Tíminn - 20.12.1957, Qupperneq 3
3
T í M I N N, föstudaginn 20. desember 1957.
Láriis á Klaustri
Æ\\ hans og störf
Höfundur bókarinnar er Þórarinn Helgason, bóndi í Þykkvabæ í Land-
broti. — Er hér brugðiti upp margvíslegum myndum úr ævi þessa skaft-
fellska bændahöfíingja, sem kom vií flest framfaramál sýslu sinnar um
sína daga og sat á alþingi um nokkur ár. — 160 myndir eru í bókinni.
Bak við fjöllin
Hinn víðförli listamaður, GuÖmundur Einarsson frá Miðdal, birtir hér 16
ferðaþætti og frásagnir. Eru það minningar frá æskuárum og ferðalög-
um ura Lappland, Finnland og AlpafjöII. StíII Guðmundar er myndríkur,
skýr og fjörlegur. — Margar teikningar eftir höfundinn prýða bókina.
eftir Eyjólf Guðmundsson á Hvoli
Ný bók frá hendi þessa rithöfundar úr bændastétt hlýtur að vekja at-
hygli allra þeirra, sem lesið hafa bækur hans. I þessari bók er sagt frá
fjórum mönnum, er mjög komu við sögu Vestur-Skaftfellinga um langt
árabil. Höíundur var kunnur fyrir kjarnmikið skaftfellskt málfar og létt-
íeika í frásögn. Margar myndir prýÖa þessa bók.
Bókaútgáfa Guðjóns Ó.