Tíminn - 26.02.1957, Page 12
Veflarútlit
Austan og norðaustau gola, létt-
Kkýjað. ____;
Hiti kl. 18:
Reykjavík —7, Akureyri —8, K-
höfn 0, Stokkhólmur —5, Meist-
aravík —36, London 8, París 9.
Þriðjudagur 26. febrúar 1957.
Myind þessi var tekin s. I. sunnudagsmorgun á Kastrup-flugvelli, er flugvélin Guttormur víkingur var að leggja
af stað í flug sitt ti! Tokio yfir norðurskaufið. Mannfjöldinn er mikill, sem kveður vélina. Hún sést til hægri,
en framan við flugstöðvarbygginguna hnappast mannfjöldinn saman. (Ljósm.: Sn.Sn.).
Fiugvéiar SAS mættust yfir
Morðorpoinum í 900 m.hæð
FcrlSm frá Tókíó tck 32 klst og 31 minútu
Kaupmannahöín, 25. febr. — í ræðu þeirri, sem H. C.
Hansen forsætis- og utanríkisráðherra Dana flutti úr flug-
vél SAS ,,Guttorm Viking“, er vélin var stödd yfir Norður-
heimskautinu á leið til Tókíó, minntist hann m. a. þess ó-
þrotlega starfs, sem vísindamenn frá mörgum löndum hafa
innt af hendi viö að rannsaka heimskautasvæðin. Störf þeirra
og annarra vísindamanna væru helzti grundvöllur þess merka
áfanga í samgöngum, sem opnun flugleiðarinnar milli Kaup-
jnannahafnar og Tókíó væri.
SAS hafði látið gera flugvélarstiga
í líki hafísjaka, og gengu menn eftir
henni um borð í Guttorm víking.
(Ljósm.: Sn. Sn.).
Í25 mönnum bjargað úr norskum seifang-
ara, sem strandaði á Með^llandsfjöni
Frá fréttaritara Tjmlins á Kirkjubæjarklaustrí.
Um klukkan 10,30 s. 1. laugardagskvöld sá fólk frá Króki
í Meðallandi, að skip skaut upp neyðarljósum skammt vest-
an við Eldvatnsós á svonefndri Fljótafjöru. Björgunarsveitin
í Meðallandi bjóst þegar til ferðar undir stjórn Sigurgeirs
Jóhannssonar. Var þarna strandaður norskur selfangari,
Polarquest frá Tromsö. Tókst sveitinni að bjarga allri á-
höfninni, 25 manns.
Um svipað leyti og neyðarljósin
sáust úr Meðallandi, náði selfang-
arinn sambandi við Vestmannaeyj-
ar og talstöðina á Klaustri. Kvaðst
hann vera staddur vestan við Al-
viðruhamra, og er auðséð, að skips .
menn hafa villzt á vitunum við
Skaftárós og Alviðruhömrum.
I
Björgun gekk greiðlega.
Um klukkan hálfeitt kom sveit-
in á strandstaðinn. Lá skipið þá
80—100 metra frá landi. Var þeg-
ar skotið björgunarlínu út í skipið
og tókst það í fyrsta skoti. Um kl.
2 var fyrsti maðurinn dreginn í
land og síðan hver af öðrum. Lín-
an var fest í framsiglu skipsins en
í trukkbíl á landi og reyndist það
vel, þar sem hægt var að strengja
á og gefa eftir á línunni eftir
þörfum, og var því hægt að draga
mennina yfir sjó. Sæmiiegt veður
var, stinningskaldi en brim lítið.
Skipbrotsmönnum var þegar ekið
heim í Meðalland og dreift á bæ-
ina þar. í gær voru þeir selfluttir
á snjóbíl til Víkur í Mýrdal, en
þaðan til Reykjavíkur og komu
flestir þangað í gærkveldi. Þeir
voru aílir ómeiddir.
Selfangari þessi er 315 lestir að
stærð. traust tréskip um 10 ára
gamalt. Skipið var á leið til Ný-
fundnalands á selveiðar. Talið er,
að skipið hafi lent á gömlu skips-
flaki þarna á fjörunni og laskazt,
því að allmikill sjór var kominn í
það. Leiðangur var á leið austur
frá Reykjavík í gær til að reyna
að ná skipinu út undir stjórn
Kristins Guðbrandssonar. Skip-
brotsmenn segja, að áttaviti skips-
ins hafi ekki verið í fullkomnu
lagi, og vélin ekki heldur. VV
IVSikið járnbrauíarslys
í Argentínu
Buenos Aires, 25. febr. — A®
minnsta kosti 15 manns biðu
bana og 100 særðust í járnbraut-
arslysi, sem varð í dag nálægt
bænum Cordoba í Argentínu.
Varð slysið með þeim hætti, að
hraðlest með 1500 farþega hljóp
út af sporinu. Fjórir vagnar gjör-
eyðilögðust og enn er björgunar
starfinu langt frá því fulllokið
og sennilegt að fleiri hafi farizt
og særzt en að framan greinir.
Hann gat einnig um hið mikil-
væga brautryðjendastarf, sem nor-
ræna flugfélagið SAS hefði unnið
með því að hefja reglubundið flug
á þessari leið. Framtak fiugfélags-
ins sannaði bezt, hverju smáþjóðir
fengju áorkað, ef þær ynnu sam-
an. Hann kvaðst vona, að opnun
fiugleiðarinnar yrði í senn.tákn
og raunhæft framlag til bættrar
sambúðar og skilnings allra þjóða
í mil'li. Við komuna til Tókíó hélt
forsætisráðherrann einnig ræðu
og kvað Japan, sem hingað til
hefði virzt svo óralangt í burtu,
vera orðið nágrannaland Norður-
landa.
30 klst. á flugi.
Flugvélin, sem lagði af stað frá
Tókíó, „Reidar Viking“ varð að
lenda í Osló í dag til að taka ben-
zín.. Mætti flugvélin miklum mót-
vindi, en allt gekk þó ágætlega.
Er vélin kom til Kaupmannahafn-
ar, var tekið á móti henni með mik
xUi viðhöfn, ræðuhöldum og hljóm
Jist. Með vélinni voru 47 farþegar,
þ.á.m. Mikasa prins, bróðir Jap-
anskeisara. Þakkaði prinsinn fyrir
hönd gestanna hina ógleymanlegu
ferð og aðbúnað allan.
Vélin var á flugi í samtals 31
klst. og 5 mínútur á leiðinni frá
Tókíó til Hafnar, en alls tók ferð
in 32 klst. og 31 mín. ef með er
talin viðdvöl í Alaska og Osló.
„Guttorm Viking“ lenti aðeins
síðar í Tókíó, en „Reidar“ í Kaup
mannahöfn. Ilámark ferðarinnar
má telja, er vélarnar mættust yf
ir Norðurpólnum í 900 m. hæð.
Það var kl. 22,40 í gærkvöldi
samkv. dönskum tíma.
Sjónvarpstæki á Ráðhústorgi.
Stórkostlegur viðbúnaður var á
Kastrup-flugvelli í gærmorgun, er,
Guttorm Viking lagði af stað til
Tókíó. SAS hafði komið upp sjón-
varpstækjum við skrifstofu sína á
Ráðhústorgi og gegnum þau gátu
gestir fylgzt með brottfararathöfn-
inni. Voru boðsgestir um 1000, þar
af 150 blaðamenn frá flestum lönd
um heims. Hljómlist dunaði í
Tívolígarðinum og ballett konung-
lega leikhússins sýndi. Mannfjöld-
inn var gífurlegur við flugvöllinn
og átti lögreglan fullt í fangi með
að halda fólkinu í skefjum. Mun
opnun þessarar flugleiðar lengi
verða Kaupmannahafnarbúum
minnisstæð.
Erindi bénaðarmálastjóra á Búnaðarþingi í gær:
Nauðsyniegt að efla mjög ráðunauta-
starfsemina og fjölga ráðunautum
í nýja Búnaðarfélagshúsinu verða skilyrði
c
til stóraukinnar fræðslustarfsemi
Stjórnarskipti í iðju og
i Rvíkur
Á fundi búnaðarþings í gær, sem haldinn var í Tjarn-
arkaffi kl. 10 árdegis, flutti Steingrímur Steinþórsson, bún-
aðarmálastjóri, ýtarlegt erindi um framtíðarverkefni Bún-
aðarfélags íslands. Lagði hann sérstaka áherzlu á þýðingu
ráðunautastarfs og búnaðarfræðslu félagsins og kvað brýna
nauðsyn bera til að auka þá starfsemi að mun og fjölga
ráðunautum.
stakki þess. Steingrímur sagði, að
fyrir þessu búnaðarþingi lægi
frumvarp um húsbygginguna, þar
sem gert er ráð fyrir að B. f. ætti
húsið að tveim þriðju hlutum og
Stéttarsamband bænda að einum
þriðja. Á þessu ári mundi verða
lögð á það áherzla að hraða sem
mest byggingu hússins hið ytra,
en enn væri tími til að ákveða,
hvernig þar skyldi skipað innan
veggja og hvatti hann fulltrúa til
að hugsa það mál vel áður en of
seint yrði að gera þar breytingar.
Um helgina fór fram stjórnarkjör í Iðju, félagi verksmiðju
fólks í Reykjavík og Trésmiðafélagi Reykjavíkur. í Iðju voru
bornir fram tveir listar, A-listi borinn fram af fyrrverandi
stjórn og trúnaðarmannaráði, og B-listi borinn fram af
Guðjóni Sigurðssyni og fleiri. Kosningu lauk kl. 5 á sunnu-
dag. Kjörsókn var mjög mikil. Úrslit urðu þau, að A-listinn
hlaut 498 atkv. og B-listinn 524.
Hina nýju stjórn skipa Guðjón
Sigurðsson, formaður; Ingimundur
Erlendsson, varaformaður; Þorvald
«r Ólafsson, ritari Ingólfur Jónas-
son, gjaldkeri; Ingibjörg Arnórs-
dóttir; Steinn Ingi Jóhannsson og
Jóna Magnúsdóttir.
Kosning fór einnig fram í Tré-
smiðafélaginu og komu fram tveir
iistar. Úrslit verða ekki kunngerð
fyrr eu á næsta félagsfundi, en
stjórnarskipti munu einnig hafa
orðið þar.
Þá var og lýst stjórnarkjöri
Múrarafélags Reykjavíkur. Kom
aðeins fram einn listi og var fyrr-
verandi stjórn endurkjörin. For-
maður er Eggert G. Þorsteinsson,
varaformaður Jón G. S. Jónsson;
ritari Ásmundur J. Jóhannsson og
gjaldkerar Einar Jónsson og
Hreinn Þorvaldsson.
Steingrímur vék að því fyrst,
að uppi hefðu verið tvær skoð-
anir á því, hvernig því starfi, sem
B.í. hefir með höndum yrði bezt
fyrir komið. Önnur hefði verið sú,
að þetta ætti að vera ein deild
í landbúnaðarráðuneytinu að öllu
leyti á höndum ríkisins, hin væri
sú, sem farin hefði verið, að láta
frjáls félagssamtök bænda annast
það, að sjálfsögðu með eðlilegum
tilstyrk ríkisins. Kvaðst hann sann
færður um það af reynslu áranna,
að sú leið hefði verið hin rétta.
Hann minnti á það, að Búnaðar-
félag íslands væri nú um 120 ára
og það væri elzta félag í landinu,
er stofnað hefði verið til eflingar
og hagsbóta atvinnuvegum lands-
ins.
Húsbygging félagsins
er stórmál.
Steingrímur vék síðan að fram-
tíðarverkefnum félagsins. Hann
sagði, að eitt mesta nauðsynjamál
félagsins þessi árin væri að koma
upp félagsheimili sínu, Búnaðar-
félagshúsinu nýja, sem nú er byrj-
að á. Hann kvað það ekki ofmælt,
að ill húsakynni hefðu um ára-
bil háð starfsemi félagsins. Gamla
búnaðarfélagshúsið hefði verið
myndarlegt á sínum tíma, en starf
semi félagsins löngu vaxin úr
Stórbætt skilyrði.
En hvernig sem þar yrði húsum
skipað, mundi tilkoma hússins
þýða stórbætt skilyrði fyrir alla
starfsemi B. í. og það væri margt
sem gera mætti þar innan veggja
til hagsbóta fyrir landbúnaðinn.
Þar mætti fyrst og fremst koma á
margvíslegri fræðslustarfsemi fyr-
ir alla þá, sem um landbúnað vilja
fræðast. Þar yrði að koma upp
góðu landbúnaðarbókasafni, enda
á félagið allgóðan bókakost til
þess, og þar yrði líka að koma upp
lesstofu, sem opin væri öllum, er
fræðast vildu af bókum þar. Þar
þyrfti að vera kvikmyndasalur,
fundasalur og fundaherbergi, og
margt fleira.
f því sambandi benti búnaðar-
(Framhald á 2. síðu).
Færeyingar semja uni
smíði þriggja togara
Þórshöfn, 25. febr. — Lögþing-
ið í Færeyjum hefir heimilað land-
stjórninni, að semja um smíði
þriggja nýtízku togara. Eiga tog-
arar þessir, að vera fullgerðir fyrir
árslok 1959 og er gert ráð fyrir,
að hver um sig muni kosta um
3,9 miljónir færeyskra króna. Fyr-
irhugað er, að togarar þessir verði
reknir af færeyskum tgerðarfélög-
um.
Frakkar leita sátta
Yið Bandaríkin
New York, 25. febr. — Guy
Mollet forsætisráðherra Frakkat
og Pineau utanríkisráðherra
komu í dag til New York, en
þaðan halda þeir til Washington
til viðræðna við Eisenhower for-
seta og aðra ráðamenn. Þeir
munu dvelja vestra í tvær vikur
og einnig heimsækja Kanada.
Mollet sagði við fréttamenn, að
hann myndi leggja á það áherzlu
við Eisenhower forseta, að Frakk
ar hefðu verið tryggustu banda-
menn Bandaríkjanna í meira en
200 ár og væru það enn.
Munið skemmtifund
Framsóknarkvenna
Framsóknarkonur, munið
skemmtifund Félags Framsókn-
arkvenna annað kvöld, miðviku-
daginn 27. febrúar, á venjuleg-
um stað. Skemmtiatriði. Félagar
fjölmennið og tilkynnið þátttöku
í síma 1668 eða 4399.