Tíminn - 03.11.1957, Síða 7
r í -MXNN, smuiudaginn 3. nóvember 1957.
1
— SKRirAÐ OG SKRAFAÐ
Efnafræðmgar sanna hagnýii gildi jarðgufunnar. - Athafnir á hverasvæSum raunhæft fram-
faramáh - Kísilnámurnar miklu sem fundust á botni Mývatns. - Upplýsingar Baldurs Líndals
vekja athygli. - Stórvirkjanir við mestu fallvötn landsins. - Hinar siéru þrýstiloftsflugvélar,
sem flytja fólk og vörur heimsálfanna á miili. - Mikilvæg aSstaSa íslands á tímum hinnar nýju
flugtækni. - Ungum mönnum sagt ósatt um þróun landhónaðarmála hér á kndi
Þess verður nú víða vart
að hfn unga kynslóð vísinda-
manna á sviði hagnýtra vís-
inda lætur æ meira tii sín
taka í atvinnulífi þjóðarinn-
ar. Á sviði hafrannsókna og
fiskirannsókna er unnið
merkilegt starf, sem vekur
athygli langt út fyrir lands-
steina. Útvegsmenn og sjó-
menn hafa fyrir löngu séð
gildi þessara rannsókna fyrir
atvhinureksturinn, sifellt
færist nær því marki, að öli
þjóðfn víðurkenni og skiíji
það, sem gerf er.
Jart&iti, orka og efna-
vinnsla
En fiskirannsóknir eru ekkert
einangraS fyrirbæri. Þannig er
unnið 4 mörgum sviðum. Ungir is-
lenzkir verkfræðingar stjóma mikl
um raforkaframkvæmdum. Merk-
ar athuganir eru gerðar í bygginga
iðnaði. Jarðfræðingar upplýsa
leyndarwál, sem móðir jörð hefir
geymt og grafið í þúsundir ára.
Efnaíræðingar sanna hagnýtt gildi
guíimrmr, sem stigur til himins
frá hverasvæðunum. Þannig mætti
lengi telja. dæmin.
ísleiudingar eiga nú sveit ungra
manna, sem er í fararbroddi í
sókn þjóðarinnar til þess að gera
að vcruleika hugsjónina um
hagnýtingu auðlinda Iandsins og
aukna fjölbreyttni atvinnuveg-
anna.
Þegar horft er fram á veginn
er vafasamit, að á nokkru sviði sé
eins mikill vonarbjarmi á lofti og
einmitt þarna, í kringum jarðhita,
orku og efnavinnslu.
Eitt hinna stóru fyrir-
heifca framtí'ðarinnar
Hér var nú í vikunni sagt frá
rannsóknum þeim, sem gerðar
hafa verið við Mývatn og á jarð-
hitasvæðinu undir Námafjalli.
Þar er eitt hinna stóru fyrirheita
framtíðarinnar að stíga fullmótað
frani úr gufumekki óvissunnar.
Rætur Námafjalls eru frægt jarð-
hitasvæði. Þar kraumar og sýður
árið um kring. Þangað sækja ferða
menn gjarnan. Við sýnum útlend-
um gestum þetta náttúruundur, og
erum stoltir af. Gulur brenni-
steinn gerir hlíðarnar sólskinslit-
ar, bullandi liverir sjóða á dökkri
grundinni, en skammt frá flýgur
þröstur í iðgrænu kjarri. í austri
er úfið hraun, en fjærst tígulegur
fjallgarður. En á 'bak við þessa
mynd leynist tækifærið til að
vinna gull úr gufunni og beizla
hitakraftinn og gufustrókinn.
Rannsóknir á þessu svæði hafa
staðið í nokkur ár. Það eru verð-
mæt efni í gufunni og það er
hægt að vinna þau. Krafturinn er
þarna og blasir við öllum, en er
mólið raunhæft framkvæmdamál?
Að undanförnu heíir verið unnið
að því að upplýsa það.
I sambandi við þær athuganir
nppgötvaðist hin furðulega kísil
náma á botni Mývatns. Skeljar
kísilþörnnga á botni Mývatns
þekja 12—15 ferkílómetra svæði,
og leðjan er sums staðar meira
en 9 metrar á dýpt. Áætlað er
að þarna sé 50—60 milljón ten-
ingsmetra magn af verðmætu
efni og er liin sérkenuiiega náma
þá ein hin stærsta sinnar teg-
undar i veröldinni.
Myndir þessar eru báðar frá hverasvæðinu í Námaskarði. Á annarri sést yfir hverasvæðið, en hin sýnir tilraunaverksmiðju er þar var byggS
sannar möguieika á stórfelldri hagnýtingu.
Hugmyndir hinna ungu
eru aflgjafi
í viðtalinu við Tímann nú í vik-
unni ræddi Baldur Líndal efna-
verkfræðingur, sem fyrir þessum
rannsóknum hefir staðið, mögu-
leikana á að tengja saman í eina
heild til úrlausnar, brennisteins-
vinnsiu og aðra efnavinnslu úr
gufunni undir Námafjalli og
hreinsun og vinnslu kísileirsins úr
Mývatni, og nota orkuna undir
rótum fjallsins til að skila verk-
inu. Það er ekki lengur neinir
draumórar að hugsa um þýðingar-
mikinn efnaiðnað á íslandi, heldur
raunhæfur möguleiki, bæði á þess- i
um stað og öðrum. Fyrir atbeina ]
( ungra og röskra manna þokar rann 1
sóknum áfram, og að því rekur i
senn að þjóðfélagið verður að taka
, afstöðu til djarfmannlegra áætl-
] ana um framkvæmdir, byggðar á
rannsóknum liðinna ára og á trú
já gildi jarðhitans og jarðefnanna
fyrir uppbyggingu landsins.
Við hlið hugmynda um þetta
efni er svo önnur um enn stór-
felldari hggnýtingu orkulinda
landsins. Það eru stórvirkjanir
hinna mestu failvatna landsins
og stóriðja á grundvelli erlends
fjármagns.
Nú eru mörg ár síðan farið var
að ræða þessi mál á flokksþingum
Framsóknarmanna og gera um
þau samþykktir. Ýmsum virtist
tal þetta þá draumórar einir, en I
í augum hugsjónamanna eru mál I
in öðru vísi vaxin. Þeir vita, að
það sem ungan mann dreymir um
í dag og aðrir telja fjarstæðu,
verður áður en varir orðið að
, framkvæmdamáli kynslöðarinnar,
! og jafnskjótt rísa ný verkefni við
sjóndeildarhring. Þannig er þróun
in í frjálsu þjóðtelagi. Það eru
hugmyndir hinna ungu, sem eru
mesti aflgjafinn í framfaraátt þeg
ar á heildina og söguna er litið.
Ný öld í flugtækni
aS hefjast
Þjóðirnar standa nú á þröskuldi
nýrra tíma í tæknilegum greinum.
Sjálfvirknin ryður sér æ meira til
rúms í íðnaði og skapar ný við-
horf. Tæknilegar framfarir og
endurbætur á mörgum sviðum
hafa orðið ótrúlega miklar á fáum
árum. Það er talin undirstaða V-
þýzkrar velmegunar nú, að mikill
hluti iðnaðarins er byggður frá
grunni síðustu árin, með nýjum
vélum og í ljósi nýrrar tækni. Og
gerfimáninn hefir komið róti á
i hugina svo að menn eru nú fúsari
en fyrr til að ræða í alvöru um
efni, sem talin voru fjarstæða
fyrir fáum árum. Á einu sviði initn
ný tækni koma yfir okkur nú
innan 1—2ja ára, hvort sem okkttr
líkar betur eða verr.
Upp er að hefjast nýtt tímabil
í fiugsögu mannsins, tími þot-
anna. Hinar miklu farþega- og
vöruflutningaþotur, sem nú em
í smíðum í mörgnm Iöndum,
liefja flutninga á næsta ári og
síðan mun sókn þeirra halda á-
fram, unz þotan verður að kalla
einráð á hinitm lengri leiðttm.
Nú er talið að flugvellir í mörg
um löndum sóu alóviðbúnir að
mæta þeim stórkostlega auknu
loftflutningum, sem þotan mun
valda. Þeir hafi ekki húsakost til
að taka á móti mannafla og varn-
ingi, ekki þá þjónustu, sem kreíj-
ast verður. Þetta er þegar urnræðu
efni í háþróuðum iiðnaöarlönd-
um eins og Bandaríkjunum.
A$sta<Sa íslands á
þotutímum
Um það er ekki að villast, að
það er nauðsynlegt fyrir fslend-
inga að taka þessi mál til umræðit.
ísland verður e.t.v. aldrei þýðingar
meiri millilendingarstöð en ein-
mitt á tímum hinnar stóru þotu,
sem mun gjarnan vilja auka
burðarþol sitt í Atlantsferðum
með því að eiga kost á eldsneyti
hér. Og með þeim koma þúsundir
ferðamanna, margfaldur sá hópur,
sem hefur nú viðdvöl. Við erum
ófærir að taka á móti því fólkt,
sem kemur hingað nú í dag, og
flugvellir okkar eru enn eins og
herflugvellir stríðsáranna, að því
er varðar aðstöðu fyrir farþega.;
Bjartsýn og framtakssöm stefna á j
þessu sviði gefur sýn til mikilla!
möguleika, sem unnt er að hag-'
nýta til gagns fyrir alla þjóðina.
En þá er að hyggja að því að
við „missum ekki af strætisvagn-
inum“. Aðrar þjóðir halda ekki
að sér höndum. Endursköpun að-
stöðu á flugvöllunum, einkum á
millilandaflugvellinum við Kefla-
vík, er eitt hinna stóru fram-
kvæmdamála framtíðarinnar, sem
tímabært er að hefja úmræður
um. Áætlanir hinna stóru flug-
félaga um framtíðarleiðir yfir At-
lantshafið eru nú að fæðast. Ef
hægt væri að fella inn í þær áætl-
anir áætlun okkar' um fullkomna
aðstöðu fvrir farþega- og flug-
flutning, eldsneytisgeymslur, —
transitflughöfn með nýtízku bún-
aði að öllu leyti, mundi það hafa
mikla þýðingu. Slík aðstaða gæti
jafngilt stórri verksmiðju eða ötl-
ugum fiskiflota fyrir þjóðarbúskap
inn i heild. Það er því ekki hörg-
ull af verkefnum að vinna að. Þau
eru alls staðar. Og það þykir þeim,
sem þéttbýlustu löndin byggja, eitt
hið mesta öfundarefni, er þeir
ræða við okkur hér úti á íslandi.
Hér er olnbogarúm, bæði í bók-
staflegum og óeiginlegum skiln-
ingi. Gera menn scr ljóst, hve
dýrmætt það er?
Ungum mönnum
sagt ósatt
Urn þessi efni er gott að rreöa
við unga menn. Það er auðvelt að
vekja hugarflug þeirra, örva bjart
sýni og trú á landið. Auðvitað
ekki til þess að þeiir missi snerting
við veruleikann, heldur til þess
að styrkja þá í baráttunni við dag-
leg verkefni. í þessari viku hefur
verið á dagskrá hér, ráðstefna,
sem foringjar Sjálfstæðisflokksins
efndu til fyrir unga bændur. Kom
til fundarins nokkrir tugir ungra
manna og gerðu hór ólyktanir um
landbúnaðarmál. Þegar þ.etta fyrir
tæki er skoðað nánar, þykir mönn
um það undarlegt. Af frásögn Mbl.
að ráða, hafa þessir ungu bændur
aðallega umgengist Ólaf Thors og
Gunnar Thoroddsen á þessari ráo-
stefnu, en ekki t.d. þingmenn
Sjálfstæðisflokksins, sem eru bænd
ur. Þeirra var hvergi getið. Mhl.
hefir líka sagt frá því, hvað Ólaf-
ur Thors bar á borð fyrir þetta
ttnga fólk. Er það skemmst af að
segja, að flokksformaðurinn, hélt
tvær ræður yfir þeim og sagði
þeim ósatt um flesta hluti. Mest
áberandi var þetta: Sjálfstæðis-
flókkurinn stjórnaði landbúitaðar-
máium 1944—1947 og markaði þá
stefnu, er þá var fylgt. Þar bar
hæst búnaðarráð og búnaðarmála
sjóðsstjórnina-, og fjandskápurinn
við Stéttarsamband bænda.
En um þetta tíniabil ræddi
flokksformaðurinn alls ekki. —
Hann nefndi ekki búnaðarráð í
„sögulegu'* yfirliti, og hann gat
ekki um viðhorf flokksins til
Stéttarsambandsins á þessari tíð.
Hinsvegar hóf hann að þyrla upp
ýmis máleíui, sem framkvæmd
hafa verið síðau Framsóknarfl.
tók við stjórn landbúnaðarmála
og byrjaði með því að helga sér
ræktunarsjóðslögin nýju, scm
Bjarni heítinn Ásgeirsson vat.u
manna mest að.
Að þessum lestri loknum hóf
flokksformaðurinn að flytja alveg.
furðulegan samsetning, þar sem
ráherrar i núverandi ríkisstjórn
voru bornir þyngstu sökum, kall*
aðir svikarar og annað fram eftir
götunum. Maðurinn belgdi sig út
og barði sér á brjóst og hrópaði
um svik annarra manna, en lét
sem hann væri táknmynd heiðár-
leikans!
RætSuhöld í poka
Ekki er ósennilegt, að einhýerj-
ir af áheyrendum hafi j húgarsýn
séð etðrofsmálið renna tipp á bak
við flokksformanninn meðan á
ræðu þessari stóð. Hefir það vænt
anlega gcfið þ.eim tækifæri til að
hugieiða, hvers konar fígura yar
í pontunni. En fundur þessi, sem
hefði væntanlega getað orðið gagti
legur, varð a ðlokum til vansæmd
ar fyrir þessa dæmalausu fram-
komu. Tilgangur flokksstjórnar-
(Framhald á 8. síðu.)