Tíminn - 23.08.1958, Page 9
TÍMINN, laugardagiim 23. ágíist 1958.
!!e
i i! = i = 11 § | i 111! 1111111 | i »3* Frank: e i = 11 i
1111 Herra Adam llllll
21. dagu
Næsta morgun fór ég inn
til Homers og kom að liönum
þar sem hann var að klæða
sig'.
— Hvert ætlarðu? spurði
ég'.
— Eg ætla að fylgja Kötu
til flugvallarins. Hún fer með
flugvélinni til Los Angeles.
. — Mér finnst það óskyn-
samlegt, Homer, sagði ég. —
Hvers vegna viltu draga skiln
aðinn á langinn? Þú gerir þér
bara erfiðara fyrir. Þú hefur
tekið ákvörðun; og haltu fast
við hana.
Homer settist á rúmið og
berir skankarnir náðu lionum
nærri upp að höku. Hann
studdi höndunum undir höf-
uðið og sagði: — Mig langaði
einungis til að sjá hana einu
sinni enn. Bara í þetta eina
skipti.
Mig langaði mest til aö
segja, að mér væri fjandans
sama, fylgja honum til flug-
vélarinnar ,og koma honum
þar fyrir ,er mér kom Maja
í hug, og áhugi hennar á þvi
að vel tækist. Auk þess minnt
ist ég þess, hve áhyggjufullar
allar konur voru og hvílíkri
ringulreið það mundi valda
alls staðar í heiminum, ef
Homer styngi af með „kveikj -
unni“. Eg sagði þvi: — Þaö
myndi vera óheppilegt, Hom-
er. Eg hef einmitt komið þvi
til leiðar, að Mary Ellen komi
til Washington og verði hjá
þér a.m.k. þar til GF hefst.
Skilurðu hváð ég' á við? I
— Ja-á, sagði hann. — Eg
skil. ,
— Viltu ekki að Mary Ellen j
sé hjá þér?
— Auðvitað vil ég það, en
ég er alveg utan við mig.
— Það er nú engin furða.
Menn eru utan við sig eins
og gengur og gerist. Þú héfur
nú reynt sitt af hverju á
stuttum tíma.
Homer stundi.
— Er ekki óráðlegt, áð þú
hittir Kötu um hádegið, þar
sem þú átt að taka á m'óti
Mary Ellen í kvöld?
— Það er trúlegt, en ég
lofaði Kötu —
Mér var innanbrjósts eins
og glæpamanni, er ég lagði
hendina á öxl hans og sagði:
— Kærðu þig fcollöttan um
það. Eg skal fara út á flug-
völl, kveðja hana og skýra
henni frá, hvernig i pottinn
er búið. Eg ber ábyrgðina.
— vEt'iarðu að ivera svo
vænn? spurði Homer þakk-
íátur. — Þakka þér fyrir,
Steve.
Hann hikaði andartak, en
spurði síðan: — Steve, hvaö
á ég að segja við Mary Ellen?
— Segja við hana? Ekkert!
Ekki orð! Ekki minnstu vís-
bendingu!
— Þáð er iiú ekki heiðar-
Iegt.
— Homer, ef þaö er nokkuð,
sem kona vill sízt heyra um
slíkt, þá er það sannleikur-
inn. Þér er óhætt að trúa
mér. Neitaðu öllu, ef nokkuð
kvisast um þetta. Eg skipa
þér það.
— En —
— Homer, það er ekkert en.
Ef þig langar til að lifa í
eymd og volæði, skaltu bara
játa. En meðan þú ert'giftur
Mary Ellen, og útlit er fyrir
að hjónabandið vari, skaltu
steinhalda þér saman!
Hann horfði á mig skelfd-
ur og forviða eins og skáta-
drengur, sem heyrir foringja
sinn bölva, en kinkaði kolli
samt til merkis um, að hann
hefði skilið mig. Eg gat samt
ekki bægt frá.mér illum grun
semdum, er ég fagði af stað til
flugvallarins.
Það var töluverð gola á flug
vellinum, en samt hlýtt í
veöri. „Kveikjan" bar pelsinn
sinn á hándleggnum, og vind-
urinn sveipaði dragtinni þétt
að líkama hennar, svo að fag-
urt vaxtarlagiö sást.
— Halló, Steve, sagði hún
og brosti að aðdáuninni í aug
um mínúm. _ Hvar er Hom-
er?
— Þú sérð ekki meira af
honum', sagði ég. — Konan
hans kemur hingað rakleitt
frá Ne\v York. .
—Hefur hann sagt þér um
okkur?
■ J a.
— Allt? -'
— J a.
Hún brosti ekki lengur. Það
stríkkaði á munnvikjunum og
augu hennar, björt, gulbrún
augu, urðu festuleg. — Steve,
manstu, þegar'ég var ung
stélpa og dans.aði í nætur-
klúbbnum? spuröi hún.
— Já, auðvitað.
— Þú hefur liklega haldið,
að ég væri hálfgert flón, en
allir unglingar éru dálítið ó-
stýriiátir ,ef þeir koma í
fyrsta sinn til New York. Eg
er komin af því skeiðinu. —
Þetta er ekki b.ai'a heimsku-
legt ástarævintýri.
— Annáð getur það ekki
verið, sagði ég. — Það eru
vissir hlutir, sem þú hefur
gleymt. Það ef eiginkona og
barn ,og það er GF.
— Þið og ykkar fjandans
GF! sagðirhúh. Augnaráð
hennar vár mjög einkenni-
legt. Maður.t sér slíkt augna-
ráð hjá sumum ofstækistrúar
mönnum, óg' maður sá þaö á
myndum af. ng,zistunum, er
þeir hlustuðu á Hitler, og því
bregður fyrir í augunúm á geð
veiku fólki.
Tiíkynnt vaf jí hátalarana,
að flugvélin væfi búin til brott
ferðar. — Góða ferð, Kata,
sagði ég. — Eg fæ ekki betur J
séð en að þettá sé algerlega
vonlaust fyrir þig.
— Einmitt það? Já, reyndu
bara aö vera Þrándur í Götu,
Steve! Þú getui' ekki breytt
rás forlaganna, pé komið í veg
fyrir guös vilja.
Allir á flugvellinum horfðu
á hana, er húp steig upp í
flugvélina. Eg' vissi, hvað
þeim var öllum í hug. Maður
heldur, aö maður viti öll deili
á einhverri manneskju, og svo
kemst maður að raun um, aö
maður hefur ekki hugmynd
um, hvað fram fer í sálarlifi
hennar. Mér var ljóst, að
Kitty Rupp var allt of flókin
kvenvél til aö ég botnaöi upp
né niður í henni.
7. KAFLI.
Mary Ellen kom til Was-
hington daginn eftir. Eg hafði
gleymt því, hve hrífandi hún
var með sitt hilbrigða og
hraustlega útlit. Kannske
hafði Homer gleymt því lika,
því að hann varð mjög glaöur
við komu hennar. Fyrst í stað
fylgdi ég þeim, eins og óvel-
komin kerling, hvert sem þau
fóru, þar sem ég óttaðist, aö
Homer mundi beina athygli
hennar að sér og „kveikjunni“
meö óvarkárnu tali. En það
reyndist óþarft, því hann virt
ist hafa náð sér aö fullu.
Mary Ellen er ein þeirra
fáu kvenna, er ég hef séð,
sem fer vel að hafa gljáandi
nef. Hún var mjög hraustleg
útlits og iðaði af fjöri og lífs-
þrótti. Eg fann til einstæðings
skapar, er ég sá Homer og
Mary Ellen haldast í hendur
og hegða sér eins og þau væru
á brúökaupsferð. Næsta
sunnudagsmorgun fól ég Jane
Zitter ráðsmennskuna hjá
Adam og fór flugleiðis til
New York. Eg róaöi samvizku
með því að telja mér sjálfum
trú um, að ég ætti brýnt er-
indi við Thompson lækni og
Maríu Osterheimer og þyrfti
að gefa skýrslu um framfarir
Homers.
Hugsunin um heimili mitt
og eiginkonu gerði Washing-
ton fjarræna og þokukennda.
Maja var í nýjum kjól, er ég
kom; einum þeirra, sem fá
menn til að vera á varðbergi.
Hún angaði af ilmvatni, og
mér virtist andlitssnyrting
hennar og hárgreiðsla vera •
of fullkomin. — Þú heldur ber
sýnilega að við ætlum út að
skemmta okkur í kvöld, en
það er mesti misskilningur,
sagði ég ásakandi.
Hún kyssti mig lauslega.
— Nei, auðvitað ekki, hjartað
mitt, sagði hún. — Við verðum
heima. María og Tommi koma
til að spila bridge og rabba
saman.
Hún kyssti mig aftur, eins
og hún væri að athuga, hvort
ég hefði neytt áfengis eöa
eitthvað þess háttar.
— Hvað gengur að þér?
spurði ég.
— Er eitthvað við það að
athuga að ég kyssi þig?
— Nei. auðvitað ekki. Eg
er feginn því. Til þess er ég
nú hingað kominn.
— Hefurðu ekki skemmt
þér vel í Washington, yndið |
mitt?
— Skemmt mér! Nei, svo |
sannarlega ekki. Það var nú I
meira umstangið.
— Þú ert allur útataður í I
varalit i framan, sagði hún,
tók vasaklút og nuddaði fram
an úr mér. — Eg hélt, að þú
hefðir haft gaman af því aö
vera meö stelpunni með
þrýstnu brjóstin — hvað heit
ir hún nú — „kveikjan" já.
— „Kveikjan! Hvað er með
mig og „kveikjuna"?
— Ekkert svo sem. Það var
bara mynd af henni og þér
í Journal-American. Fyrir-
sögnin hljóðaöi eitthvað á þá
leið, að myndin væri tekin
í næturklúbb af „kveikjunni“,
hr. Adam og hinum sérstaka
ráðunaut forstjóra ÞEÁ, Step
hen Decatur Smith, fyrrum
9
iiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinm
H ÞiS fáið tvo árganga — 640 bls. — fyrir aðeins 55 kr., §
er þið gerizt áskrifendur að Samtíðinni.
Skemmtileg — Fjölbreytt — Fróðleg — Ódýr
H Lesið kvennaþætti okkar. draumaráðningar og afmælwspádóma. §j
| Tímaritið SAMTÍÐIN (
s flytur kvennaþætti Freyju (tízkunýjungar frá París. London, =
M New York, — BUtterick-tízkumyndir, prjóna-, útsaums- og =
1 heklmynztur), ástasögur, kynjasögur og skopsögur. — Skákþætti j|
1 eftir Guðmund Arnlaugsson, bridgeþætti eftir Árna M. Jón» §
M *on, vinsælustu dans- og dægurlagatextana, verðlaunagetraunir, i
= ævisögur frægra manna, þýddar úrvalsgreinar, viðtöl, vísna- §
Í þætti og bréfaskóla í íslenzku allt árið.
| 10 hefti árlega fyrir aðeins 55 kr„ |
1 og nýir áskrifendur fá seinasta árgang í kaupbæti, eí þedr |
= senda árgjaldið 1958 (55 kr.) í ábyrgðarbréfi eða póstávísun =
p með pöntun. Póstsendið í dag meðfylgjandi pöntun:
| Égundirrit. . .óska aO gerast áskrifandi aB SAMTÍÐ- j
| INNI og sendi hér með árgjaldið fyrir 1958, 55 kr. i
| Nafn
i Heimili
| atanáskrift okkar er: SAMTlÐIN, Pósthólf 472, Rvlk |
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiimmiiiiiiFi
■■■■mmmimnninifflmmmflHiBmimÐmmmimninmniniminimiimminiHH
Tilkynning um
útsvör 1958
Gjalddag útsvara í Reykjavík
árið 1958 er 1. september
Þá fellur í gjalddaga V$ hluti álagÖs út-
svars, aí frádreginni lögboðinni fyrirfram-
greiðslu (helming útsvarsins 1957), sem
skylt var aÖ greiÖa aó fullu eigi síðar en
1. júní síðast liðinn.
Sérreglur gilda um fasta starfsmenn, en |
því aðeins, aí þeir greiíi reglulega af |
kaupi. =
Vanskil greiöslna samkvæmt framanrituÖu |
valda því, að allt útsvarið 1958 fellur í j
eindaga 15. september næst komandi, og j
verftur þá lögtakskræft, ásamt dráttar- |
vöxtum.
Reykjavík, 22. ágúst 1958.
Borgarritarinn
j«amninminnnnnniirniniinnninininnnnnnnniniiiiinniiinniiininnnnnninnnninninninnitu
Tiiboð
s
óskast í nokkrar fólksbifreiðir, er verða til sýnis i
að Skúlatúni 4 mánudaginn 25. þ. m. kl. 1—3 síðd. jjf
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama
dag.
Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer í tilboði.
Sölunefnd varnarliðseigna.
mnmmminininiminnminiiiinimnimirniiiiniinniiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini—
Vinnið ötullega að útbreiðslu TÍMANS