Tíminn - 31.03.1957, Blaðsíða 2
2
T í M I N N, suuuudagiun 31. marz 1957,
Siédeiiar kynna rit dr. Helga Péinrss
í hátíSasal Háskólans kl 3 \ dag
Stúdentaráð Háskóla íslands gengst fyrir bókmennta-
kynningu í hátíðasal háskólans sunnudaginn 31. marz n. k.
kl. 3 e. h.
Það er altítt um þá menn, sem
styrr hefir staðið um í lifanda lífi,
að þögn rílcir um þá fyrstu árin
eða jafnvel áratugina eftir lát
þeirra. Stúdentaráði þykir óhæfi-
leg þögn hafa ríkt um minningu
dr. Helga Pjeturss. Að vísu hefir
félag verið stofnað um lieimspeki-
kenningar hans, en Stúdentaráði
þykir samt ástæða til að minnast
hans nokkuð.
Því hefir stúdentaráð ákveðið að
minnast dr. Helga Pjeturss á 85
ára afmælisdegi hans 31. marz mcð
því að halda kynningu á heim-
spekikenningum hans og vísinda-
störfum. Hefir Jóhannes Áskels-
son jarðfræðingur tekið að sér að
tala um vísindamennslcu dr. Helga
á sviði náttúrufr. og einkum jarð-
fræði, en Gunnar Ragnarsson mag-
ister í heimspeki mun gera grein
fyrir heimspekikenningum hans.
Þá munu stúdentar lesa upp úr
“ Verkum dr. Helga.
Bókmenntakynning þessi, sem
verður á sunnudaginn kl. 3 e. h.,
■er öllum opin og er aðgangur ó-
keypis.
Gulina hliðið í síð-
! asta skipti
Gullna hliðið hefur nú verið
sýnl sex siunum á Akranesi við
mjög góða aðsókn og undirtektir.
Leikdórarar blaðanna hafa ein-
róma lofað sýninguna og dáðst að
hvílíkum árangri hópur lítt
reyndra áhugamanna hefur náð
þar, undirstjórn hins þrautreynda
leikstjóra, Lárusar Pálssonar. Síð-
asta sýning leiksins verður í dag
og hefst hún kl. 4.
Telpao fannst eftir
fimm daga útiSegu
Samkvæmt upplýsingum, sem
blaðið fékk í gær frá Erlu Guð-
jónsdóttur, kvenlögregluþjóni, er
telpan, sem lýst var eftir, komin
fram. Hún hvarf að heiman síðast-
liðinn þriðjudag, en fannst í gær.
Hafði ekkert orðið að henni í úti-
legunni. Siðan parið lagðist út í
vetur, virðist sem útilega sé í nokk
urri tízku hjá unglingum. Munu
þeir í sumum tilfellum vera að
afla sér frægðar meðal kunningj-
anna, svo geðsleg sem sú frægð er.
„Jafnvel ráðhermm
skylt að fylgja sann-
færingu sinniu
LONDON, 30. marz. — Selwyn
Lloyd, utanríkisráðherra Breta,
sagði í London í dag, að hann
harmaði mjög, að Salisbury lávarð
ur hefði ákveðið að hverfa úr
ríkisstjórninni, vegna deilunnar
um að leysa Makaríos erkibiskup
úr haldi. Lloyd sagði, að lávarð-
urinn væri hinn mesti hæfileika-
maður, sem slcaði væri að missa
úr stjórninni. Hins vegar ættu
allir, og jafnvel ráðherrar að
fylgja sannfæringu sinni, og það
hefði verið ástæðan fyrir hvarfi
ráðherrans úr stjórninni. Lloyd
sagði, að barátta öryggissveitanna
á Kýpur gegn hermdarverkamönn
um EOKA liefði gefið svo góða
raun, að fært þætti að leysa erki-
biskupinn úr haldi.
Sextugur:
Guðmundur Matthíasson
á Óspaksstöðum
Bc?aS tíl fundar um launamál kvenna
sem vinna hjá ríki eða bæjarfélögum
Á morgun, mánudaginn 1. apríl, heldur Starfsmannafé-
lag ríkirA-tofnana sérstakan fund um launamál kvenna í Al-
þýðuhúsinu kl. 8,30 síðdegis.
Yfirlýsing frá samn-
ingasiefnd verka-
lýðsfélaganna 1955
Blaðinu barst eftirfarandi
athugasemd í gær:
Að gefnu tilefni vegna blaða-
skrifa undanfarna daga um til-
gang kaupgjaldsbaráttunnar 1955,
viljum við undirritaðir, sem þá
skipuðum samninganefnd verka-
lýðsfélaganna, taka fram eftirfar-
andi:
Af hálfu verkaiýðsfélaganna var
lagt út í kaupgjaldsbaráttuna vet-
urinn 1955 vegna þess að kjör
verkafólks höfðu rýrnað á undan-
förnum árum, kaupmáttur tíma-
kaupsins hafði minnkað. Þessu til
sönnunar lögðu verkalýðsfélögin
m. a. fram álitsgerð þeirra hag-
fræðinganna Torfa Ásgeirssonar og
Haralds Jóhannssonar, en sam-
kvæmt niðurstöðum þeirra þurfti
tímakaupið í febrúar 1955 að
hækka um 20 % til þess að kaup-
máttur þess væri hinn sami og á
miðju ári 1947. Þessar niðurstöð-
ur hagfræðinganna voru aldrei vé-
fengdar af neinum. 14 verkalýðs-
félög stóðu í upphafi sameiginlega
að uppsögninni, kröfugerðum og
verkfallsákvörðun. Fulltrúar þess-
ara verkalýðsfélaga kusu samninga
nefndina. Þrátt fyrir mismunandi
stjórnmálaskoðanir forustumanna
þeirra verkalýðsfélaga, sem hér
áttu hlut að máli kom aldrei til
ágreinings þeirra á milli um nauð-
syn kaupgjaldsbaráttunnar, kröfu-
gerðina, rekstur verkfallsins eða
endanlega samningagerð.
Annað en það sem ,hér er sagt
um tilgang verkalýðsfélaganna
með kaupgjaldsbaráttunni og verk-
fallinu mikla 1955 er ekki sann-
leikanum samkvæmt.
Reykjavík, 30. marz 1957
Eðvarð Sigurðsson (sign)
Eggert G. Þorsteinsson (sign)
Snorri Jónsson (sign)
Björn Bjarnason (sign)
Hermann Guðmundsson (sign)
Benedikt Davíðsson (sign)
Á þennan fund er boðið öllum
konum, sem taka laun hjá ríki eða
bæjarfélögum, þó að þær séu ekki
félagar í Starfsmannafélaginu.
Nefnd félagskvenna hefir undir
búið þennan fund. Framsögu-
menn verða af hálfU félagsins Val-
borg Bentsdóttir og Petrína Ja-
kobsson og gestir félagsins Anna
Slvs á Soður-
« V
Það slys varð um hádegið í gær
á Suðurlandsbraut á móts við
Múla, að fimm ára gömul telpa
varð fyrir bifreið og meiddist illa.
Bifreiðin, sem var olíubifreið, ók
vestur Suðurlandsbraut, en barnið
virðist hafa komið frá hægri veg-
arbrún og hlaupið á hægri hlið
vagnsins. Telpan heitir Margrét
i Gunnarsdóttir, Suðurlandsbraut 40.
Hún var flutt í sjúkrahús og kom í
ljós, að hún hafði höfuðkúpubrotn-
að og rifbeinsbrotnað. Um önnur
meiðsl var ekki kunnugt í gær-
kvöldi, en þá hafði Margrét ekki
komið til meðvitundar. Rannsókn-
arlögreglan óskar eftir vitnum að
þessu slysi.
Peter Freuchen kem-
ur hingað á miðv.dag
Hinn frægi danski landkönn-
u'ður, Peter Frauchen, er væntan
legur hingað til lands 3. apríl, I
boði Stúdentafélags Reykjavíkur.
Mun hann halda hér tvo fyrir-
lestra um Grænland. Peter Freuc
hen verður kynntur fyrir stúd-
entum á kvöldvöku félagsins, sem
haldin verður í Sjálfstæðishús-
inu föstudaginn 5. apríl.
I Loftsdóttir hjúkrunarkona og Inga
I Jóhannesdóttir skrásetjari hjá
j Landsíma íslands.
I Hér er um mikilsvert mál að
' ræða, og er full ástæða til að
hvetja þær konur, er hér eiga hlut
að máli, til þess að sækja fund-
inn og ræða það frá ýmsum hlið-
um.
Fermingarskeyti
K.F.U.M. !
í dag fer fram ferming í þjóð-
kirkjunni í Hafnarfirði. Eins og
undanfarin ár mun KFUM og K
hafa fermingarskeyti til sölu.
Skeyti þessi eru mjög smekkleg
og getur fólk valið um tvær teg-
undir, annað hvort fallega litprent
aða rós eða litmynd af sr. Friðriki
Friðrikssyni. Til að gera fólki auð-
veldara fyrir verða skeytin til sölu
á þremur stöðum í bænum. f húsi
félagsins, Hverfisgötu 15, og í
tveimur bifreiðum sem verða stað-
settar á horni Norðurbrautar og
yesturbrautar og á torginu hjá
Álfafelli. Hvert skeyti kostar tíu
krónur og sér félagið um að út-
búa þau að öllu leyti og koma
þeim til viðtakanda ef óskað er.
Lá í svefndái
(Framhald af 1. síðu).
Ekki vaknaður í gærkveldi.
Maðurinn var ekki vaknaður í
gærkveldi, þegar blaðið frétti síð-
ast, en hins vegar mun hann ekki
vera í neinni lífshættu, þrátt fyrir
þungan svefn. Er líklegt að mað-
urinn hafi ætlað að stytta sér
aldur vegna þess sem honum hafði
orðið á fyrir austan. Mun það
harla fátítt hér og heyrir til ný-
lundu, að hérlendir menn taki svo
nærri sér smávægilegar yfirsjón-
ir. Sýslumaðurinn í Árnessýslu
mun hafa rannsókn málsins á
hendi og verður maðurinn að lík
indum fluttur austur til yfir-
heyrslu þegar hann vaknau og
hefir náð sér eftir deyfilyfin.
Öðrum kjarnorkukaíkáti Bandaríkja
manna hleypt af stokkimum í gær
Á morgun, 1. apríl, er Guðmund
ur Matthíasson, bóndi á Óspaks-
stöðuin í Hrútafirði 60 ára. —
Hann er fæddur á Auðshaugi á
Barðaströnd, sonur Matthíasar
Ebenesarsonar, síðar í Gjarðey á
Breiðafirði ,og konu hans, Katrín
ar Guðmundsdóttur frá Nýjubúð
í Rifi, Bjarnasonar.
Guðmundur var sjómaður á
yngri árum. Hann kvæntist 6. júlí
1926, Jóhönnu Guðrúnu Guðna-
dóttur frá Óspaksstöðum, Einars-
sonar. Þau byrjuðu búskap að
Straumi á Skógarströnd og bjuggu
þar til ársius 1936, en þá fluttust
þau að Óspaksstöðum í Hrútafirði,
sem er vestasta jörðin í Norðlend
ingafjórðungj, og hafa búið þar
K: siðan. Áður bjuggu á Óspaksstöð
um, frá því um aldamót til ársins
1934, Jngþór Björnsson og Hall-
bera Þórðardóttir kona hans, og
áttu þau mörg börn. Ingþór kom
anjög við sögu í málefnum sveitar
og sýslu. Hann lézt 1934, aðeins
56 ára gamall.
Guð.mundur á Óspaksstöðum er
dugnaðármaður að hverju sem
hann gengur. Hugur hans mun
hafa stefnt bæði að sveitalífi og
sjómennsku. Eins og áður segir
stundaði hann sjóinn á yngri ár-
um, "bæði á togurum og smærri
skipum. Búskapurinn hefur verið
áðalviðfangsefni hans síðustu 30
árin. ,og hann hefur unnið að
umbótum á ábýlisjörð sinni. En
til skamms tíma hefur hann stund
um skroppið suður á land á vetrar
vertíðum til starfa um hríð í ver
stöðvuin þar. Á þennan hátt hefur
hann haldið nokkru sambandi við
athafnalífið við sjóinn á þeim
tíina, þcgar mest umsvif eru þar
og afnnir í sambandi við fiskveiðar
og fiskverkun. Mun Guðmundur
ekki eingöngu hafa farið þessar
ferðir til þess að afla sér tekna,
heldur jafnframt vegna löngunar
til þess að halda við kynnum sín-
um af sjávarútveginum og taka
þátt í verkum á því sviði, eins
og hann gerði þegar hann var
ungur.
Á undanförnum árum hefur Guð
mundur verið verkstjóri á haustin
hjá Kaupfélagi Hrútfirðinga á
Borðeyri.
Börn Guðmundar og Jóhönnu
konu hans eru fjögur, nú öll upp-
komin, tvær dætur og tveir synir.
Eldri dóttir þeirra, Mattea Katrín
er búsett í Reykjavík, gift Ingimar
Einarssyni bifreiðastjóra. Hin syst
kinin, Jóhann Gunnar, Sigrún og
Gísli, eiga heima á Óspaksstöðum.
Guðmundur Matthíasson er vel
metinn og vinsæll hjá sveitungum
sínum og samstarfsmönnum.
Á þessum tímamótum í ævi Guð
mundar, vil ég flytja honum og
fjölskyldu hans beztu árnaðarósk-
ir. Sk. G.
LONDON, 30. marz. — Öðrum
kjarnorkukafbát Bandaríkjanna
var hleypt af stokkunum í fylk-
inu Connecticut í dag. Hlaut hann
nafnið Seawolf (Sæúlfurinn). —
Kafbáturinn, sem er 3200 smá-
lestir, er rúmlega 300 feta lang-
ur. Fyrsti kjarnorkukafbátur
Bandaríkjanna, Nautilus, er nú
Asahláka í Eyjafir'ði
AKUREYRI í gær. — Hér er hlý-
viðri, komst hitinn í dag í 12 stig.
Er því asahláka og tekur snjó ört.
Mikill vöxtur er í ám og lækjum.
Starfsmenn vegagerðarinnar voru
önnum kafnir í dag úti á þjóð-
vegum að veita vatni í ræsin og
forða skemmdum á veginum. Enn
er alhvítt í Eyjafirði, nema þegar
kemur fram í sveitina, þar er jörð
mjög komin upp úr.
Kartöflurnar settar
til spírunar
ÞYKKVABÆ í gær. — Hér er
sumarblíða, 10 stiga hiti og snjór
inn alveg farinn. Hér var þó all-
mikill áfreri og haglaust lengi. —
Kartöfluforðinn úr jarðhúsunum
er nú að mestu farinn á markað.
Menn eru farnir að setja kartöflur
til spírunar, og byrja vonandi að
undirbúa garðana síðari hluta
apríl, ef tíð leyfir. Mun kartöflu-
ræktin ekki verða minnkuð hér,
enda er hún annar aðalatvinnuveg-
ur sveitarinnar. SG
í höfn í Bandaríkjunum eftir að
liafa siglt um það bil 60.000 sjó-
mílur, eða rúmlcga 2Vi sinnum
kring uni jörðina, án þess að
taka eldsncyti. Eyddi kafbátur-
inn í þessari tveggja ára ferð
ekki meira eldsneyti en litlum
úrauíummola á stærð við raf-
magnsperu.
LokiÖ tveggja mánaÖa
innistööu
ÁSGARÐI í Grímsnesi í gær. —
Mjög hefir snjórinn minnkað síð-
ustu daga, en þó er enn allmikill
snjór um miðhluta sveitarinnar,
einkum við Svínavatn. Jörðin kem
ur klakalaus undan snjónum og
með grænum blæ. Vatnselgur er
ekki mikill í þessum ieysingTTm,
enda gleypir jörðin leysingarvatn-
ið þar sem hún er þíð. ÁE.
Alltaf flugsamgöngur
við Þórshöfn
ÞÓRSHÖFN í gær. — Hér er nú
góðviðri, en lítið hefir þó tekið
enn, enda var snjórinn geysimik-
ill, og hefir verið hér samfelld
innigjöf í sjö vikur. Jörð er nú
að koma á stöku stað, helzt úti við
sjóinn. Flugvöllurinn hefir þó
alltaf verið fær, enda er hann á
sjávarbökkum, þar sem af skefur,
og hafa flugsamgöngur verið öðru
hverju í allan vetur. Ekkert er
unnið á Heiðarfjalli, en þar dvelja
um 50 Bandaríkjamenn í radar-
stöðinni. JJ
Strandið
(Framhald af 1. síðu).
í gær með dælum, enda gekk sjór
lítið yfir það. Stóð svo í gærkveldi,
að þeir voru enn um borð og ekki
vitað, hvað þeir hyggðust fyrir, en
þeir höfðu skeytasamband við eig-
endur skipsins.
Vií erum sem leystir
úr álögum
HJARÐARFELLI í gær. — Mikil
breyting hefir orðið hér síðustu
dagana. í hlákunni hefir snjóinn
mjög tekið, og er víða komin góð
jörð. Bílar eru farnir að hreyfa
sig innsveitis, og verið er að ryðja
veginn til Borgarness og vonir
til að hann opnist í kvöld. Ófært
er enn yfir Kerlingaskarð en ekki
mjög mikill snjór á því. Við erum
sem leystir úr álögum eftir hinn
langa snjókafla. GG
Brattabrekka rudd
LAUGUM í gær. — Hér er nú
komin ágæt beitarjörð og leiðir
að opnast eftir langa lokun. Verið
er að ryðja vegina um Dali, og
er gert ráð fyrir, að vegurinn
yfir Bröttubrekku verði ruddur
næstu daga. Geysimikill snjór var
í SuðUrdölum, meiri en hér vest-
ar í sýslunni. Hinn nýi ráðunautur
Búnaðarsambands Dalamanna
Bjarni Finnbogason, er að hefja
starf hér og boðar til funda með
bændum. EK