Tíminn - 19.07.1957, Qupperneq 7
TÍMINN, föstudaginn 19. júlí 1957.
Tala fegurðardrottninga hækkar ört
og er komin hátt á aðra milljón
Atvmnugrein, sem hófst fyrir tæpum
‘ 40 árum og stöðugt fer vaxandi
Félagsfræðideildin við Chicagóháskólann tók sér nýlega íyr-
„hendur að reikna út, hvað margar konur hefðu verið kjörn-
ar fegurðardrottningar síðan 1919, þegar fyrst var byrjað að
ráði að efna til formlegrar keppni á þessu sviði. Rannsókn
þessi leiddi í Ijós, að hér var risin upp miklu umfangsmeiri
pg stórfelldari atvinnugrein en menn höfðu gert sér grein fyr-
ir áður. Fegurðardrottningarnar sem höfðu verið kjörnar í
einni eða annarri samkeppni, voru orðnar a. m. k. 1.243.500
talsins. Raunar voru þær orðnar fleiri, þar sem tölur þessar
ná aðeins ril Bandaríkjanna, brezka samveldisins og Vestur-
Evrópu.
• Að sjálfsögðu étti þessi atvinnu-
grein upphaf sitt í Bandaríkjun-
um. Þáð var bæjarstjórnin í At-
lantic City, sem er þekktur bað-
staður í New York-ríki, er hafði
’ forgöhgu um fyrstu umfangsmiklu
fegurðarsaiökcppnina. Bæjar-
stjómi* vildi auka aðsóknina að
baðstroudinni og greip þvi til þess
ráðs að efna til keppni um það
hver væri fegursta stúlka Banda-
ríkjanna, Miss America. Fyrst
skyldi hvert sambandsríki velja
sína fegurðardrottningu og þær
síðan mæta til úrslitakeppni í
Atlantic City. Fyrsta slíka keppn-
in fór fram 1921 og hefir síðan
farið fram árlega, nema 1927 og
1933, þegar kirkju og kvennasam-
tökum tókst að hindra hana með
þeirri forsendu, að hún hefði ó-
holl áhrif á vissar holdlegar hvat-
ir hins sterkara kyns.
Stærsta fegurðarkeppnin.
Um alilangt árabil, var þetta sú
fegurðarkeppnin, sem mest um-
tal og athygli vakti, og svo er
reyndar enn í Bandaríkjunum. —
Utan Bandaríkjanna vekur keppn
in í Long Beach í Kaliforníu
meiri athygli, en þar er nú ár-
lega keppt um titilinn fegurðar-
drottniag heimsins, Miss Univers-
um. Foroáðamenn Long Beach
töldu sig þurfa að afla staðnum
ekM minni frægðar en Atlantic
Ciiy hafðl hlotnast og fundu loks
upp það snjallræði að láta keppa
um fegurðardrottningu heimsins.
Evrópa gamla hafði reynt að
fylgjast með tímanum og farið í
kjölfar Ameríku að þessu leyti,
eins og á svo mörgum sviðum öðr
um í seinni tíð. Stærstu keppnirn
ar þar eru um titilana fegurðar-
drottning Evrópu, Miss Evropa, og
fegurðardrottning heimsins, Miss
World. Frakkar sjá uim þá fyrr-
nefndu en Bretar um þá síðar-
nefndu.
Óteljandi keppnir.
í sambandi við þær keppnir er
hér hafa verið nefndar, fara fram
margar undankeppnir, ef svo
mætti að orði kveða. í Evrópu
fer t. d. fram sérstök keppni í
hverju landi í sambandi við Miss,
Evrópu-keppnina, önnur í sam-
bandi við Miss World-keppnina og
sú þriðja í sambandi við Miss
Universum-keppnina. Sigurvegai'-
inn í hverri þessara keppna hlýt-
ur venjulega þann titil að vera
fegurðardrottning viðkomandi
lands, svo að flest löndin eignast
a. m. k. þrjár fegurðardrottningar
árlega. í mörgum löndum fara
svo fram fegurðarkeppnir í ein-
stökum héruðum eða borgum, þar
sepi valin er fegurðardrottning
viðkomandi héraðs eða borgar í
landskeppnirnar. Þessu til viðbót
ar fara svo fram fjölmargar auka-
keppnir, þar sem eru t. d. valdar
GRÓÐUR OG GARÐAR:
INGOLFUR DAVIÐSSOM
„Blómakóngur Norðurlanda“
Japan lætvr ekkl á sér standa um þátttöku í fegurðarsamkeppnl á al-
þjóðlegum vettvangi. Hér sjást þrjár japanskar stúlkur, sem kepptu tll
Úrsllta urn tltilinn Ungfrú Japan. í miðið sést Tomoko Okamoto, sem varð
trtufskörpust og send í alþjóðakeppnina á Langasandi.
fegurðardrottningar fyrir einstak
ar starf'sgreinar eða aldursflokka
eða vegna einhvers sérstaks tilefn
is. 'Slíkum' fegurðarkeppnum fjölg
ar stöðugt og fegurðardrottning-
arnár eru'því að verða óte'.jandi,
jafnvel fyrh' háskólann í Chicago.
Andstaða gegn fegurðarkeppnum.
I mörgum löndum er mikil and
staða gegn fegurðarkeppnum, aðal
lega af trúarlegum ástæðum. Á
SRáni.er_u þær t. d. alveg bannað-
ar. A Ítalíu hefir oft staðið um
þær mikill styr. í Grikklandi hef
ir oft komið t.il óeirða í sambandi
við þær vegna andúðar á þeim.
M. a. hefir félagsskapur fyrrver-
andi hermanna tekið þar upp bar-
áttu gegn þeim. Fyrir ekki löngu
síðan, var gerður aðsúgur í Aþenit
að næturklúbbi, þar sem verið var
að velja fegurðardrottningu Grikk
lands. Þó voru ekki færri en tólf
ráðherrrar viðstaddir athöfina, og
auk þess tveir fyrrv. íorsætisráð-
herrar — allir sem boðisgestir. Þar
var staddur sjálfur lögreglustjóri
borgarinnar og lét hann dreifa hin
um óvinsamlega mannsöfnuði úti
fyrir. Til allharðra átaka kom á
milli lögreglunnar og mannfjöld-
ans og áttu ekki færri en 52 hand
tökur sér stað meðan verið var að
dreifa mannfjöldanum.
í Vestur-Evrópu og Bandaríkj-
anna mæta fegurðarkeppnirnar
ekki slíkri andstöðu, en víða er
þar hent gaman að þeim og stúlk
um þeim, er gefa sig fram til að
taka þátt í þeim.
Þátttakendur skortir ekki.
Þrátt fyrir þetta er venjulega
ekki skortur á þátttakendum. Sál-
fræðingur nokkur hefir tekið sér
fyrir hendur að flokka þær stúlk-
ur, sem gefa sig fram til slíkrar
keppni, eftir þeim hvötum, sem
knýja þær til þess. Hann telur að
oft standi framgjarnar mæður eða
aðstandendur á bak við. í öðrum
tilfellum er það metnaður og
framalöngun viðkomandi stúlku
sjálfrar. Loks koma svo stúlkur,
sem álíta sig fallegar, og hafa gam
an af því að sýna sig. Sá hópurinn
er talinn langsamlega stærstur.
Margar söngur ganga af því, að
þær stúlkur, sem gefa sig fram til
þátttöku í fegurðarsamkeppni, séu
ekki alltaf jafn gáfaðar og mennt-
aðar og þær eru laglegar. Það
kom t. d. fyrir í Ítalíukeppni ný-
lega, þar sem tuttugu stúlkur
kepptu til úrslita, að engin vissi
deili á Romulus, Remus og Lucres
i.a Borgia og engin kannaðist held
ur við Hamlet.
Vaxandi atvinnugrein.
Oft g-erast hinir sögulegustu at-
burðir í sambandi við fegurðar-
keppnir. Það er mjög algengt, að
þátttakendur fái taugaáfall. Nokkr
um sinni hefir það hent, að stúlka
sem beið ósigur, hafi misst vald
á skapsmunum sínum, og látið það
ganga út yfir dómarana. Aðrar
hafa reynt að beita brögðum til
að vekja á sér eftirtekt. Enn aðr-
! ar reyna að komast í kunnings-
1 skap við dómarana eða að haía
áhrif á þá eftir öðrum leiðum.
Reynslan hefir sýnt, að það er
skammvinn upphefð að verða feg
urðardrottning. Flestar þeirra
gleymast jafnfljótt og þær hafa
verið valdar, nenia þegar það
sjaldgæfa hefir gerst, að raun-
verulega falleg stúlka hafi gefið
sig fram til keppni og borið sigur
lir býtum. En þótt fegurðardrottn-
ingarnar gleymist fljótt, heldur
ekki aðeins sá atvinnuvegur á-
fram, sem framleiðir þær, heldur
virðist hann blómgast stöðugt. Þús
undir manna byggja afkomu sína
á því að standa fyrir fegurðar-
keppnum og margir þeirra hafa
báar tekjur. Þessir menn réttlæta
atvinnugrein sína með því, að fólk
ið hafi gaman af þessu, og þáð se
heilbrigðara að fullnægja á þenn-
an hátt skemmtanalöngun þess en
með mörgu öðru móti. T. d. væri
það ótvíræð framför, ef Spánverj-
ar tækju upp fegurðarkeppnir, en
legðu nautaatið niður.
23. maí s. 1. voru liðin 250 ár
frá fæðingu Carls Linneusar, hins
fræga sænska grasafræðings. Fað-
ir hans, Nils Ingemarsson, var
prestur í Ráshult í Smálöndum.
Hann var af bændaættum, en tók
sér nafnið Linnæus eftir stóru
linditré, sem var talið verndartré
ættarinnar. Þegar Carl Linnæus
var sæmdur aðalstign árið 1762
hlaut hann nafnið Carl von Linné
og var þannig áfram kenndur við
linditréð. Faðir hans var mikill
blómavinur og vakti snemma á-
huga sonar síns á gróðrinum. —
Á þeim tíma var grasafræði ekki
sjálfstæð háskólanámsgrein, held-
ur tilheyrði greinum læknisfræð-
innar ásamt dýrafræði, jarðfræði,
efna- og eðlisfræði. Linné lagði
stund á allar þessar námsgreinar
með ágætum árangri. Hinn ungi
stúdent vakti þegar undrun og að-
dáun kennara sinna við háskólann
í Lundi og síðar í Uppsölum og
fékk þar aðgang að öllum söfn-
um. Hann var mjög ötull að safna
jurtum og varð sjálfkjörinn for-
ingi stúdentanna á grasaferðum og
leiðbeindi 'þeim einnig stundum í
plöntuþekkingu í grasgörðunum
fyrir prófessorana. Linné var fá-
tækur stúdent og lifði mest á
námsstyrkjum. Hann var mjög
bráðþroska vísindamaður og hafði
þegar 23 ára gamall lagt grund-
völlinn að hinum frægu vísinda-
ritum sínum. Rit hans Genera
plantarum olli þáttaskiptum í kerf
isbundinni grasafræði. Ákvörðun-
arkerfi Linnés byggðist einkum á
tölu fræfla og frævna í blómun-
um og var lengi notað. Hann skip-
aði gróðrinum niður i tegundir,
ættir og deildir svipað og enn er
gert. Linné grundvallaði líka lýs-
ingar á plöntum og lýsti sérhverj-
um plöntuhluta og gaf nafn. Var
þetta feiknamikið eljuverk, sem
við búum að enn í dag. Hann kom
skipulagi á nafngiftir plantna eins
og það er notað nú, t. d. í Flóru
íslands. Hið fræga rit hans um
þetta efni „Species plantarum"
kom út árið 1753. — Linné ferðað-
ist mikið tii rannsókna, m. a. til
Lapplands og ritaði fræga lýsingu
á gróðri, landi og þjóð þeirra hér-
aoa, sem þá voru lítt kunn. Linné
vildi verða doktor, en til þess varð
hann að fara utan. Hann fór til
Hollands og hlaut þar doktorsnafn
bót í læknisfræðum, en til þeirra
taldist þá grasafræðin. f Hollandi
varð Linné heimilislæknir hjá auð-
ugum bankamanni nálægt Leyden
og varð jafnframt forstöðumaður
grasgarðsins þar. Hann samdi lýs-
ingar á öllum gróðri í grasgarð-
Ungíingameistara
mótið hefst í dag
Unglingameistaramót íslands fer
fram n. k. föstudag, laugardag og1
sunnudag, en hefst ekki á laugar-
dag, eins og ranglega var liermt í
blaðaau'glýsingu í gær og fyrra-
dag. Mótið hefst kl. 20 föstudag-
inn 19. júlí og síðan kl. 2,30 hina
dagana. Líklegt er talið, að kepp-
endur verði milli 30—40, meðal
þeirra Úlfar Björnsson frá Skaga-
strönd, sean náð hefir mjög at-
hyglisverðum árangri í kúluvarpi,
Ólafur Unnsteinsson, spretthlaup-
ari frá Hveragerði og Kristleifur
Guðbjörnsson, KR. Þátttakendur
eru viðs vegar að af landinu,
Reykjavik, Keflavík, Akureyri,
Hveragerði og Skagaströnd.
Carl von Linné
inum og komu þær út í skrautút-
gáfu og bar bókin nafnið „Hortua
Cliffortianus'* eftir velgerðan-
manni hans — bankamanninum.
Þarna í Hollandi fékk Linné tíma
og tækifæri til að fullgera og gefa
út grundvallarrit sín í grasafræðl.
Arið 1738 sneri Linné heim til Sví
þjóðar og gerðist fyrst læknir 1
Stokkhólmi og síðan, árið 1741
prófessor í læknisfræði í UppsöÞ
nm og árið eftir í náttúrufræði og
jafnframt forstöðumaður grasgarðs
ins í Uppsölum. Vann hann þar <
36 á:r — og gerði sænsk náttúrú-
vísindi, einkum grasafræði, heima- •
fræg. Stefndu ungir náttúrufræð-
ingar til Uppsala til náms hjú
Linné, frá mörgum löndum. Enda
var Linné bæði frábær vísindamað-
ur og kennari af guðs náð. Hafði
hann mikil og víðtæk áhrif. A
grasaferðum lét hann stundum
nemendurna taka lúðra og trumb-
ur með-í ferðina og hélt fylkingin
á stað — og kom heim á torgið —
undir dynjandi hornablæstri. Þóttl
sumum samkennurunum nóg um.
•— Linné andaðist 10. janúar áfið
1778 og var grafinn í Uppsala dóm
kirkju. Stendur þar fagurt minnis-
merki um þennan fræga son Sví-
þjóðar, sem kallaður hefir verið
blómakonungur Norðurlanda og
fursti grasafræðinnar.
Ingólfur Davíðssom
Firmakeppni Goíf-
klóbbs Árnessýski
Finmakeppni Golfklúbbs Árnes-
sýslu er nú lokið. Til úrslita léku
Hafsteinn Þorgeirsson fyrir Ólals
Gíslason & Co. oig Haukur Bald-
vinsson fyrir Kol & Salt. Lyktaoi
þar harðri baráttu með sigri fyrir
Kol & Salt, átti Haukur tvær hioil-
ur unnar þegar ein var eftir.
Fyrir þennan sigur hlýtur fyrlr-
tækið Kol & Salt h.f. bikar til
varðveizlu þar til firmakeppni fer
aftur fram á næsta ári. ísiands-
meistaramótið í golfi hefst í dag
(föstudag) hér í Hveragerði og
verða lei'knar 10 holur hér á vell-
inum.
Að lokum vill Golfklúbbur Ár-
nessýslu færa þátttökufirmum
sérstakar þakkir fyrir etuðnipg
sinn við félagsskapinn með þá'tt-
töku sinni i keppninni. Þ. Sn.
Fékk ör í augað við víkingaæfingar
POLITIKEN skýrði frá því ný
lega, að það slys hefði viljað til
fyrir skömmu við æfingu á vík-
ingakvikmynd Kb'k Douglas, sem
nú fer fram á Frakklanusströnd,
að bandaríski kvikmyndalcikar-
inn Tony Curtis fé.kk ör í augað.
l’ra stund var allt útlit iyrir
það, að Tony missti sjónína á,
auganu, en nú standa vonir til
þess, að læknum takist að bjargá
því. Tony leikur eilt aðalhlut-
verkið í kvikmyndinni, konungS'
son, sem norrænir víkingar
rændu á Englandi og seldu 1
þrældóin í Noregi.