Tíminn - 31.03.1957, Síða 3
TÍIVIINN, sunnudagirm 31. marz 1957.
3
Við skoðuðum samyrkjubú
í nánd við Moskvu eða 30
km. norðan við borgina. Um
þetta bú er flest það sama
að segja og hitt suður á
svörtu moldinni. Land búsins
var eins og stærstu jarðir
hér, þ. e. a. s. sem ekki liggja
til fjalla, eða tæpir 1500 ha.
Bændurnir 410 en 436 vinn-
andi menn á búinu. Bústofn
var stærri en á binu, 418
nautgripir en ekki nema
helmingur af því mjóikandi
kýr eða V2 kýr á bónda.
En þær eru góðar. 5000 kg. árs-
nty aS meðaltali á kú, en fitan
ekki nema 3,69%. Hvað fitumagn
snertir, skákum við íslendingar
Rússum. En trú mér til. Einn góð-
an veðurdag samþykkia þeir að
fitan skuli hækka eitthvað ákveð--
ið og þá verður það, alveg eins og
það var samþykkt á kommnista-
þinginu 1953, að öll ríkisbú skyldu
bera sig, og þá gera þau það vit-
anlega. Það var líka samþykkt á
20. kommúnistaþinginu, að fjölga
hænsnum á ríkisbúi fyrir norðan
Moskvu, sem við skoðuðum, úr 32
þús. upp í 50 þúsund. En búið
skyldi líka skila 12 milljónum
eggja í stað 8 millj. áður og sjálf-
sagt tekst það. En ég ætlaði að
segja dálítið meira frá þessu sam-
yrkjubúi. Ótalið var af bústofni
þess 520 svín, eitt og einn fjórði
á bónda, 2000 alifuglar, 43 hestar
og 125 silfurrefir.
GarSyrkja á austurvegi
Þarna voru gróðurhús 5000 ferm.
og 6500 ferm. vermireitir. Stefán j
nágranni minn Árnason á Syðri-1
Reykjum hefir betur, enda myndi j
hann vera kallaður ískyggilegur j
kúlakki austur á Rússlandi. Þeir
rækta þarna tómata og gúrkur j
eins og heima, tómatarnir voru j
eins og ég átti að venjast en gúrk- j
urnar litiir stubbar, og lakari
fannst mér en heima, en ekki er ,
víst að minn smekkur sé réttur.
Þeir sögðust fá 29 kg. af ferm. í
gróðurhúsunum en 10 kg. úr vermi-
reitum. Þarna hafa gróðurhúsa-
mennirnir samanburð. Enn er í
vasabók minni nokkur fróðleikur
um þennan búskap, sem er okkur
svo framandi. Auk þess eru ríkis-
búin eftir, en þau eru um 20%
af rússneskum landbúnaði. En hér
verður að nema staðar tímans
vegna. Ósagt er þó frá stjórn sam-
yrkjubúanna. Forstöðumaður og
stjórn er kosin til tveggja ára í
senn. Hver stjórnarmaður hefir
ákveðnu starfi að gegna á búinu.
Stjórnin vinnur kauplaust.
Stjórnskipulag á búinu
Fjórum sinnum á ári eru haldn-
ir fundir með öllum bændum bús-
ins, svo að þeir geti fylgzt með
því sem gerist. Deildafundir eru
einu sinni í mánuði og stjórnar-
fundír vikulega. Á hverjum morgni
er haldinn fundur með verkstjór-
um allra vinnuflokka búsins ásamt
forstöðumanni þess. Þar er rætt
um tilhögun vinnunnar þann dag.
En heifdaráætlun er gerð einu
sinni á ári um rekstur búsins. Ein-
hvernveginn dróst það undan að
spyrja um hver laun forstöðu-
jnanncíns T’æT’u. Eu sérfræðingar
eru þarna í öllum greinum og þeir
hafa 80% af launum forstöðu-
manns, en dvralækn;r aðems 70%
og er bað undnrlegt. Verkstjórar
hafa aftur á móti 25—39% hærri
laun en almenningur.
Eftir því sem okkur var sagt og
és hefi drep;ð á, þá eru msðallaun
bænda um 500 rúblur, auk beirra
hlunninda, sem ég hef áður sagt
frá. Geti. konan unnáð líka, sem
hún gerir nær undatitekningar-
laust, þá eru meðallaun hennar
350 rúblur. Þegar hún er vanfær,
fær hún 8 vikna frí fyrir barns-
burð og aðrar 8 vikur á eftir. og
lengra frí fær hún, ef um tvíbura
er að ræða. Þennan frítíma er hún
á fullum iaunum. Þannig er það
að minnsta kosti á ríkisbúunum og
hafa þá hjónin 850 rúblur. Á ríkis-
Ailt, hverju nafni, sem nefnist,
er í hinni voldugu hönd ríkisins
En samt virðast lífskjörin vera ákafiega mis-
jöfn ©g verSlag almennra nauðsynja mjög hátt
Seirnii Uuti erindis Þorst. SignrSsson-
ar á Vatnsleysn um RússlandsferS
búum eru meðallaun 700 rúblur án
hlunninda frá búinu og gera má
ráð fyrir að konan fái lík laun og
á samyrkjubúi og hafa þá ríkis-
búshjónin 1050 rúblur.
Verðlagið
En hvað kosta svo hlutirnir aust-
ur þar? Því er ekki unnt að svara
nema að litlu leyti, en okkur
fannst allt dýrt, sem við sáum,
nenta grammófónplötur. Þær kosta
ekki neitt miðað við hér heima, og
þar er um auðugan garð að gresja.
Við Haraldur vörðum einni
kvöldstund til að Iíta í búðarglugga
og skoða verðlagið. Komumst við
þá að raun um það, að allar mat-
vörubúðir voru opnar til kl. 11 að
kvöldi en búðir ekki opnaðar fyrr
en kl. 10—11 að morgni. Á sunnu-
dögum eru allar verzlanir opnar,
og verzlun aldrei jafn mikil og þá.
Hins vegar eru mánudagarnir
,,helgidagar“ hvað verzlun snertir,
því að þá eru allar búðir lokaðar.
Á þessari kvöldgöngu okkar um
staðar allir jafn góðir. En ekki staf
ar lífskjaramunurinn af því, að
einn hagnist á öðrum. Þar er eng-
in heildsalaklíka til að þjarma að
1 fólkinu, eða slæmir iðnjöfrar, sem
raka saman fé af þrautpíndum verk
! smiðjulýð. Allt slíkt hverju nafni
sem nefnist er í hinni einu vold-
ugu hönd ríkisins.
Mismunandi launakjör
Nei, lífskjaramunurinn þarna
stafar eingöngu af hinum geysi-
mikla mun á launakjörum fólksins.
Það hittist svo einkennilega á, að
einn daginn, sem við vorum í
Moskvu kom út í Pravda (en
Pravda þýðir sannleikur) stjórnar-
tilskipun um það, að frá þeim degi
skyldi enginn þegn Sovétríkjanna
hafa lægri laun en 300 rúblur á
mánuði. Ambassadorinn íslenzki í
Moskva, Pétur Thorsteinsson, sem
les og talar rússnesku, sagði okk-
ur frá þessu í kvöldverðarboði,
sem þau elskulegu hjón héldu öll-
um íslendingum, 19 að tölu, sem
ans landi væru um 100 falt hærri
en þetta. Þeir væru að vísu fáir,
sem eru svo hátt uppi. Ekki ófáir
með 10—15 þús. rbl., en margir í
miðjum hlíðum með 5 þús. rbl. 0. s.
frv.
Eitt og sama verðið
í sambandi við þetta launamál
vil ég nota tækifærið og leiðrétta
missögn eða misskilning, sem
menn hafa haldið fram við mig af
miklum sannfæringarkrafti, en ég
hefi talið ranghermt, að í Sovét-
ríkjunum væru ýmsar algengustu
nauðsynjavörur, bæði til fæðis og
klæða, skammtaðar á lægra verði
handa lægst launaða fólkinu. Ég
bað Harald Árnason, ferðafélaga
okkar að fara í rússneska sendiráð-
ið hér í bæ til þess að vita hvað
sannast væri í þessu efni og fékk
hann það svar, að engar vörur
væru skammtaðar í Rússlandi síð-
an 1947, allir gætu keypt allt, sem
þeir vildu og eftir því, sem kaup-
geta hvers og eins leyfði á einu og
sama verði. Fátæklingar fá engar
ívilnanir í vörukaupum. Þessar upp
lýsingar sendiráðsins verða vænt-
anlega ekki véfengdar.
Gestrisni mikil
Ég skal svo að lokum geta þess,
að þann fullan hálfan mánuð, sem
við vorum gestir rússneska land-
búnaðarráðuneytisins en það vor-
um við frá því að við komum til
Leningrad og Helsingfors á heim-
leið, nutum við höfðinglegrar gest-
risni. Mátti segja að vakað væri
yfir öllum óskum okkar og þörfum
og er mér ljúft og skylt að þakka
það. Þó bar ég fram eina ósk, sem
ekki var uppfyllt, er við vorum
staddir á samyrkjubúinu fyrir norð
an Moskvu, kvöldið áður en við
héldum heim. En sú fróma ósk var,
að við fengjum að skoða eitt
bændabýli inan veggja. Á það skal
enginn dómur lagður, hvers vegna
var dauíheyrzt við þessari ósk.
Til gamans skal ég svo geta þess
að morguninn eftir var barið a5
dyrum heima hjá mér á Vatns-
leysu. Þar var þá kominn okkar
ágæti ambassador frá Moskvu Pét-
ur Thorsteinsson og í íylgd með
honum voru fjórir Rússar, sem
óskuðu eftir að fá að skoða íbúðar-
hús og fjós, íslenzkan bóndabæ.
Vitanlega leyfði kona mín það, svo
útlátalaust sem það var.
Frá þessu ferðalagi mætti margt
fleira segja, sem að líkum lætur.
En fjölmargir aðrir hafa farið
slíka för og farið víðar og haft
lengri tíma til umráða. En mér
virðist þessir Rússlandsfarar hafa
verið undarlega hljóðir um þessar
ferðir sínar, og veit ég vitanlega
ekki hvað veldur. En mér virtist
að Rússar vildu og ætluðust til,, að
við segðum frá því, sem fyrir augu
og eyru bar. Það vilja allir, sem
eru ánægðir með eigin hag og
stjórnarfar. Fyrir því hefi ég kom-
ið þessum þætti ferðalags okkar á
framfæri.
iiiiimiiiiiiiiiuiiiiimNiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimuiiiiiiiiminniiimnn
íbúðarhús á ríkisbúi í Rússlandi, fyrir tvær fjölskyldur. Stærðin er 80-
100 fermetrar.
Moskvu sáum við meðal annars, að
karlmannsföt kosta 1050 til 1450
rúblur. Milliskyrtur, sem háir sem
lágir ganga í, og eru vægast sagt
ekki fallegar, kosta 120—142 rúbl-
ur. Við litum inn í fiskbúð og
skyggndumst um eftir íslenzkum
fiski. Jú, þarna var íslenzkur flak-
aður þorskur á 7 rúblur kílóið eða
30 krónur. Karfi á 12,50 rúblur
kílóið eða 50 krónur og síld á 15—
23 rúblur kílóið eftir stærð, sem
jafngildir 61—92 krónum. Þessa
síld kaupa Rússar af okkur á 1
rúblu kg. flutta til Leningrad.
Þarna sáum við smjör, vitanlega
rússnesk framleiðsla, og kostaði 36
rúblur kílóið og gildir það 148
krónum. Finnskur ostur, smjörost-
ur líka 36 rúblur kílóið og önnur
tegund magrari 26 rúblur. Það eru
víðar dýrar tnatvörur en á íslandi.
Öralangt í mark
Maður skyldi nú ætla, að í þessu
sósíalismans mikla heimsveldi ríkti
jofnuður í kjörum fólksins, já,
hreint og beint meiri jöfnuður en
í nokkru öðru landi hins syndum
spillta heims. Ef það 'er mark-
miðið að ná því takmarki, að allir
bú’ við sömu kjör, og það á að
verða, það var okkur sagt í þessari
ferð, þá virðist mér samt vera óra-
j langt þangað til að bví marki verði
1 náð. En kannske segi ég nú of
mfkið, því að ég «é í hendi mér. að
auðvitað getur ráðstjórnin gefið út
tilskipun hvenær sem er, að allir
þegnar Ráðstjórnarríkjanna skuli
hafa sömu laun. En ég held bara,
að hún geri það ekki, meðal ann-
ars af því, að hún virðist fylgja
því gamla boðorði að hver
og einn fái laun eftir sinni breytni,
hvort sem hún er góð eða vond,
■ og ekki eru þar frekar en annars
þá voru staddir í Moskvu einmitt
þetta kvöld. Hann sagði okkur
líka, að hann vissi ekki betur en
allra hæstu laun í þessu sósíalism-
iiiiiilllliiiillliiiiiiitiiliiiiiliiliiiiiiiliiiiiiiiniiillililllllllli
1 Höíum enn nokkuÖ af f
hljóÖfærum
I á gamla verÖinu
Lægsta fhigtargjald frá j
| íslandi til Bandaríkjanna og Canada 1
1 Hið lága fargjald fyrir innflytjendur til Bandaríkjanna 1
| og Canada með flugvélum Pan American flugfélagsins |
| verður í gildi til 1. júlí n. k.
I Fyrir innflytjendur kostar það aðeins kr. 2.303.00
i frá Keflavík til New York. Fargjaldið má greiða í
| íslenzkum krónum.
= Leitið upplýsinga hjá aðalumboðsmönnum Pan
| American á íslandi:
| G. Helgason & Melsteð h.f.
1 Hafnarstræti 19, símar 80275 & 1644.
miiiiiiiiiuiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiniuimmiiiiiiiimiiiiiiiimiiminiiiiiiiiiiiiiiuummiiimmi
iniiiiiiiiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiuiiiiiiuiiiiiiuiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiuiiiuiuuiiiuiiiiiuimiiiiiii
i Kvennadeild Slysavarnafélagsins
i í Reykjavík
— =
3
heldur fund
sa
mánudaginn 1. apríl kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. |
Til skemmtunar:
Upplestur: Ingimar Jóhannesson, kennari.
Dans. I
Fjölmennið.
Harmonikur |
| Trompettar
É Klarinettar
| Gítarar
É Blokkflautur
| Mandólín
| Banjo |
I Saxófónar |
| Trommusett |
Harmonikunótur o. fl. |
| Hjá okkur er úrvalið mest 1
og verðið bezt.
1 Póstsendum.
Verzl RÍN
Stjórnin
iimimmmimimimmmmmimmmiimmimmmiimmmimimiimmmimmimmimmmimiiiimimmmu
uiiiuimmimuumiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiumuuiuuiiiiiiuiiiiiiiiiiiimiiuiiimiuiiiimiiiimiuiuiiiimiiiiiiiiiiiiiua
Njálsgötu 23. — Sími 7692. |
iimiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiimi
uiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimiMiimiiiiiiiiMiiiiiuimiiiiiuniiMiiMiiiiuiniMumiiiiiiiiiiiiiiiiuiuiiiuiiMMiiuiuiiuiiiiiuii