Tíminn - 15.03.1957, Blaðsíða 11
TIMIN N, fösUidaginu 15. marz 1957,
11
Útvarpið i dag:
8.00 Morgunútvarp.
9.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
13.15 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
18.00 Leggjum land undir fót: Börn-
in feta í spor frægra landkönn
uða (Leiðsögumaður: Þorvarð-
ur Örnólfsson kennari).
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Framburðarkennsla í frönsku.
18.50 Létt lög.
19.10 Þingfréttir. — Tónleikar.
19.40 Auglýsingar.
20.00 Fréttir.
20.30 Daglegt mál.
20.35 Kvöidvaka: a) Jónas Árnason
rithöfundur flytur frásögu: í
áföngum út á Tangaflok; —
fyrsti hluti. b) Norðlenzkir
kórar syngja (plötur). e) Vig-
dis Kristjánsdóttir talar um
myndvefnað. d) Raddir að vest
an: Finnbogi Guðmundsson
ræðir við Vestur-íslendinga.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmur (23).
22.20 Upplestur: Margrót Jónsdóttir
skáldkona les frumort kvæði.
22.30 „Harmonikan“.
23.10 Dagskrárlok.
ÚtvarpiS á morgun:
8.00 Morgunútvarp.
9.10 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
12.50 Óskalög sjúklinga.
15.00
16.30
18.00
18.25
18.30
18.55
19.40
20.00
20.30
20.55
21.25
22.00
22.10
22.20
24.00
Miðdegisútvafp.
Veðurfregnir.
Endurtekið efni.
Tómstundaþáttur. (J. Pálsson).
Veðurfregnir.
„Steini í Ásdal"; IV.
Tónleikar (plötur).
Auglýsingar.
Fréttir.
Upplestur: Þórunn Elfa Magn-
úsdóttir les frumsaminn sögu-
kafia.
Tónleikar (plötur): Lög úr
söngleiknum „Fanny" eftir
Harold Rome.
Leikrit: „Hálsmenið"; Walter
Hackett samdi upp úr smá-
sögu eftir Guy de Maupassant.
— Leikstjóri og þýðandi: Hild-
ur Kalman.
Fréttir og veðurfregnir.
Passíusálmur (18).
Danslög.
Dagskrárlok.
HUGSJÓNIRNAR líkjast stjörn-
unum. Þú getur ekki snert þær
með höndunum, en þú kýst þér
þær að leiðarljósi og fylgir þeim
unz þú nærð takmarki þínu, líkt
og sæfarinn úti á regir.hafi.
— S. Schurz.
Nú eru þær allar frúr
A.llar sænskár konur á að kalla
frú framvegis, hvort sem þær eru
giftar eða ógiftar. Þetta er tillaga,
sem sænska dómsmálastjórnin stend-
ur að og nú er til umræðu í Svíþjóð.
Röksemdin er m.
a. sú, að orðið frú,
sé gamalt norrænt
orð, og megi rekja
það til Freyju.
Seinna var það
notað til að tákna
Maríu guðsmóður,
og þar á eftir til
að titla hefðarkon-
ur. Á síðustu tím-
um hefir það svo
verið notað al-
mennt um giftar konur. Orðið frö-
ken er aftúr á móti ungt, komið úr
þýzku, og var fyrst notað um prins-
essur meðan þær voru ógiftar. Aðr-
ar ógiftar stúlkur voru kallaðar
jómfrú, en um, 1860 var farið að
kalla aliar ógiftar konur „fröken“ í
Svíþjóð. Líklegt er talið, að tillaga
þessi verði samþykkt og frúarneitið
innleitt sem allsherjartitill, eins og
herra.
Fösfudagur 15. marz'
Sakaria. 74. dagur ársins. Ár
degisflæði kl. 4,40. Síðdegis-
flæði ki. 17,01.
SLYSAVARÐSTOFA REYKJAVÍKUR
i nýju Beilsuverndarstöðinni, er
opin allan sólarhrlnginn. Nætur-
læknir Læknafélags Reykjavíkur
er á sama stað klukkan 18—8.
Sími Slysavarðstofunnar er 5030.
APÓTEK AUSTURBÆJAR er opið
kl. 9—20 alla virka daga. Laugard.
frá kl. 9—16 og sunnudaga frá kl.
l^. Sími 82270.
VESTURBÆJAR APÓTEK er opið
kl. 9—20, laugardaga kl. 8—16. —
Á sunnudögum er opið frá kl. 1-4.
GARÐS APÓTEK Hólmgarði 34 er
er opið frá kl. 9—20, laugardaga
kl. 9—16 og helgidaga kL 13—16.
Sími 8-2008.
DENNI DÆMALAUSJ
Lárétt: 1. sól. 6. kunna vel við sig.
8. á sverði. 10. eldur. 12. fangamark
fornkonungs (nafn+viðurnefni). 13.
hreppa. 14. hestur. 16.........staðir.
17. forliður í orði. 19. vansæmd.
Lóðrétt: 2. + 5. þjóðerni. 3. ó-
nafngreindur. 4......dýr. 7. litlar. 9.
... .hærð. 11. stefna. 15....gjöf. 16.
tré (þf.). 18.....þræll.
Lausn á krossgátu nr. 312:
Lóðrétt: 1. Wells. 6. sóa. 8. yls. 10.
sár. 12. kú. 13. sá. 14. ris. 16. Æsa.
17. áll. 19. smáar. — Lóðrétt: 2. ess.
3. ló. 4. las. 5. sykrar. 7. gróar. 9.
lúi. 11. áss. 15. Sám. 16. æla. 18. lá.
— Vertu ekki svona áhyggjufullur, Denni minn,
búin að eyöa öllum peningunum hans pabbal
ég er alls ekki
SKIPIN «s FLUGYÉLARNAR
Skipadeild S. í. S.:
Hvassafell er í Borgarnesi. Arnar-
fell er í Reykjavík. Jökulfell væntan-
legt til Vestmannaeyja í dag. Dísar-
fell er í Reykjavík. Litlafell losar á
Vestfjarðahöfnum. Helgafell er í
Reykjavík. Hamrafell er í Hvalfirði.
Skipaútgerð ríkisins:
Skaftfellingur fer frá Reykjavík í
dag til Vestmannaeyja. Baldur fór
frá Reykjavík í gær til Stykkishólms.
H.f. Eimskipafélag íslands:
Brúarfoss er í Rvík. Dettifoss er í
Rvík. Fjallfoss fór frá Leith í gær
til Rvíkur. Goðafoss er í Rvík. Gull-
foss er í Rvík. Lagarfoss fór frá N.
Y. 13. til Rvíkur. Reykjafoss er í
Rvík. Tröllafoss fer frá N. Y. 19. til
Rvíkur. Tungufoss er í Rvík.
Flugfélag íslands h.f.:
Gullfaxi fer til Glasgow kl. 8,30 í
dag. Væntanlegur aftur til Rvíkur
kl. 19.45 í kvöld. Flugvélin fer til
Kaupmannahafnar og Hamborgar kl.
Sérsundtímar kvenna
eru í Sundhöllinni mánud. og mið-
vikud. kl. 9. e. h. Ókeypis kennsla.
8,30 í fyrramálið. — Innanlandsflug:
í dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar, Fagurhólsmýrar, Hólmavíkur,
Hornafjarðar, ísafjarðar, Kirkjubæj-
arklausturs og Vestmannaeyja.
Frá Guðspekifélaginu.
Dögun heldur fund í kvöld kl. 8,30
í Guðspekifélagshúsinu, Ingólfsstr.
22. Þorsteinn Halldórsson, prentari,
flytur „Hugleiðingu um sólina" eftir
P. Brunton, þáttur um Búddha,
austrænar frásagnir um liðnar jarð-
vistir, tónlist og fleira. Kaffiveiting-
ar verða í fundarlok. Gestir eru vel-
komnir á fundinn.
Stúdentar M. R. 1951.
Munið skemmtunina í kvöld í Golf
skálanum.
Þykkvbæingar
halda skemmtikvöld í Edduhúsinu
við Lindargötu laugardaginn 16.
marz kl. 8,30 stundvíslega.
Mynd þessi var tekin s. I. sunnudag við Skíðaskálann í Hveradölum. Var mjög fjölmennt þar, eins og kunnugt
er, bæði að fylgjast með skíðakeppninni, sem í. R. stóð fyrjr fjjaf„j af 50 ára afmæli sínu, og að ganga 4 km.
ÁfHat heilla
80 ára er í dag Guðrún Jensína
Halidórsdóttir, Þórsgötu 10. Hún er j
fredd á Melum í ■ Árneshreppi,'
Strandasýslu. Foreldrar hennar voru
Guðbjörg Óladóttir og Halldór Jóns-
son, bóndi á Melum.
Um síðastl. helgi opinberuðu trú-
lofun sína á Akureyri ungfrú Heiða
Þórðardóttir skrifstofumær í KEA
og Jón Ágústsson starfsmaður hjá
verkfræðing Akureyrarbæjar.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Þóra Magnúsdóttir, frá Ósi
í Strandasýslu og RíkarÖur Jónatans-
son, flugmaður, frá Hólmavík.
Síðastl. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Edda Þórarins-
dóttir, verzlunarmær, Jaðarsbraut 7
Akranesi og Skafti Guðjónsson, Tjam
argötu 39, Reykjavík.
ALÞINGI
Dagskrá
efri deildar Alþingis í dag kl. 1,30
miðdegis:
1. Toliskrá o. fl.
2. Áfengislög.
3. Sala og útflutningur sjávaraf-
urða o. fl.
Dagskrá:
neðri deildar Alþingis í dag kl.
1,30 miðdegis:
1. Jafnvægi í byggð landsins.
2. Ríkisborgararéttur.
Rausnarleg gjöf
til Bláa bandsins
Kvenfélagið Von á Þingeyri við
Dýrafjörð hefir í tilefni fimmtíu ára
afmælis síns sent Hjúkrunar og dval
arheimilinu Bláa Bandinu í Reykja-
v£k 3000 krónur að gjöf tii styrktar
starfsemi þess. — Stjórn féiagsins
þakkar þessa rausnarlegu gjöf og
þann hlýhug og skilning á starfsemi
félagsins, sem hún ber vott um. Féð
verður lagt í Minningarsjóð séra
Magnúsar Jónssonar frá Laufási.