Tíminn - 13.04.1957, Side 1

Tíminn - 13.04.1957, Side 1
Fyigist með tímanum og lesið TÍMA2CN. Áskriítarsímar: 2323 og 31320. Tíminn flytur mest og fjclbreyttast almennt lesefni. 41. árgangur. 'émám Reykjavík, laugardaginn 13. apríl 1957. Inni í blaðinu í dag: Leikhúsmál, bls. 4. Samvinnubú, bls. 5. Týndi sonurinn, bls. 6. Breytingar á kosningalögunum, bls. 7. 'tfcj ■i 1 86. blað. Stóreignaskatturinn til umræðu á Alþingi í gær: Tryggir að þeir sem eiga meira en eina milljón I fasteignum íeggi sitt til stöðvunar verðbölgunnar ” ~ ~ ~ ~~ " jDregur úr ósamræminu í aðstöðu sparifjáreigenda og þeirra, sem Islenzku stjórninni ekki borizt kréf e-^a agraf ejgnjr sem verðbóSgan hefir hækkað. f rá Rússum, - en verður birt ef kemur__________ Skattinum varið til bjálpar fólki, sem stofnar heimiíi í sveit og við sjó, sagði fjármálaráðherra Hermann Jónasson forsætisráíherra svaraíi í gær á Alþingi fyrirspurnum um þetta efni Hermann Jónasson, forsætis- ráðherra, svaraði á Aiþingi í gær fyrirspurn frá Ólafi Thors, sem borin var fram utan dagskrár í neðri deild um það, hvort ís- lenzku ríkisstjórninni hefði bor- izt bréf frá stjórnarvöldum Sovét -Rússlandi svipaðs efnis og Danir og Norðmenn hafa fengið. Hafði Ólafur heyrt í útvarpsfréttum frásögn af skrifum rússneskra blaða varðandi ísland. Hermann Jónasson, forsætis- ráðherra, svaraði fyrirspnrnum Óiafs Thors, og sagði, að hvorki hefði íslenzku ríkisstjórninni bor- izt bréf, skýrsla, eða skilaboð frá rússneskum stjórnarvöldum. Varðandi þá spurningu Ólafs,, hvort slíkt bréf, ef það kæmi, yrði birt, sagði forsætisráðherra, að svo yrði að sjálfsögðu gert. Um það atriði, hvort haft yrði samráð við stjórnarandstöðuna um svar við slíku bréfi, sagði for- sætisráðherra, að það hefði ekki verið rætt í ríkisstjórninni, og ut- anríkisráðherra væri staddur er- lendis. Frumv. um skyldu- sparnað og íbúða- byggingar rætt Á fundi efri deildar Alþingis í gær var til fyrstu umræðu nýja stjórnarfrumvarpið um hús- næðismálastjórn, byggingarsjóð ríkisins, sparnað til íbúðabygg- inga og fleira. Hannibal Valdi- marsson, félagsmálaráðh. flutti ítarlega framsöguræðu um mál- ið og rakti meðal annars nauð- syn þess að tryggja úrræði til aðstoðar við byggingar íbúðar- húsa. Karl Kristjánsson flutti við þessa umræðu ágæta ræðu um þessi mál. Rakti hann gang þessa máls nokkuð og lýsti þörf og úrræðum. Veröur ræða Karls birt í heild hér í blaðinu strax eftir helgina. Eandaríkm veiia íslendingnm 2,8 millj. dollara lán til vömkaupa Gert ráí fyrir aí 80% af andvirtSi lánsins verSi variíS til framkvæmda á íslandi Blaðinu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá ríkis- j ÞÍllSfíUíldum ffGStuð stjórninni: ,,í gær var undirritaður í Washington samning-' ” ur milli ríkisstjórna íslands og Bandaríkjanna um, að Banda-, ríkjastjórn leggi fram fé til kaupa á vörum þar í landi, að fjárhæð allt að 2.785 þúsund dollurum, sem íslendingar eigi kost á að fá gegn greiðslu í íslenzkum krónum. Koma þar til greina eftirtald- ar vörur: Hveiti, fóðurvörur, hrísgrjón, baðmullarfræs/soya olía, linseed olía, tóbak, ávextir, baðmull. Þessi viðskipti munu fara eftir venjulegum verzlunarleiðum og er gert ráð fyrir, að þau geti hafizt mjög fljótlega. Fyrir hönd Islands undirritaði Vilhjálmur Þór bankastjóri, samninginn, en Thorsten V. Kalijarvi, aðstoðar- ráðherra, fyrir hönd Bandaríkja- stjórnar. Samningur þessi er gerður í samræmi við sérstök lög í Banda (Framhald á 2. síðu). I Fundur Alþingis var í gær frestað fram yfir páska, og munu margir þingmanna, sem búsettir eru út á landi, halda heim til sín um helgina. Þing- deildarforsetar óskuðu þeim góðrar heimferðar og afturkomu í fundarlok í gær. Eftir páska bíða þingmanna enn mikil störf, þar sem mörg mál hafa ekki enn hlotið afgreiðslu og gera má ráð fyrir að nokkurn tima taki að fjalla um stórmál þau, sem komu til fyrstu umræðu á þingdeildarfunduin í gær. Hin nýju frumvörp um húsnæðis- og lánamál og stór- eignaskatt voru til umræðu á Alþingi í gær. í ræðu, sem Eysteinn .Tónsson fjármálaráðherra hélt um stóreignaskatt- frumvarpið, rakti hann í glöggu yfirliti helztu atriði máls- ins og skýrði hvers vegna horfið sé að því ráði að leggja sér- stakan skatt á stóreignir, umfram eina milljón króna hreina eign. Fjármálaráðherra fór fyrst nokkrum orðum um þær ráðstaf- anir, sem að undanförnu hafa ver- ið gerðar í efnahagsmálum þjóðar- innar og óhjákvæmilegt var að gera til þess að halda atvinnuveg- unum gangandi. Hann benti á að með lögun- um um xitflutningssjóð og fleira í vetur liefðu verið gerðar allum- fangsmiklar breytingar á fjár- málakerfi landsins. í bessu sam- bandi hefði þurft að afla fjár- magns til að jafna lialla, sem orðinn var á útflutningsfram- leiðslunni. Hefði orðið að leggja verulegar fjárhagsbyrðar á þjóð- félagsþegnanna og í því sam- bandi þætti rétt að þyngstu byrð ar korni á þá, sem mest hafa liagnazt á verðbólgu undanfar- inna ára, þá sem mestar eignir eiga. Miíiar aU stöívun veríbólgunnar Fjármálaráðherra sagði og að þessi skattur væri því lagður á til þess að vinna gegn nýrri verð bólgu. Þeir sem mestar eiga fast Blað ingar Rauða hersins heimtar að íslend- segi sig úr Atlantshafsbandalaginu . .. i3f HRH BULGANIN, Biríir í grein sömu hótanir og Bulganin sendi Dönum og Norðmönnum í bréfi NTB—Moskva, 12. apríl. —1 Rauða sfjarnan, málgagn Rauða hersins og rússneska hermálaráðuneyfisins birfi í morgun grein, þar sem ís- iendingar eru með hörðum orðum varaðir við því að leyfa Afiantshafsbandalaginu herstöðvar í landinu. Efni greinar þessarar er mjög svipað efni þeirra hótanabréfa, sem rúsneska stjórniu hefir ný- lega sent forsætisráðherrum Noregs, Danmerkur og nokkrum fleiri löndum. í greininni, sem sýnilega er koinin frá æðstu stöðum í Rúss- Iandi, segir, að ef ráðizt verði á Rússa munu þeir neyðast til að tortíma óvinunuin, hvar sem þeir lialdi sig. Með því að ganga í Norður- Atlantshafsbandalagið liafi ís- lendingar gerzt aðilar að liern- aðarsamtökum, senx beint sé gegn Rússum. Eina leiðin fyrir íslendinga til að tryggja öryggi sitt sé að ganga úr bandalaginu og leyfa ekki herstöðvar í landi sínu. Lítið hefur frétzt um viðbrögð blaða út um heim vegna þess- arar hótunar Rússa. Brezka út- varpið skýrði frá efni greinar- iuuar í fréttasendingum í dag, og gat þess, að efni hennar væri svipaðs eðlis og orðsendingarnar til stjórna hinna Norðurland- anna. Engin orðsending hefir borizt til íslenzku ríkisstjórnar- innar. Kanadískur nefnda- fulltrúi myrtur í Saigon PARÍS—NTB, 12. apríl. — Can- non, aðalfulltrúi Kanada í vopna- hlésnefndinni í Indó-Kína var nxyrtur í Saigon í nótt. — Cannon fannst í morgun látinn í rúini sínu nxeð margar hnífstungur í brjóstinu. Diem, forseti S-Viet- nam, hefir géfið skipun um að rannsaka málið til hlítar. Cannon skilur eftir sig konu og barn. eignir hafa hagnazt mest á verð- bólgunni, þar sem fasteignirnar hafa hækkað í verði, meðan verð gildi sparifjár hefir að sama skapi rýrnað. Með frumvarpinu sé komið til móts við það sjón- armið, að tryggja beri sparifjár- eign manna gegn áhrifum verð- bólgunnar og því sé gert ráð fyrir að sparifé sé undanþegið skatt- inum, því það hækkar ekki að verðgildi við verðbólguna, heldur þvert á móti. Þá vék ráðherra að ráðstöfun* um, sem ætlazt er til að gerðar séu í sambandi við fasteignamatið sjálft, þegar skatturinn er reikn- aður út. Miðað verður við nýtt fasteignamat, sem nú er að fara fram. Sagði ráðherra, að enda þótt gert sé ráð fyrir hækkun fasteigna matsins, yrði það áreiðanlega und- ir gangverði fasteignanna. Þá verða gerðar ráðstafanir til endur- mats á lóðum, einkum í kaupstöð- um, þar sem mikil breyting hefir orðið á aðstöðurentu og lóðaverði með tilfærslu byggðar. Fjármálaráðherra skýrði frá sér* reglum, sem gilda við skattákvörð- un, um skip og flugvélar. Byggt verður þar á vátryggingarverði, en 20 hundraðshlutar dregnir frá heildarupphæðinni og 33% af fiski skipum. Einnig verður um frádrátt að ræða viðvíkjandi vinnslustöðv- um fyrir sjávarafla og búsafurðir. Um upphæð skattsins er það að segja, að hann er 15—25 hundr- aðshlutar af eignum fram yfir eina milljón króna. Uppbygging lána- stofnana Fjármálaráðherra taldi ekki hægt að segja fyrir með neinni ná- kvæmni hversu mikilli upphæð skatturinn kann að nema. Ætlun- in væri að ná ekki minna en 80 milljónum króna og verður inn- heimt á 10 árum. Ráðherra vék síðan að því, að ekki væri ætlunin að þetta fé yrði eyðslueyrir, en það væri nijög þýðingarmikið. Það ætti að renna til að byggja upp þýðingar mikla lánastarfsemi fyrir þjóð- arheildina, til íbúðabygginga, i kaupstöðum og eflingar landbún- aðinum. Koma þyrfti þessum lánastofnunum svo vel á veg, að ungt fólk geti átt þar von á ðr- uggri aðstoð til heimilastofnun- ar í sveit og við sjó. Veftdeild Búnaftarbankans Eysteinn Jónsson ræddi síðan (Framhald á 2. síðu).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.