti félags-
stefnunnar.
Hinn 3. janúar s. 1. varð Magnús
ísleifsson bifreiðarstjóri í Stykkis
hólmi fimmtugur.
Þar sem hann er mörgum að
góðu kunnur á Snæfellsnesi og
víðar, þykir mér vel hlýða að
minnast þessara merku tímamóta
ævi hans með nokkrum orðum.
Fæddur er Magnús á Tindi í
Strandasýslu og voru foreldrar
hans þau hjónin ísleifur Jónsson
! og Kristborg Guðbrandsdóttir, er
I þá bjuggu þar, en eru nú bæði
I látin fyrir nokkrum árum. Vorið
1913 fluttist Magnús með foreldr-
um sínum og systkinum að Dag-
verðarnesi í Dalasýslu og bjuggu
foreldrar hans þar til vorsins 1920
að þau fluttu til Stykkishólms og
hefir Magnús jafnan átt þar heima
síðan.
Magnús ólst upp í Dagverðar-
nesi við venjuleg sveitastörf og
þótti snemma ötull og kappsamur
til allra verka. Hefði hann vafa-
laust getað orðið dugandi bóndi,
ef hann hefði haldið þá braut.
Hann var einn af hinum fyrstu
Snæfellingum, er tóku bifreiðar-
stjórapróf og stunduðu bifreiða-
akstur sem sjálfstæða atvinnu-
grein. Mun hann nú hafa stund-
að þá atvinnu í tæp 30 ár. Þegar
Kaupfélag Stykkishólms hóf fastar
áætlunarferðir á bifreiðum milli
Stykkishólms og Arnarstapa í
Unglinga
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi:
Laugaveg,
Nýbýlavegi.
Rauðarárholf
Sogamýri
AFGREÍÐSLA TÍMANS.
Breiðuvík og Stykkishólms og
Rauðkollsstaða í Eyjahreppi, var
Magnús fyrsti bifreiðarstjórinn í
þeim ferðum og hafði þann starfa
á hendi um nokkurra ára skeið.
Varð hann víða vel kynntur a£
þeim ferðum vegna röskleika
síns og dugnaðar, enda manna
fljótastur í förum, og eignaðist á
þeim árum fjölda vina, er minn-
ast hans æ með hlýhug. Munu
fæstir bifreiðarstjórar á þeim
tímum hafa oft og tíðum lagt harð
ara að sér en hann, því hann var
oft við akstur nótt með degi, því
bifreiðar voru þá færri og verk-
efnin því meiri fyrir bifreiðar-
stjóra. Til merkis um dugnað
Magnúsar og kjark get ég ekki
stillt mig um að nefna eitt dæmi:
Einhverju sinni fyrir alllöngu
síðan var það að vetrarlagi að
fóðurbætis var vant á Skógar-
strönd, en sjóleið þangað eigi fær
vegna ísalaga, en þá tók Magnús
það að sér að aka bifreið sinni
hlaðinni fóðurbæti eftir ísum að
Dröngum á Skógarströnd. Eigi
er mér kunnugt, hve margar ferð-
ir hann fór, en þær voru íleiri
en ein. Að sjálfsögðu voru þetta
hinar mestu glæfraferðir, en þó
tókust þær giftusamlega. Veit ég
með vissu að Skógstrendingar
munu minnast þessa lengi. \
Kvæntur er Magnús Bergþóru
Þorgeirsdóttur frá Helgafelli, á-
gætri konu og eiga þau tvær efni
legar dætur. — Það mun hafa
verið fyrir rúmum aldarfjórðungi
að fundum okkar Magnúsar bar
fyrst saman. Tókst þá með okkur
vinátta er varað hefir æ síðan.
Honum og fjölskyldu hans færi
ég mínar beztu heilla óskir í til-
efni afmælisins, og jafnframt
þakklæti fyrir margar ánægju-
stundir, er ég hefi átt á heimili
þeirra. Bið þess að endingu að
þau megi öll verða langlíf í land-
inu.
Bragi Jónsson j
frá Hoftúnum.
nanimilMMMIMIIMMMMIIIIIIIIIIIIIIMUiiiillllllMIIIIIIMia