Tíminn - 26.09.1957, Blaðsíða 7

Tíminn - 26.09.1957, Blaðsíða 7
T í MIN N, fimintudagiim 26. september 1957. 2 Reykvíkingar f jölmenntu í rétfirnar í fyrradag. Enda þóít tilvera réttanna séu mörgum Reykjavíkurbörnum afteins óljós þjóðsaga, gefst þeim þó mörgum tækifæri tií að fara í réttir, þegar réttað er í Hafravatnsrétt í Mosfells sveit. Þær eru stærstu rétt- irnar í nágrenni Reykjavík- ur og eru því öðrum réttum fremur réttir Reykvíkinga, að minnsta kosti Reykjavík- urbarna, sem ekki komast í! sveit. En sá hópur fer stækk- andi með hverju árinu sem líður og borgin vex. Snennna morguns var orðið mik- ið anm'íki í Hafravatnsrétt. Frá Reykiavík komu bílar í löngum lestum með fullorðna og börn, og tveir lögregluþjónai- höfðu ærinn starfa við að stjórna umferð mann- fólksins fyrir utan réttarveggina, og á flötunum niður með vatninu, þar sem ökutækjum var fundinn staður. Engir rekstrar en margir f járbilar Margir komu líka ríðandi í rétt- irnar. Leitarmenn höfðu flestir komið daginn áður, enda var vak- áð yfir saíninu við réttina í fyrri- nótt, þar til réttarstörfin hófust með birtingu að kalla. Flestir báend anna lögðu flutningabílum að út- vegg réttar hjá dilk sínum og fluttu féð jafnóðum heim á bílun- um. Ónæðisamt er að vera á ferð með fjárrekstra á þjóðvegunum í næsta rrágrenni Reykjavikur. Fæst- ir bændanna, sem sækjg fé sitt til Hafravatnsréttar-, eru líka stór- bændur á sauðfjárræktarsviðinu, enda búskapur þeirra rekinn í hef- uðsveitum mjólkurframleiðslunn- ar. Engu að síður er fjáreign bænda í nágrenni Reykjavíkur nokkuð almenn og fer heldur vax- andi. Sauðfjárræktarbændurnir eru samt ekki fleiri en svo, að erf- itt er fyrir þá eina að standa að smölun á öllum afréttarlöndum. Þau eru ótrúlega viðáttumikil og erfið til smölunar. Féð gengur saman allt austur í Grafning og heiðarnar eru stórar og margar hæðir og lautir, þar sem kindur géta leynzt vökulum augum leitar- manna. HaþaíatHAfétt - — rétt éZeijkjœJíkufltatHa Börnin ekki færri en lömbin Réttarstjórinn í Hafravatnsrétt er Kristinn bóndi á Mosfelli, skörulegur og geðgóður réttar- stjóri, sem oft þarf að taka á þol- inmæðinni allri, þegar börnin í almenningum eru orðin fleiri en kindurnar, einmitt þegar rétta- annríkið stendur sem hæst. Þá kemur stundum fyrir að réttar- stjórinn stigur upp á réttarvegg- inn, gætilega svo að grjót hrynji ekki úr hleðslunni og heldur hóf- lega orðaða ræðu iil háttvh-tra' réttargesta. Hann biður þá með góðum orðum og fögrum að sýna sveitamönnum miskunnsemi og rýma til í réttinni sjálfri, í al- menningnum, þar sem skilamenn þurfa að finna sitt fé og draga það í dilka. — Nú er fjórum slnnum fleira fólk í almenningnum en þar á að vera og má vera, segir Kristinn af mikilli hógværð og veit að börnin eru tíu sinnum fleiri en hæfilcgt getur talizt í almenningnum. Ifann tekur svona til orða vegna þess að í raun og veru skilur hann Reykja- Grein og myndir: Guðni Þórðarson. víkurbörnin svo vel, og vill ekki viðurkenna að of mikið sé af þeim ; í réttinni. — Og réttarstjórinn held ur áfram ræðunni á réttarveggn- um og óskar þess að fólk sýni skilning á störfum réttarmanna og gefi þeim ráðrúm til að draga féð í dilka. Að langri ræðu lokinni er . gripið til þess ráðs að reka menn og kindur út úr almenningnum og hleypa aftur fé inn úr safninu. Fyrst í stað gengur allt að ósk- um og fleira er af kindum en börn- um í almenningnum, en börnunum fjölgar meir en kindunum fækkar, og þá þarf réttarstjórinn aftur að stíga í stólinn og gera ráðstafanir til þess að hægt sé að halda áfram störfum í réttum Reykjavíkurbarn- anna. Sveitin tæmist, er fóikið fer í réttir En það eru fleiri en börnin, sem fjölmenna í Hafravatnsrétt, þang- að koma svo til allir vopnfærir menn og konur úr Mosfellssveit og dvelja lengi dags, svo að símstöð- in á Brúarlandi nær varla í nokk- urn mann, þegar kvaðning kemur frá Iandssímanum. Óvíða er svarað hringingu, því að allir ungir og gamlir eru í Hafravatnsrétt. Réttin stendur skarnmt frá vatn- inu undir hlíðinni, þar sem margir sitja og fylgjast með réttarstörfum. Þegar líður á réttardaginn, fara menn að gera nestinu einhver skil, en kvenfélagið sér fyrir góðum veit Reykjavikorbörn eiga þess ekki kost á hverjum degi aö komast í lifandi ingum, heitu kaffi, pönnukökum og samband við kindurnar, enda er réttardagurinn við Hafravatnsrétt ógleym- smáréttum. Börnin gleyma því al- anlegt aevintýri fyrir mörg þeirra, sem þangað komast. Þar sjá mörg stálp- VC®’ SOsdiykkii 0o sælgæti er ævintýri að komast þarna í lifandi samband við kindurnar, að því £á engin orð lýst. Fjögurra ára Reykjavíkurtelpa stóð við hliðina á átta ára bróður sínum fast við hliðgrindina og horfðu heilluð á fallegt lamb, sem stóð skorðað með höfuðið upp að grindinni. Þau höfðu aldrei séð lifandi kind fyrr. — Verst, að við skyldum ekki hafa með okkur brauðmola, sagði telpan við bróður sinn. Hann svaraði fáu, en horfði fast á lambið og sagðist hugsa að þvi þætti ekki góður sami matur og öndunum á tjörninni. Þú ert kjáni, — meira að segja kríurnar vilja ekki andabrauð, og heldurðu þá, að kindurnar Iíti við -slíku. Þannig gerðust fjölmörg ævin- týri í lifi Reykjavíkurbarna við ■ Hafravatnsrétt í gær. Fyrsti réttar- 1 j dagurinn verður flestum ógleyman- legur, ekki sízt kaupstaðarbörnum, sem vaxið hafa upp í faðmi borg-' arinnar, þar sem fá tækifæri gef- ast til náinna kynna við lifandi dýr. Og einhvern veginn er það svo, að lömbin eru í meira nppá- haldi hjá börnunum en flest önn- ur húsdýr, þó að oft séu kynnin. stutt. Þau hverfa til fjalla, þegar þau eru fallegust á vorin qg koma svo ekki aftur fyrr en í rél'tirnar á haustin. En ef til vill er það þessi langa eftirvænting sumarsins um samfundi í réttum að hausti, sem heillar hugi barnanna. Og Reykjavíkurbörnin mörgu, sem í fyrsta sinn konuist í lifandi snertingu við kindur í Hafravatns rétt í fyrradag, munu lieldur ekkl gleyma því strax, að fundum bar þar saman. Þau hafa fengið í blóðið þann óróleika, sem verð- ur þess valdandi að réttirnar gleymast ekki, þegar að þeim 'kemur á haustin. Vafalaust liafa mörg börn og jafnvel fullorðnir, sofnað út frá kindajarmi að lokn- um löngum og viðburðaríkum réttardcgi, dreymt uin fangbrögð við frískar kindur, draumar, sem verða að veruleika, þegar aftur verður enn á ný farið í réttir. mm ■■ ■■ ,mm uð börn kindur í fyrsta sinn. til sölu. Réttarlífið er þeim meira virði. Mörgum er það svo mikið Kristinn j Mosfelli er góður réttarstjóri, enda vandasamt verk að stjórna réttarhald: i Hafravatnsrétt, þar sem börn og fullorðnir fylla réttina, svo erfitt er að draga safnið í dilka. Hann verður þá stundum að stíga upp á réttarvegginn og fara bónarveg að réttargestum, svo að heimamenn komist aö tjl að draga í almenningnum. . ,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.