Tíminn - 10.06.1958, Síða 6

Tíminn - 10.06.1958, Síða 6
6 T í MI N N, '/fiðjudaginn 10. júní 1958 Útgefandi : FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson. Skrifstofur f Edduhúsinu við Llndargötn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (ritstjórn og blaðamenn) Auglýsingasími 19 523. Afgreiðslan 12323 Prentsmiðjan Edda hf. ótti Sjálfstæðisflokksins við fortsð sína í landbúnaðarmálum ÞÓTT forkólfar Sjálf- stæðisflokksins kveinki sér oft illilega, þegar fortíðin er rifjuð upp, bera þeir sig þó verst, þegar rifjuð er upp stjórn þeirra á landbúnaðar armáaunum á árunum 1944 —46. Þeir vita, að saga þeirra frá þessum eina tíma, sem þeir hafa haft stjórn landbúnaðarmálanna með höndum, vitnar svo sterk- lega gegn þeim, að hún þarf að gleymast, ef þeim á að heppnast smjaðrið fyrir bændastéttinni, er þeir á- stunda af svo miklu kappi um þessar mundir. Óttinn við þessa fortíð Sj álfstæðisf lokksins, hef ir komið mjög greinilega fram í Mbl. eftir eldhiisdagsum- ræðurnar. Þótt Sjálfstæðis- flokkurinn fengi þar mjög grááega útreið vegna stefnu- leysis hans í efnahagsmál- unum, svíður Mbl. bersýni- lega enn meira undan þeirri hirtingu, sem Eysteinn Jóns son veitti Jóni Pálmasyni með því að benda á með hóg væriítn orðum, hvernig stjórn landbúnaðarmálanna hefði verið á árunum 1944— 46, þegar Jón Pálmason réði mestu um landbúnaðarmála stefnuna. Mbl. hefir síðan verið með nær daglegt hnútu kast í Eystein Jónsson út af iþessu. Að sjálfsögðu hnekkir það ekki neitt áliti E. J., heldur áréttar aðeins enn betur, hve illa blaðinu er við það, að þessi fortíð Sjálfstæðisflokksins skuli rifjuð upp. ÞESSI ótti er vissulega skiljanlegur, þegar rifjað er upp, hvernig búið var að landbúnaðinum á þessum tíma. Sjóðir landbúnaðarins voru sveltir, þótt f j árráð hafi aldrei verið tiltölulega betri í landinu. Útlán Ræktunar- sjóðs námu árin 1945 og 1946 324 þús. kr. samanl., en útlán Byggingarsjóðs námu bæði árin 550 þ. kr. samanlagt. Vélainnflutningur til land- búnaðarins var sáralítill, þó gjaldeyriseyðsla hafi aldrei verið hlutfallslega meiri en á þessum árum. Svona ger- samlega var landbúnaður- inn hafður útundan á þess- um árum við skiptingu fjár- magnsins. Síðan um alda- mót er 'ekki unnt að benda á önnur tvö ár, sem land- búnaðurinn hefir verið meira útundan við skiptingu fjár- magnsins en árin 1945 og 1946. ÞETTA var þó ekki öll sagan. Öll helztu framfara- mál bændastéttarinnar voru svæfð eða eyðilögð á Alþingi. Tiliögum bændasamtakanna um nauðsynlega hækkun jarðræktarstyrksins var stungið undir stól. Forsvars- maður Sjálfstæðisflokksins í efri deild sagði að þágildandi jarðræktarlög væru alveg fullnægjandi. Áburðarverk- smiðj umálið, sem Vilhjálmur Þór • hafði látið undirbúa, var einnig svæft, með þeim afleiðingum að það kostaði mörgum tugum millj. kr. meira seinna að byggja Áburð arverksmiðjuna og verða bændur að sjálfsögðu að greiöa það í hækkuðu verði. Öllum tillögum, sem komu fram á Alþingi, og miðuðu að því að tryggja rafvæðingu dreifbýlisins, var einnig vandlega stungið undir stól. VERSTA verkið af þessu öllu, var þó án efa setning búnaðarráðslaganna. Með þeim var bændastéttin sett skör neðar en allar aðrar stéttir í landinu, þar sem allt vald í verðlagismjálum hennar var tekið af henni og sett í hendur stjórnskip aðrar nefndar. Svo langt var hér lika gengið, að fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokks ins greiddu atkvæði gegn þessari löggjöf eða þeir Gísli Sveinsson, Jón Sigurðs son, Pétur Ottesen og Þor- steinn Þorsteinsson, en Ing- ólfur Jónsson þorði ekki ann að en að sitja hjá. í samræmi við þetta voru svo sett lög, er tóku fjárráð af bændasamtökunum. Til- gangurinn var sá að koma þannig í veg fyrir, að Stétt- arsamband bænda gæti ris- ið á legg. Það var ekki að undra, þótt fólksflutningar úr sveit um væru með allra mesta móti á þessum árum. Hefðu slikum fólksflutningum hald ið áfram, væri sveitunum nú alveg blætt út. TIL þess kom þó ekki, því aö við stjórnarskiptin í árs- byrjun 1947 létu Sjálfstæð- ismenn af stjórn landbúnaö armálanna og Framsóknar- flokkurinn fékk hana aftur og hefir farið með hana síð an. Undir forustu þeirra hafa orðiö miklar framfarir í landbúnaðinum seinustu 10 árin. En þeir bændur, sem muna eftir stjórn landbún- aðarmálanna á árunum 1944 —46, munu áreiðanlega einskis síður óska en að Jón Pálmason og sálufélagar hans í Sjálfstæðisflokknum fái aftur stjórn landbúnaðar málanna í sínar hendur, en það eru þeir, sem ráða land búnaðarstefnu Sjálfstæðis- flokksins, a. m. k. þegar á- hrifa Framsóknarflokksins nýtur ekki í ríkisstjórn. Það sýndi reynslan á árunum 1944—46. Þessvegna er Mbl. lí|ka svona illa við, að sú saga sé rifjuð upp. Sá ótti er vissu- lega ekki ástæðulaus. Er framtíð mannkynsins í hættu vegna óhóflegrar fólksfjölgunar? Offjölgun er eitt alvarlegasta vandamál mannkyns atJ áliti sérfrætSinga fbúafjöidi jarðarinnar vex svo ört, að margir vísinda- menn telia það nú með stærri áhyggjuefnum mann- kyns. Sumir telja jafnvel fólksfjölgunina enn ískyggi- legri ógnun en sjálfa atóm- sprengjuna. Það er sem sagt mál til komið að mannkynið taki í alvöru að leita sér fót- festu á öðrum hnöttum! Frá miðju ári 1956 til jafn- lengdar 1957 fjölgaði íbúum jarð- arinnar um 47 milljónir upp í 2.737.000.000, en það samsvarar árlegri fjólksfjölguþ er nemur 1.6%. Flestar fæðingar umfram dauðsföll eru í Suður-Ameríku 2.5%, fæstar í Vesturevrópu 0,6%. 5000 fæðingar á hverjum klukkutíma Á hverjum klukkutíma fjölgar íbúum jarðarinnar um 5000 manns, og með sama áframhaldi mun mannkynið hafa tvöfaldazt árið 2000. Fæðingartalan er nú um. Á árunum 1940—1957 hefir hin eðliiega fólksfjöigun í Dan- mörku aukizt úr 7.9 í 8.6, í Noregi úr 5.3 í 10.4, Svíþjóð úr 3,7 í 5.4, Bretlandi úr 0,2 í 3.7, í Kanada úr 11.7 í 0,2, og í Bandaríkjunum úr 7.2 í 15.3. Hættuleg þióun Fólksfjölgunin fer svo ört vax- andi að ómögulegt er að fram- leiðsla lífsnauðsynja geti fylgzt með til lengdar. Þetta er helzta hættan samfara fólksfjölguninni og fyrr eða síöar hlýtur hún að koma á dagskrá i fullri alvöru þótt hugsanlegt sé að vísindamönnum takizt að gera á því lengri eða skemmri frest. Sérfræðingar bera einnig ugg í brjósti vegna hráefnaauðlinda jarðarinnar. Það er fyrirsjáan- legt að öll olía verður eydd upp til agna áður en mjög langt um líður, sömuleiðis járn, og einnig kolin eftir svo sem tvö þúsund ár. Og þótt menn reyni að vona að kjarnorkan komi í stað hinna gömlu orkulinda er sú von enn of óviss til að nokkuð verði byggt á henni með vissu. Verður aðeins fermetri á hvert mannsbarn innan nokkur hundruð ára? Hnötturinn — fullur af fólki í framtíðinni. Takmörkun barneigna Ýimsir áhrifamiklir vísinda- menn víða u'm heim álita að eina ráðið sem komið geti í veg fyrir þær ófarir sem óhjákvæmilega hlytu að fj'lgja slíkri fólksfjölgun sé skipuleg takmörkun barn- eigna um allan heim. Setja má framhaldandi þróun upp í einfalt dæmi sem gefur þrjá möguleika til útboimu: 1. Fólksfjölgun verður svo mikil á jörðinni að allt líf þar verður ó- mögulegt. 2. Tekin verður upp einhvers konar skipuleg takmörk un barneigna. 3. Fólksfjölgun á jörðinni verður hér eftir sem hingað til haldið í skefjum af styrj öldum, farsóttum og öðrum ógæf- um sem verða þúsundum eða milljónum manna að bana. — Og meg þessu móti verður niðurstað an sú að takmörkun barneigna sé eina ráðið til að varðveita jörðina friðsc/.'nu og hamingju- sömu mannkyni. Ef mannkvni heldur áfram að fjölga jafrrört og nú á dögum verður öll jörðin orðin álíka þétt býl og stórborgir nútímans eftir ein 400 ár. TYeimur þremur öld- um síðar mun írver einsttakur maður aðeins hafa einn einasta fermetra að lifa á, og þar eftir verður frekara mannlíf óhugsandi á jörðinni. (Framhald á 8. síðu) 34 aí þúsundi, en dánartalan 18 " af þúsundi. Þessi mikli munur | er tiltölulega nýtt fyrirbrigði, og 1 er afleiðing af hinum miklu fram förum síðustu áratuga í lækna- vísindum og almennum heilbrigð ismálum. Þessar upplýsingar eru byggð- ar á útreikningum sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna er um þessi mál hafa fjallað, en niðurstöður þeirra hafa nýlega verið birtar. Þar segir einnig að fólksfjölgunin sé örust í Suðurameríku og því næst í Indlandi og Alfiríku. í Bandaríkjunum og Sovétrússlandi er fólksfjölgun álíka rnikil, eða um 1.7% árlega. í Asíu býr meira en helmingur mannkyns og þar er fólksfjölgunin einnig rnest, eða 24 milljónir á ári, og þess utan er ekki nóg með að mannkyni fjölgi heldur flyzt það einnig til á hnettinum þar sem fólksfjölgunin er miklu mest í austurlöndum. Hærri meðalaldur Fyrir utan fólksfjölgunina er þess ag geta ag líf manna lengist nú um allan heim. í Bandarlkj unum hefir meðalaldurina þann ig hækkað um þrjú ár síðasta áratuginn og í Chile um heil tólf ár. Holland hefir hæstan meðal- aldur, eða 71 ár fyrir karla, 74 ár fyrir konur, en Indland lægst- an, 32 ár meðal beggja kynjanna. Bifreiðaslys eru nú sem stend ur ein algengasta dánarorsök karla undir 45 ára aldri, og þar hefir Luxembourg metið með 23.5 dauðsföll á hverja 1000 íbúa. Milli 45 og 64 ára aldurs er krabha- mein algengasta dánarorsökin bæði með körlum og konum í öll- um þeim löndum þar sem skýrslur eru haldnar um þessi efni. Til dæmis um fólksfjölgunina má nefna tölur frá nokkrum lönd Frá Sambandi íslenzkra brunafryggjenda Varúðarreghir til að hindra íkviknun út frá rafmagni Hinir tíðu og miklu brunar út frá rafmagni gefa tilefni til sérstakrar íhugunar. I flestum húsum er íkviknunarhætt- an frá rafmagni fyrir hendi, — einnig í steinhúsum, því að í þeim flestum liggja rafleiðslur einhvers staðar að eld- næmum efnum. íkviknunin verður oftast þannig,1 að bilun, rýrnun eða fúi einangr- unar rafleiðslna orsakar útleiðslu rafstraums. Eftir aðstæðum getur útleiðslan ýmist verið hæg og leitt til vaxandi upphitunar ákveðinna hluta án þess að vart vcrði fyrst í stað eða að útleiðslan orsakar neistun, sem leiðir til íkviknunar þegar í stað, ef eldnæm efni eru nálægt. j Það hefir sýnt sig, að hættan á einangrunarskemmdum raflagna er langmest í húsum, þar sem meiri eða minni raki kemst að leiðslun- um. Sem dæmi má nefna frystihús, sláturhús, fiskgeymslu- og fiskað- gerðarhús svo og öll hús, þar sem hitaeinangrun er eitthvað gölluð. j Að sjálfsögðu er einnig sérstök á- stæða til að gefa rafkerfinu gaum í öllum timburhúsum, þar sem ekk ert má út af bera með það, því þá er eldsvoðahættan strax fyrir I hendi. 1) Að fylgjst vel með sliti og bilunum á einangrun lausra raf- snúra, — ekki sízt til endanna, því þar snýst einangrunin venjulega fyrst í sundur. Einnig, að tenging snúranna vTð klær annars vegar og Iampa eða raftæki hins vegar sé föst og örugg. — Bindið aldrei hnúta á rafsnúrur og hengið þær ekki upp á nagla, heldur festið méð til þess gerðum kleinmum. — 2) Að fylgjast með, að tenging- ar loft- og veggíjósa séu fastar og einangrun þráðanna óslitin. Sér- lega varasamar eru tengingar ljósa- króna, sem geta dinglað til, því einangruninni er þá hætt við að núast sundur. 3) Látið rafvirkja mæla einangr- un rafkerfis hússins (íbúðarimiar) t. d. á 2.—3. ára fresti, og leitið ráða lijá honum, hvort þörf sé á endurnýjiin feiðslanna. — 4) Um „öryggi“ eða vartappa vcrður rætt á morgun. —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.