Tíminn - 31.03.1957, Page 1
Fylgizt með tímanum og lesið
TÍI.IANN. Áskriítarsímar 2323 og
81330. Tíminn flytur mest og fjöl-
breyttast almennt lesefni.
tl. árgangur
Innl I blaðinu 1 ðag: T*5
„Málmar og jarðefni", bls. 4. i
Eftir Bermuda-fundinn, bls. 3. 1
Skrifað og skrafað, bls. 6. _ j
75. blað.
JarShettur í Langjökli
Jai lhevrur rísa upp við brún Langjökuls, í baksýn t. h. er Hiodufell. Myndin er tekin úr flugvéi á suóurleið fyr-
ir nokkru. (Liósm.: Sn. Sn.).
Lá í svefndái undir fölsku
nafni i gistihúsi i hænum
Hafði tekið peninga frá vinnufélögum sín-
um á Eyrarbakka og verið leitað í þrjá daga
í gær var færeyskum manni í svefndái ekið í sjúkrábif-
reið í slysavarðstofuna. Hafði lögreglan verið að leita manns-
ins vegr.a peningaþjófnaðar á Eyrarbakka. Fannst hann í
gistihúsi hér í bænum undir fölsku nafni og hafði neytt lífs-
hættulega mikils magns af svefnlyfjum og öðrum deyfilyfj-
um. Samkvæmt fréttum sem blaðið hafði í gærkveldi af
líðan mannsins, mun hann ekki í hættu, en hins vegar var
hann ekki vaknaður.
skipstjóri neitar að yfir-
gefa skip sitt á Meðallandsf jöru
Fimmtán skipverjum bjarga'ð, en fjórir eru enn
um borð. — Skipstjóri kvaíst mundi kaila há-
seta sína um boriS aftur. Gerir sér vonir um
aö ná skipinu út
Kirkjubæjarklaustri í gær. — Um klukkan sex í morgun
barst Sigurgeiri Jóhannssyni í Bakkakoti, formanni björgun-
arsveitannnar í Meðallandi, skeyti frá Slysavarnafélagi ís-
lands um stöðina á Klaustri þess efnis, að togari væri strand-
aður einhvers staðar þar við sandana, og væri sveitin beðin
að fara á vettvang. Reyndist þetta belgíski togarinn Van der
Weyden, sem var strandaður á Skarðsfjöru. Var 15 mönn-
um bjargað en fjórir neituðu að yfirgefa skipið.
Togarinn vissi ekki nákvæmlega,! Meðallandi,
hvar hann var, því að þoka var i hélt einnig
og björgunarsveitin
heim, nema fjórir
á í morgun. Var björgunarsveitin
í Álftaveri því einnig beðin að fara
til strandar.
Blaðið átti í gær tal við Sigur-
geir formann björgunarsveitarinn-
ar í Meðallandi og spurði hann um
atvik öll að björguninni. Sveitin
lagði af stað um klukkan sjö og
fann skipið brátt, þar sem það
var strandað á Skarðsfjöru skammt
frá skipbrotsmannaskýlinu. Skipið
hafði strandað á flóði. en þegar
sveitin kom á vettvang, var tekið
að fjara, og voru aðeins 30—40
metrar út í það. Aðdjúpt er þarna.
Veður var stillt en nokkur alda og
dimmt yfir.
Björgunarlínu skotið.
Björgunarlínu tókst að koma út
í skipið þegar í fyrsta skoti, en
ekki voru menn dregnir í land
strax, því að nokkur vafi virtist á
skipsmönnum um það, hvort þeir
ættu að yfirgefa skipið. Fyrsti
maðurinn var dreginn í land kl.
10 og síðan hver af öðrum, unz
komnir voru 15. Þá voru fjórir
eftir þar á meðal skipstjóri. Neit-
uðu þeir þá að yfirgefa skipið að
sinni, höfðu samband við ræðis-
mannsskrifstofu lands síns í
Reykjavík um hvað gera skyldi, og
sat við það.
Björgunarlínan var tengd við
trukkbíl í landi, og voru menn-
irnir dregnir á þurru í land. Var
þeim síðan ekið heim á, bæi í
menn úr henni, sem biðu í sand-
inum og höfðu línuna strengda út
í skipið, ef þeir sem eftir voru,
vildu yfirgefa bað.
Voru að aðgerð á þiljum.
Skipsmenn, sem bjargað
var,
segja að þeir hafi ekkert vitað af
fyrr en skipið var strandað. Voru
hásetar að gera að fiski og við
önnur störf, er skipið sat allt í
einu fast í sandinum. Þetta er sex
ára gamalt skip af svipaðri gerð
og „nýsköpunartogararnir" okkar.
Skipsmenn skýrðu einnig frá
því, að tveir af áhöfninni hefðu
lent í strandi við sandana áður.
Var það á stríðsárunum er togari,
sem þeir voru á, strandaði við Mýr
dalssand. Komust þeir af í hríð
og frosti en nokkrir fórust.
Halda skipinu þurru.
Skipsmenn, sem bjargað var í
land, fengu ekki að taka með sér
föt, og eins bannaði skipstjóri
þeim að fara úr Meðallandi að
sinni, því að hann mundi kalla þá
um borð áður en langt liði. Virtist
helzt sem hann teldi, að skipið
mUndi nást út fljótlega. Þeir fjórir
>em eftir voru, héldu skipinu þurru
(Framhald á 2. síðu)
í gær hafði blaðið tal af Olafi
Helgasyni, hreppstjóra á Eyrar-
bakka vegna þessa atburðar. Sagði
aann að fyrir einum fjórum dög-
um hefði orðið uppvíst um þjófn-
að þar eystra. Var stolið um tvö
hundruð og fimmtíu krónum í
dönskum peningum og þúsund kr.
í íslenzkum, frá Færeyingum sem
þar eru að stunda sjó. Grunur féll
strax í einn Færeyinginn, en hann
var farinn til Reykjavíkur.
Tók sér annað nafn.
•Hreppstjórinn sneri sér til lög-
reglunnar hér og bað hana að hafa
uppi á manninum, en það mun
ekki hafa gengið greiðlega, þar
sem Færeyingurinn hafði tekið
gistingu á hóteli undir öðru nafni
en sínu. Þó fóru svo leikar í gær,
að lögreglan hafði uppi á mann-
inum, en þá var hann í því ástandi
að lögreglan brá skjótt við og
flutti hann á slysavarðstofuna.
Svefntöflur og höfuðverkja-
pillur.
Þegar lögreglan kom inn í her-
bergi mannsins, var hann sofandi
og engin leið að vekja hann. Þótti
því sýnt að um annað og meira
en eðlilegan svefn væri að ræða.
Fundust og í herberginu glas und
an höfuðverkjarpillum. Voru ekki
nema umbúðirnar eftir og því
nokkurn vegin vissa fyrir því, að
maðurinn hefði tekið inn lífshættu
legan skammt af þessum deyfi-
lyfjum.
(Framhald á 8. síðu).
Flugfargjöld yfir N-
Atlantshaf hækka
um 5%
PARÍS - NTB, 30. marz. — Wiili
am Hildred, framkvæmdastjóri
IATA, alþjóða flugmálastofnun-
arinnar, skýrði frá því í París
í gær, að ákveðið hefði verið að
hækka fargjöld flugvéla sem
færu yfir N-Atlantshaf um 5 af
hundraði. Framkvæmdastjórinn
sagði, að hækkun þessi stafaði
fyrst og fremst af hækkuðu
benzín-verði vegna lokunar Súez
skurðar.
Rússar við sama heygarðshorniö:
Búlganin hótar Dönum öllu illu leyfi
jieir erlendar herstöðvar í landi sínu
„Gæti leitt til sjálfsmorðs dönsku þjóðarinnar*4
London, 30. marz. — Bréf Bulg
anins forsætisráðherra Rússlands
til H. C. Hansen forsætisráðherra
Danmerkur, var birt í Kaup-
Uppgjörinu í Alþjóðasambandi
samvinnumanna slegið á frest
FRA ÞVI VAR skýrt hér í blað-
inu í síðastt. mánuði, að komið
hefði til alvariegs ágreinings í j
Alþjóðasambandi samvinnu-
manna á síðastl. hausti, og væri
óttast, aö sambandið mundi
klofna á miðstjórnarfundi þeim,
sem halda átti í London í febrú-
ar. Ástæðan var framkoma Rússa
og annarra austurvelda, einkum í
sambandi við Ungverjalandsmál-
in. Iiöfðu futltrúar nokkurra
ríkja lagt til, að Rússum yrði vik-
ið úr sambandinu. Komu þau mál
til umræðu á stjórnarfundi í Pa-
rís í desember. Þar var árás á
Ungverja harðlega fordæmd, og
þar var því lýst yfir af fulltrúum
Sviss og Hollands, að samvinnu-
samböndin mundu segja sig úr
ICA ef Rússar og önnur sambönd
handan járntjalds yrðu ekki úti-
llokuð frá þátttöku í starfi Al-
þjóðasambandsins.
ÞEGAR KOM á miðstjórnar-
fundinn í London, endurtóku full
trúar Sviss og Hollands yfirlýs-
ingar sínar, segir í frásögn af
fundinum í norrænum samvinnu-
blöðurn og deildu þeir hart á
austurveldin.
Hins vegar snerist stjórn ICA
gegn því, að málið yrði afgreitt
þá og taldi að reglur sambandsins
heitniluðu ekki að útiloka þátt-
töku austurveldanna. Og ef vest-
rænu löndin segðu sig úr, mundu
austurveldin fá meirililuta í sam-
bandinu.
ÞEGAR HÉR var komið mál-
•inu, gengu Norðurlönd fram i
málamiðlun. Lögðu fulltrúar
þeirra til, að reglur um útilokun
og úrsagnir yrðu teknar til at-
hugunar og endurskoðunar og
málinu að öðru leyti frestað. Full
trúar ntargra vestrænna landa,
m. a. Bretar og Bandaríkjamenn,
studdu þessa norrænu tillögu og
var hún síðan samþykkt, en aust-
urveldin sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna. Þar með var þessu
uppgjöri innan Alþjóðasambands-
ins, setn til þessa hefir staðið af
sér alia bylji kalda stríðsins, skot
ið á frest. Er sambúðin innan
þess nú orðitt erfiðari en nokkru
sinni fyrr, eftir að andúðaralda
gegu Rússunt fór um löndin
vegna Ungverjalandsmálsins.
mannaliöfn í kvöld. Bréf þetta er
mjög svipað að efni og orðalagí
eins og hótanabréf það sem Bulg
anin sendi forsætisráðherra Ner-
egs fyrir skömmu, en það vaktl
almenna furðu og reiði á Vestur-
löndum.
Bulganin kveðst vilja vara
Dani við því að leyfa erlendar
herstöðvar í landi sínu. Slíkt
gæti leitt til sjálfsmorðs dönsku
þjóðarinnar, ef til stríðs kæmi,
vegna eyðingarmáttar kjarnorku-
vopnanna.í bréfi þessu til danska
forsætisráðherrans ræðst rúss-
neski ráðherrann heiftarlega á
Bandaríkjamenn og sakar þá um
stríðsundirbúning og heimsvaláa-
stefnu.
Rússar endurtaka
íurðulegar
njósnaákærur
STOKKHÓLMI - NTB, 29. marz. —
Rússar endurtóku enn í dag fyrri
ásakanir sínar í garð Svía, þar
sem þeir eru sakaðir um að reka
öfluga njósna- og neðanjarðarstarf
semi í Rússlandi. Þykja ásakanir
þessar hinar furðulegustu.