Tíminn - 13.01.1957, Page 12
Hitinn:
Veðrið í dag: '
Suðvestan kaldi eða stinniags-
kaldi, skúrir eða él.
'n
Reykjavík 1 stig, Akureyri —1
London 6, New York 1, Kaup-
mannahöfn 5, Stokkhólmur —X.
Sunnudagur 13. janáar 1957.
■* LögregluvörSnr um Mona Lisu
Mbi. útbreiðir óhróður um ameríska
sendiráðið upp úr McCarthyblaði
„AthyglisvertSar hugleiíingar“ í helzta fasistariti
Bandaríkjamanna að sögn MbL, SjálfstæÖisflokk-
urinn talinn skárstur hér á landi, en fulltrúar
Bandaríkjanna sakaftir um „óameríska starfsemi“
Hvað hefir komið fyrir MorgneklaSið
Engum íslendingi „getur dottið annað í hug“ en starfs-
menn ameríska sendiráðsins séu „sósíalistar og kommúnistar
að öllu leyti. . “Sendiráðsstarfsmenn hafa í bókasöfnum sín-
um bækur, sem eru „nákvæmlega11 eins og McCarthy sagði
að þær væru og þarf ekki að fjölyrða um slíkt óamerískt
hugarfar. . . .Einn fulltrúann varð að „fjarlægja úr veizlum",
en þeir, sem eftir sátu, voru þó ekki „flekklausir“, langt í
frá... .o. s. frv.
bækur, er McCarthy hafi fordæmt
„ og þarf ekki að fjölyrða um
slíkt óamerískt hugarfar". Þá seg
ir hann frá því, að sendiráðsmenn
beri hvern annan út úr veizlum,
þeir reyni að telja fólki hér trú
um að McCarthy sé Hitler „endur-
holdgaður" og kalla slikt ljótt og
svo kenndu þeir íslendingum að
„Bandaríkin væru land ómenntaðs
jazzunnendaskríls, sem væri kúgað
ur af ofsóknaræði, en fullur af
áhuga á sósíalisma . . .“ Þannig er
lopinn teygður í nærri 6 dálkum í
Morgunblaðinu, sem leggur á sig
kostnað og erfiði við að koma þess-
um fróðleik á framfæri við íslend
inga. (Framh. á 2. síðu).
Framsóknaríélag Reykjavíkur !
helðor fimd næstkomandi þriðjudag
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur fund í Tjarnar*
kaffi n. k. þriðjudag 15. jan. og hefst hann kl. 8,30 s. d.
Frummælandi á fundinum verSur Eysteinn Jónsson,
f jármálaráðherra. Nánar verður skýrt frá dagskrá fund*
arins hér í blaðinu síðar.
Oóðar gæftir og ágætur
afli hjá Rifshafnarbátum
Frá fréttaritara Tímans á Heilissandi.
Fjórir stórir vélbátar eru þegar byrjaðir róðra frá hinni
nýju Rifshöfn á Snæfellsnesi, sem bætt var mikið með dýpk-
aðri innsigiingu í sumar. Hafa bátar þessir aflað vel í janúar
eftir því sem um er að ræða á þessum tíma árs.
Bátarnir róa allir stutt, oftast
ekki nema um hálfrar stundar sjó
ferð á miðin og fá 6—8 lestir í
róðri á fremur stutta línu.
Þessir fjórir bátar, sem byrjað-
ir eru róðra frá Rifi, leggja allir
upp afla sinn þar og er honum ek-
ið til Hellissands, þar sem hann
er tekinn til vinnslu. Ráðgert er
að síðar bætist tveir eða þrír bát
ar við til róðra frá Rifi og eigend
ur fleiri báta hafa hug á að flytja
áitgerð þangað, ef höfnin gefur
góða raun í vetur. Sjómönnum
þykir mikill munur að nota höfn-
ina og hafnarmannvirkin, eftir að
dýpkvunarframkvæmdir fóru þar
fram, svo nú er hægt að sigla út
og inn um innsiglinguna, hvernig
sem stendur á sjó. Áður þurftu
bátar að sæta sjávarföllum til að
komast að bryggju og olli það
miklum töfum og erfiðleikum fyr
ir sjómenn.
Engar stórframkvæmdir eru
en þar er þó ráðgert að byggja
stór fiskverkunarhús, sem Jóhann
es Kristjánsson útgerðarmaður í
Stykkishólmi ætlar að byggja fyr-
ir starfsemi sína. Byrjað er að
gera grunn undir hluta af þessu
húsi, sem ætlunin er að taka í
notkun á þessari vertíð.
Að heiman frá Sandi róa þrír
trillubátar og afla þeiF ágætlega,
1—3 lestir í róðri. Aflinn er allur
unninn á Sandi og mest af hon-
um fryst. Frystihúsið verður
stækkað, eða öllu heldur við það
hyggðar auknar fiskigeymslur,
sem nauðsynlegt er vegna aukinn-
ar útgerðar og aflamagns, en tíð-
ar afskipanir á frosnum fiski ó-
vissar.
------------------------------1
Utanríkisrá'Öherra !)
Líbanon rætSir vi(S brezka
og franska leiðtoga
LONDON 12. jan.: Utanrikisráð
herra Líbanon, Charles Malik,
ræddi í dag við René Coty Frakk
landsforseta og síðar í dag við
Guy Mollet forsætisráðherra. Mal
ik heldur á morgun til London,
þar sem hann mun ræða við Mac
Millan forsætisráðherra áður en
hann heldur af„stað vestur um
haf til að sitja allsherjarþing S.
þ. í New York.
Drengur verður fyrir bíl
f gær varð það slys á Bræðra
borgarstíg, að ungur drengur hljóp
fyrir bifreið og meiddist töluvert.
Drengurinn heitir Þorsteinn
Eyjólfsson, sex ára að aldri og á
heima að Öldugötu 42. Hann meidd
ist í andliti og fékk snert af heila
hristing.
Þetta er ekki upp úr „Ótrú-
legt en satt“, eftir Ripley, held
ur úr MorgunblaSinu i gær,
sem nú er ekki aðeins amerísk
ara en Dulles, heldur streitist
við að vera amerískara en
sjálfur McCarthy, og óamer-
iska nefndin og skal nokkuð
þurfa til.
Grein úr sorpriti
Blaðið birti í gær — á viðhafn-
arstað — nákvæma þýðingu á
sorpgrein upp úr sorpblaði, og
kallar ýmislegt í greininni „athygl
isverðar hugleiðingar". Heimildin
er einhver G. L. Rockwell, sem
virðist hafa dvalið á Keflavíkur
flugvelli, en grein hans kom í al-
ræmdu McCarthy-blaði, sem með
nokkrum sanni má kalla aðalfaz-
istatímarit Bandaríkjanna, „The
Mercury". Grein þessi er fyrir
nokkru komin út, og hefir vakið
furðu, hvar sem til hennar hefur
spurst. Birting hennar hér getur
ekki haft neinn annan tilgang en
útbreiða óhróður um starfslið
Bandaíkjanna hér á landi, einkum
starfslið, sendiráðsins.
Langt seilst til lokunnar
Lesendur lásu þessa furðulegu
ritsmíð í gær, einu sinni, tvisvar,
og spurðu sjálfa sig: Ilvað hefur
komið fyrir Morgublaðið? Svarið
liggur ekki á lausu, ein skýring
er, að á íslandi sér McCarthyist-
inn einn ljósan blett. Þar er einn
flokkur „ minnst til vinstri", en
eru þó allir hálfgerðir kommún-
istar því að þeir hafa meira að
I segja gengið inn á að „þjóðnýta
læknisþjónustu" (sjúkrasamlög).
En skárstir samt. Það er Sjálfstæð
isflokkurinn. Til þess að koma
þessu ameríska hóli um foringj-
ana á framfæri, birlir Moggi nær
6 dálka lesefni, sem er í aðalat-
riðum níð um utanríkisstarfsmenn
Bandaríkjanna, og svo í leiðinni
alls konar fáránleg ummæli um
íslendinga (. . .athyglisverðar hug
leiðingar . . .“ segir Mbl.) t.
d. krafa um stofnun íslenzk hers.
íslendingum er lýst sem hrörn-
andi þjóð, hér var eitt sinn fólk
með krafta í kögglum, en nú er
annað upplit á þeim. Og ástæðan:
„ . . .Það mun ekki koma les-
enduni Mercury-tímaritsins á ó-
vart að sendinienn okkar eigin
utanríkisráðuneytis áttu ekki
lítinn þátt í þessari furðulegu
eyðileggingu á harðgerðri þjóð
. . . Við sendum til ísland, sem
fulltrúa okkar, þá lélegustu
menn, sem hægt var að ímynda
sér . . .“
Höfundur telur það að vísu að
vera að bera í bakkafullan lækinn
að fara að „telja upp óameríska
starfsemi stjórnarerindreka okk-
ar,“ en lætur þó fljóta með m. a.
þessar lýsingar:
„Þessir starfsmenn hafa
samstöðu með sósíalisma af svo
miklum „fanatisma", að „eng-
um íslendingi getur dottið ann
að í hug en við séum sósíalist-
ar og kommúnistar að öllu leyti
— nema að nafninu til . . .“
Bókasafn sendiráðsfulltrúans
McCarthyistinn segir frá full-
trúa við sendiráðið hér, sem eigi
fhaldsblað birtir ósannar fregnir um
„stórkostlega vörubömstnin” í Rvk
Misheppnuð tilraun til þess aS koma
af stað kaupæði og skapa glundroða
í fjármálum
Undanfarna daga hafa blöð I skrifstofan hér hefir sagt því að
Sjálfstæðisflokksins verið að ýta
undir sögusagnir, sem starfslið
flokksins liefir verið að breiða
út um borgina um stórkostlegar
verðhækkanir á ýmsum vöruteg-
undum, en hafa ekki treyst sér
til að prenta þessar sögur nema
undir rós.
En þegar hægt er að festa hönd
á söguburðinn kemur í 1 jós, að
þar eru stórfelldar ýkjur á ferð,
og virðist tilgangurinn að hræða
fólk og ætíunin ýmist að vinna
stjórninni og málstað hennar ó-
gagn, eða að fá fólk til að kaupa
gamlar birgðir í verzlunum, sem
illa hefir gengið að selja. En til
þessa mun árangurinn af iðjunni
vera rýr.
ÓaSgæzla íhaldsblaðs á
Akureyri
íhaldsblaðið íslendingur á Ak-
ureyri hefir verið svo óaðgætið
að fara með sögurnar sem flokks
breiða út, beint í blaðið, og birtir
það á föstudaginn þá rosafrétt,
að í Reykjavík eigi sér stað „stór
kostlegt vöruhamstur“. Segir blað
ið að vörur séu „rifnar út hjá
heildsölum" og að auki að mjög
gangi nú á innstæður manna í
bönkum og sparisjóðum. Ekki
þarf að taka það fram, að hér
er um stórfelldar ýkjur að ræða.
Verzlun og bankaviðskipti hafa
verið með eðlilegum hætti. Til-
gangurinn kemur í ljós í eftirmála
blaðsins:
„ . . Engum dylst að liin ákafa
vöruhömstrun nú stafar af því að
fólk . . . reynir að kaupa sem
mest áður en verðhækkanirnar,
sem koma í kjölfar „bjargráða
ríkisstjórnarinnar“ l'ara að segja
til sín. . “
MisheppnuS stjórnarandstaða
Þannig er samræmt unnið að
því af foringjum og blaðakosti
Sjálfstæðisflokksins, að koma aí
stað kaupæði, hræða fólk og
skapa með því öngþveiti í verzlun
og peningamálum. Það verður að
segja landsmöfinum til verðugs
lofs að reynslan sýnir til þessa,
að þeir hafa áttað sig á því að
þarna er auvirðilegur pólitískur
skrípaleikur á ferð. Hvergi hefir
frétzt um að þessi blekkingariðja
hafi borið neinn verulegan árang-
ur.
Bristol Britannia
fíaug 4300 mílur
á 13 klst. !
LONDON-12. jan.: Fyrsta vélin,
sem smíðuð hefir verið af hinni
langfleygu Bristol Britannia he£
ir nýlega farið í reynsluflug sitt.
Fór vélin alls rúmar 4300 míl-
ur á 13 klukkustundum. Vélin
flaug frá Bristol í Bretlandi til
íslands og síðan út yfir Atlanz-
liaf. Á heimleiðinni fór vélin yf-
ir Frakkland og Biskay-flóa. Það
er brezka flugfélagið BOAC, sem
liyggst taka þessa gerð í notkun
í beinu flugi á milli stærstu borga
Fvrópu og Norður-Ameríku.