Tíminn - 15.12.1957, Síða 10
1°
T f M I N N, sunnudaginn 15. desember 1957.
Bækur og höfundar
Minningarbók Magnúsar Friðriks-
sonar frá Staðarfelli
Minningarbók Magnúsar Frið-
rikssonar, Staðarfelli, Hlað-
búð.
Það hefir verið mjög í tízku á
undanförnum árum, að menn rit-
uðu æviminnmgar sínar. Hefir
talsvert komið út af slíkum bók-
um. Eru þær misjafnar fyrir marg-
ár sakir. Enda eðlilegt, bæði sök-
um þess, að menn eru misjafnlegia
ritfærir, og hitt að menn hafa lif-
að misjafnlega viðburðaríka ævi.
Bændastéttin á nokkra fulltrúa á
þessu sviði, er hafa ritað ævisögu.
Eru þær flestar vel skrifaðar og
iiínihalda mikinn fróðleik snert-
'andi sögu byggðarinnar, þar sem
höfundurinn starfaði. Minningar-
bók Magnúsar á Staðarfelli er
bændasaga, innihaldandi mikinn
kjörvið til ritunar sögu héraðsins,
þar sem hann lifði og starfaði.
Minningarbók Magnúsar á Stað-
arfelli er raunverulega meira en
ævisaga. Hún er aldarfarslýsing
heils héraðs. Hann virðist hafa
sett sér það að marki með þess-
afi ritun að lýsa sem bezt öllu
er snerti búnaðarhætti og breyt-
ingar þær, sem urðu um hans
dága er þá snerti. Honum tekst
þétta mjög vel. Hann lýsir mjög
vel hvernig líf og störf bændanna
í Dölum breyttist um hans daga.
Erásögn hans er látlaus og stíl-
hrein. Honum tekst afbragðsvel að
færa í stilinn, það sem hann þarf
lað segja og ætlar að komi fram,
áp þess að vera með neina óþarfa
tnælgi. Hann siglir óvenjulega rétt
framhjá því skeri, að lenda um
of í bollaleggingum um aukaatriði.
í»að kemur allsstaðar fram í allri
frásögn hans, að það er bóndi með
bóndaskap, er ritar. Hógværð
bóndans leynir sér hvergi. Rétt-
sýni hans og glöggskyggni í mál-
um og á málefnum. Þetta er höfuð-
ikostur og er hann mikill.
Minningar Magnúsar á Staðar-
felli eru mótaðar af hinni rót-
grónu sveitamenningu, er hafði að
leiðarsteini þjóðlegar erfðir byggð-
ar á reynslu undangenginna kyn-
slóða. Það var það, sem var nýti-
legt og hagrænt sem varð undir-
staðan að því sem fróðleikur fólks-
ins varð. Því varð til alþýðleg veð-
urfræði. Bóndinn varð að vera
veðurglöggur, skyggn á allt er
laut að veðri. Bók Magnúsar ber
þessa vitni. Veðurfarslýsingar
hans eru glöggar og er gaman að
lesa þær.
Magnús fór ungur í Ólafsdal til
Torfa. Vera hans þar hefir eflaust
ráðið mestu um lífsstefnu hans. Sú
stefna varð góð og dugur hans og
þróttur varð nægur til þess, að
hann varð með fremstu bændum
samtíðar sinnar í héraðinu. Hann
byrjaði eins og fleiri íslenzkir
bændur með tvær hendur tómar.
En með dugnaði og ráðdeild tókst
honum að verða bæði framfara og
framkvæmdar bóndi. Lýsing Magn
úsar á fyrstu búskaparárunum
hans í Arnarbæli er mjög skýr og
skemmtileg. Hann bregður. þar
upp skýrri mynd af þeim örðug-
leikum, sem frumbýlingur átti við
glíma, sem byrjaði með tvær hend-
ur tómar. En Magnús var ákveð-
inn í því að sigra. Hann óttaðist
ekki þótt menn spáðu honum ekki
góðu að búa á þessari jörð vegna
álaga, ■ er hvildu á henni. Hann
bauð þeim byrginn. Hann trúði á
það, að gæfa sín yrði yfirsterkari
gömlum álögum. Og hans varð sig-
urinn.
Lýsingar hans á búskapi sínum
á Staðarfelli, hinu forna og mikla
breiðfirzka höfuðbóli, inniheldur
líka mikinn kjörvið til héraðssögu
byggðar hans. Baráttusaga hans
sögð af honum sjálfum við óblíð
yfirvöld, banka og erfiða emb-
ættismenn er skilríklega sögð.
Hann var ekki að hika þótt þeir
stóru væru á móti honum. Hann
hélt öruggur fram veginn. Sótti
hærra og til sigurs. Þetta á að vera
aðalsmerki íslenzkra bænda. Slíkt
er arfur þeirra frá forfeðrum
þeirra, er fyrstir numu þetta land.
Slíkan arf á bændastéttin að varð-
Magnús FriSriksson
veita á Iíkan hátt og Staðarfells-
bóndinn gerði.
j í Minningarbók Magnúsar á Stað
arfelli er talsvert af minningum
frá fyrri tímum, sem snerta bein-
línis aldarfarslýsingar og eru
1 snjallar í gerð sinni allri. Má þar
til nefna kaflana: Sveitarstörfin,
Förumenn og Sjóróðrar. Allir
þessir kaflar eru skilmerkilega
Isagðir og hinir skemmtilegustu af-
lestrar.
I Magnús lýsir verzlunarmálum
Dalamanna og uppbyggingu félags-
i verzlunar þar í sveitum. Er lýs-
ing hans á þessum málum mjög
fróðleg. Tel ég alveg víst, að hann
skýri hér rétt og skilmerkilega frá
þessum málum, enda var hann
sjálfur þátttakandi. Erfiðleikarnir
sem brautryðjendurnir í Dölum í
verzlunarmálunum urðu við að
glíma eru að vísu líkir þeim sömu
og annarsstaðar, en þó með nokkr-
um hætti frábrugðnir. Er því mik-
| ill lærdómur þeim í frásögn Magn-
'úsar bónda, sem sækja fram til
aukinnar félagshyggju og félags-
lyndis.
I Mágnús lýsir vel framförunum í
héraði sínu. Hefir hann sérstak-
lega næmi fyrir því að skýra frá
þessum málum, þannig að hægt er
að draga af frásögn hans ályktanir
um menningu í þessum efnum í
héraði hans. Sá er þetta ritar vill
geta þess Dalamönnum til hróss,
að ég bjóst ekki við að þeir hefðu
verið á undan Sunnlendingum í
neinu, en eftir lestur bókar Magn-
,úsar er ég gagnstæðrar skoðunar.
| Magnús á Staðarfelli gaf jörð
sína ríkinu til minningar um son
sinn, er drukknaði með sviplegum
hætti við bústörf á Staðarfelli.
Þessi gjöf hans mun lengi halda
nafni hans á lofti, sem mennta-
frömuðar og framfaramanns.
Hann tengdi þessa gjöf sína við
sjóð, er áður hafði verið stofnað-
ur til þess, að kvennaskóla yrði
komið á stofn við Breiðafjörð. Gaf
jörðina með því skilyrði að kvenna-
skólinn yrði stofnaður þar.
Ég hef Iengi verið þeirrar skoð-
unar, að breiðfirzk héruð væru
einna ríkust af sögum og sögnum
héraða á landinu. Þetta hefir ver-
i ið frá upphafi þjóðarsögunnar.
Þessi skoðun mín hefir styrkzt við
lestur Minningarbókar Staðarfells-
bóndans. Ég veit, að ég á eftir
á komandi árum að lesa margar
fleiri sögur úr breiðfirzkum byggð
um og þar er von mín öll, að þær
verði í anda þessarar og að allri
gerð líkar henni.
Gestur Magnússon, dóttursonur
Magnúsar á Staðarfelli, hefir búið
bókina undir prentun og tekizt
það með prýði. Bókin er að öllu
leyti vel gerð, hvort heldur litið
er á prentun eða frágang allan.
Myndir eru margar og eru þær
vel prentaðar.
Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrv.
sýslumaður Dalamanna, skrifar inn
gang. Er hann hinn skilmerkileg-
asti og að honum mikil bókarbót.
Hlaðbúð hefir gefið út Minning-
arbókina. Hún hefir annazt útgáf-
una af miklum myndarbrag. Er
bókin vel gerð og hin vandaðasta
að öllum frágangi frá hendi útgef-
anda.
ijiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiinimp
í Suður-Ameríku er stærsta ókartnaða
svæði jarðarinnar, þar sem menn búa.
Þar er heimkynni furðudýra af mörgu
tagi, og bókin „í furðuveröid" birtir ýmsar frásagnir af þeim, enda hafði enginn eins
náin kynni af furðuveröld Suður-Ameríku og höfundurinn — P. H. Fawcett.
= Fawcett hvarf fyrir um það bil 30 árum og =§
margir álíta, að hann muni vera enn á lífi. FerdabÓkaÚtgáfan |j
liiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiil
miiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmimmmmmmimmmmmmmiimmiimmmmimmmmmmmmimmimmmiim
| Arnesingar!
| Nýkomið fjölbreytt
| úrval af skóm
| DRENGJA- og TELPULAKKSKÓR, a!!ar stærðir.
| KVEN- og KARLMANNASKÓR.
i FLÓKAINNISKÓR. Margar gerðir, á aila fjöl-
j§ skylduna.
E Einnig fjölbreytt úrval af herra CREPE og SPUN
I NÆLONSOKKUM.
ÖIL
Selfossi * S'
Verzlunin
uód
Sínti 117
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiii
Ég ráðlegg öllum, sem hafa yndi
af íslenzku sveitalífi og sveita-
störfum að lesa þessa bók. í henni
eru margar frásagnir og lýsingar,
sem gaman er að kynnast og fróð-
leikur mikill. Og ég er viss, að
enginn verður leiður meðan hann
les bók Magnúsar bónda á Staðar-
felli. Hún sameinar það, sem góð
bók á að gera, að vera bæði
skemmtileg og fróðleg.
Jón Gíslason
Orator
(Framh. af 6. síðu.)
vinnur eingöngu að hagsmunamál
um laganema í heild.
— Hvað eru laganemair margir?
— Tæplega 130. Allir eru þeir
eo ipso félagar í Orator. Námið
tekur 4—6 ár og skiptfet í 3 hluta.
Prófessorar em 4. Námsáhugi er
yfirleitt mi'kili í deildinni. Nýlega
var haldið námskeið í skattarétti
og skattaskilum og komust færri
að en vildu til að hlýða á það. En
það er kannski dálítið sérstakt
umræðuefni.
Hverjir skipa stjórn Orators
nú?
— Magnús Thoroddsen formað-
ur, ritstjóri Úlfljóts, og varafor-
maður Jónas Aðalsteinsson, með-
stjórnendur Gunnar Háfsteinsson.
gjaldkeri Bragi Björnsson, Gauk-
ur Jörundsson ritari. —jj.
Bækur og höfundar
(Framhald af 7. síðu).
rétti, og öá veik héðan alfarinn
af landi burt, er bæði yfirvaldinu
og öllum góðum mönnum þótti
óþarfastur“.
Hér nmn átt við fisieif seka
frá Breiðavaði.
En þessi litla athugasemd hagg
ar hvergi þeirri staðreynd, að
Menkir íslendingar er rni'kil bók,
notaleg til igripalesturs og stór-
fróðleg.
Jón Eyþörsson.
- Auglýsmgasími TÍMANS er 19523 -